Morgunblaðið - 02.09.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.09.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson Veronika Steinunn Magnúsdóttir Samherji hefur kært ellefu starfs- menn Ríkisútvarpsins til siðanefnd- ar Ríkisútvarpsins fyrir meint brot á siðareglum þess, að því er fram kom í tilkynningu sem var birt á vef Sam- herja í gær. Var þar einnig birt kær- an í heild sinni og snýr hún að ákvæði siðareglna sem meinar starfsfólki sem sinnir umfjöllun um fréttir, fréttatengt efni og dagskrár- gerð að taka „opinberlega afstöðu í umræðu um pólitísk málefni eða um- deild mál í þjóðfélagsumræðunni, þ.á m. á samfélagsmiðlum“. Í kærunni er fjöldi tilvika talinn upp þar sem Samherji telur að starfsfólkið hafi brotið gegn siða- reglunum og er því haldið fram að allir hafi tekið afstöðu til mála er tengjast umfjöllun um Samherja og er Seðlabankamálið sérstaklega nefnt og starfsemi Samherja í Nami- bíu. Auk þess er nefnd tjáning um eignarhald fyrirtækja í sjávarútvegi og eignarhald á hlutabréfum í Eim- skip. Þá telur Samherji að svo virðist sem starfsmenn Ríkisútvarpsins hafi „átt samantekin ráð þar sem margar þeirra færslna, sem fjallað er um í kærunni, voru birtar á samfélags- miðlum því sem næst samtímis,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins. Varðist rangfærslum „Þarna er um margítrekuð brot að ræða hjá sumum þeirra einstaklinga sem eiga í hlut. Þá virðist hópur manna, sem starfa við fréttir og dag- skrárgerð, hafa haft samantekin ráð um að skaða orðspor Samherja. Af þessu er augljóst að Samherji á eng- an möguleika á því að fá hlutlausa umfjöllun hjá Ríkisútvarpinu,“ er haft eftir Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, í tilkynningunni. Meðal þeirra sem kæra Samherja nær til er Sigmar Guðmundsson, dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisút- varpinu, og er vísað í kærunni til færslu sem Sigmar birtir á Facebook 11. ágúst síðastliðinn. Sigmar vísaði ásökunum í kæru Samherja á bug í samtali við mbl.is í gær. „Ég var ekki að blanda mér í pólitíska almenna umræðu eða um- ræður um þjóðmál heldur var ég að bregðast við myndbandi sem var uppfullt af rangfærslum um frétta- mál sem var birt í þætti sem ég var ritstjóri yfir.“ Óskað eftir tilnefningum Er blaðamaður leitaði til Ríkisút- varpsins til þess að afla upplýsinga um hverjir eiga sæti í siðanefndinni, fengust þau svör að ekki hafi verið skipað í nefndina í fyrra eins og gert er ráð fyrir í siðareglum Ríkisút- varpsins. „Endurskoðun siðareglna RÚV hefur staðið yfir frá síðasta ári og hefur því ekki verið endurskipað í nefndina. Í ljósi framkominnar kæru til siðanefndar hefur verið óskað eft- ir tilnefningum í nefndina og að þeim fengnum verður kæran send nefnd- inni til meðferðar,“ segir í svari Rík- isútvarpsins. Kæra starfsmenn RÚV til siðanefndar  Nefndin ekki skipuð í fyrra eins og reglur gera ráð fyrir Morgunblaðið/Eva Björk RÚV Siðanefnd verður skipuð í kjölfar kæru Samherja hf. » Aðalsteinn Kjartansson fréttamaður » Freyr Gígja Gunnarsson fréttamaður » Helgi Seljan fréttamaður » Lára Ómarsdóttir fréttamaður » Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri » Sigmar Guðmundsson dagskrárgerðarmaður » Snærós Sindradóttir verkefnastjóri » Stígur Helgason fréttamaður » Sunna Valgerðardóttir fréttamaður » Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks » Tryggvi Aðalbjörnsson fréttamaður Þau sem kærð eru STARFSMENN RÚV Veronika Steinunn Magnúsdóttir Oddur Þórðarson Óundirbúinn fyrirspurnatími var á dagskrá borgarstjórnar í fyrsta sinn í gær og nýttu borgarfulltrúar tæki- færið til þess að ræða hin ýmsu mál, allt frá lagningu Sundabrautar til stöðu biðlista eftir félagslegri þjón- ustu við borgarbúa. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð- isflokksins, átti fyrstu fyrirspurnina og spurði hann út í afstöðu meiri- hlutans til lagningar Sundabrautar. Sagði Eyþór að hagstæðasta leið Sundabrautar hefði verið gerð ómöguleg vegna skipulags borgar- innar við Vogabyggð og gagnrýndi hann að borgin hefði heimilað mann- virki við vegstæði Sundabrautar og hafið framkvæmdir sem þrengi að vegstæði brautarinnar. Ekkert gert til að efna skyldur Benti Eyþór á að borgarstjóri hefði lýst því yfir árið 2006 að lagn- ing Sundabrautar væri „algjört for- gangsverkefni í okkar augum“. Sagði Eyþór jafnframt að liðin væru 23 ár frá því að borgarstjórn hefði lofað í samkomulagi, sem kallað var „Blábókin“, að beita sér fyrir lagn- ingu Sundabrautar. „Nú er liðið ár síðan borgarstjóri skrifaði undir samgöngusáttmála og ekkert hefur verið gert til að efna þessar skyldur borgarinnar,“ sagði Eyþór ennfremur. Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri svaraði fyrirspurn Eyþórs og sagði gott að minna á að samgöngu- sáttmálinn fjallaði um framkvæmdir upp á 120 milljarða í samvinnu sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu og ríkisins. „Sundabraut, sem hér er nefnd, er ekki fjármögn- uð innan sáttmálans en það er rétt að sáttmálinn kveður á um að tryggja tengingar við hana. Það hef- ur frá upphafi verið gert ráð fyrir því að hún verði einhvers konar einkaframkvæmd og borguð að stórum hluta með veggjöldum,“ sagði Dagur. Málið í „traustum farvegi“ Sagði hann að það sem Eyþór kallaði bestu leiðina hefði verið mjög umdeilt bæði í Grafarvogi og í Laugardalnum, og að höfðu samráði við bæði Vegagerðina og íbúa á ár- unum 2005-2008 hefði það verið þverpólitísk niðurstaða að Sunda- braut væri best í göngum. Sagði Dagur að lagning Sundabrautar hefði farið á nokkra bið eftir hrun, þar sem henni hefði verið ætlaðir fjármunir sem glötuðust í hruninu. „Málið hefur aftur verið tekið upp á undanförnum árum og er í traust- um og góðum farvegi í sameiginleg- um hópi ríkisborgara Faxaflóa- hafna, sem eru að skoða Sundabraut í göngum og samanburð við Sunda- braut á lágbrú á svæðinu til móts við Holtaveg,“ sagði hann að lokum. Hagstæðasta leiðin „gerð ómöguleg“  Óundirbúinn fyrirspurnatími haldinn í borgarstjórn í fyrsta sinn  Oddviti Sjálfstæðisflokks gagn- rýndi afstöðu meirihlutans til lagningar Sundabrautar  Borgarstjóri segir málið í góðum farvegi Morgunblaðið/Árni Sæberg Fyrirspurnatími Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokks, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ræddu Sundabraut. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins lögðu í gær fram til- lögu um að ráðast í tilrauna- verkefni með sjálfkeyrandi strætisvagna. Tillögunni var vísað frá á fundi borgar- stjórnar. Skorað var á stjórn Strætó að ráðast í verkefnið. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í borgar- stjórn, sagði í samtali við Morgunblaðið að vel hefði verið tekið í tillöguna og að fögrum orðum hefði verið far- ið um hana. Hins vegar hefði meirihlutinn í borginni ekki séð ástæðu til þess að taka málið fyrir að svo stöddu. Það þykir Eyþóri miður. „Svona verkefni eru til skoðunar í fjölmörgum borgum um allan heim. Reykjavík á að sjálf- sögðu að vera borg meðal borga í þeim efnum. Það kom engin gagnrýni fram um þessa tillögu enda er alveg skýrt að framtíð borgarinnar er fólgin í svona lausnum.“ Fögrum orðum farið um tillöguna SJÁLFKEYRANDI STRÆTÓ 544 5151tímapantanir Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna aðgerðir ríkisstjórnarinnar ALLIR VINNA sem felur í sér endurgreiðslu á VSK af vinnulið einkabifreiða Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi Umhverfisvænt og náttúrulegt Þurrgufan í LauraStar hreinsar fötin þín á náttúrulegan hátt án þess að nota efnavörur. Meira en 99,999% af bakteríum, sveppagróðri, rykmaurum og lykt er útrýmt á áhrifamikinn hátt. Þurrgufan hjá LauraStar skilar fatnaðinum fullkomlega þurrum og gefur þannig örverum litla möguleika á að vaxa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.