Morgunblaðið - 26.08.2020, Blaðsíða 28
keppni á móti sænska liðinu í úrslita-
leik. „Svíarnir tóku fyrst fimm
vítaspyrnur og skoruðu úr öllum en
við klikkuðum á fyrsta vítinu og þar
með var það búið.“ Um það leyti
byrjaði hann að leika með meist-
araflokksliðinu og var þar einn af
burðarásunum en missti þó úr eitt
fyrsta tímabilið vegna þess að hann
gat ekki rétt úr hægri fótlegg.
„Ég læstist og var lengi í gang.“
Meðferðin fólst í því að standa upp
við vegg í tíu mínútur á klukku-
stundarfresti í eitt ár, fara í ljósa-
tíma hjá lömuðum og fötluðum á
sama tímabili og synda daglega í 365
daga. „Ég fór fljótlega út á völl og
æfði mig í því að sparka með vinstri í
heilt ár og eftir það spilaði ég vinstri
bakvörð þar til ég hætti.“
Ekki var alltaf auðvelt að fá að
fara fyrr úr vinnunni vegna leikja.
Magnús minnist þess að eitt sinn
hafi hann fengið að fara klukkan eitt
á laugardegi af því að leikur uppi á
Skaga átti að byrja klukkan tvö.
„Formaðurinn reddaði mér fari með
lítilli flugvél og ég fór á puttanum
með töskuna síðasta spölinn.“
Víkingur leikur við NK Olimpija
Ljubljana í Slóveníu á morgun.
Magnús er hrifinn af sínum mönn-
um, segir þá spila vel en þeir hafi
ekki fengið eins mörg stig í deildinni
og efni hafi staðið til.
„Mjög gaman er að horfa á liðið,
það spilar flottan fótbolta og Arnar
Gunnlaugsson þjálfari er að gera
rétta hluti, en ég býst ekki við sigri í
Evrópuleiknum.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Magnúsi S. Þorvaldssyni er margt
til lista lagt. Hann er einn fárra sem
hefur tekist að vinna sem bakari á
nóttunni og daginn og æfa, spila og
þjálfa fótbolta síðdegis og á kvöldin.
Reyndar er langt síðan hann hætti í
boltanum og hann hefur ákveðið að
hætta að vinna 30. maí á næsta ári
eftir að hafa þá verið bakari í ríflega
51 ár.
Tilviljun réð því að Magnús gerð-
ist bakari. Hann vann hjá I. Brynj-
ólfsson & Kvaran við útkeyrslu á
vörum fyrir bakarí. „Ég var fasta-
gestur í öllum bakaríum á höfuð-
borgarsvæðinu og eitt sinn, þegar ég
kom með vörur í bakaríið Kringluna
í Starmýri 2, spurði eigandinn, Sig-
urður B. Jónsson, hvort nokkur
framtíð væri í akstrinum. „Nei, það
held ég ekki,“ svaraði ég og dró
seiminn. „Viltu ekki bara koma inn
fyrir þröskuldinn og vera hérna?“
sagði hann þá og það varð úr. Þar
með var framtíðin ráðin og þar
kynntist ég verðandi eiginkonu,
Þóru Ólöfu Þorgeirsdóttur.“
Magnús hóf störf í bakaríinu 1.
desember 1969 og hefur unnið víða,
meðal annars í Mosfellsbakaríi und-
anfarin um 15 ár. „Ég sagði upp í vor
sem leið svo tími gæfist til þess að
ráða annan, þótt enginn annar
Magnús sé til,“ segir hann kankvís.
Ótrúlega miklar breytingar hafa
verið í bakstri undanfarna áratugi.
„Ég var langt því frá búinn að læra
allt eftir verklega þáttinn í Starmýr-
inni og útskriftina úr Iðnskólanum
og í raun hef ég lært eitthvað á
hverjum degi síðan. Mosfellsbakarí
er til dæmis eitt fullkomnasta bakarí
landsins, en svo má segja að bakarí
sé ekkert annað en fólkið sem þar
vinnur og ég vinn með einstaklega
góðu starfsfólki.“
Á puttanum í leik
Leikmenn Knattspyrnufélagsins
Víkings hafa leikið 12 leiki í Evr-
ópukeppni og þar af lék Magnús S.
Þorvaldsson fyrstu átta leikina.
Hann er einnig leikjahæstur Víkinga
í meistaraflokki með 351 leik. Þegar
hann var í 2. flokki var hann í ung-
lingalandsliðinu sem tapaði í víta-
Bara einn Magnús!
Hefur verið bakari í yfir hálfa öld Vinstri bakvörðurinn er
leikjahæstur Víkinga í meistaraflokki og Evrópukeppni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bakari og bakvörður Magnús S. Þorvaldsson á langan feril að baki.
... stærsti
uppskriftarvefur
landsins!
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 239. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Knattspyrnukonan Barbára Sól Gísladóttir er leikmaður
11. umferðar Pepsi Max-deildar kvenna eftir að hún
skoraði sigurmark Selfoss gegn Breiðabliki í fyrradag.
Barbára og stöllur urðu þar fyrstar til að leggja Blika að
velli í deildarkeppni síðan 2018 en sigurinn var ekki síð-
ur mikilvægur fyrir þær sakir að Selfyssingum hefur
gengið illa undanfarið. „Við hlustum ekkert á hvað aðrir
segja en setjum auðvitað mikla pressu á okkur sjálfar.
Það var því klárlega léttir að vinna þennan leik,“ sagði
Barbára m.a. í samtali við Morgunblaðið. »27
Að stöðva Breiðablik fyrst liða er
sigur sem gerir mikið fyrir Selfoss
ÍÞRÓTTIR MENNING
Aríur úr óperum Verdis verða
fluttar á tónleikum í hádeginu
á morgun, fimmtudag, í Frí-
kirkjunni í Reykjavík. Tónleik-
arnir eru hluti af röðinni Á ljúf-
um nótum í Fríkirkjunni og
hefjast kl. 12. Flytjendur eru
Guðbjörg Tryggvadóttir sópran
og Antonia Hevesí píanóleikari
og munu þær syngja og leika
fyrir gesti aríur úr Il trovatore
og La forza del destino, þar sem persónurnar heita
báðar Leonora en eru afar ólíkar. Einnig verður flutt
aría úr La traviata.
Þetta eru síðustu tónleikar raðarinnar á þessu ári en
tónleikaröðin hefst að nýju í janúar 2021. Nóg pláss er í
kirkjunni og á því að vera auðvelt að halda tveggja
metra fjarlægð milli gesta. Auk þess verður spritt við
innganginn og hámarksfjöldi á tónleikunum 100
manns.
Guðbjörg og Antonia flytja aríur úr
óperum Verdis á hádegistónleikum