Morgunblaðið - 02.09.2020, Page 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2020
Kanínur Þessar krúttlegu kanínur léku sér í haustblíðunni í Elliðaárdalnum á dögunum. Stukku þær um og bitu gras í mestu makindum milli þess sem þær virtu fyrir sér nágrenni sitt.
Eggert
Við Íslendingar höf-
um ýmsa fjöruna sopið
í efnahagsmálum.
Engu að síður hefur
okkur tekist að byggja
hér upp eitt mesta vel-
ferðarríki heims. Yf-
irleitt höfum við náð
vopnum okkar fljótt
aftur eftir áföll, þótt
dæmi séu um að það
hafi tekið lengri tíma
en efni stóðu til vegna rangra að-
gerða og ákvarðana stjórnvalda.
Nýtt uppgjör Hagstofunnar á
þjóðhagsreikningum er ekki sérlega
glæsilegt. Aldrei hefur samdráttur
verið meiri en á öðrum fjórðungi árs-
ins eða 9,3% frá sama tíma fyrir ári.
Sérfræðingar Hagstofunnar benda á
að takmarkanir á „ferðalögum fólks
á milli landa höfðu veruleg áhrif á
bæði inn- og útflutning þjónustu á
tímabilinu en í niðurstöðunum gætir
einnig fjölþættra áhrifa samkomu-
banns á eftirspurn eftir vöru og
þjónustu af ýmsu tagi hér á landi“.
Niðursveiflan endurspeglast meðal
annars í þeirri staðreynd að heild-
arfjöldi vinnustunda dróst saman um
11,3% prósent.
En þrátt fyrir djúpa dýfu á öðrum
fjórðungi er útlitið fyrir árið í heild
sinni ekki eins svart og margir reikn-
uðu með nokkrum vikum eftir að far-
aldurinn lagðist á okkur af fullum
þunga. Í nýrri þjóðhagsspá Seðla-
bankans í ágúst er gengið út frá því
að landsframleiðslan dragist saman
um 7% í ár og að atvinnuleysi verði
um 10% í lok ársins. Þetta er nokkuð
minni samdráttur en bankinn gerði
ráð fyrir í maí en þar vegur þyngst
kröftugri einkaneysla en búist var
við. En síðari hluti ársins verður
engu að síður erfiður fyrir fyrirtæki
og heimili. Að öðru óbreyttu getum
við gert okkur vonir um nokkuð
kröftugan viðsnúning á komandi ári.
Staðan misjöfn
Í Peningamálum Seðlabankans
kemur fram að áætlað sé að lands-
framleiðsla í helstu viðskiptalöndum
okkar hafi dregist saman um tæp-
lega 13% á öðrum fjórð-
ungi ársins. Þetta er
mesti samdráttur á ein-
um fjórðungi frá upp-
hafi mælinga. Vísbend-
ingar eru um að
alþjóðleg efnahags-
umsvif hafi, eftir því
sem leið á fjórðunginn,
sótt nokkuð í sig veðrið
en að horfur fyrir
seinni hluta ársins hafi
versnað.
Hagstofan birtir
áhugaverða mynd af
stöðu einstakra landa í frétt um upp-
gjör þjóðhagsreikninga. Þar kemur
glöggt í ljós að þótt samdráttur hér á
landi mælist sögulega mikill berjast
mörg helstu lönd heims við enn dýpri
samdrátt og erfiðleika. Í Evrópu-
sambandinu var samdráttur lands-
framleiðslu á öðrum ársfjórðungi
11,7% frá fyrri fjórðungi. Í Bretlandi
var samdrátturinn 20,4%, 18,5% á
Spáni og 13,8% í Frakklandi. Áhrif
kórónuveirunnar á efnahag virðast
minnst í Finnlandi, Noregi og Lithá-
en. Vert er að hafa í huga að um er
að ræða bráðabirgðatölur og setur
Hagstofa Íslands þær fram með fyr-
irvara.
Áhyggjuefni
Ekkert samfélag sækir fram án
þess að fjárfesta. Þess vegna er það
áhyggjuefni að fjárfesting skuli
dragast saman. Í heild var samdrátt-
urinn 18,7% á öðrum ársfjórðungi
borið saman við sama tímabil á liðnu
ári.
Hagstofan bendir á að þrátt fyrir
myndarlegan vöxt í fjárfestingu hins
opinbera á sviði vegaframkvæmda,
hafi samdráttur í fjármunamyndun
hins opinbera á öðrum fjórðungi ver-
ið 17,3%. Sé hins vegar litið fram hjá
fjárfestingu í Herjólfi á síðasta ári
jókst fjárfesting ríkisins um 15% að
raungildi. Fjárfesting sveitarfélaga
dróst hins vegar saman um 9% milli
ára og var í heild nokkuð minni á
fyrri hluta ársins en áætlanir sveit-
arfélaganna gerðu ráð fyrir.
Fyrir þá sem gera sér grein fyrir
því að atvinnulífið – fyrirtækin í
landinu – skapa þau verðmæti sem
okkur eru nauðsynleg til að standa
undir velferðarsamfélaginu, er það
sérstakt áhyggjuefni hve atvinnu-
vegafjárfesting hefur dregist saman.
Á öðrum ársfjórðungi minnkaði hún
um 17,8% og um 4,7% á fyrstu sex
mánuðum ársins miðað við sama
tímabil 2019. Ný tækifæri og ný störf
verða ekki til án fjárfestinga. Það er
því eitt helsta verkefni stjórnvalda
að örva atvinnuvegafjárfestingu til
lengri og skemmri tíma. Á margan
hátt er umhverfið hagstætt í því lág-
vaxtaumhverfi sem við búum við. En
óvissan um þróun efnahagsmála
veldur því að fjárfestar halda að sér
höndum. Skattaleg umgjörð skiptir
einnig miklu. Hár fjármagns-
tekjuskattur ýtir a.m.k. ekki undir
fjárfestingu.
En tölur um fjárfestingu – ekki
síst fjárfestingu hins opinbera – geta
verið villandi. Aukin fjárfesting ríkis
og sveitarfélaga getur aldrei verið
sjálfstætt markmið. Sumar fjárfest-
ingar eru í eðli sínu þannig að þær
kalla hreinlega á aukin útgjöld á
komandi árum. Aðrar fjárfestingar
eru hins vegar arðsamar fyrir sam-
félagið í heild sinni. Bættar sam-
göngur eru augljóst dæmi. En arð-
bærar fjárfestingar þurfa ekki allar
að vera í einhverju handföstu – ein-
hverju áþreifanlegu; vegum, höfnum,
byggingum. Fjárfesting í hugviti og
þekkingu gefur að líkindum meira af
sér en flest annað sem við getum
ráðist í og fjármagnað úr sameig-
inlegum sjóðum. (Raunar má færa
fyrir því rök að við eigum að hætta
að horfa á framlög hins opinbera til
menntamála, sem útgjöld, fremur
sem fjárfestingu sem eðlilegt er að
afskrifa á 40 árum – á starfsævi
hvers einstaklings). Sama gildir um
fjárfestingu í bættri heilsu lands-
manna.
Hagsýni búmannsins
Jafnvel þegar glímt er við erf-
iðleika í efnahagslífinu má ekki
leggja til hliðar kröfuna um arðsemi
fjárfestinga hins opinbera. Hið sama
á við um sameiginlegar eignir okkar.
Í greinargerð með breytingu á fjár-
málastefnu kemur fram að sam-
anlagður halli á ríkissjóði á þessu og
næsta ári verði um 500 milljarðar
króna. Við slíkar aðstæður horfir
hagsýnn búmaður yfir efnahags-
reikninginn til að átta sig á því hvort
ekki leynist þar ýmislegt sem skyn-
samlegt sé að losa sig við í stað þess
að safna skuldum, sem velt er inn í
óvissa framtíð.
Umfangsmikil arðbær opinber
innviðafjárfesting er hyggileg ekki
síst þegar glímt er við samdrátt í
efnahagslífinu. En það er jafn mik-
ilvægt að tryggja arðbæra nýtingu
þeirra eigna sem fyrir eru. Ég hef
ítrekað haldið því fram að nauðsyn-
legt sé að fram fari umræða og at-
hugun á því hvort og þá hvernig nýt-
ing eigna ríkisins þjónar
hagsmunum landsmanna best. Al-
menningur gerir þá eðlilegu kröfu að
dýrmætum skatttekjum sé varið af
skynsemi en ætlast einnig til þess að
bundnir fjármunir séu nýttir í það
sem mikilvægast er. Á því er mis-
brestur og hundruð milljarða liggja í
eignum sem hafa ekkert með grunn-
skyldur ríkisins að gera.
Markmiðið er að fjölga tækifær-
unum, bæta lífskjör allra og búa í
haginn fyrir framtíðina. Rauði þráð-
urinn í hugmyndabaráttu okkar
hægri manna er mannhelgi ein-
staklingsins. Við lítum svo á að and-
legt og efnahagslegt frelsi sé frum-
réttur hvers og eins. Virðing fyrir
frumréttinum tryggir betur en nokk-
uð annað velsæld samfélaga. Þegar
stjórnvöld telja nauðsynlegt að
ganga á þennan frumrétt, þó ekki sé
nema í takmarkaðan tíma í nafni al-
mannaheilla, er nauðsynlegt að
byggt sé á skýrum lagalegum
grunni. Almenningur verður að
skilja rökin sem liggja þar að baki og
fá skýrar upplýsingar um hvenær og
undir hvaða skilyrðum hömlum verð-
ur aflétt. Annars missa stjórnvöld
trúverðugleika, samstaða samfélags-
ins brestur og aðgerðir til varnar al-
menningi snúast upp í andhverfu
sína. Í stað þess að takast á við ný
verkefni situr samfélagið í heild sinni
með hendur í skauti. Fjárfesting –
trúin á framtíðina – gufar upp.
Eftir Óla Björn
Kárason »Rauði þráðurinn í
hugmyndabaráttu
hægri manna er mann-
helgi einstaklingsins –
að andlegt og efnahags-
legt frelsi sé frumréttur
hvers og eins.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Trúin á framtíðina
Breyting á landsframleiðslu á 2. ársfj. 2020
Hlutfallsleg raunbreyting m.v. 2. ársfj. 2019 (árstíðaleiðrétt)*
Fi
nn
la
nd
N
or
eg
ur
Li
th
áe
n
D
an
m
ör
k
Le
tt
la
nd
Sv
íþ
jó
ð
Pó
lla
nd
Ís
la
nd
B
an
da
rík
in
Þý
sk
al
an
d
Au
st
ur
rík
i
ES
B-
m
eð
al
ta
l
Íít
al
ía
Fr
ak
kl
an
d
Po
rt
úg
al
Sp
án
n
B
re
tla
nd
* Fyrstu bráðabirgðatölur sem hagstofur viðkomandi
ríkja hafa birt á undanförnum vikum og eru settar fram
með fyrirvara um aukna óvissu í niðurstöðum.
Heimild: Hagstofa Íslands. -20,4%
-18,5%
-13,8%
-11,7%
-9,3%
-8,3%
-7,4%
-4,5%
-5,1%