Morgunblaðið - 26.08.2020, Page 1
Vel hefur viðrað til sólbaða víða um land að
undanförnu. Fáar strendur eru í boði til að flat-
maga undir sólinni. Austurvöllur er eftirsóttur
staður sólardýrkenda, þar sem fjölmargir mæta
með teppi og baða sig í sólinni, líkt og Dagný
Harðardóttir gerði í vikunni, með bros á vör.
Morgunblaðið/Eggert
Sólin sleikt á Austurvelli
M I Ð V I K U D A G U R 2 6. Á G Ú S T 2 0 2 0
Stofnað 1913 200. tölublað 108. árgangur
UNITY
SOFTWARE
Á MARKAÐ
VÖLLURINN VÍKUR
JAZZHÁTÍÐ
REYKJAVÍKUR
HEFST Á LAUGARDAG
UMDEILT VIÐ ÍSAKSSKÓLA 6 30 ÁRA AFMÆLI 24VIÐSKIPTAMOGGINN
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Innlend ferðaþjónusta verður
með öðruvísi sniði í vetur. Fjöl-
margir þjónustuaðilar verða með
skerta starfsemi eða loka henni al-
gjörlega. Á sama tíma er víða unnið
að því að stilla strengina fyrir þá Ís-
lendinga sem vanir eru að ferðast
erlendis en munu nú halda sig
innanlands.
Hótelrekendur segjast vonast til
þess að landinn muni renna hýru
auga til þess að skipta út hefð-
bundnum helgarferðum til útlanda
og noti tækifærið til þess að heim-
sækja landsbyggðina. Ýmiss konar
afþreying verður í boði. »12
Ljósmynd/Mikael Sigurðsson
Ferðavetur Við Hótel Sigló á Siglufirði.
Búa sig undir innan-
landsferðalög í vetur
Aðstæður á bráðamóttöku hafa
aldrei verið verri, að sögn læknis
sem þar starfar. Hann telur að
heilbrigðiskerfið hafi frekar veikst
síðan smit kórónuveiru fóru að
breiðast út hérlendis en styrkst,
þrátt fyrir að heilbrigðisyfirvöld
hafi ætlað að styrkja heilbrigð-
iskerfið eftir fyrstu bylgju farald-
ursins hérlendis svo það væri bet-
ur búið undir frekari átök við
veiruna.
Læknirinn, Vilhjálmur Ari Ara-
son, hefur áhyggjur af smithættu
á biðstofum Landspítalans, þá sér-
staklega á biðstofu bráðamóttöku
sem er nú aðeins ein, í stað
tveggja fyrir faraldur. Tilbúin
COVID-legudeild er aftur á móti á
efri hæðinni en af þeim sökum er
þrengt að bráðamóttöku, að sögn
Vilhjálms. » 4
Kerfið frekar veikst
en styrkst í faraldri
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Velta innlendra greiðslukorta í
gistiþjónustu jókst um 1,5 milljarða
króna fyrstu sjö mánuði ársins,
þrátt fyrir samkomubann í vor.
Skýringin er því að líkindum aukin
ferðalög innanlands. Það dugar þó
skammt fyrir hótelhaldara, en er-
lenda kortaveltan hefur dregist
saman um 22,6 ma. í gistiþjónustu.
Að sama skapi hefur veitinga-
geirinn orðið fyrir gífurlegu höggi.
Velta erlendra korta hefur þar
dregist saman um 10,5 milljarða og
velta innlendra korta um ríflega
930 milljónir.
Mikil aukning í versluninni
Innlend kortavelta í verslun jókst
um 29,5 ma., en velta erlendra
korta í verslun dróst saman um 10,7
ma., skv. Rannsóknasetri versl-
unarinnar. Forstöðumaður þess
segist í samtali við ViðskiptaMogg-
ann telja verslunina munu fara í
fyrra horf að faraldri loknum.
Hamfarir í ferðaþjónustu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjárfesting Mörg hótel hafa verið
byggð á Íslandi á síðustu árum.
Yfir 30 milljarða samdráttur í gisti- og veitingaþjónustu
Lilja Björk
Einarsdóttir,
bankastjóri
Landsbankans,
segir aukna fjar-
vinnu vegna kór-
ónuveirunnar
ekki hafa leitt til
endurmats á
ávinningi af
nýjum höfuð-
stöðvum. Enda sé
verið að hanna hús sem geri þegar
ráð fyrir breyttum starfsvenjum.
Huga þurfi að öryggi, enda unnið
með viðkvæmar trúnaðarupplýs-
ingar. »Viðskiptamogginn
Faraldurinn ekki
kallað á endurmat
Lilja Björk
Einarsdóttir
Stefán Einar Stefánsson
ses@mbl.is
Icelandair Group fékk engar skuldir
afskrifaðar í umfangsmikilli samn-
ingalotu við lánardrottna sína í sum-
ar. Bogi Nils Bogason segir að félag-
ið muni vera í sterkri stöðu ef
hlutafjárútboð, sem stefnt er að í
september, heppnast vel. Þar er ætl-
unin að safna allt að 23 milljörðum.
Þannig muni farsæl niðurstaða í
fyrrnefndum samningum m.a. gera
Icelandair að eftirsóttum mótaðila
þegar kemur að kaupum á flugvélum
eða fjármögnun félagsins. Bendir
hann á að Icelandair hafi farið allt
aðra leið en Norwegian sem hafi
breytt skuldum í hlutafé. Það hafi
skýrst af því að skuldir norska fé-
lagsins hafi verið fólgnar í vanskilum
og óveðtryggðum pappírum. Því hafi
ekki verið til að dreifa hjá Icelandair
Group og samningsstaða lánar-
drottna því allt önnur.
Í ítarlegu viðtali í ViðskiptaMogg-
anum í dag fer Bogi Nils yfir áætl-
anir þær sem nú hafa verið teiknaðar
upp og miða að því að koma félaginu
á beina braut að nýju. Segir hann
ýmis tækifæri felast í umrótinu á
markaðnum nú um stundir. Slíkt
ástand hafi oft nýst Icelandair og
það muni gerast aftur, ef rétt er
haldið á spilum.
Nýtt frumvarp til fjáraukalaga
var birt í gærkvöldi. Samkvæmt því
mun Icelandair greiða 37,5 milljóna
króna grunngjald til ríkisins á ári,
fyrir að halda lánalínu opinni þeirra
á milli. Ofan á þá greiðslu bætist
notkunarálag, sem samkvæmt frum-
varpinu tekur mið af því hversu hátt
lánalínurnar eru ádregnar.
Ekkert afskrifað í ferlinu
Engar skuldir voru afskrifaðar í fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair
Forstjórinn segir að með hlutafjárútboði verði staða félagsins sterk í samkeppni