Morgunblaðið - 26.08.2020, Side 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
Magnaður nýr spennuþriller
með Russell Crowe í aðalhlutverki.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Tröll 2 (ísl. tal)
* Hvolpasveitin (ísl. tal)
* My Spy
* The Postcard
Killings
* The Secret : Dare to
dream
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Frábær ný teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna.★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Eyja nefnist þátttökuverk eftir Steinunni
Hildigunni Knúts-Önnudóttur unnið í sam-
starfi við Grétu Kristínu Ómarsdóttur, íbúa
Hríseyjar og Leikfélag Akureyrar sem sýnt
verður í Hrísey laugardaginn 29. ágúst og
sunnudaginn 30. ágúst kl. 14 og 16.30 báða
daga. Einnig verða tvær sýningar á A! Festi-
val í október.
„Sýningar hefjast með siglingu í ferjunni frá
Árskógssandi yfir til Hríseyjar,“ segir Stein-
unn og tekur fram að verkið taki rúmlega tvo
klukkutíma með siglingu báðar leiðir. „Verkið
fer fram í ferjunni og innan og utan húss í
Hrísey,“ segir Steinunn og hvetur gesti til að
mæta tímanlega í ferjuna og koma klæddir eft-
ir veðri. Tekur hún fram að öllum reglum um
sóttvarnir verði fylgt, en gert er ráð fyrir að
gestir ferðist um eyjuna í tveggja manna hóp-
um, en fjölskyldum gefist kostur á að ferðast
um í ögn stærri hópum. Aðgangur er ókeypis,
en bóka þarf miða fyrirfram á vef Menningar-
félags Akureyrar, mak.is.
Endurspeglar hnattræn verkefni
Aðspurð segir Steinunn verkið eiga sér
langan aðdraganda. „Árið 2017 vann ég að
sviðslistaverki sem nefnist Síðasta kvöld-
máltíðin. Gréta Kristín, sem er Hríseyingur,
kom inn í það verkefni,“ segir Steinunn og rifj-
ar upp að sjálf hafi hún unnið í Hrísey á sínum
yngri árum auk þess sem hálfsystir hennar sé
alin upp í eynni. „Þegar við vorum að ljúka við
Síðustu kvöldmáltíðina kviknaði sú hugmynd
að fara með það verk til Hríseyjar,“ segir
Steinunn og bendir á að af því hafi ekki orðið
en í staðinn orðið til nýtt verk sem nefnist
Eyja.
„Sérstaða þessa samfélags í eyjunni kveikti
hugmyndina okkar að þátttökuverkinu Eyju.
Verkið fjallar um hvað það þýðir að tilheyra og
hvað gerist þegar samfélag á borð við þetta
verður fyrir áfalli,“ segir Steinunn og bendir á
að Hrísey sé brothætt byggð þar sem líf og
lífsskilyrði eru viðkvæm. „Í raun má segja að
lífið í eyjunni endurspegli vel þau hnattrænu
verkefni sem blasa við í heiminum árið 2020,“
segir Steinunn og nefnir í því samhengi á þær
áskoranir sem samfélög heimsins standi
frammi fyrir í tengslum við kórónuveirufarald-
urinn og loftslagsbreytingar þar sem á ríði að
skapa samstöðu með það að markmiði að
standa vörð um sameiginlega hagsmuni.
Verk sem býður upp á vangaveltur
„Í Síðustu kvöldmáltíðinni römmuðum við
inn gildi fólks og lífsgæði. Í Eyju gefst tæki-
færi til að velta fyrir sér mikilvægum stefjum í
mannlegri tilvist,“ segir Steinunn, en gestum
er í verkinu boðið að hugleiða áleitin stef um
mannlegt samfélag í gegnum táknrænar
gjörðir, hugvekjur og með göngu í gegnum
innsetningar,“ segir Steinunn og tekur fram
að eyjan öll sé leikmynd verksins. „Þannig má
segja að þetta sé staðsértækt verk. Í stað þess
að búa til eitthvað nýtt erum við aðeins að
beina sjónum fólks að ákveðnum hlutum,“ seg-
ir Steinunn og áréttar að hver og einn áhorf-
andi muni finna sín persónulegu svör við þeim
spurningum sem verkið veki. „Þetta verk er
ekki predikandi. Verkið býður ekki upp á svör
heldur aðeins vangaveltur. Svörin eru eins
mörg og gestirnir eru margir,“ segir Steinunn
og bætir við: „Ég held að það sé mjög
skemmtilegt að vera gestur á þessu verki, svo
ég segi sjálf frá,“ segir Steinunn og áréttar að
Eyja fjalli um smáa og stóra hluti í lífinu.
„Tími fólks er verðmætur og áhorfendur gefa
sér hér tíma til að upplifa listaverkið og taka
þátt í samtali um það hvað það feli í sér að til-
heyra stað.“
Gefandi að eiga samtal við fólk
Eyja er annað sviðsverkið sem Steinunn
vinnur á þessu ári sem mun nýtast henni í
doktorsnámi hennar, en hitt verkið er Fjar-
vera sem sýnt var á Listahátíð í Reykjavík
fyrr á árinu. Í því verki bauðst gestum að
heimsækja raunverulegt heimili ókunnugrar
manneskju sem var fjarverandi. „Þar gafst
gestum tækifæri til að velta fyrir sér hvað það
þýði að vera til staðar í eigin lífi og hvað það sé
sem aðskilji og sameini okkur sem mann-
eskjur,“ segir Steinunn sem í septemberbyrj-
un siglir með Norrænu yfir hafið til að setjast
að í Svíþjóð. „Ég lauk starfi mínu sem deildar-
forseti sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands í
vor og hóf listrænt doktorsnám við Lundar-
háskóla í janúar sem í minnsta lagi er hægt að
ljúka á fimm árum, en ég réð mig í stöðu dokt-
orsnema til næstu fjögurra ára,“ segir Stein-
unn og tekur fram að yfirskrift doktors-
verkefnis hennar er: Hversu lítið er nóg?
„Þarna er um að ræða listrannsókn þar sem
ég beini sjónum mínum að sjálfbærni í víðum
skilningi í sviðslistum og skoða hversu lítið er
nóg til þess að það verði einhver reynsla sem
geri það að verkum að það hreyfist eitthvað til
í þér sem áhorfanda. Þá er ég bæði að skoða
vinnuaðferðirnar og hvernig vinna má með það
sem er til til að minnka kolefnissporið,“ segir
Steinunn og bendir á að doktorsverkefni henn-
ar tengist líka heimsmarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna sem lúta meðal annars að samfélags-
legri ábyrgð, þátttöku fólks og valdeflingu.
„Ég tek þátt í þverfaglegu verkefni við
Lundarháskóla sem nefnist Agenda 2030 þar
sem 17 doktorsnemar taka þátt og eru allir á
einn eða annan hátt að ávarpa heimsmark-
miðin. Við eigum þar í samtali um aðferðir og
nálganir,“ segir Steinunn og tekur fram að
mjög gefandi sé að eiga samtal við fólk í öðrum
greinum og reiknar hún með að það muni hafa
áhrif á hennar eigin rannsóknir.
Skoðar áhrif vinnuaðferðarinnar
„Ég reikna með að setja upp að minnsta
kosti eitt til tvö verk á ári í mismunandi miðl-
um meðan ég er í náminu sem lið í listrann-
sóknum mínum,“ segir Steinunn og tekur fram
að hluti af rannsókn hennar felist í því að taka
viðtöl við bæði þátttakendur og áhorfendur.
„Eftir uppsetningu Fjarveru og Eyju hef ég úr
miklu að moða. Ég er meðal annars að skoða
áhrif þessarar vinnuaðferðar og hvort þessi
leið til að fá fólk til umhugsunar virkar, því
verkin eru nokkurs konar spegill sem fólki
býðst til að skoða sig,“ segir Steinunn og tekur
fram að fyrstu svör eftir Fjarveru gefi til
kynna að aðferðin virki. „Ég get því strax sagt
að Fjarvera hafði áhrif, sem er auðvitað frá-
bært,“ segir Steinunn og bendir á að með
hverju verki sem hún setji upp gefist henni
færi á að þróa aðferðafræði sína enn frekar.
Svo skemmtilega vill til Gréta Kristín, sem
vann verkið með Steinunni, er einnig á leið í
nám því hún mun nema leikstjórn við Lista-
háskólann í Helsinki á næstu misserum.
Eyja Steinunn og Gréta Kristín eru báðar á leið í frekara nám. Steinunn í doktorsnám í sviðs-
listum við Lundarháskóla og Gréta Kristín í leikstjórnarnám við Listaháskólann í Helsinki.
Hversu lítið er nóg?
Þátttökuverkið Eyja sýnt í Hrísey um helgina Verk sem fjallar um hvað það þýðir að tilheyra
Gestum boðið að hugleiða áleitin stef um mannlegt samfélag Tími fólks er verðmætur