Morgunblaðið - 26.08.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2020
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Sam Edelman
26.990 kr.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Vinnuskjalið fundið og birt
Vistað utan hefðbundins skjalakerfis Helgi og Samherji ósammála um gildi
Vinnuskjal Verðlagsstofu skiptaverðs um karfa-
viðskipti Samherja er nú komið í leitirnar. Sam-
herji birti skjalið í gærmorgun og sagði í færslu
á vef fyrirtækisins að ekkert í því styðji „þær
ásakanir sem settar voru fram á hendur Sam-
herja í Kastljósi“. Skjalið var grundvöllur um-
fjöllunar Kastljóss árið 2012 um meint brot Sam-
herja á þágildandi gjaldeyrislögum.
Helgi Seljan, fréttamaður RÚV sem Samherji
sakaði um að hafa átt við umrætt skjal, segir að
hið sama hafi komið fram í skjalinu og í Kast-
ljósi.
Í færslu Samherja sem birt er með skjalinu
tekur fyrirtækið það fram að um sé að ræða
„óundirritað og ódagsett vinnuskjal um karfaút-
flutning án efnislegrar niðurstöðu“, og ekki
skýrslu.
Skjalið fjallar um útflutning Samherja á karfa
árin 2008 og 2009. Telja forsvarsmenn Samherja
að skjalið veiti upplýsingar sem „ganga alvarlega
í berhögg við umfjöllun og niðurstöðu þáttarins“.
Þá eru þáttagerðarmenn Ríkisútvarpsins sagðir
hafa sleppt því að birta umræddar upplýsingar
og er staðhæft að skjalið sýni að „aðeins lítill
hluti umrædds útflutnings á karfa [hafi verið]
veiddur af skipum Samherja“.
SÍ hefur gögnin enn undir höndum
Í beinu framhaldi af birtingu vinnuskjalsins
sendi Verðlagsstofa skiptaverðs frá sér yfirlýs-
ingu þar sem sagt er að við leit að gögnum hafi
fundist vinnuskjal sem unnið var af starfsmanni
sem lét af störfum 2010, en að það hafi verið
vistað utan hefðbundins skjalakerfis.
Helgi segir í samtali við mbl.is að í skjalinu
hafi útflutningur á óunnum karfa sem fluttur var
til Þýskalands milli fyrirtækja verið borinn sam-
an. „Samkvæmt þessari skoðun var Samherji að
greiða lægstu verðin, en þeir voru að selja sjálf-
um sér aflann. Ég veit ekki hvað hefði þurft að
vera skýrara eða hvað er óskýrt í því. Nákvæm-
lega það sem var sagt í þættinum er auðvitað
það sem kemur fram í skjalinu.“
Seðlabanki Íslands (SÍ) gerði húsleit í skrif-
stofum Samherja árið 2012 vegna gruns um að
fyrirtækið hafi brotið gjaldeyrislög. SÍ staðfestir
í skriflegu svari við fyrirspurn Morgunblaðsins
að bankinn hafi fengið afhent gögn frá frétta-
manni RÚV árið 2012, þar á meðal gögn frá
Verðlagsstofu skiptaverðs. SÍ hefur gögnin enn
undir höndum.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Kaþólskt munkaklaustur sem til stóð
að reisa í landi Skógræktarfélags Ís-
lands að Úlfljótsvatni fyrir nokkrum
árum er ekki lengur á dagskrá. Þetta
staðfestir Brynjólfur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins.
Fyrir um sex árum kom fram í fjöl-
miðlum að til stæði að ganga frá
langtímasamningi á milli
Skógræktarfélagsins og kaþólsku
kirkjunnar um munkaklaustur að
Úlfljótsvatni. Það átti að vera ann-
exía frá aldagömlu klaustri Bene-
diktsmunka í Normandí í Frakk-
landi. Komu þrír fulltrúar
klaustursins hingað til lands, þar á
meðal ábótinn, og könnuðu stað-
hætti. Normandí-klaustrið rekur eitt
slíkt útibú í Kanada. Brynjólfur segir
að Pétur Bürcher, sem var biskup
kaþólikka hér á landi frá 2007 til
2015, hafi verið mjög áhugasamur
um málið. Hann lýsti yfir þessum
áformum í hirðisbréfi til safnaðarins í
febrúar 2014. Kvaðst hann vilja koma
á fót klaustri fyrir karlmenn, helst af
Benedikts- eða Ágústínusarreglu, og
benti á að þær reglur hefðu ráðið yfir
nokkrum klaustrum á Íslandi á mið-
öldum. Stórt land með húsakosti og
upphitaðri kirkju væri þegar fundið
að Úlfljótsvatni. Biskup gat þess
ennfremur í hirðisbréfinu að liðinn
væri aldarfjórðungur frá heimsókn
Jóhannesar Páls páfa til Íslands og
kross sem minnti á heimsókn hans
stæði að Úlfljótsvatni.
Síðan þetta var hefur nýr biskup
tekið við kaþólska söfnuðinum á Ís-
landi og hann hefur að sögn Brynj-
ólfs ekki sýnt málinu áhuga. Þá hafi
breyttar aðstæður í klaustrinu í
Normandí fyrir nokkrum árum ekki
orðið til þess að greiða götu málsins.
Málið sé því ekki lengur á dagskrá.
Kirkjan missti áhugann
Munkaklaustur að Úlfljótsvatni ekki lengur á dagskrá
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Úlfljótsvatn Krossinn var reistur í
tilefni af heimsókn páfa 1989.
„Uppbygging
kjarnorkuvera er
eitt af því sem
sum ríki hafa kos-
ið að gera til að
draga úr losun
gróðurhúsa-
lofttegunda, og
það sjónarmið skil
ég svo sem, en
maður óttast allt-
af þessi mögulegu
neikvæðu áhrif, á þessum stað sem og
öðrum,“ segir Guðmundur Ingi Guð-
brandsson umhverfisráðherra.
Eins og kom fram í Morgunblaðinu
í gær var íslenskum stjórnvöldum
boðið að senda inn athugasemdir við
umhverfismatsferli vegna áforma um
rekstur á 3.340 MW kjarnorkuveri á
austurströnd Englands. Skipulags-
stofnun svaraði og taldi framkvæmd-
ina ekki valda miklum umhverfis-
áhrifum hér við land.
„Skipulagsstofnun ber lögum sam-
kvæmt að taka þessa ákvörðun og
niðurstaða stofnunarinnar var að
ekki væri þörf á þátttöku Íslands.
Stofnunin bendir hins vegar líka á að
ef yrði meiriháttar slys gæti það haft
áhrif á lífríki hafsins umhverfis Ís-
land og að umhverfismatið þyrfti að
taka á slíku. Ég tek undir þessa
ábendingu stofnunarinnar,“ segir
Guðmundur Ingi enn fremur.
Óttast alltaf
neikvæðu
áhrifin
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Sammála mati
Skipulagsstofnunar
Alvarleg líkamsárás var framin í
Vestmannaeyjum á þriðja tímanum
aðfaranótt þriðjudags. Ráðist var á
mann á fertugsaldri með einhverju
áhaldi og hlaut hann alvarlega
áverka. Sá kannaðist ekki við árás-
armanninn, sem var með andlitið
hulið. Skv. lögreglu er árásarmað-
urinn um 190 sm að hæð, grannvax-
inn og líklega dökkklæddur.
Alvarleg líkamsárás
Ein af úrslitamyndum í veðurljósmyndakeppni
bresku veðurfræðistofnunarinnar Royal Me-
teorological Society er tekin í Dyrhólaey af rúss-
neska ljósmyndaranum Mikhail Shcheglov.
Myndin er tekin að kvöldi til, andartaki áður
en stormur brast á. Hún er einnig gjaldgeng í
flokki sem almenningur velur sigurvegarann í
og er hægt að kjósa mynd á vefsíðunni
www.photocrowd.com/wpotyvote.
Lognið á undan storminum
Ljósmynd/Mikhail Shcheglov
Ljósmynd frá Dyrhólaey í úrslitum alþjóðlegrar samkeppni
Tekjur Símans á öðrum ársfjórð-
ungi námu 7.276 m.kr samanborið
við 7.115 m.kr. á sama tímabili í
fyrra, skv. uppgjöri Símans. Hagn-
aður fyrirtækisins var 83 m.kr. á
þessum ársfjórðungi en 789 m.kr. á
sama fjórðungi 2019.
500 m.kr. stjórnvaldssekt var
gjaldfærð vegna ákvörðunar Sam-
keppniseftirlitsins, sem hefur nei-
kvæð áhrif á afkomu fjórðungsins.
Ákvörðunin hefur verið kærð.
7.276 milljóna tekjur