Morgunblaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 15
MINNINGAR 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2020
✝ Magnús GísliArnarson fædd-
ist í Reykjavík 10.
desember 1980.
Hann lést 6. ágúst
2020. Foreldrar
hans eru Örn Ís-
leifsson flugmaður,
f. 7. ágúst 1956, og
Guðrún Þóra Magn-
úsdóttir verslunar-
maður, f. 14. janúar
1956. Bróðir Magn-
úsar Gísla er Ólafur Örn Arn-
arson, myndlistarmaður og gall-
eristi, f. 13. júlí 1976, búsettur í
Berlín. Sambýlismaður Magn-
úsar Gísla var Tómas M. Tóm-
skólanum NTV 2009. Síðar lauk
Magnús meiraprófi og aflaði sér
starfsréttinda til aksturs flutn-
inga- og olíubíla. Samhliða námi
starfaði hann á veitingahúsinu
Café 22 og hjá íþróttamiðstöð-
inni í Grafarvogi. Þá tóku við
störf hjá BBS-bókadreifingu,
verslunarkeðjunni 11-11 og
veitingastaðnum Obladi-Oblada.
Samhliða öðrum störfum hann-
aði Magnús auglýsingaspjöld fyr-
ir ýmsar hljómsveitir. Frá árinu
2016 starfaði Magnús sem at-
vinnubílstjóri, fyrst hjá Hópbíl-
um. Þar starfaði hann sem
strætisvagnastjóri og ók meðal
annars leiðina milli Reykjavíkur
og Hellu. Síðast starfaði hann hjá
Olíudreifingu við olíuflutninga.
Útför Magnúsar Gísla verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag,
26. ágúst 2020. Vegna aðstæðna
verða aðeins nánustu ættingjar
og vinir viðstaddir útförina.
asson tónlistar-
maður, f. 23. maí
1954, d. 23. janúar
2018.
Magnús ólst upp í
Vesturbænum,
gekk í Melaskóla og
Hagaskóla og lauk
stúdentsprófi frá
Kvennaskólanum í
Reykjavík 2001.
Hann lagði um
skeið stund á nám í
félagsfræði við Háskóla Íslands
og síðar í fjölmiðlafræði við Há-
skólann á Akureyri. Hann lauk
námskeiði í kerfisstjórnun frá
Nýja tölvu- og viðskipta-
Magnús Gísli Arnarson, bróð-
ursonur minn, er látinn langt um
aldur fram. Hann hefði orðið fer-
tugur 10. desember en hann fædd-
ist sama almanaksdag og föður-
amma hans, Ágústa
Jóhannsdóttir, móðir okkar
bræðra.
Maggi var hvers manns hug-
ljúfi. Bjart var yfir honum, brosið
fallegt og augun, hreinlyndur,
áreitnislaus, þægilegur og elsku-
legur alltaf þegar fundum okkar
bar saman. Hann var myndarleg-
ur maður og góðlegur.
Maggi var í miklu uppáhaldi
hjá foreldrum og fjölskyldu. Mjög
var kært með þeim bræðrum Óla
og Magga. Ekki er úr vegi að
nefna ömmurnar tvær, Ágústu
sem að ofan er getið og móður-
ömmuna Erlu Guðrúnu Sigurðar-
dóttur sem lést fyrr á þessu ári.
Maggi var skírður Magnús Gísli í
höfuðið á móðurafa sínum, Magn-
úsi Gísla Þórðarsyni.
Að Magga stóðu traustir ætt-
stofnar. Nefna má hinar kunnu
sunnlensku ættir Víkingslækj-
arætt, Bergsætt og ættir Síðu-
presta. Hann átti ættlegg aftur í
aldir í Vestmannaeyjum þar sem
fæddust og ólust upp föðurfor-
eldrar hans, Ágústa og Ísleifur A.
Pálsson.
Maggi gekk hefðbundna leið
ungmenna í Vesturbænum í
Reykjavík, í Melaskóla og Haga-
skóla og lauk stúdentsprófi frá
Kvennaskólanum í Reykjavík.
Hugur hans beindist að tölvum,
síðar fjölmiðlum og lagði hann
stund á nám í þessum efnum auk
þess sem hann stundaði um skeið
nám í félagsfræði við Háskóla Ís-
lands. Lauk hann námi í kerfis-
stjórnun við Nýja tölvu- og við-
skiptaskólann NTV. Síðar lauk
hann meiraprófi og aflaði sér
starfsréttinda sem flutningabíl-
stjóri og starfaði sem atvinnubíl-
stjóri síðustu árin.
Maggi var lestrarhestur og
áhugasamur um bókmenntir, ljóð-
list og kvikmyndir. Hann hafði
ánægju af ferðalögum og ferðaðist
víða um Evrópu. Hann hafði gam-
an af akstri og lagði sig fram um
að vera góður bílstjóri. Hann var
fjölhæfur og tók sér margt fyrir
hendur, þar á meðal ýmis hönn-
unarverkefni.
Við fráfall Magga koma í hug-
ann minningar um samverustund-
ir með honum og fjölskyldu hans.
Maggi átti traustan og góðan lífs-
förunaut í Tómasi M. Tómassyni.
Heimili þeirra stóð á Grettisgötu
og síðar Frakkastíg og má segja
þeir hafi sýnt í verki tryggð sína
við miðbæinn í Reykjavík. Maggi
tók mjög nærri sér andlát Tóm-
asar eftir skammvinn en erfið
veikindi hans.
Við fráfall Magga er þungur
harmur kveðinn að ástvinum hans
og vinum. Sárustu sorgina bera
Örn bróðir, Gunna og Óli bróðir
hans.
Við Jóhann bróðir, sonur minn
Páll Ágúst og tengdadóttir Karen
Lind færum ykkur, elsku Örn,
Gunna og Óli, okkar dýpstu og
innilegustu samúðarkveðjur.
Ég bið Guð að geyma Magga,
blessa minningarnar um hann og
vaka yfir og styrkja foreldra hans,
bróður og aðra syrgjendur. Minn-
ing um ljúfan og góðan dreng lifir.
Ólafur Ísleifsson.
Fallinn er frá góður og ljúfur
drengur sem við bekkjarsystkini
hans úr Kvennaskólanum í
Reykjavík syrgjum.
Það fór ekki mikið fyrir Magga
á menntaskólaárunum, en honum
fylgdi mildi og mennska sem gaf
þeim sem umgengust hann rými
til þess vera þau sjálf, óhrædd við
dóma annarra. Flestir sem hafa
verið á menntaskólaaldri vita
hversu mikill mannkostur það er í
fari félaga á þessum árum. Hann
hafði enga sérstaka þörf til að
trana sér fram og hjá honum var
engin uppgerð, heldur heiðarleiki
og hlýja sem yljaði. Hann vildi öll-
um vel, var ljúf manneskja og fal-
leg sál. Maggi var einstakur
stuðningsmaður að því leyti að
hann hélt með sínu fólki alveg
óháð því hvort hann vissi í hverju
kappið fólst hverju sinni. Blessun-
arlega fer var hann líka óspar á
breiða fallega brosið sitt, enda
gleðimaður sem var skemmtilegt
að umgangast.
Um leið og við vottum aðstand-
endum Magga innilega samúð,
vonum við að hann sé brosandi í
sumarlandinu með Tomma sínum
og Alexöndru kisunni þeirra.
Fyrir hönd bekkjarfélaga úr
4-F,
María Rún Bjarnadóttir.
Magnús Gísli
Arnarson
Nú er hann Ari
uppáhaldsfrændi
minn og föðurbróð-
ir horfinn úr þess-
ari jarðvist eftir
langa glímu við krabbamein.
Lengi vel hafði hann yfirhönd-
ina, bar sig vel, helst í hljóði,
kvartaði ekki en gekkst undir
hverja meðferðina af annarri í
von um lækningu. Þetta and-
styggðarmein allra meina lagði
hann að lokum allt of fljótt.
Við Ari fæddumst með
tveggja ára millibili og hann var
alltaf meiri vinur minn en föð-
urbróðir. Ég minnist æskudaga
okkar á Borgarholtsbrautinni,
Andrésblaðanna hans, segul-
bandstækisins, herbergisins
hans, hljóðfæranna og allra tón-
leika Hamrahlíðarkórsins þar
sem öll fjölskylda Ara hefur
sungið. Mannkostir Ara voru
eftirsóknarverðir. Brosmildur,
glaðlyndur, nægjusamur og
skemmtilegur húmoristi með
frjóa hugsun. Mildur hreinn
tónn fylgdi Ara og svo fjarri
honum að dæma mann og ann-
an eða eyða orku og tíma í fá-
nýti.
Miklu heldur vildi hann vera
til staðar fyrir sína, gjafmildur
á guðsgjafir sínar, listrænuna
en samt svo hógvær, húmorísk-
ur og góður alltaf. Ég minnist
líka hins einstaklega fallega
sambands sem mamma hans og
amma mín sjómannskonan áttu.
Ari Harðarson
✝ Ari Harðarsonfæddist 20.
ágúst 1957. Hann
lést 6. ágúst 2020.
Ari var jarð-
sunginn 20. ágúst
2020.
Hún eignaðist Ara
seint og hann var
augasteinninn
hennar og gleði-
gjafi, stoð og stytta
allt lífið.
Ari og Fríða lífs-
förunautur hans
voru afar samrýnd,
með sömu lífsgildi
og varla er minnst
á annað án þess að
nefna hitt. Mikill er
missir Fríðu og barnanna.
Stoltastur var hann af börnun-
um sínum og þau Fríða sköpuðu
skilyrði fyrir þau fjögur til góðs
þroska og að elta listræna
drauma sína.
Fylgdu þeim eftir og studdu í
því að ná þangað sem hugurinn
leitaði. Mannvænlegri og list-
rænni afkomendahóp er erfitt
að finna; arkitekt, tónskáld,
organisti/kantor og grafískur
hönnuður. Ari sjálfur var tón-
listarmaður, ljóðskáld, hönnuð-
ur, mataráhugamaður, veiði-
maður og rithöfundur, þótt ekki
væri hann einn af þeim sem
flugu með himinskautum.
Hann var vinmargur og
tryggur sínum og hafði unun af
því að bjóða heim og halda
veislur og fagna með börnum
og buru, vinum og fjölskyldu
þegar tækifæri eða tyllidagar
gáfust. Á hverju ári hringdi
hann í mig á afmælisdaginn:
„Til hamingju með afmælið
frænka!“ Hann hringdi líka
langlínusímtöl frá Boston þegar
fjölskyldan bjó þar á námsárun-
um fyrir tíma samfélagsmiðla til
að óska heilla á afmælisdaginn,
tryggur og trúr sínum. Ég er
glöð að ég skyldi segja honum í
okkar síðasta símtali hversu
vænt mér þætti um hann. Þakk-
aði honum hugulsemina og
ræktarsemina við mig og sím-
tölin sem komu eins og amenið í
kirkjunni hvern afmælisdag.
Mig grunaði síðustu mánuði
hvert stefndi en vonaði að hann
fengi lengri tíma. Ég get ekki
varist þeirri hugsun að núna
séu þeir frændur og rauðhausar
Ari og Kári Örn sonur minn
saman í sumarlandinu að skegg-
ræða, kannski taka lagið við gít-
arspil, hvar fallega rauða hárið
þeirra blaktir í golunni, sólin
leikur um vanga og eilíft sumar
varir. Annar að veiða en hinn að
spila golf á grænum lendum.
Báðir sáttir og sælir. Takk fyrir
allt og allt elsku Ari.
Fríða, Steinunn, Addi, Sóla
og Diddi. Ari verður í hjarta
okkar, í huga okkar og hjá okk-
ur að eilífu.
Erna Arnardóttir.
Í dag sendi ég hinstu kveðju
til Ara mágs míns.
Vegna strangra heimsóknar-
takmarkana síðustu dagana í lífi
Ara gátum við fjölskyldan og
vinir ekki heimsótt hann á spít-
alann eins og við vildum, svo ég
ákvað að senda honum kveðju í
bréfi. Hann var alltaf að reyna
að kenna okkur tengdafjöl-
skyldunni sinni að vera opnari
og einlægari og hló bara að
okkur þegar það gekk misvel,
svo ég hélt að hann myndi
kunna að meta bréfið.
Ég náði sem betur fer að
heimsækja hann og óska honum
góðrar ferðar yfir í næsta æv-
intýri. Bréfið gat ég ekki lesið
fyrir hann en læt fylgja hér
nokkrar línur úr því:
„Við Ísold erum að fara í
gegnum myndabankann fyrir
ferminguna hennar og þar sé ég
svo mikið af ljósmyndum af frá-
bærum stundum sem við höfum
átt saman í gegnum árin: Sum-
arbústaðaferðir í Selvík, útileg-
ur á Snæfellsnesi, ævintýraleg-
ar veiðiferðir og auðvitað
Veiðivötnin góðu. Áramóta-
brennur, spilakvöld, afmælis-
veislur, halloweenpartí, laufa-
brauðsskurður og alls konar
fleiri stemningsstundir, iðulega
skipulagðar af þér, stemnings-
meistaranum sjálfum!
En af bestu stundunum okk-
ar eru ekkert endilega til mynd-
ir: Frisbígolf á Klambratúni,
spjall og rauðvínsglas í heitum
potti, símtal til að bara heyra í
mér hljóðið eða tilkynna um
laust borð á veitingastaðnum
Chez Ari, þú að sýsla í eldhús-
inu og búa til eitthvað gott
handa okkur að borða, hópáhorf
á góðan Poirot-þátt eða Den
Store Bagedyst. Þið Fríða að
hjálpa okkur fjölskyldunni að
undirbúa alls konar veislur,
fermingarveislan fram undan
margrædd og skipulögð. Þið að
passa stelpurnar okkar svo vel
og jafnvel að mæta á fiðlu- og
píanótónleika hjá þeim! Þú allt-
af svo boðinn og búinn að hjálpa
og vesenast eitthvað með mér.
Við flissandi að blaðra saman á
okkar ömurlegu þýsku, fimm-
Ara-brandararnir þínir, alveg
kapítuli út af fyrir sig … en allt
bara létt og skemmtilegt og
hlýtt.
Takk fyrir samveruna og all-
ar þessar kæru minningar, ég
er svo þakklát að hafa fengið
þig sem mág og fóstbróður.
Ég sendi þér bænir á hverju
kvöldi eins og þessa:
Megi eilífðarsól á þig skína,
kærleikur umlykja,
og þitt innra ljós þér lýsa
áfram þinn veg.
Auf Wiedersehen,
Sólveig Nikulásdóttir.
Mamma var ein-
lægur náttúru-
unnandi, hún erfði
ræktunaráhuga
móður sinnar og ömmu og fór víða
Svanhvít
Kjartansdóttir
✝ Svanhvít Kjart-ansdóttir fædd-
ist 1. mars 1933.
Hún lést 12. ágúst
2020.
Útför Svanhvítar
fór fram 20. ágúst
2020.
til að skoða garða.
Hún naut þess að
ferðast um landið
þar sem nafn var á
hverjum hól og
hverju blómi og mik-
ilvægt að maður
lærði, og já það situr
heilmikið eftir.
Mamma ræktaði
ekki bara garðinn
sinn heima í Lamb-
haganum – þau Þrá-
inn voru líka með trjárækt í Selja-
dal, sumarbústaðnum á
Seljavöllum þar sem þau dvöldu
svo gjarnan. Mamma fylgdist vel
með fólkinu sínu og ef fram-
kvæmdir voru í gangi fjölgaði sím-
tölunum til að fylgjast með hvern-
ig miðaði og svo komu bílfarmar af
blómum til að setja niður í
garðana okkar. Hún var mikið fyr-
ir að ganga og fór í daglegar göng-
ur meðan heilsan leyfði og þótti
mikið frá sér tekið þegar hún gat
það ekki lengur. Mamma fór ekki
varhluta af áföllum í lífinu en þann
harm sinn bar hún í hljóði. Hún
var þó fyrst og fremst elskandi
mamma sem alltaf var hægt að
leita til og gott að vera með.
Sólbrúnir vangar siglandi ský
og sumar í augum þér,
angandi gróður, golan hlý
og gleðin í hjarta mér.
Söngur í lofti, sólin hlær,
og svo eru brosin þín
yndislegri en allt sem grær
og angar og hjalar og skín.
Ástin og undrið,
æskunnar förunautar,
nemum og njótum
næði meðan gefst.
Látum svo daga líða á ný
með ljóð frá vörum mér,
sólbruna vanga, siglandi ský
og sumar í augum þér
(Ási í Bæ)
Það er margs að minnast og
margt að þakka. Elsku mamma,
takk fyrir allt og allt.
Hildur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR GUÐBERG HELGASON
frá Þorlákshöfn,
Siggi Helga frá Seli,
lést miðvikudaginn 19. ágúst.
Útför hans fer fram frá Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, föstudaginn
28. ágúst og hefst athöfnin kl. 13.
Vegna samkomutakmarkana verða aðeins nánustu
aðstandendur í kirkjunni en útvarpað verður fyrir þá sem verða í
bílum á staðnum. Einnig verður streymt frá athöfninni á
www.siggihelgaminning.is.
Ragna Erlendsdóttir
Linda Björg Sigurðardóttir Vilhelm Á. Björnsson
Guðlaug Sigurðardóttir Björgvin Jón Bjarnason
Jónas Sigurðsson Áslaug Hanna
og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
EIRÍKUR BRYNJÓLFSSON
kennari og rithöfundur,
lést sunnudaginn 23. ágúst.
Steinunn H. Hafstað
Matthildur Sigurðardóttir Auðun Svavar Sigurðsson
Einar Eiríksson Fjóla Dögg Sverrisdóttir
Guðrún Eiríksdóttir Stefán Arnar Ómarsson
Jón Haukur Hafstað Árnason
barnabörn og systkini
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi
og langafi,
HAUKUR SVEINBJÖRNSSON
frá Snorrastöðum,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð
8. mars, verður jarðsunginn frá Kolbeins-
staðakirkju laugardaginn 29. ágúst. Vegna aðstæðna í
samfélaginu verða eingöngu nánustu aðstandendur viðstaddir
útförina en athöfninni verður streymt á kvikborg.is.
Branddís Margrét Hauksdóttir, Kristján Ágúst Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
EINAR SÆDAL SVAVARSSON,
Njarðarvöllum 2, Njarðvík,
lést á Hrafnistu Nesvöllum þriðjudaginn
11. ágúst.
Útförin mun fara fram í kyrrþey.
Geir Sædal Einarsson
Svavar Sædal Einarsson María Björnsdóttir
Kristín Sædal Einarsdóttir Albert Geir Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn