Morgunblaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2020 Við höfnina Vaskur maður vann við bát í Reykjavíkurhöfn í veðurblíðunni í gær. Veðrið hefur leikið við borgarbúa síðustu daga og hefur fólk verið duglegt við að nýta síðustu sumardagana. Árni Sæberg Öll höfum við orðið fyrir skakkaföllum, beint eða óbeint, vegna þeirra efnahagsþreng- inga sem gengið hafa yfir heiminn vegna kórónuveirufaraldurs- ins. En byrðarnar eru misþungar – þyngstar hjá atvinnurekendum og launafólki á al- mennum vinnumark- aði, ekki síst í ferðaþjónustu. Heil- brigðar forsendur fyrir rekstri margra fyrirtækja hafa brostið og við mörgum blasir ekki annað en gjaldþrot. Launafólk hefur orðið fyrir tekjumissi og margir eru án vinnu. Sveitarfélög glíma við erf- iðleika, sum alvarlega. Ríkissjóður hefur þurft að mæta samdrætti – útgjöld aukist og tekjur lækkað. Á örfáum mánuðum hefur staða efna- hagsmála gjörbreyst til hins verra. Í stað hagvaxtar er samdráttur. Ríkissjóður safnar skuldum í stað þess að greiða líkt og gert hefur verið á síðustu árum. Reiknað er með því að halli á ríkissjóði (A-hluta) verði um 10% af vergri landsframleiðslu á þessu ári og um 8% á því næsta. Samtals verða gjöld ríkissjóðs umfram tekjur, að öðru óbreyttu, því um 18% af landsframleiðslu eða rúm- lega 500 milljarðar króna á tveimur árum. Þetta er lítillega lægri fjár- hæð en nemur raunhækkun út- gjalda hins opinbera á síðustu tutt- ugu árum. Öllum má vera ljóst að forsendur gildandi fjármálastefnu eru brostn- ar og því nauðsynlegt að breyta henni í samræmi við nýjan veru- leika. Á grunni fjármálastefnunnar verða fjárlög fyrir komandi ár lögð fram á nýju þingi í október næst- komandi. Bjarni Benediktsson, fjár- mála- og efnahagsráðherra, mælir fyrir tillögu að breytingum á stefn- unni á morgun, fimmtudag. Í grein- argerð segir að markmið fjár- málastefnunnar á komandi árum sé „að veita hagkerfinu stuðning til þess að það geti náð vopnum sínum að nýju, styðja við þau heimili og fyrirtæki sem verða fyrir alvar- legum búsifjum vegna áhrifa heimsfaraldurs- ins og koma í veg fyrir að mikið atvinnuleysi festist í sessi“. Stefnan í ríkisfjármálum leggst þannig á sömu sveif og peningastefnan. „Þess- um stuðningi verður viðhaldið þar til at- vinnustigið hefur hækkað markvert. Að- gerðum ríkissjóðs er ætlað að styðja við vaxtargetu hagkerfisins, m.a. með stóraukinni fjárfestingu. Leit- ast verður við að vernda þann ár- angur sem náðst hefur í velferðar- og heilbrigðismálum. Eftir sem áður þarf að tryggja að hagkerfið geti staðið undir framúrskarandi þjón- ustu.“ Að þessu leyti er stefna ríkis- stjórnarinnar skýr og afdráttarlaus. Þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til á undanförnum mánuðum til að milda áhrif alvarlegs sam- dráttar hafa í flestu verið skyn- samar og skilað árangri. Markvissar aðgerðir Seðlabankans hafa skipt fyrirtæki og heimili miklu. Leiða má rök að því að ríkisfjármál og pen- ingamál hafi unnið betur saman á síðustu mánuðum en nokkru sinni áður. Áskoranir komandi ára Ríkissjóður hefur haft bolmagn til að takast á við samdráttinn. Hröð niðurgreiðsla skulda á síðustu árum hefur verið forsenda þess að hægt hefur verið að beita ríkisfjármálum af skynsemi. Ég hef haldið því fram að allt frá 2013 hafi bóndinn í fjár- málaráðuneytinu verið duglegur að safna korni í hlöður til að mæta mögrum árum. Hann hafi ekki fallið í þá freistingu að eyða búhnykk og hvalrekum aðeins í stundargaman og pólitískar vinsældir. Ekki verður hins vegar séð að hallarekstur ríkisins hafi dregið úr kröfum um aukin útgjöld. Kröf- urnar eru til staðar líkt og ríkið sé uppspretta verðmæta og velmeg- unar. Þeir eru fáir (eða að minnsta kosti ekki háværir) sem beina sjón- um að meðferð opinbers fjár – spyrja hvort samhengi sé á milli aukinna útgjalda og bættrar op- inberrar þjónustu. Í velgengni síð- ustu ára hefur sinnuleysi náð að festa rætur og við leyft okkur þann munað að líta á hagkvæma ráð- stöfun og meðferð sameiginlegra fjármuna sem aukaatriði. Og aukn- ing útgjalda hefur orðið mælikvarði á pólitíska frammistöðu einstakra þingmanna og stjórnmálaflokka. Áskoranir í rekstri hins opinbera á komandi mánuðum felast ekki í auknum ríkisútgjöldum heldur í betri og hagkvæmari nýtingu sam- eiginlegra fjármuna. Þetta á jafnt við um ríkið og sveitarfélögin. Hundruð milljarða aukning útgjalda hins opinbera og ríkisins sér- staklega er ekki vísbending um að skortur sé á peningum í fjárkist- urnar heldur fremur merki um ómarkvissa nýtingu þeirra. 1,5 milljarðar á hverjum degi Rekstur hins opinbera [ríkis og sveitarfélaga] kostaði nær 47 millj- örðum króna meira í hverjum mán- uði á síðasta ári en árið 2000, á föstu verðlagi. Þetta jafngildir rúmlega 1,5 milljörðum á hverjum einasta degi, helgidaga sem virka. Í heild var rekstrarkostnaður 2019 um 560 milljörðum króna hærri og þar af var launakostnaður um 195 milljörðum meiri en alda- mótaárið. Raunhækkun kostnaðar var liðlega 87% á þessum tuttugu árum. Launakostnaður hækkaði um 86%. Rekstrarkostnaður ríkisins hækkaði að raungildi um nær 387 milljarða, þar af laun um 209 millj- arða. Sé litið til fjölgunar íbúa hækkaði rekstrarkostnaður hins opinbera á hvern landsmann um rúmlega 46% á föstu verðlagi. Hækkunin á hverja fjögurra manna fjölskyldu var tæp- ar 4,3 milljónir króna eða um 355 þúsund á mánuði. Aldamótaárið nam rekstrarkostnaðurinn um 9,2 milljónum á hverja fjölskyldu en á síðasta ári var kostnaðurinn kominn upp í 13,4 milljónir króna eða liðlega 1,1 milljón á mánuði. Launakostn- aður á hverja fjölskyldu hækkaði á þessum tveimur áratugum um nær 1,5 milljónir á föstu verðlagi. Í raun skiptir engu hvaða tölur um útgjöld hins opinbera eru skoð- aðar. Sameiginlegur kostnaður landsmanna hefur hækkað gríðar- lega á síðustu áratugum. Aukning útgjalda getur verið nauðsynleg og skynsamleg s.s. í uppbyggingu heil- brigðiskerfisins, þar sem verið er að tryggja aðgengi sjúkratryggðra – okkar allra – að nauðsynlegri þjón- ustu. En jafnvel innan heilbrigðis- kerfisins eru fjármunir ekki nýttir eins og best verður á kosið. Fram- lög til almannatrygginga hafa stór- aukist og hið sama á við um menntakerfið. Hver og einn verður að svara því hvort þjónusta hins opinbera – ríkis og sveitarfélaga – hafi batnað í sam- ræmi við aukin útgjöld. Velta því fyrir sér hvort við sem velferðar- þjóð höfum efni á þessu öllu, eða hvort tækifærin felist ekki síst í bættri nýtingu fjármuna og endur- skipulagningu ríkisrekstrar. Eftir Óla Björn Kárason »Rekstur hins opin- bera kostaði nær 47 milljörðum króna meira í hverjum mánuði á síð- asta ári en árið 2000, á föstu verðlagi. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Höfum við efni á þessu öllu? Rekstrarkostnaður ríkisins og hins opinbera Rekstrarkostnaður árið 2000 og 2019* Vísitala rekstrarkostnaðar hins opinbera 2000 til 2019* 1.000 750 500 250 0 180 160 140 120 100 1.200 900 600 300 0 Rekstrarkostnaður án launa Laun 2000 2019 Rekstrarkostnaður ríkisins 2000 2019 Rekstrarkostnaður hins opinbera '00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 Milljarðar kr. á föstu verðlagi 2019 Vísitala 2000=100, á föstu verðlagi 2019 * Óregluleg útgjöld hafa verið tekin út til að fá gleggri mynd af þróun útgjalda. Þannig er 192,2 milljarða króna yfi rtaka ríkissjóðs 2008 á töpuðum kröfum vegna veðlána Seðlabankans ekki meðtalin. Horft er fram hjá færslu ríkissjóðs til A-hluta LSR upp á 105,1 milljarð króna árið 2016. Þá er 32 milljarða framlag sveitarfélaga til Brúar lífeyrissjóðs 2017 ekki meðtali ð. Árið 2011 færðust málefni fatlaðra til sveitarfélaga. Heildartilfærsla tekjustofna var upp á 10,7 milljarða króna vegna þjónustu við nærri 2.500 einstaklinga, auk þess sem nær 1.500 starfsmenn í rúmlega 1.000 stöðugildum fl uttust yfi r til sveitarfélaganna. Heimild: Hagstofa Íslands. +78,7% +87,4%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.