Morgunblaðið - 26.08.2020, Síða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2020
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari
Englands, hefur kynnt landsliðs-
hópinn sem mætir Íslandi á Laug-
ardalsvellinum í Þjóðadeild UEFA
5. september og svo Danmörku
þremur dögum síðar. Þrír nýliðar
eru í enska hópnum að þessu sinni;
Phil Foden, Manchester City, Ma-
son Greenwood, Manchester Unit-
ed, og Kalvin Phillips, Leeds.
Jordan Henderson og Alex-
Oxlade-Chamberlain eru ekki í
hópnum vegna meiðsla.
Hópinn má sjá í heild sinni á
mbl.is/sport.
Þrír nýliðar í
enska landsliðinu
AFP
Nýliði Phil Foden er 20 ára en hann
skoraði 8 mörk á síðustu leiktíð.
Valsarar hafa hætt við þátttöku í
Evrópudeildinni í handknattleik
vegna ferðatakmarkana og sótt-
varnaákvæða yfirvalda. Þetta kom
fram í yfirlýsingu frá félaginu.
Valsarar áttu að mæta Holstebro
í fyrstu umferð keppninnar í tveim-
ur leikjum í Danmörku í byrjun
september en vegna sóttvarn-
aráðstafana á Íslandi hafa Valsarar
þurft að draga sig úr keppni. Gísli
Gunnarsson, formaður handknatt-
leiksdeildar Vals, hafði áður sagt
líkurnar meiri en minni á að liðið
yrði að segja sig úr keppni.
Valur dregur
sig úr keppni
Morgunblaðið/Hari
Þjálfari Snorri Steinn Guðjónsson
stýrir liðinu ekki í Evrópudeildinni.
Pepsi Max-deild karla
Fylkir – Fjölnir......................................... 2:0
Staðan:
Valur 10 7 1 2 22:8 22
Breiðablik 11 6 2 3 24:17 20
FH 11 6 2 3 22:16 20
Stjarnan 9 5 4 0 17:8 19
Fylkir 12 6 1 5 19:18 19
KR 9 5 2 2 14:9 17
ÍA 11 4 2 5 26:25 14
Víkingur R. 11 3 5 3 19:18 14
HK 11 3 2 6 18:27 11
KA 10 1 6 3 8:13 9
Grótta 11 1 3 7 10:22 6
Fjölnir 12 0 4 8 10:28 4
Mjólkurbikar karla
16-liða úrslit:
ÍBV - Fram ................................................2:1
Eyþór Daði Kjartansson 60., Róbert Aron
Eysteinsson 90. - Frederico Saraiva 20.
3. deild karla
Ægir – Augnablik..................................... 2:4
Tindastóll – KV......................................... 0:2
KFG – Höttur/Huginn............................. 2:1
Staðan:
Reynir S. 11 8 2 1 33:17 26
KV 11 8 0 3 30:17 24
Augnablik 11 5 4 2 26:20 19
KFG 11 5 2 4 23:20 17
Tindastóll 11 4 4 3 20:23 16
Sindri 11 4 3 4 20:26 15
Ægir 11 4 2 5 17:21 14
Einherji 11 4 1 6 18:24 13
Vængir Júpiters 10 3 3 4 14:15 12
Álftanes 11 2 3 6 17:22 9
Höttur/Huginn 11 2 2 7 16:22 8
Elliði 10 2 2 6 16:23 8
Kasakstan
Tobol - Astana.......................................... 2:0
Rúnar Már Sigurjónsson var í byrjunar-
liði Astana.
Bandaríkin
New York City - Columbus Crew .......... 1:0
Guðmundur Þórarinsson kom inn á sem
varamaður hjá New York City á 88. mín-
útu.
Meistaradeild Evrópu
2. umferð:
PAOK - Besiktas ...................................... 3:1
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
Tirana - Rauða stjarnan ...........................0:1
Meistaradeild kvenna
Undanúrslit:
Wolfsburg - Barcelona..............................1:0
Danmörk
Aarhus United - Skanderborg ........... 31:18
Thea Imani Sturludóttir skoraði 1 mark
fyrir Aarhus United.
NBA-deildin
Úrslitakeppni, 1. umferð:
Miami – Indiana.................................... 99:87
Miami vann einvígið 4:0.
Portland – LA Lakers...................... 115:135
Staðan er 3:1 fyrir LA Lakers.
Harry Maguire,
fyrirliði enska
knattspyrnu-
félagsins Man-
chester United
og varnarmaður
enska landsliðs-
ins, var í gær úr-
skurðaður í 21
mánaðar skil-
orðsbundið fang-
elsi fyrir alvar-
lega líkamsárás á Grikklandi um
síðustuhelgi. Í gærmorgun var
hann valinn í enska landsliðshópinn
sem mætir Íslandi og Danmörku í
Þjóðadeildinni í byrjun september
en eftir úrskurðinn var hann tekinn
úr hópnum af þjálfaranum Gareth
Southgate.
Maguire kemur
ekki til Íslands
Harry
Maguire
Knattspyrna
Pepsi Max-deild karla:
Meistaravellir: KR - Valur ........................17
Garðabær: Stjarnan - KA..........................18
Kórinn: HK - Grótta..............................19.15
3. deild karla:
Árbær: Elliði - Vængir Júpíters ...............20
Í KVÖLD!
ÍBV var fyrsta liðið til þess að
tryggja sér sæti í undanúrslitum
bikarkeppni karla í knattspyrnu,
Mjólkurbikarnum, í gær þegar liðið
vann dramatískan 2:1-sigur gegn
Fram í átta liða úrslitum keppninnar
á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.
Gestirnir úr Safamýri byrjuðu
betur og Fred Saraiva kom Fram yf-
ir á 20. mínútu með frábæru ein-
staklingsframtaki. Sóknarmaðurinn
keyrði á varnarmenn Eyjamanna og
þrumaði boltanum í bláhornið af 30
metra færi.
Eyþór Daði Kjartansson jafnaði
metin fyrir ÍBV á 60. mínútu með
lúmsku skoti, rétt utan teigs og
það virtist allt stefna í framleng-
ingu þegar Róbert Aron Eysteins-
son tryggði ÍBV sigur með þrumu-
skoti úr teignum eftir hornspyrnu en
boltinn söng í þaknetinu.
ÍBV hefur staðið sig vel í bikar-
keppninni undanfarin ár en á síðast-
liðnum tíu árum hefur ÍBV níu sinn-
um farið alla leið í átta liða úrslit
keppninnar.
Eyjamenn hafa fimm sinnum
fagnað sigri í bikarkeppninni en að-
eins KR, Valur, ÍA og Fram hafa
unnið keppnina oftar.
ÍBV varð síðast bikarmeistari árið
2017 eftir 1:0-sigur gegn FH í úr-
slitaleik á Laugardalsvelli en það
var Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem
skoraði sigurmark leiksins á 37.
mínútu.
Átta liða úrslitin klárast 10. sept-
ember þegar FH fær Stjörnuna í
heimsókn, HK heimsækir Val og
Breiðablik tekur á móti KR. bjar-
nih@mbl.is
Fimmti undanúrslitaleikur ÍBV á sjö árum
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Hetja Róbert Aron Eysteinsson, markaskorari ÍBV, í baráttunni við Unnar
Stein Ingvarsson, varnarmann Fram, á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Fylkismenn unnu sinn sjötta leik í
úrvalsdeild karla í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildinni, þegar nágrann-
ar þeirra úr Fjölni komu í heimsókn
á Würth-völlinn í Árbænum í fjórt-
ándu umferð deildarinnar í gær-
kvöldi.
Leiknum lauk með 2:0-sigri Árbæ-
inga en staðan í hálfleik var marka-
laus.
Miðvörðurinn Ásgeir Eyþórsson
kom Fylkismönnum yfir með lag-
legum skalla eftir hornspyrnu Daða
Ólafssonar á 67. mínútu og það var
svo Valdimar Þór Ingimundarson
sem innsiglaði sigur Árbæinga á 89.
mínútu eftir vel útfærða skyndisókn.
Fylkismenn halda því áfram að
koma á óvart með spilamennsku
sinni í sumar en liðið er komið í
fimmta sæti deildarinnar í 19 stig
eftir tólf leiki og er einungis þremur
stigum frá toppliði Vals sem á reynd-
ar tvo leiki til góða á Árbæinga.
Vandræði Fjölnismanna halda
hins vegar áfram en liðið bíður enn
þá eftir sínum fyrsta sigri í deildinni.
Grafarvogsliðið, sem er nýliði í efstu
deild, hefur nýtt færin sín illa í sum-
ar en liðið hefur einungis skorað 10
mörk í tólf leikjum og fengið á sig 28.
„Fylkismönnum hefur gengið vel
að safna stigum í sumar þar sem liðið
vinnur nánast undantekningalaust
liðin í neðri hlutanum. Fylkir hefur
ekki tapað á móti liðunum sem nú
eru í áttunda sæti og neðar og er lið-
ið þess vegna að berjast í efri hlut-
anum.
Svo virðist sem mótlætið sé byrjað
að fara í einhverja Fjölnismenn.
Ingibergur Kort Sigurðsson kom
inn á sem varamaður gegn Val um
daginn og var snöggur að næla sér í
beint rautt spjald fyrir kjánalega til-
burði. Hann kom aftur inn á í kvöld,
lét Nikulás Val Gunnarsson finna
fyrir því og ákvað í kjölfarið að hella
sér yfir strákinn unga á meðan hann
lá í grasinu,“ skrifaði Jóhann Ingi
Hafþórsson m.a. í umfjöllun sinni
um leikinn á mbl.is.
Árbæingurinn Valdimar Þór
Ingimundarson skoraði sitt sjöunda
mark í deildinni í sumar en hann er í
fjórða sæti yfir markahæstu leik-
menn deildarinnar, þrátt fyrir að
spila sem framliggjandi miðjumað-
ur. Aðeins Steven Lennon, 11,
Thomas Mikkelsen, 10, og Óttar
Magnús Karlsson, 9, hafa skorað
meira en Árbæingurinn.
Hans Viktor Guðmundsson,
fyrirliði Fjölnismanna, lék sinn 75.
leik í efstu deild en hann er fæddur
árið 1996. Hans Viktor er uppalinn í
Grafarvoginum og hefur allan sinn
feril leikið með Fjölni.
Fylkir í fimmta sætið
Árbæingar þremur stigum frá toppliði Vals Fjölnismenn bíða enn eftir
sínum fyrsta deildarsigri Valdimar Þór Ingimundarson hélt uppteknum hætti
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss.
Sigur Fylkismenn fagna fyrsta marki Ásgeirs Eyþórssonar gegn Fjölnismönnum á Würth-vellinum í Árbænum.
FYLKIR – FJÖLNIR 2:0
1:0 Ásgeir Eyþórsson 67.
2:0 Valdimar Þ. Ingimundarson 89.
M
Aron Snær Friðriksson (Fylki)
Ásgeir Eyþórsson (Fylki)
Orri Sveinn Stefánsson (Fylki)
Daði Ólafsson (Fylki)
Valdimar Þ. Ingimundarson (Fyl.)
Ólafur Ingi Skúlason (Fylki)
Arnar Sveinn Geirsson (Fylki)
Örvar Eggertsson (Fjölni)
Guðmundur K. Guðmundss
(Fjölni)
Orri Þórhallsson (Fjölni)
Dómari: Elías Ingi Árnason – 5.
Áhorfendur: Ekki leyfðir.
Liðsuppstillingar, gul spjöld,
viðtöl og greinar um leikina – sjá
mbl.is/sport/fotbolti.