Morgunblaðið - 26.08.2020, Page 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2020
þetta ritar að fá hann fyrir
næstum áratug til að halda utan
um rekstur og bókhald í litlu
fyrirtæki. Alltaf stóð allt eins og
stafur á bók og skipti þá ekki
máli hvort það var alls kyns
uppgjör, gerð ársreikninga eða
skil skattframtala.
Fyrir hönd okkar allra í
„hjúkkuhópnum“ viljum við
þakka Guðmundi samferðina um
leið og við vottum Ragnheiði
konu hans, börnum og fjölskyld-
um þeirra innilega samúð okkar.
Blessuð sé minning Guðmundar
R. Óskarssonar.
Magnús Jónsson, Karitas
Sigurðardóttir, Anna María
Kristjánsdóttir, Ágúst M.
Ármann, Halldóra Krist-
jánsdóttir, Sigurður Gísla-
son, María Tómasdóttir og
Hafsteinn Gunnarsson.
Kveðja frá Hjartaheill
Þann 8. október 1983 voru
Landssamtök hjartasjúklinga
stofnuð sem síðar fengu heitið
Hjartaheill.
Það var mikill elja og dugn-
aður í stofnfélögum þegar sam-
tökin hófu starfsemi sína fyrir
37 árum og var Guðmundur
Rúnar Óskarsson, löggiltur end-
urskoðandi, einn af stofnfélög-
unum.
Frá fyrstu tíð var Guðmundi
falið það starf að endurskoða
reikninga samtakanna. Í starfi
sínu var hann skipulagður og
vandvirkur og nutu samtökin
þekkingar hans og vinnu allt til
dánardægurs.
Fyrir stuttu kastaði ég kveðju
á þennan góða félaga okkar þar
sem hann var að koma á starfs-
stöð sína en ég er með rekstur
minn í næsta húsi við endur-
skoðendastofu hans. Það var
erfitt að fá þá frétt að félagi
okkar hefði orðið bráðkvaddur
þann 11. ágúst sl.
Lífið kemur ekki upp í staf-
rófsröð og við fáum ekki ráðið
þeim bókstaf sem okkur er út-
hlutað í lífinu.
Sorgin er óaðskiljanlegur
partur af lífinu og hjá því verður
ekki komist í þessu lífi að takast
á við sorgina. Við verðum að
læra að lifa með sorginni.
Góðar minningar raðast upp í
kringum störf Guðmundar og
þátttöku hans í starfsemi
Hjartaheilla.
Hjartaheill hafa treyst á sjálf-
boðaliða í sínum röðum frá
stofnun samtakanna. Fólk fer í
sjálfboðaliðastörf af ýmsum
ástæðum. Mörgum finnst starfið
áhugavert og gefandi, aðrir vilja
láta gott leiða af sér. Sjálfboða-
liðastarf getur nefnilega verið
lærdómsríkt og þroskandi.
Við vorum afar heppin að
hafa fengið Guðmund í raðir
okkar. Hann var virkur þátttak-
andi sem tók þátt í því að móta
umhverfi sitt og samfélag með
störfum sínum í Hjartaheill.
Fyrir það erum við ævarandi
þakklát.
Þakklæti okkar felst í því að
kunna að bera kennsl á það sem
virðist sjálfsagt og læra að meta
það mikils. Á stórum fundi í
samtökum okkar var ákveðið að
veita Guðmundi æðsta heiðurs-
merki samtakanna sem er úr
gulli. Það var vel við hæfi og var
hann vel að þessum sóma kom-
inn.
Fyrir hönd samtaka okkar vil
ég nota tækifærið og þakka
Guðmundi fyrir framlag hans og
þátttöku í starfinu.
Félagar í Hjartaheill, SÍBS
og aðildarfélögum kveðja góðan
félaga með söknuði og þakklæti
fyrir samfylgdina.
Sorgin er mikil og sendum við
fjölskyldu hans dýpstu samúðar-
kveðju.
Mannsandinn líður ekki undir
lok, minning um góða mann-
eskju lifir í hjarta og minni. Líkt
og sólin sem virðist ganga undir,
en alltaf heldur áfram að lýsa.
Sveinn Guðmundsson,
formaður.
Það var sólríkur
dagur 16. ágúst er
Ellert kvaddi.
Ellert var ein-
stakt ljúfmenni í
allri framkomu, ávallt glaður og
hress, stutt í brosið, glensið og
hláturinn. Ellert var oft hnyttinn
í tilsvörum og skaut skemmtileg-
um glósum inn í umræður sem
sköpuðu oftar en ekki mikinn
hlátur.
Ég aðstoðaði Ellert eitt sinn
við smalamennsku (heimasmöl-
un) í Hlíðardal. Fórum við upp
dalinn á sexhjóli, Ellert ók hjól-
inu en ég var farþegi. Er við vor-
um komnir vel áleiðis upp dalinn
stöðvar Ellert hjólið og biður
mig um að taka við akstrinum en
sjálfur ætlaði hann að hlaupa
fyrir kindur sem þarna voru.
Eitthvað var ég efins um færni
mína við stjórnun sexhjólsins en
Ellert fullvissaði mig um að
þetta væri ekkert mál. „Sittu
bara rétt á hjólinu og aktu létt.“
Ég gerði eins og fyrir mig var
lagt og allt gekk vel. Þegar ég
hitti Ellert aftur, þar sem hann
var kominn með kindurnar á
„slóð“ brosti hann og sagði að
þetta hefði nú aldeilis gengið vel
hjá mér. Ég samsinnti því og
sagði að ég hefði bara gert eins
og hann sagði, sat „létt á hjólinu
og ók rétt“. Ég man hvað Ellert
hló dátt að þessu rugli í mér og
endurtók nokkrum sinnum „sat
létt og ók rétt“.
Það var fallegt sumarkvöld
fyrir nokkrum árum að við hjón-
in ókum upp í Hlíðardal. Með í
för voru þau heiðurshjón Ellert
Ellert
Gunnlaugsson
✝ Ellert Gunn-laugsson fædd-
ist 1. október 1955.
Hann lést 16. ágúst
2020.
Útförin fór fram
24. ágúst 2020.
og Heiða á Sauðá.
Ég ók rólega slóð-
ann upp dalinn og
við nutum útsýnis-
ins. Bifreiðin var
stöðvuð ofarlega í
dalnum og gengum
við upp að Grens-
vatni, sem er einn af
fegurstu stöðum,
sem ég hef komið á.
Þvílík fegurð og því-
lík kyrrð, því fá
engin orð lýst. Við setjumst nið-
ur og Ellert sagði okkur sögur
frá smalamennsku og öðrum
ferðum sínum um dalinn. Hér er
gott að vera einn og hlusta á
þögnina og hjartsláttinn í sjálf-
um sér, sagði Ellert. Ég hafði
meðferðis vídeotökuvél og festi á
filmu þau kennileiti, sem Ellert
kunni svo góð skil á. Hann þekkti
hvern stein, hverja laut, hvern
læk og hól, enda mikið náttúru-
barn. Ellert unni vel landi sínu,
og skepnum sínum sinnti hann af
mikilli natni.
Ellert hafði gaman af að dansa
og ekki var annað að sjá en hann
kynni þá list bara nokkuð vel.
Við Dagga fórum nokkrum sinn-
um á „gömlu dansana“ með þeim
Ellerti og Heiðu, m.a. í Skaga-
fjörð. Það voru skemmtilegar
stundir sem við áttum saman á
þeim kvöldum.
Hann var góður og traustur
vinur og þakka ég honum fyrir
allt og allt.
Nú ertu vinur, fallinn frá Ellert frændi
góður Það er mikil eftirsjá eftir sit ég
hljóður.
Um leið og ég kveð góðan
dreng færi ég Heiðu og fjöl-
skyldu hennar innilegar samúð-
arkveðjur.
Hermann Ívarsson.
Elsku Ellert, það eru blendn-
ar tilfinningar sem brjótast um í
manni þessa dagana. Bæði sorg
og söknuður yfir því að þú þurft-
ir að yfirgefa okkur allt of
snemma, en einnig þakklæti.
Þakklæti fyrir að hafa fengið að
vera partur af fjölskyldu þinni,
fyrir allar góðu stundirnar sem
við áttum saman, eins og veiði-
ferðirnar á sjó og landi, smala-
mennskurnar og jólaboðin. Þú
varst alltaf traustur, góður og
glaðlyndur. Það var alltaf stutt í
bros og hlátur hjá þér og þú
skiptir sjaldan skapi. Ég hefði
ekki getað óskað mér betri
tengdaföður. Þú hafðir alltaf
gaman af því að eyða tíma með
börnunum þínum og síðar barna-
börnunum; spila spil, kubba og
fara út að renna sér á veturna,
og veit ég að ef heilsan hefði ekki
brostið, þá hefði Bríet litla fengið
að fara með út með langafa að
renna sér í skaflinum fyrir ofan
bæinn.
Það er óhætt að segja að und-
anfarin ár hafa verið fjölskyld-
unni erfið. Að horfa á hreysti-
menni sem hljóp á fjöll dag eftir
dag án þess að blása úr nös,
verða aðeins skugginn af sjálfum
sér. Undanfarna daga ýfðust líka
upp minningarnar frá því þegar
þú týndist um árið og við vorum
næstum búin að missa þig. En til
allrar hamingju fannstu og við
fengum að njóta nærveru þinnar
í nokkur ár til viðbótar.
Það var ómetanlegt að við fjöl-
skyldan fengum að vera saman
síðustu dagana þína, og urðu til
margar góðar minningar á þeim
tíma sem verða örugglega oft
rifjaðar upp yfir krossgátublaði í
framtíðinni.
Nú er að renna upp einn af
þínum uppáhaldstímum, göngur
og réttir. Þú þarft samt ekkert
að vera svekktur yfir að missa af
þeim þetta árið þar sem þær
verða varla svipur hjá sjón út af
Covid-reglum. En ég veit að þú,
Nonni Ponni og Snati eruð farnir
að spá í hver verður settur í
Klofann, og glottið út í annað.
Hvíl í friði, elsku Ellert, og
takk fyrir allt.
Gísli Már Arnarson.
Gamall vinur
minn og samstarfs-
maður, Helgi Stein-
grímsson, er látinn.
Kynni okkar hófust um 1970 þeg-
ar ég sótti um vinnu sem rótari
hjá hljómsveitinni Haukum, þar
sem Helgi var gítarleikari og að-
almaðurinn. Ég var á tánings-
aldri og hafði mjög mikinn áhuga
á að starfa í tónlistarbransanum.
Ég sótti líka um rótaradjobb hjá
hljómsveitinni Júdasi, en var
hafnað, sem var dálítið skondið
þar sem ég varð umboðsmaður
þeirra nokkrum árum seinna.
Helgi réð mig til starfa og það var
mikið líf og fjör í kringum Hauka.
Þetta var ein vinsælasta ballsveit
landsins og var Helgi snillingur í
að skapa góða stemningu á böll-
um.
Helgi byrjaði í hljómsveitar-
standinu ungur að árum og var
orðinn landsþekktur þegar ég
byrjaði að vinna með Haukum.
Ég leit upp til hans, enda var
hann næstum því helmingi eldri
en ég var á þessum tíma. Stuttu
seinna var ég orðinn umboðsmað-
ur fyrir Dögg, Paradís og Júdas
og sá um rekstur Tjarnarbúðar.
Þar að auki bókaði ég bönd til að
spila í Klúbbnum á fimmtudags-
kvöldum og þar spiluðu Hauk-
Helgi
Steingrímsson
✝ Helgi Stein-grímsson fædd-
ist 13. júní 1943.
Hann andaðist 15.
ágúst 2020.
Útförin fór fram
í kyrrþey 21. ágúst
2020.
arnir oft. Það fór vel
á með okkur Helga
og vinskapurinn
styrktist 1975 þegar
við stofnuðum Dem-
ant með Ingibergi
Þorkelssyni, en
Demant var hljóm-
plötuútgáfa, dreif-
ingar- og umboðs-
fyrirtæki. Við Helgi
sáum um að bóka
hljómsveitir á böll
um allt land, Ingibergur sá um
peningamálin og hann hélt líka
utan um útgáfuna með mér. Við
vorum með stóra og mikla
drauma og ætluðum að sigra
heiminn. Fyrsta platan sem við
gáfum út var barnaplatan Róbert
bangsi í Leikfangalandi sem ég
var byrjaður að vinna að áður en
Demant tók til starfa. Við gáfum
líka út Millilendingu með Megasi
og Æskuminningar Þórbergs
Þórðarsonar auk nokkurra lítilla
platna með upprennandi hljóm-
sveitum.
Helgi var nokkuð sérstakur
náungi, átti það til að vera frekar
dulur, en líka opinn og þræl-
skemmtilegur. Hann gat verið
kaldhæðinn og skaut þá á okkur
sem unnum með honum. Demant
gekk í gegnum allskonar hrær-
ingar á þeim stutta tíma sem
fyrirtækið var starfrækt, enda
var bransinn ekki beinlínis auð-
veldur. Þar kom að ég ákvað að
vinna eingöngu með Júdasi og
hætti í Demant. Stuttu seinna
stofnaði ég Skífuna og hélt áfram
að gefa út plötur og vinna með
allskonar tónlistarfólki, en Helgi
sneri sér að öðrum verkefnum.
Helgi var hreinn og beinn og ég
lærði mikið af því að vinna með
honum á meðan leiðir okkar lágu
saman. Ég votta börnum hans og
fjölskyldu innilega samúð.
Jón Ólafsson.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýju vegna andláts og útfarar ættmóður
okkar,
JÓHÖNNU JÓNASDÓTTUR,
Höfðatúni, Skagaströnd.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Sæborgar á Skagaströnd fyrir einstaka umönnun, vináttu
og virðingu.
Guðrún Angantýsdóttir
Bylgja Angantýsdóttir Halldór B. Einarsson
Dagný Björk Hannesdóttir
Sigurjón Gísli Snorrason Steinunn Berndsen
og afkomendur
Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir,
tengdadóttir og systir,
EVA BJÖRG SKÚLADÓTTIR,
náms- og starfsráðgjafi,
Hólatúni 13, Akureyri,
sem lést 15. ágúst, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju fimmtudaginn 27. ágúst klukkan 13.30.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður aðeins nánasta fjölskylda
og vinir viðstaddir athöfnina.
Hægt verður að fylgjast með athöfninni á FB (Jarðarfarir í
Akureyrarkirkju-beinar útsendingar).
Gunnlaugur Þorgeirsson
Þorgeir Viðar Gunnlaugsson
Þrúður Júlía Gunnlaugsd.
Guðrún Hólmfríður Þorkelsd. Skúli Viðar Lórenzson
Þrúður Gunnlaugsdóttir
Þorgeir Jónas Andrésson Guðrún Erla Sigurðardóttir
Sigurlaug Skúladóttir Finnbjörn Vignir Agnarsson
Aðalheiður Skúladóttir Þórður Friðriksson
Hólmfríður Guðrún Skúlad. Tryggvi Kristjánsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORLÁKUR A. AÐALSTEINSSON,
bóndi frá Baldursheimi,
Davíðshaga 10, Akureyri,
lést mánudaginn 10. ágúst. Útförin fer fram
frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. ágúst klukkan 13:30.
Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur og vinir
viðstaddir en athöfninni verður streymt beint á facebooksíðunni
Jarðarfarir í Akureyrarkirkju.
Hjördís G. Haraldsdóttir
Aðalsteinn Þorláksson Ingibjörg Ólafsdóttir
Anna Margrét Þorláksdóttir Róbert Sverrisson
Halla Björk Þorláksdóttir Arnar Pálsson
og fjölskyldur
Ástkær móðir, tengdamóðir, sambýliskona,
dóttir, systir, mágkona og stjúpmóðir okkar,
PETRÍNA SÆUNN RANDVERSDÓTTIR,
lést á Krabbameinsdeild Landspítalans
föstudaginn 14. ágúst. Útför fer fram frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn 27. ágúst
klukkan 13.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður útförinni streymt á
https://www.facebook.com/groups/petrinajardarfor.
Andri Þór Þórarinsson
Randver Þór Þórarinsson Fríða Ósk Halldórsdóttir
Vilhjálmur M.Þ. Þórarinsson Embla Líf Hallsdóttir
Guðmundur J Guðmundsson
Ingibjörg Hauksdóttir
Haukur Randversson Hrafnhildur Jónsdóttir
Hrefna Guðmundsdóttir
Gabríela Rós Guðmundsd.
Belinda Mist Guðmundsd.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
RAGNAR BRAGI JÓHANNESSON
frá Ásakoti,
Biskupstungum,
lést á sjúkrahúsinu á Selfossi 15. ágúst.
Útför fór fram laugardaginn 22. ágúst í kyrrþey að hans ósk.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn