Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 43
Skapið jafnara og hitakófin hurfu Femarelle vörurnar eru náttú sem finna fyrir einkennum ve Rannsóknir sýna að þær geti unnið gegn beinþynningu. „Ég er svo ánægð með Femarelle að ég mæli með því við allar mínar vinkonur. Femarelle hefur hjálpað mér alveg ótrúlega mikið og bjargað líðan minni.“ Valgerður Kummer Erlingsdóttir. „Líkamsofninn minn var farinn að kveikja á yfirhita í tíma og ótíma en það hætti alveg.“Halldóra Ósk Sveinsdóttir. Valgerður Kummer Erlingsdóttir.Halldóra Ósk Sveinsdóttir. Breytingaskeiðið er eitthvað semengin kona sleppur við. Einkenningeta verið afar mismunandi og þó svo að sumar konur sleppi nokkuð vel og finni lítið fyrir breytingunum. Hvað er breytingaskeið Breytingaskeiðið hefst þegar eggjastokkar konunnar draga úr framleiðslu á kvenhormónum og að lokum hætta. Þetta hefst oftast þegar konur eru á bilinu 45-52 ára en þó eru mörg dæmi þess að þetta ferli byrji fyrr og jafnvel síðar. Á þessu skeiði kemst ójafnvægi á hormónana sem getur lýst sér á margvíslegan máta en þetta eru einkenni eins og: ■ Fyrirtíðaspenna ■ Óreglulegar blæðingar ■ Hitakóf & nætursviti ■ Svefntruflanir ■ Skapsveiflur ■ Þurr húð og minni teygjanleiki ■ Minni orka, þreyta og slen ■ Pirringur ■ Aukinn hjartsláttur ■ Höfuðverkur ■ Minni kynlöngun ■ Kvíði og sorgartilfinning Femarelle hefur hjálpað fjölmörgum konum sem hafa verið að glíma við einkenni breytingaskeiðs. Í þeim hópi eru Valgerður Kummer Erlingsdóttir og Halldóra Ósk Sveinsdóttir sem deila hér með okkur sinni reynslu. Líður svo miklu betur! „Það var þannig hjá mér að ég var farin að svitna mikið yfir daginn og var oft með skapsveiflur, jafnvel að ástæðulausu. Ég var ekki sátt við þessa þróun og fékk hormónatöflur hjá lækninum en var aldrei róleg yfir að nota þær. Ég ákvað því að prófa að skipta þeim út fyrir Femarelle og mér líður svo miklu betur en áður og jafnvel betur en þegar ég notaði hormónana. Ég er svo ánægð með Femarelle að ég mæli með því við allar mínar vinkonur og ég veit að nokkrar eru að nota það líka. Femarelle hefur hjálpað mér alveg ótrúlega mikið og bjargað líðan minni“ segirValgerður. Femarelle virkar! „Þegar að því kom að ég vildi gera eitthvað í málunum, hugnaðist mér ekki að fara á hormónalyf svo ég frestaði alltaf að panta mér tíma hjá lækni. Einhvers staðar rakst ég á umfjöllun um náttúrulega lausn sem var Femarelle og góðar reynslusögur af því. Ég ákvað að kaupa mér einn pakka og prufa, það gæti varla skaðað nokkuð. Eftir 7 til 10 daga inntöku samviskusamlega kvölds og morgna, fór ég að finna mun. Líkamsofninn minn var farinn að kveikja á yfirhita í tíma og ótíma en það hætti alveg. Ég vaknaði 4 til 6 sinnum á nóttu vegna svita og almenns pirrings en sef núna mjög vel sem skilar sér í meiri orku og úthaldi. Fótapirringur sem hefur hrjáð mig í mjög mörg ár hefur einnig minnkað til mikilla muna. Þetta allt þakka ég Femarelle Recharge töflunum því ef ég á þær ekki til þá láta einkennin aftur á sér kræla. Þess vegna get ég sagt með góðri samvisku að Femarelle virkar” segir Halldóra. Hormónar og beinþynning Beinþynning í tengslum við tíðarhvörf leiða í mörgum tilfellum af sér beinbrot og er það talin alvarleg ógn í vestrænum þjóðfélögum þar sem meðalaldur fer sífellt hækkandi. Fyrstu tvo áratugi ævinnar byggjum við upp beinin okkar og upp úr 30 ára aldri fer smá saman að draga úr beinþéttninni. Vegna minnkandi estrógenframleiðslu hjá konum eru þær mun útsettari fyrir beinþynningu heldur en karlar. Helsta innihaldsefnið í Femarelle kallast DT56a en þetta er efnasamband unnið úr óerfðabreyttu soja og viðurkenndar rannsóknir sýna að það örvar estrógennema í staðbundnum vef, slær á einkenni tíðahvarfa og eykur beinþéttni, án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum. Fyrir konur frá 30 ára aldri Femarelle hefur aðstoðað margar konur sem finna fyrir einkennum breytingaskeiðs. Flestar eru sammála því að þær finna minna fyrir hitakófum, hafi jafnara skap, fái betri svefn ásamt því að finna mun á húð og hári. Femarelle vörurnar eru fáanlegar í þremur gerðum sem henta konum á mismunandi stigum tíðarhvarfa, en tíðahvörf hefjast yfirleitt upp úr þrítugu þó svo að einkenna verði ekki vart strax. Kynntu þér kosti Femarelle á www. femarelle.is. Femarelle fæst í öllum stórmörkuðum, apótekum og heilsuverslunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.