Morgunblaðið - 26.08.2020, Page 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2020
Knattspyrnumaðurinn Þórður Þor-
steinn Þórðarson er kominn að láni til
HK frá FH og klárar því tímabilið í
Pepsi Max-deildinni í Kópavoginum.
Þórður er 24 ára Skagamaður en hann
á að baki 77 leiki í efstu deild með ÍA
og FH þar sem hann hefur skorað 8
mörk. HK er í 9. sæti með 11 stig eftir
11 leiki.
Áfram verða engir áhorfendur
leyfðir á knattspyrnuleikjum á Íslandi
en ný auglýsing heilbrigðisráðherra
um takmarkanir á samkomum vegna
farsóttar tekur gildi 28. ágúst og gildir
til og með 10. september. Litlar breyt-
ingar verða á þeim takmörkunum sem
nú þegar gilda.
Áfram fær íþróttafólk undanþágu frá
reglunni um nálægðartakmörkun á
æfingum og í keppnum en í minn-
isblaði sóttvarnalæknis er áfram mælt
með að áhorfendur verði ekki leyfðir.
Engir áhorfendur hafa verið leyfðir á
leikjum KSÍ síðan í lok júlí en félögin
hafa mörg hver verið dugleg að sýna
frá leikjum sínum á veraldarvefnum.
Handknattleiksdeild Gróttu hefur
samið við japanska hornamanninn Sa-
toru Goto. Mun hann leika með nýlið-
um Gróttu í Olísdeildinni á komandi
tímabili. Goto er 24 ára hornamaður
og kemur hann að láni frá Wakunaga í
heimalandinu. Goto lék með B-liði
Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi á
síðustu leiktíð.
Knattspyrnumaðurinn Hjalti Sig-
urðsson hefur verið kallaður til baka í
KR úr láni frá Leikni í Reykjavík en
hann var að láni í Breiðholtinu annað
sumarið í röð. Hjalti er tvítugur varn-
armaður og á fjölmarga leiki að baki
fyrir yngri landslið Íslands. Hann á að
baki þrjá leiki í efstu deild með KR.
Helgi Jóhannesson hefur verið ráð-
inn landsliðsþjálfari Íslands í badmin-
ton og tekur hann við starfinu af
Tinnu Helgadóttur um næstu mán-
aðamót. Helgi hefur lokið BWF/BEC
þjálfaramenntun og þar að auki sótt
námskeið í Danmörku á sviði afreks-
þjálfunar. Hann starfaði sem unglinga-
landsliðsþjálfari á árunum 2014 til
2015 og sem aðstoðarþjálfari A-
landsliðsins 2015 til 2016.
Lionel Messi, besti knatt-
spyrnumaður heims og fyrirliði Barce-
lona á Spáni, hefur beðið um sölu frá
félaginu en það var Rob Harris, blaða-
maður AP, sem greindi frá þessu á
Twitter-síðu sinni í gær. Messi, sem er
33 ára gamall, gekk til liðs við Barce-
lona árið 2011 frá Old Boys í heima-
landi sínu Argentínu og hefur spilað
með félaginu allan sinn feril.
Messi er af mörgum talinn besti knatt-
spyrnumaður sögunnar en hann hefur
tíu sinnum orðið Spánarmeistari með
Barcelona. Þá hefur hann sex sinnum
orðið bikarmeistari með liðinu og fjór-
um sinnum hefur hann fagn-
að sigri með Barcelona í
Meistaradeildinni.
Messi hefur sex sinnum
hlotið Gullknöttinn
eða Ballon d’Or sem
veittur er besta
knattspyrnumanni
heims ár hvert, oftar
en allir aðrir. Messi á
að baki 731 leik fyrir
Barcelona þar sem
hann hefur skorað
634 mörk og lagt upp
önnur 285. Þá á hann að
baki 138 landsleiki fyrir
Argentínu þar sem hann
hefur skorað 70 mörk.
Eitt
ogannað
11. UMFERÐ
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Barbára Sól Gísladóttir og stöllur
hennar á Selfossi unnu í fyrradag
þrekvirki er þær stöðvuðu hið nær
óstöðvandi lið Breiðabliks á Íslands-
mótinu í knattspyrnu, Pepsi Max-
deildinni. Selfoss vann 2:1-sigur í
leik liðanna á Kópavogsvelli og
skoraði Barbára sigurmarkið undir
lok leiks.
Breiðablik er á toppi deildarinnar
og var, fyrir viðureignina í fyrra-
dag, með fullt hús stiga og marka-
töluna 42:0 eftir níu leiki. Selfyss-
ingar, sem margir væntu mikils af í
byrjun sumars, voru hins vegar
búnir að vera í smá vandræðum.
Liðið var búið að tapa tveimur í röð
og átti í hættu á að dragast aftur úr
í baráttunni um þriðja sætið.
Hlustum ekki á aðra
Selfyssingar voru margir kok-
hraustir í upphafi tímabils, enda
ríkjandi bikarmeistarar og nýbúnir
að fá tvær sterkar landsliðskonur til
liðs við sig. Þeir viðurkenndu það,
og þorðu það þó, að stefnan væri
sett á toppbaráttuna í sumar.
Ábyrgð fylgir hins vegar of-
urmælum og hafa gagnrýnisraddir
ómað í umfjölluninni um liðið. Þótt
þær hafi kannski ekki verið fyllilega
þaggaðar niður í gær, var sigurinn
engu að síður yfirlýsing.
„Við hlustum ekkert á hvað aðrir
segja en setjum auðvitað mikla
pressu á okkur sjálfar. Það var því
klárlega léttir að vinna þennan
leik,“ sagði hetja Selfyssinga í leikn-
um gegn toppliðinu, Barbára Sól, í
samtali við Morgunblaðið í gær-
.Varnarmaðurinn skoraði sig-
urmarkið með skalla á 87. mínútu,
fékk 2 M fyrir frammistöðu sína í
leiknum og er leikmaður 11. um-
ferðarinnar.
Stefnan sett upp töfluna
„Við höfum yfirleitt byrjað leiki
vel og misst þá frá okkur, eins og
hausinn sé ekki alltaf alveg í lagi.
Það hefur kannski stundum verið
vandamál,“ sagði Barbára enn
fremur en Selfyssingar mættu
ákveðnir til leiks og létu það ekki á
sig fá þegar Alexandra Jóhanns-
dóttir kom Blikum yfir snemma
leiks. Dagný Brynjarsdóttir jafnaði
metin, og varð jafnframt fyrst til að
skora gegn Breiðabliki á tímabilinu.
Hún virðist eiga þetta til, lék svip-
aðan leik í september 2015 þegar
Blikar voru búnir að halda hreinu í
tólf leikjum í röð.
„Við komum mjög ákveðnar í
þennan leik. Blikar hafa verið á
skriði og sennilega meiri pressa á
þeim, við gátum nýtt það. Það var
ákveðin gulrót að verða fyrsta liðið
til að ekki bara vinna þær heldur
skora á þær!“
Þetta var ekki bara fyrsta tap
Blika á tímabilinu, enda fór liðið
taplaust í gegnum síðustu leiktíð
líka. Þetta var fyrsta tap liðsins síð-
an 2018 eða í 27 leikjum.
Svona sigur gerir mjög mikið fyr-
ir okkur, upp á sjálfstraustið sér-
staklega. Þetta hafa verið nokkur
töp undanfarið og nú stefnum við
beint upp töfluna.“
Enn að mörgu að keppa
Selfoss varð bikarmeistari á síð-
ustu leiktíð og endaði í 3. sæti úr-
valsdeildarinnar. Liðið ætlaði sér að
bæta þann árangur í sumar en Bar-
bára segir í það minnsta raunhæft
að jafna við hann. Selfoss er sem
stendur í 5. sæti þegar mótið er
rúmlega hálfnað, þremur stigum frá
Fylki í 3. sæti en 12 og 14 stigum
frá efstu liðum, Val og Breiðabliki.
Þá er liðið í fjórðungsúrslitum bik-
arsins, mætir þar Völsurum á
heimavelli 3. september. „Við sett-
um það sem markmið að gera betur
í ár en í fyrra, þegar við náum
þriðja sætinu og vinnum bikarinn.
Við getum alla vega jafnað þau
markmið,“ sagði Barbára og ítrek-
aði að Selfyssingar hafi sýnt sitt
rétta andlit í leiknum gegn topp-
liðinu og hvers megnugir þeir eru.
„Við sýndum það í gær að við get-
um unnið hvern sem er og þarna
kom líka þessi karakter í lokin; við
kláruðum dæmið,“ sagði Barbára
Sól Gísladóttir, leikmaður 11. um-
ferðarinnar, í samtali við Morg-
unblaðið.
Setjum fyrst og fremst
pressu á okkur sjálfar
Barbára skoraði sigurmark Selfoss sem vann fyrst liða Breiðablik
Morgunblaðið/Eggert
Sigurmark Barbára Sól Gísladóttir skoraði sitt fyrsta mark í deildinni í sumar gegn Breiðabliki.
Fjórir Selfyssingar eru í úrvalsliði Morgunblaðsins fyrir 11. umferð Pepsi
Max-deildar kvenna í fótbolta eftir 2:1-sigurinn frækna á Breiðabliki. Þar á
meðal er Barbára Sól Gísladóttir í liðinu í þriðja sinn en hún skoraði sig-
urmarkið. Landsliðskonurnar Dagný Brynjarsdóttir og Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir eru í annað sinn í liðinu eins og FH-ingurinn Birta Georgsdóttir.
Aðrir leikmenn eru í liðinu í fyrsta skipti í sumar. Sveindís Jane Jónsdóttir
úr Breiðabliki er efst í M-gjöf Morgunblaðsins með 12M og liðsfélagi henn-
ar Agla María Albertsdóttir er með 11M. Eru þær einu leikmennirnir sem
eru með fleiri en 9M. Elín Metta Jensen úr Val, Cecilía Rán Rúnarsdóttir úr
Fylki og Laura Hughes úr Þrótti eru allar með 9M.
11. umferð
í Pepsi Max-deild kvenna 2020
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
25-3-2
Heiða Ragney
Viðarsdóttir
Þór/KA
Ragna Sara
Magnúsdóttir
ÍBV
Barbára Sól
Gísladóttir
Selfossi
Kaylen Marckese
Selfossi
Arna
Eiríksdóttir
Val
Júlíana
Sveinsdóttir
ÍBV
Birta Georgsdóttir
FH
Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir
Val
Hólmfríður Magnúsdóttir
Selfossi
Dagný
Brynjarsdóttir
Selfossi
Phoenitia Browne
FH
3
2
2
2
Fjórir Selfyssingar í liðinu
Knattspyrnumaðurinn Ísak Snær
Þorvaldsson verður á næstu dögum
lánaður til ÍA frá Norwich City á
Englandi. Vefmiðillinn fótbolti.net
greindi fyrst frá þessu. Ísak var
lánaður til St. Mirren í Skotlandi á
dögunum en hann mun yfirgefa
skoska félagið og ganga í raðir
Skagamanna í staðinn. Ísak, sem er
19 ára, var lánaður til Fleetwood
frá Norwich á síðustu leiktíð. Mos-
fellingurinn á að baki 23 leiki með
yngri landsliðum Íslands en hann
var 16 ára gamall þegar Norwich
keypti hann af Aftureldingu.
Lánaður frá
Norwich til ÍA
Ljósmynd/St.Mirren
Liðsstyrkur Skagamenn eru að fá
Ísak Snæ Þorvaldsson á láni.
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud lauk
íþróttaferli sínum í frjálsum íþrótt-
um í gær þegar hún tók þátt á
Castorama-mótinu í Svíþjóð.
Til stóð að hún myndi taka þátt á
Ólympíuleikunum í Tókýó og ljúka
svo ferlinum á Evrópumeist-
aramótinu í París. Ólympíu-
leikunum var hins vegar frestað um
eitt ár og EM aflýst vegna kór-
ónuveirunnar. Hún kastaði spjótinu
60,49 metra í gær en Íslandsmet
hennar í greininni er 63,43. Metið
er frá árinu 2017 en alls bætti hún
Íslandsmetið í greininni sjö sinnum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Öflug Ásdís Hjálmsdóttir Annerud
hefur lengi verið í fremstu röð.
Tuttugu ára ferli
lauk í Svíþjóð