Morgunblaðið - 02.09.2020, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 02.09.2020, Blaðsíða 17
Atvinnuauglýsingar Blaðberar Upplýsingar veitir  í síma  Morgunblaðið óskar eftir blaðbera   k Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Staðarhraun 54, Grindavík, fnr. 209-1916 , þingl. eig. Þórir Sigfússon, gerðarbeiðendur ÍL-sjóður og Grindavíkurbær og Landsbankinn hf., þriðjudaginn 8. september nk. kl. 09:00. Leynisbrún 12B, Grindavík, fnr. 209-2052 , þingl. eig. Anton Þór Sig- urðsson, gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Grinda- víkurbær, þriðjudaginn 8. september nk. kl. 09:20. Norðurhóp 42, Grindavík, fnr. 231-4981 , þingl. eig. Olexandra Synyakova og Radoslav Cabák, gerðarbeiðendur Grindavíkurbær og Húsasmiðjan ehf. og Arion banki hf., þriðjudaginn 8. september nk. kl. 09:35. Austurkot, Sveitarfélagið Vogar, 33,34 ehl. gþ, fnr. 209-6053 , þingl. eig. Aðalsteinn Gunnar Jóhannsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 8. september nk. kl. 10:10. Kirkjubraut 32, Njarðvík, 50% ehl. gþ., fnr. 209-3818 , þingl. eig. Bergur Reynisson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Suðurnesjum, þriðjudaginn 8. september nk. kl. 10:30. Grænásbraut 604B, Ásbrú, fnr. 230-8880 , þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðandi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, þriðjudaginn 8. september nk. kl. 10:40. Grænásbraut 604B, Ásbrú, fnr. 230-8876 , þingl. eig. Grænásbraut 604 ehf., gerðarbeiðandi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, þriðjudaginn 8. september nk. kl. 10:45. Skógarbraut 921, Ásbrú, 50% ehl. gþ, fnr. 230-9264 , þingl. eig. Einar Örn Adolfsson, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves og Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 8. september nk. kl. 11:05. Hjallavegur 1, Njarðvík, fnr. 209-3412 , þingl. eig. Svandís Elín Krist- bergsdóttir, gerðarbeiðendur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 8. september nk. kl. 11:25. Gerðavegur 14C, Garði, fnr. 233-2952 , þingl. eig. Jóhannes Ingi Sig- urðsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves, þriðju- daginn 8. september nk. kl. 13:00. Birkitún 7, Garði, fnr. 229-9871 , þingl. eig. Anna Lísa Jóhannesdóttir og Sigurjón Elíasson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 8. september nk. kl. 13:20. Hlíðargata 44, Sandgerði, fnr. 209-4812 , þingl. eig. Guðrún Árný Einarsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 8. sept- ember nk. kl. 13:50. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 1. september 2020 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Hólanesvegur 11, Svfél. Skagaströnd, fnr. 223-6676, þingl. eig. Villta vestrið/Skagaströnd ehf., gerðarbeiðendur Sveitarfélagið Skaga- strönd og Byggðastofnun, þriðjudaginn 8. september nk. kl. 10:30. Lækjarbakki, Svfél. Skagaströnd, fnr. 213-9170, þingl. eig. Hjalti Viðar Reynisson, gerðarbeiðandi Brú Lífeyrissjóður starfs sveit, þriðjudag- inn 8. september nk. kl. 11:00. Sunnuvegur 5, Svfél. Skagaströnd, fnr. 213-9033, þingl. eig. Áslaug Ottósdóttir og Sigurður Sverrir Ó Hallgrímsson, gerðarbeiðandi TM hf., þriðjudaginn 8. september nk. kl. 11:30. Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra 1. september 2020 UPPBOÐ Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Minni-Vellir, íbúðarh, Rangárþingi ytra, fnr. 227-3934, þingl. eig. Jón Þorberg Steindórsson og Sigríður Th Kristinsdóttir, gerðarbeiðandi ÍL-sjóður, þriðjudaginn 8. september nk. kl. 09:45. Víkurbraut 10, Mýrdalshreppi, fnr. 218-8789, þingl. eig. Nilanthi Renuka Baragama og Susantha Ananda R. G. Ralalaghe, gerðar- beiðendur Valitor hf. og Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves og Mýrdalshreppi og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 8. september nk. kl. 12:00. Sýslumaðurinn á Suðurlandi 1. september 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2020 ✝ Ágústa fæddistí Reykjavík 1965. Hún lést á kvennadeild Land- spítalans 23. ágúst 2020. Foreldrar henn- ar, þau Þorvaldur Kjartansson og Ingibjörg Þorvaldsdóttir, fæddust bæði 1943. Ágústa var elst fjögurra systkina. Systkini hennar eru: Reynir, f. 1972, giftur Jessicu Thomasdóttur, f. 1971, dóttir hans er Melkorka Mist, f. 1994; Linda, f. 1975, sambýlismaður hennar er Ósk- ar Sigurðsson, f. 1973. Sonur hennar er Jökull Bragi Lúð- víksson, f. 2008; Leifur Þór, f. 1981, maki hans Lea Letzel, f. 1984. kosin varaformaður 2019. Ágústa var formaður Átaks frá 2018 en Átak er félag fólks með þroskahömlun og var það stofnað 1993. Hún var einn af stofnfélögum félagsins og sat þar í stjórn í mörg ár. Einnig var hún í stjórn Listar án landamæra sem og meðlimur í IOGT. Ágústa var mikil barnagæla og sem unglingur var hún mjög vinsæl sem barnapía. Hún gekk í sönghópinn Plútó og var hún meðlimur í honum í mörg ár. Iðulega voru bíómyndir stórt umræðuefni en Ágústu og manninum hennar John þótti mjög gaman að stunda kvik- myndahúsin. Ágústa greindist með krabbamein fyrir um ári Útför hennar fer fram frá Lindakirkju í dag, 2. september 2020 . Vegna aðstæðna verða fjöldatakmarkanir í kirkjunni en athöfninni verður streymt: https://www.facebook.com/ groups/AgustaErla. Virkan hlekk má finna á https:// www.mbl.is/andlat. Árið 1990 kynnt- ist Ágústa John Michael Doak, f. 1964, og voru þau saman allar götur síðan. Ágústa gekk í Öldusels- og Öskju- hlíðarskóla og út- skrifaðist úr Hús- mæðraskóla Reykjavíkur árið 1989. Hún vann ýmis störf í gegn- um tíðina; síðast hjá Sölufélagi garðyrkjumanna en hafði einn- ig unnið til lengri tíma hjá Ís- landspósti og Ostabúðinni. Ágústa sinnti ýmsum félags- störfum í gegnum tíðina og var mikil baráttumanneskja fyrir réttindum fólks með þroska- hömlun. Hún sat í stjórn Lands- samtaka Þroskahjálpar og var Mín kæra æskuvinkona Ágústa er látin. Við kynntumst fyrir mörgum árum þegar við vorum báðar í Öskjuhlíðarskóla. Við náðum strax vel saman og urðum góðar vinkonur og hitt- umst oft þótt önnur ætti heima í Hafnarfirði en hin í Reykjavík. Þegar við útskrifuðumst úr Öskjuhlíðarskóla fórum við báð- ar og fleiri vinir okkar úr skól- anum í tónlistarnám hjá Full- orðinsfræðslu fatlaðra, síðar Fjölmennt. Þar spiluðum við og sungum saman í hljómsveitinni Plútó og áttum saman góðar stundir með okkar frábæru tón- listarkennurum. Hljómsveitin okkar hefur komið víða fram og alltaf á vor- og jólatónleikum þar sem Ágústa sá iðulega um að vera kynnir og leysti hún það með glæsibrag eins og hennar var von og vísa. Í gegnum áratuga vináttu höfum við vinkonurnar oft verið með saumaklúbb, farið saman út að borða og brallað margt skemmtilegt. Ég var mjög heppin þegar Ágústa og Johnny fluttu í Hafnarfjörð og fékk ekki svo sjaldan far með þeim þegar við vorum að fara eitt- hvað saman. Johnny hefur aldr- ei talið það eftir sér að stjana við okkur og skutla okkur fram og til baka. Ágústa var einstaklega raun- góð, hjálpsöm og góður vinur og bar alltaf mikla umhyggju fyrir öðrum. Mér leið alltaf vel í kringum hana og á eftir að sakna hennar mikið. Öll þessi ár hefur aldrei borið skugga á okkar vináttu og það þykir mér mjög vænt um. Nú er stórt skarð höggvið í vinahópinn. Elsku Johnny, missir þinn er mikill, en þú átt ljúfar og góðar minningar um einstaka konu. Ég og mamma vottum Jo- hnny og allri fjölskyldu Ágústu okkar dýpstu samúð. Elín Helga og Guðrún. Ég er búinn að þekkja Ágústu frá því að hún var 15 ára gömul. Við kynntumst í Öskjuhlíðarskóla þegar ég var að hætta og hún og Magnús Korntop heitinn að byrja. Ágústa var yndislega góð kona, alltaf hress og kát og brosmild. Þegar ég hugsa um hana heyri ég röddina hennar segja „hæ Björgvin“. Hún var góður vinur og mjög góðhjörtuð vinkona, bæði mín og allra í Átaki og líka þegar ég var í íþróttafélaginu Ösp þar sem hún var í borð- tennis og kvennaliðinu í hokkí sem fór til Danmerkur. Einu sinni var Ágústa kosin íþrótta- maður ársins í Öskjuhlíðar- skóla. Við fórum líka einu sinni á Steinsstaðahátíðina og þar var Ágústa með sínum heittelskaða Johnny. Þar var mikið líf og fjör og góðar minningar. Ágústa söng í Plútó og ég á disk með henni, hún var góð söngkona og elskaði að syngja. Hún spilaði líka oft á slagverk og bongótrommur. Minningin þín lifir alltaf í hjarta mínu. Elsku Johnny og aðrir ástvinir, ég sendi mína innilegustu samúðarkveðju. Þinn vinur, Björgvin Kristbergsson. Ágústa var fremur hæglát og hógvær manneskja en líka glettin og kurteis og einstak- lega þægileg í samskiptum. Hún var hugrökk og staðföst og því engin tilviljun að félagar hennar í Átaki treystu henni til að vera í stjórn félagsins og í forsvari fyrir það. Ágústa sat jafnframt í stjórn og fram- kvæmdaráði Landssamtakanna Þroskahjálpar og var varafor- maður samtakanna. Ágústa tók því mótlæti sem hún mætti í lífinu af aðdáun- arverðu æðruleysi og sást það best í erfiðum veikindum henn- ar. Hún bar sig alltaf vel og við vinir hennar áttuðum okkur ekki á í hvað stefndi fyrr en al- veg undir lokin. Hún fylgdist vel með starfi Átaks og Þroskahjálpar af sjúkrabeði og hélt líka stjórn- arfund í Átaki með aðstoð fjar- fundarbúnaðar frá sjúkrahús- inu. Ég gat hringt í hana og borið undir hana málefni sam- takanna alveg fram undir það síðasta og hún hringdi í mig til að bera undir mig málefni Átaks og samtakanna með sama hætti. Alltaf bar hún sig vel og vildi sem minnst gera úr veikindum sínum. Í síðasta samtalinu sem ég átti við hana, nokkrum dög- um fyrir andlátið, hafði hún sér- staklega orð á því hvað það væri mikilvægt að halda í gleðina og að leyfa sér að grín- ast svolítið þrátt fyrir aðstæður. Mikil og mikilvæg baráttu- kona fyrir mannréttindum fólks með þroskahömlun og annars fatlaðs fólks er fallin frá. Henn- ar verður sárt saknað sem góðs og trausts vinar og samstarfs- konu í þeirri baráttu. Minning Ágústu verður best heiðruð með því að við sem með henni unnum höldum þeirri bar- áttu ótrauð áfram. Þar er enn mörg og mikilvæg verkefni að vinna og það hefði Ágústa vilj- að. Innilegar samúðarkveðjur til Johnnys og annarra ástvina. Missir þeirra er mikill og sár. Hvíldu í friði kæra vinkona og samstarfskona. F.h. stjórnar og starfsfólks Landssamtakanna Þroskahjálp- ar, Bryndís Snæbjörnsdóttir. Elsku Ágústa okkar, nú ertu farin frá okkur og við í stjórn Átaks munum sakna þín sárt. Við eigum öll góðar minningar um þig. Þú varst frábær sam- starfskona og vinur, gríðarlega sterk baráttukona og flottur söngvari. Þú varst mikil fyr- irmynd og þrautseig og dugleg, vannst fyrir félagið fram á síð- asta dag í hagsmunabaráttu og fórst alltaf áfram veginn á óbil- andi jákvæðni. Við minnumst þín öll með mikilli hlýju en þú gafst alltaf svo mikið af þér og varst hjartahlý og góð við alla. Minningarnar lifa um skemmtileg ferðalög, hláturinn og margar yndislegar samveru- stundir. Stjórn Átaks, félag fólks með þroskahömlun, Haukur Guðmundsson, Sunnefa Gerhards- dóttir, Jónína Rósa Hjartardóttir, Gísli Björnsson, Helga Pálína Sigurðardóttir, Inga Hanna Jóhannesdóttir, Jakob Ingimundarson og Díana Sjöfn Jóhannsdóttir. Ágústa Erla Þorvaldsdóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.