Morgunblaðið - 02.09.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 02.09.2020, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2020 Kanínur Þessar krúttlegu kanínur léku sér í haustblíðunni í Elliðaárdalnum á dögunum. Stukku þær um og bitu gras í mestu makindum milli þess sem þær virtu fyrir sér nágrenni sitt. Eggert Við Íslendingar höf- um ýmsa fjöruna sopið í efnahagsmálum. Engu að síður hefur okkur tekist að byggja hér upp eitt mesta vel- ferðarríki heims. Yf- irleitt höfum við náð vopnum okkar fljótt aftur eftir áföll, þótt dæmi séu um að það hafi tekið lengri tíma en efni stóðu til vegna rangra að- gerða og ákvarðana stjórnvalda. Nýtt uppgjör Hagstofunnar á þjóðhagsreikningum er ekki sérlega glæsilegt. Aldrei hefur samdráttur verið meiri en á öðrum fjórðungi árs- ins eða 9,3% frá sama tíma fyrir ári. Sérfræðingar Hagstofunnar benda á að takmarkanir á „ferðalögum fólks á milli landa höfðu veruleg áhrif á bæði inn- og útflutning þjónustu á tímabilinu en í niðurstöðunum gætir einnig fjölþættra áhrifa samkomu- banns á eftirspurn eftir vöru og þjónustu af ýmsu tagi hér á landi“. Niðursveiflan endurspeglast meðal annars í þeirri staðreynd að heild- arfjöldi vinnustunda dróst saman um 11,3% prósent. En þrátt fyrir djúpa dýfu á öðrum fjórðungi er útlitið fyrir árið í heild sinni ekki eins svart og margir reikn- uðu með nokkrum vikum eftir að far- aldurinn lagðist á okkur af fullum þunga. Í nýrri þjóðhagsspá Seðla- bankans í ágúst er gengið út frá því að landsframleiðslan dragist saman um 7% í ár og að atvinnuleysi verði um 10% í lok ársins. Þetta er nokkuð minni samdráttur en bankinn gerði ráð fyrir í maí en þar vegur þyngst kröftugri einkaneysla en búist var við. En síðari hluti ársins verður engu að síður erfiður fyrir fyrirtæki og heimili. Að öðru óbreyttu getum við gert okkur vonir um nokkuð kröftugan viðsnúning á komandi ári. Staðan misjöfn Í Peningamálum Seðlabankans kemur fram að áætlað sé að lands- framleiðsla í helstu viðskiptalöndum okkar hafi dregist saman um tæp- lega 13% á öðrum fjórð- ungi ársins. Þetta er mesti samdráttur á ein- um fjórðungi frá upp- hafi mælinga. Vísbend- ingar eru um að alþjóðleg efnahags- umsvif hafi, eftir því sem leið á fjórðunginn, sótt nokkuð í sig veðrið en að horfur fyrir seinni hluta ársins hafi versnað. Hagstofan birtir áhugaverða mynd af stöðu einstakra landa í frétt um upp- gjör þjóðhagsreikninga. Þar kemur glöggt í ljós að þótt samdráttur hér á landi mælist sögulega mikill berjast mörg helstu lönd heims við enn dýpri samdrátt og erfiðleika. Í Evrópu- sambandinu var samdráttur lands- framleiðslu á öðrum ársfjórðungi 11,7% frá fyrri fjórðungi. Í Bretlandi var samdrátturinn 20,4%, 18,5% á Spáni og 13,8% í Frakklandi. Áhrif kórónuveirunnar á efnahag virðast minnst í Finnlandi, Noregi og Lithá- en. Vert er að hafa í huga að um er að ræða bráðabirgðatölur og setur Hagstofa Íslands þær fram með fyr- irvara. Áhyggjuefni Ekkert samfélag sækir fram án þess að fjárfesta. Þess vegna er það áhyggjuefni að fjárfesting skuli dragast saman. Í heild var samdrátt- urinn 18,7% á öðrum ársfjórðungi borið saman við sama tímabil á liðnu ári. Hagstofan bendir á að þrátt fyrir myndarlegan vöxt í fjárfestingu hins opinbera á sviði vegaframkvæmda, hafi samdráttur í fjármunamyndun hins opinbera á öðrum fjórðungi ver- ið 17,3%. Sé hins vegar litið fram hjá fjárfestingu í Herjólfi á síðasta ári jókst fjárfesting ríkisins um 15% að raungildi. Fjárfesting sveitarfélaga dróst hins vegar saman um 9% milli ára og var í heild nokkuð minni á fyrri hluta ársins en áætlanir sveit- arfélaganna gerðu ráð fyrir. Fyrir þá sem gera sér grein fyrir því að atvinnulífið – fyrirtækin í landinu – skapa þau verðmæti sem okkur eru nauðsynleg til að standa undir velferðarsamfélaginu, er það sérstakt áhyggjuefni hve atvinnu- vegafjárfesting hefur dregist saman. Á öðrum ársfjórðungi minnkaði hún um 17,8% og um 4,7% á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sama tímabil 2019. Ný tækifæri og ný störf verða ekki til án fjárfestinga. Það er því eitt helsta verkefni stjórnvalda að örva atvinnuvegafjárfestingu til lengri og skemmri tíma. Á margan hátt er umhverfið hagstætt í því lág- vaxtaumhverfi sem við búum við. En óvissan um þróun efnahagsmála veldur því að fjárfestar halda að sér höndum. Skattaleg umgjörð skiptir einnig miklu. Hár fjármagns- tekjuskattur ýtir a.m.k. ekki undir fjárfestingu. En tölur um fjárfestingu – ekki síst fjárfestingu hins opinbera – geta verið villandi. Aukin fjárfesting ríkis og sveitarfélaga getur aldrei verið sjálfstætt markmið. Sumar fjárfest- ingar eru í eðli sínu þannig að þær kalla hreinlega á aukin útgjöld á komandi árum. Aðrar fjárfestingar eru hins vegar arðsamar fyrir sam- félagið í heild sinni. Bættar sam- göngur eru augljóst dæmi. En arð- bærar fjárfestingar þurfa ekki allar að vera í einhverju handföstu – ein- hverju áþreifanlegu; vegum, höfnum, byggingum. Fjárfesting í hugviti og þekkingu gefur að líkindum meira af sér en flest annað sem við getum ráðist í og fjármagnað úr sameig- inlegum sjóðum. (Raunar má færa fyrir því rök að við eigum að hætta að horfa á framlög hins opinbera til menntamála, sem útgjöld, fremur sem fjárfestingu sem eðlilegt er að afskrifa á 40 árum – á starfsævi hvers einstaklings). Sama gildir um fjárfestingu í bættri heilsu lands- manna. Hagsýni búmannsins Jafnvel þegar glímt er við erf- iðleika í efnahagslífinu má ekki leggja til hliðar kröfuna um arðsemi fjárfestinga hins opinbera. Hið sama á við um sameiginlegar eignir okkar. Í greinargerð með breytingu á fjár- málastefnu kemur fram að sam- anlagður halli á ríkissjóði á þessu og næsta ári verði um 500 milljarðar króna. Við slíkar aðstæður horfir hagsýnn búmaður yfir efnahags- reikninginn til að átta sig á því hvort ekki leynist þar ýmislegt sem skyn- samlegt sé að losa sig við í stað þess að safna skuldum, sem velt er inn í óvissa framtíð. Umfangsmikil arðbær opinber innviðafjárfesting er hyggileg ekki síst þegar glímt er við samdrátt í efnahagslífinu. En það er jafn mik- ilvægt að tryggja arðbæra nýtingu þeirra eigna sem fyrir eru. Ég hef ítrekað haldið því fram að nauðsyn- legt sé að fram fari umræða og at- hugun á því hvort og þá hvernig nýt- ing eigna ríkisins þjónar hagsmunum landsmanna best. Al- menningur gerir þá eðlilegu kröfu að dýrmætum skatttekjum sé varið af skynsemi en ætlast einnig til þess að bundnir fjármunir séu nýttir í það sem mikilvægast er. Á því er mis- brestur og hundruð milljarða liggja í eignum sem hafa ekkert með grunn- skyldur ríkisins að gera. Markmiðið er að fjölga tækifær- unum, bæta lífskjör allra og búa í haginn fyrir framtíðina. Rauði þráð- urinn í hugmyndabaráttu okkar hægri manna er mannhelgi ein- staklingsins. Við lítum svo á að and- legt og efnahagslegt frelsi sé frum- réttur hvers og eins. Virðing fyrir frumréttinum tryggir betur en nokk- uð annað velsæld samfélaga. Þegar stjórnvöld telja nauðsynlegt að ganga á þennan frumrétt, þó ekki sé nema í takmarkaðan tíma í nafni al- mannaheilla, er nauðsynlegt að byggt sé á skýrum lagalegum grunni. Almenningur verður að skilja rökin sem liggja þar að baki og fá skýrar upplýsingar um hvenær og undir hvaða skilyrðum hömlum verð- ur aflétt. Annars missa stjórnvöld trúverðugleika, samstaða samfélags- ins brestur og aðgerðir til varnar al- menningi snúast upp í andhverfu sína. Í stað þess að takast á við ný verkefni situr samfélagið í heild sinni með hendur í skauti. Fjárfesting – trúin á framtíðina – gufar upp. Eftir Óla Björn Kárason »Rauði þráðurinn í hugmyndabaráttu hægri manna er mann- helgi einstaklingsins – að andlegt og efnahags- legt frelsi sé frumréttur hvers og eins. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Trúin á framtíðina Breyting á landsframleiðslu á 2. ársfj. 2020 Hlutfallsleg raunbreyting m.v. 2. ársfj. 2019 (árstíðaleiðrétt)* Fi nn la nd N or eg ur Li th áe n D an m ör k Le tt la nd Sv íþ jó ð Pó lla nd Ís la nd B an da rík in Þý sk al an d Au st ur rík i ES B- m eð al ta l Íít al ía Fr ak kl an d Po rt úg al Sp án n B re tla nd * Fyrstu bráðabirgðatölur sem hagstofur viðkomandi ríkja hafa birt á undanförnum vikum og eru settar fram með fyrirvara um aukna óvissu í niðurstöðum. Heimild: Hagstofa Íslands. -20,4% -18,5% -13,8% -11,7% -9,3% -8,3% -7,4% -4,5% -5,1%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.