Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég var svolítið hissa aðhafa fengið styrkinn, þvíég vissi að við vorumóvenjumörg sem sóttum um, eða sextíu nemendur,“ segir Fehima Líf Purisevic sem er fyrsta árs nemi í læknisfræði við Háskóla Íslands en hún er ein þeirra ný- nema við skólann sem hlaut í þess- ari viku styrk úr Afreks- og hvatn- ingarsjóði stúdenta HÍ. Styrkina fá nýnemar sem hafa náð fram- úrskarandi árangri í námi til stúd- entsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í fé- lagsstörfum eða listum og íþrótt- um. Í hópi styrkþega eru einnig nemendur sem hafa sýnt seiglu og þrautseigju og hafa, þrátt fyrir af- ar erfiðar aðstæður, staðið sig afar vel í námi. Fehima útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík í vor með ágætiseinkunn og hlaut þá m.a. viðurkenningu fyrir góðan ár- angur í líffræði og stærðfræði. Fe- hima er einnig öflug knattspyrnu- kona og var fyrirliði meistara- flokks Víkings í Ólafsvík aðeins 16 ára. Fannst alltaf gaman að horfa á læknaþætti Þegar hún er spurð að því hvers vegna hún valdi að fara í læknisfræði, segist hún hafa ákveðið það strax í grunnskóla. „Mig hefur langað til að verða læknir alveg frá því ég var í sjö- unda bekk. Mér fannst gaman að horfa á læknaþætti og mér fannst læknar flottir,“ segir Fehima og hlær, en hún fór í inntökupróf fyrir læknadeildina í sumar og stóðst það með sóma. „Prófið var svolítið erfitt en ég hafði þrjár vikur til að undirbúa mig fyrir það. Inntökuprófið var fljótlega eftir útskrift mína úr MR sem var ágætt, því ég var þá nýbú- in að rifja allt námsefnið upp fyrir stúdentsprófin,“ segir Fehima sem valdi að fara í MR á sínum tíma því hún vissi að námið þar í nátt- úrufræðideild væri góður und- irbúningur fyrir nám í læknisfræði. „Við erum níu úr MR sem hóf- um nám í læknisfræði núna og það er auðvitað gaman að vera áfram samferða í námi.“ Pabbi flutti til Íslands til að spila fótbolta Fehima hefur ekki getað sinnt fótboltanum eins mikið og hún hefði viljað undanfarið, því hún hefur verið að glíma við langdregin meiðsl. „Annað hnéð er eitthvað að stríða mér,“ segir Fehima sem er fædd og uppalin í Ólafsvík, mamma hennar, Elísa Dögg Helgadóttir, er íslensk en pabbi hennar, Ejub Purisevic, flutti til Íslands á sínum tíma til að spila fótbolta. Fehima byrjaði að æfa fótbolta í Ólafsvík strax og hún gat, eða þegar hún var fimm ára. „Ég byrjaði að æfa fótbolta með HK Víkingi þegar ég flutti til Reykjavíkur fyrir þremur árum til að hefja nám í MR, fór síðan í Stjörnuna og að lokum í KR. Meiðslin byrjuðu einmitt hjá mér eftir að ég flutti í bæinn, svo þetta hefur verið heldur dapurt hjá mér í fótboltanum undanfarin þrjú ár,“ segir Fehima og bætir við að það hafi verið erfitt fyrir hana aðeins 16 ára að flytja ein í bæinn til höfuðborgarinnar úr litla samfélag- inu í Ólafsvík. „Sem betur fer fluttu for- eldrar mínir í bæinn núna á loka- árinu mínu í MR.“ Langar í skurðlækningar Fehima er á þriðju viku í læknanáminu og líkar vel. „Þetta er í raun svipað og ég bjóst við, en reyndar hélt ég að við myndum læra meiri líffræði í byrj- un. Við erum mikið í efnafræði, alla vegana núna. Covid gerir námið vissulega öðruvísi en venjan er, okkur er skipt í hópa svo við séum færri saman í einu í tímum. Í sum- um fögum eru eingöngu fjarfundir og þá er boðið upp á tíma tvisvar í viku ef það er eitthvað sem við vilj- um spyrja nánar um.“ Framtíðarplönin hjá Fehimu eru að halda ótrauð áfram í náminu og hana langar til að sérhæfa sig í einhvers konar skurðlækningum, kannski í einhverju tengdu íþrótta- meiðslum. „Ég vona að ég geti líka haldið áfram að æfa fótbolta, ef tekst að girða fyrir meiðslin hjá mér. Sara Björk Gunnarsdóttir er klárlega frábær fyrirmynd fyrir mig og aðr- ar fótboltastelpur. Mér fannst al- veg geggjað þegar hún skoraði með Lyon um daginn og varð fyrst íslenskra kvenna til að vinna Meistaradeild Evrópu.“ Ákvað fyrir löngu að verða læknir Í vikunni tók fjörutíu og einn nýnemi í Háskóla Íslands við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ. Fehima Líf Purisevic var ein af þeim, en hún er nýnemi í læknisfræði og hefur æft fótbolta frá því hún var fimm ára stelpa í Ólafsvík, þar sem hún er fædd og uppalin. Ljósmyndir/Kristinn Ingvarsson Stór dagur Nýnemarnir við Háskóla Íslands sem fengu styrk úr Afrekssjóði stilltu sér upp með Covid-fjarlægð sín á milli þegar þeir tóku við styrkjum sínum. Fehima er þriðja aftast í þriðju röð frá vinstri. 41 nemi fékk styrk núna. Stolt Fehima að vonum ánægð, hér með Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ. „Norræna húsið ræktar garðinn sinn – bæði bókstaflega með því að gróð- ursetja, en um leið efla tengslin við ís- lenskar jurtir og aðrar sem gætu not- ið sín í íslenskum aðstæðum,“ segir í tilkynningu frá Norræna húsinu. „Í gróðurhúsi og ræktunarkössum við húsið er núna hægt að fylgjast með vexti ýmissa tegunda af matjurtum og öðrum gróðri sem vaxið hefur yfir sumartímann. Inni á kaffihúsinu MATR má síðan smakka uppskeruna í ýmsum réttum og drykkjum. Dagleg tilboð á réttum gerðum úr uppsker- unni verða alla uppskerudagana, 1.-6. september. Hápunktur uppskerudaga verður sunnudaginn 6. september með uppskeruhátíð barnanna. Börn eru hvött til að koma og sjá og smakka uppskeru þeirra fræja sem sáð var snemmsumars. Börn sem tóku þátt í verkefninu munu segja frá og gefa smakk af uppskerunni ásamt Ömmu náttúru, garðyrkjufræðingi, sem leiðbeindi við ræktunina. Á sunnudeginum verður boðið upp á vinnustofur fyrir börn undir leiðsögn Árna Ólafs, sjónvarpskokks og eig- anda MATR. Þar gefst börnum tæki- færi til að kynnast hollri og staðbund- inni matargerð, heimatilbúnu gosi úr ilmexi, pestógerð o.fl.“ Einnig verður ratleikur á bókasafninu í tengslum við sýningu til heiðurs Línu Langsokk 75 ára. Sáum, sjáum og smökkum – Uppskerudagar 1.-6. september í Norræna húsinu Uppskeruhátíð barnanna verður á sunnudag Morgunblaðið/Árni Sæberg Girnilegt Nóg var að gera með góða hráefnið í Norræna húsinu. Nánar á nordichouse.is Uppskera Gaman er að taka uppp grænmetið við Norræna húsið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.