Morgunblaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 24
VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við stóðum frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort við ættum að aflýsa eða taka slaginn. Eftir að hafa legið lengi undir feldi varð það niðurstaða okkar að halda Jazzhátíð Reykjavík- ur í ár þrátt fyrir þær samkomu- takmarkanir sem gilda,“ segir Jón Ómar Árnason, framkvæmdastjóri og listrænn stjórnandi Jazzhátíðar Reykjavíkur 2020. Jazzhátíð Reykjavíkur, sem fagnar 30 ára starfsafmæli í ár, hefst laugardag- inn 29. ágúst og stendur til 5. september. Að sögn Jóns Ómars var skipu- lagning hátíðar- innar í ár þegar hafin þegar kórónuveirufaraldurinn braust út fyrr á árinu. „Við vorum þá þegar búin að bóka nokkra erlenda listamenn, en biðum með að bóka fleiri þar til staðan myndi skýrast. Markmiðið var að beina kastljós- inu í miklum mæli að innlendum flytjendum en auk þess að bjóða upp á heimsþekkta erlenda listamenn, því frá upphafi hefur hátíðin í senn verið uppskeruhátíð íslenskra djass- tónlistarmanna sem og vettvangur til þess að kynna það besta sem er að gerast á sviði djasstónlistar á alþjóð- legum vettvangi. Við bundum því miklar vonir við að hægt yrði að taka á móti þessum erlendu gestum frá bæði Evrópu og Bandaríkjunum, en það breyttist þegar hertari aðgerðir við landamærin voru teknar upp fyrr í mánuðinum,“ segir Jón Ómar og tekur fram að í staðinn verði íslenskri djasstónlist gert sér- staklega hátt undir höfði á þessu af- mælisári hátíðarinnar. Samstillt átak margra „Við fylgjum að sjálfsögðu í hví- vetna öllum fyrirmælum sóttvarna- yfirvalda um fjöldatakmarkanir og fjarlægðarmörk þannig að tveggja metra reglan sé virt. Það þýðir að aðeins verða í boði um 90 til 100 mið- ar á hverja tónleika. Alls verða yfir 30 viðburðir á dagskrá þar sem sam- tals koma fram um hundrað lista- menn,“ segir Jón Ómar og tekur fram að nokkrir listamenn komi fram oftar en einu sinni á hátíðinni. „Vegna 30 ára afmælisársins langaði okkur að reyna að bjóða upp á að minnsta kosti jafnmarga viðburði og árin sem hátíðin hefur verið haldin og það er að verða að veruleika,“ segir Jón Ómar og bendir á að vegna kórónuveirufaraldursins verði í ár ekki hægt að bjóða upp á djass- göngu í upphafi hátíðar líkt og venj- an hafi verið síðustu árin þar sem skipuleggjendur geti ekki tryggt fjarlægðartakmarkanir úti við. „Vegna fjarlægðarmarka urðum við einnig að skipta út tónleikastöð- um,“ segir Jón Ómar og bendir á að upphaflega hafi verið ætlunin að halda nokkra tónleika í Mengi og Tjarnarbíói. „Nú erum við að miklu leyti komin inn í Hörpu auk þess að vera í Fríkirkjunni, Tjarnarsal Ráð- hússins og Kirkju Óháða safnaðar- ins,“ segir Jón Ómar. Spurður hvort hátíðin geti staðið undir sér með svo takmörkuðu miðaframboði í jafn- dýru húsnæði og Harpa venjulega er svarar Jón Ómar: „Þegar það þarf að gera átak til að framkvæma eitt- hvað þá er það oft þannig að það koma margir aðilar að borðinu. Í þessu tilviki er um að ræða samstillt átak Jazzhátíðar, Reykjavíkur- borgar, Hörpu og svo auðvitað tón- listarfólksins en fyrir hlutum við styrk frá Tónlistarsjóði líkt og fyrri ár,“ segir Jón Ómar. Hátíðin hefst á fæðingardegi Charlie Parker Spurður hvað beri hæst á kom- andi hátíð nefnir Jón Ómar að svo skemmtilega vilji til að hátíðin í ár hefjist á fæðingardegi Charlie Par- ker, þ.e. 29. ágúst. „Charlie Parker hefði orðið 100 ára í ár væri hann enn á lífi. Í tilefni dagsins bjóðum við upp á heiðurstónleika í Norður- ljósum kl. 19.30 þar sem Sigurður Flosason fer fyrir einvalaliði bæði úr klassíska og djassgeiranum. Hljóm- sveitin mun flytja lög af plötum Par- kers frá 1950 sem bera titilinn Char- lie Parker with Strings. Þessar skífur voru þær vinsælustu sem Par- ker gaf út og voru þær teknar inn í Grammy Hall of Fame árið 1988,“ segir Jón Ómar og bendir á að dag- skrá ársins sé „afar glæsileg, þó ég segi sjálfur frá. Markmiðið í upphafi var að spanna breitt svið innan djasstónlistarinnar og huga að jafn- ara hlutfalli kynja í hópi flytjenda. Konur eru í forsvari á mörgum tón- leikanna,“ segir Jón Ómar og nefnir í því samhengi tónleika Ingibjargar Turchi bassaleikara sem fram fara í Flóa Hörpu fimmtudaginn 3. sept- ember kl. 20.45; tónleika Þórdísar Gerðar sellóleikara sem flytur tón- list eftir Kurt Weill í Fríkirkjunni miðvikudaginn 2. september kl. 19.30 og útgáfutónleika Hafdísar Bjarnadóttur og Parallax í Flóa sunnudaginn 30. ágúst kl. 20.45. „Það á eftir að koma í ljós hvernig þeir tónleikar verða útfærðir, því við vitum ekki enn hvort norska spuna- djasshljómsveitin Parallax komist til landsins. Ef þeir komast ekki verður samt boðið upp á flutning þeirra í hljóð og mynd sem Hafdís mun spila við. Við þurfum bara að hugsa í lausnum, enda býður ástandið ekki upp á neitt annað. Við reynum því okkar besta til að lyfta andanum,“ segir Jón Ómar og tekur fram að tónleikar Hafdísar eru einir af þrennum útgáfutónleikum á hátíð- inni í ár. Sterk og jákvæð viðbrögð „Á opnunardegi hátíðarinnar slær Tómas R. Einarsson bassaleikari upp latínballi í Norðurljósum Hörpu kl. 20.45 til að fagna útgáfu plötu með úrvali laga frá tónleikum sem hann hélt í Dölunum árið 2014 og voru uppistaðan í heimildarmynd- inni Latínbóndinn sem frumsýnd var 2015,“ segir Jón Ómar, en með Tómasi kemur fram níu manna hljómsveit sem spilar þekktustu lat- ínlög Tómasar. „Á lokakvöldi hátíð- arinnar 5. september heldur svo Agnar Már Magnússon píanóleikari tónleika í Norðurljósum kl. 20.45 í tilefni af útkomu plötunnar Mór,“ segir Jón Ómar. „Af öðrum tónleikum má nefna að Óskar Guðjónsson saxófónleikari og Skúli Sverrisson bassaleikari koma nú fram sem dúó í fyrsta sinn á Jazzhátíð Reykjavíkur,“ segir Jón Ómar og vísar þar til tónleika þeirra sem fram fara í Flóa sunnudaginn 30. ágúst kl. 22. „Tónleikar Frelsis- sveitar Íslands með frumflutningi á nýju efni eftir Hauk Gröndal fara fram í Flóa föstudaginn 4. sept- ember kl. 22. Tónleikar Unnar Birnu og Björns Thoroddsen ásamt hljóm- sveit fara fram í Flóa þriðjudaginn 1. september kl. 20.45. Svo má ekki gleyma eina erlenda gesti Jazzhátíð- ar í ár, en það er franski píanósnill- ingurinn Romain Collin, en hann heldur einleikstónleika í Fríkirkj- unni mánudaginn 31. ágúst. Vert er að taka fram að það eru hádegistón- leikar og hefjast þeir á slaginu kl. 12,“ segir Jón Ómar. Aðspurður segir Jón Ómar að að- eins verði örfáir hátíðarpassar í boði þetta árið sem helgast af því hversu fá sæti eru í boði. „Þrátt fyrir þá óvissu sem ríkt hefur út af ástandinu hefur miðasalan farið vel af stað, sem er ánægjulegt,“ segir Jón Ómar og bendir á að nær uppselt sé orðið á tónleika opnunardagsins. „Við finn- um sterklega fyrir uppsafnaðri þörf meðal almennings að komast á tón- leika. Við höfum fengið sterk og já- kvæð viðbrögð frá fólki sem fagnar því að Jazzhátíð Reykjavíkur verði haldin í ár með þeim takmörkunum sem nauðsynlegar eru,“ segir Jón Ómar og tekur fram að í ár verði engin skörun á tónleikum og því geti áhugasamir sótt alla tónleika hátíð- arinnar ef því er að skipta. Dagskrá hátíðarinnar má kynna sér í heild sinni á vefnum reykjavik- jazz.is/dagskra/. „Afar glæsileg“ dagskrá  Jazzhátíð Reykjavíkur fagnar 30 ára starfsafmæli í ár  Hátíðin hefst 29. ágúst og stendur til 5. september  Aðeins verða 90 til 100 miðar í boði á hverja tónleika  Aðeins einn erlendur gestur Bassaleikari Ingibjörg Turchi kemur fram í Hörpu 3. september. Mór Agnar Már Magnússon heldur útgáfutónleika í Hörpu 5. september. Latínbóndi Tómas R. Einarsson slær upp latínballi í Hörpu 29. ágúst. Selló Þórdís Gerður heldur tónleika í Fríkirkjunni 2. september. Jón Ómar Árnason 24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2020 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Hvítrússneski rannsóknarblaðamað- urinn, rithöfundurinn og sagnfræðing- urinn Svetlana Aleksijevitj, sem hlaut Bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2015, hefur verið kölluð til yfirheyrslu í Hvíta-Rússlandi vegna gagnrýni sinn- ar á nýkjörinn forseta landsins. Í frétt AFP um málið kemur fram að Aleksijevitj sé meðlimur breytinga- ráðs sem stjórnarandstaðan stofnaði í kjölfar þeirra miklu mótmæla sem ríkt hafa í landinu síðan Alexander Lúka- sjenkó var endurkjörinn forseti fyrr í þessum mánuði. Samkvæmt Dagens nyheter voru tveir aðrir aðilar ráðs- ins handteknir á mánudag og kærðir fyrir að hafa reynt að skipuleggja mótmæli í verksmiðju í Minsk. Aleksij- evitj hefur verið óhrædd við að gagnrýna Lúkasjenkó og hvatt hann til að segja af sér. Í viðtali við Svaboda.org. sagði hún meðal annars: „Segðu af þér áður en það verð- ur of seint, áður en þú steypir íbúum landsins í hyldýp- ið.“ Aleksijevitj hefur heldur ekki farið dult með stuðn- ing sinn við Svetlönu Tíkhanovskaju, fulltrúa stjórnarandstöðunnar, sem bauð sig fram í nýafstöðnum forsetakosningum. Svetlana Aleksijevitj Nóbelsverðlaunahafinn Aleksijevitj tekin til yfirheyrslu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.