Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að 569 7000 · Lágmúla 4 · miklaborg.is Verð: 41,9 millj. Falleg 86,9 fm 3ja herb. íbúð á 4. hæð í góðu fjölbýli í Selásnum • Eldhús og bað hafa verið endurnýjuð • 2 svefnherbergi • Sér geymsla í kjallara • Frábært útsýni Vallarás 5 112 Reykjavík Nánari upplýsingar veitir: Friðrik Þ. Stefánsson hdl. og aðst. fasteignas. Sími: 616 1313 fridrik@miklaborg.is Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Finnbogason lögg. fasteignasali sími: 822 2307 olafur@miklaborg.is PANTIÐ SKOÐUN hjá Friðrik í síma 616 131 3 ● Frumþáttatekjur eiga alfarið heið- urinn af því að 24 milljarða króna við- skiptaafgangur mælist á fyrri helmingi þessa árs. Þetta kemur fram í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka á vef bankans. Eins og útskýrt er í umfjölluninni eru frumþáttatekjur endurgjald fyrir notkun framleiðsluþátta, þ.e. vinnulaun og fjár- magnstekjur á milli landa. „Á fyrsta fjórðungi ársins var þannig 3 milljarða króna viðskiptahalli ef sá hluti jafnaðarins er undanskilinn,“ segir í umfjölluninni. Þá segir að frumþáttatekjur hafi skil- að talsverðum afgangi frá miðjum síð- asta áratug. Hlutur vinnulauna hefur samkvæmt bankanum færst nær jafn- vægi undanfarin ár en fjármagnstekjur hafa í vaxandi mæli verið langt umfram fjármagnsgjöld. Frumþáttatekjur eiga heiður af 24 ma. afgangi Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hverfið Smárabyggð er suður af Smáralind í Kópavogi. Uppbygging- in er hluti af þéttingu byggðar og hluti af nýju miðbæjarsvæði. Íbúðirnar eru í sex fjölbýlishúsum í Sunnusmára 16-25 og er síðast- nefnda húsið ætlað 60 ára og eldri. Ingvi Jónasson, framkvæmda- stjóri Klasa, segir 54 tilboð hafa bor- ist síðan kórónuveirufaraldurinn hófst. Miðað er við gild tilboð eða kaupsamninga. „Það hefur gengið mjög vel í sum- ar. Júlí var annar stærsti mánuður- inn okkar í söl- unni en þá seldust 18 íbúðir. Fyrri metmánuður var maí 2019 en þá seldust 19 íbúð- ir,“ segir Ingvi um gengið í sum- ar. Komin eru til- boð í allar íbúðir í Sunnusmára 24- 28 og Sunnusmára 20-22 og ein íbúð er óseld í Sunnusmára 19-21. Ingvi segir aðspurður að meðal- stærð seldra íbúða í faraldrinum sé heldur stærri en fyrir faraldurinn. „Það er samt sem áður ágætis blöndun. Við erum bæði að selja minni og stærri íbúðir,“ segir Ingvi. Seldar á listaverði Hann segir aðspurður að selt sé á listaverði og því hafi ekki verið veitt- ur afsláttur af uppsettu verði. „Við verðleggjum hvern reit þegar við byrjum að selja og síðan höfum við haldið því verði,“ segir Ingvi. Spurður um áhrif vaxtalækkana á söluna segir Ingvi að slíkar breyt- ingar hljóti að hafa áhrif. Hann segir kaupendahópinn ekki hafa breyst nema hvað Sunnusmári 25 sé fyrir 60 ára og eldri. Aldurs- samsetning kaupenda er sýnd á grafinu hér fyrir ofan. Ingvi segir aðspurður að Kópa- vogsbær hafi kauprétt að örfáum íbúðum í hverfinu. Þá hafi færri en 10 íbúðir verið seldar fjárfestum. Því sé nær eingöngu um sölu til einstak- linga að ræða. Uppsteypa á rúmlega 80 íbúðum í næsta áfanga er hafin. Þær koma til afhendingar eftir 16-18 mánuði. Ingvi segir hugsanlegt að þær fari í sölu fyrir vorið eða sumarið 2021. Hann segir að faraldurinn hafi al- mennt ekki tafið uppbygginguna. Lýkur eftir fjögur til fimm ár Gert er ráð fyrir að byggðar verði 690 íbúðir í hverfinu eða 15 fleiri en áður var ráðgert, og er áformað að ljúka framkvæmdum eftir fjögur til fimm ár. Að sögn Ingva var nýverið boðið upp á deilibíl í 201 Smára. „Það verð- ur spennandi að sjá viðtökurnar en íbúar fá sérstök kjör og m.a. frítt áskriftargjald,“ segir Ingvi. Handan Reykjanesbrautar hafa hundruð íbúða verið byggðar í Lindahverfinu á síðustu árum. Hafa selt 92% íbúðanna Sala íbúða í 201 Smára* Smárahvammsvegur Smáralind 24-28 23 19-21 25 16-18 20-22 Í SÖLU 2023 Í SÖLU 2023 Í SÖLU 2021 Í SÖLU 2022 Í SÖLU 2022 Reykjanesbraut 690 íbúðir verða alls í hverfi nu þegar það er fullbyggt Heimild: 201.is Mynd: Arkís arkitektar Seldar Óseldar Alls 15. maí 2019 47 83% 10 57 6. des. 2019** 112 84% 21 133 28. febrúar 2020*** 154 72% 59 213 24. ágúst 2020 195 92% 18 213 * Sala 57 íbúða í Sunnusmára 24-28 hófst í ágúst 2018. ** 76 íbúðir fóru í sölu í 2. áfanga í maí 2019. *** 80 íbúðir fóru í sölu í 3. áfanga í desember 2019. Aldur tilboðsgjafa 20-29 ára 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 70-99 ára 29% 12% 14% 14% 20% 12% 32% ef frá eru taldar íbúðir ætlaðar 60+ H ei m ild : 2 01 .is Ingvi Jónasson  Fulltrúar verkefnisins 201 Smári hafa tekið tilboðum í 92% íbúða sem þeir hafa sett á markað suður af Smáralind í Kópavogi  Alls hafa selst 195 íbúðir af 213 Teikning/201smári.is. Sunnusmári Gönguleiðir eru milli húsanna sem hafa mörg hver risið. „Það var framleiðsla á hágæða efni sem kom okkur á kortið“ sagði Hilm- ar Sigurðsson, forstjóri Sagafilm, í kjölfar þeirra tíð- inda að Beta Nordic Studios hefði keypt 25% hlut í fyrirtækinu. Beta Nordic er dótturfélag Beta Film í Þýskalandi sem að sögn er stærsta sjálf- stæða kvik- myndafyrirtæki Evrópu og starfar jafnt við framleiðslu, dreifingu og fjármögnun kvikmynda og sjón- varpsþátta. Sagafilm er þriðja fyrirtækið á Norðurlöndum sem Beta Nordic kaupir og segir Hilmar það vera bæði til marks um þá jákvæðu athygli sem norræn kvikmyndagerð hefur hlotið og einnig hluti þeirrar þróunar að fyrirtæki í þessum geira sameinist í stærri einingar. Í stjórn Sagafilm bætast við tveir menn frá nýja hluthafanum, en Hilm- ar segir að félagið muni halda áfram að starfa sjálfstætt. Fyrir utan hin augljósu tækifæri í umfangsmeiri dreifingu og framleiðslu, segir hann stærstu breytinguna vera þá að geta nú haslað sér völl í framleiðslu efnis á fleiri tungumálum en áður. Hilmar segist afar ánægður með þennan áfanga sem sé viðurkenning á því góða starfi sem hafi verið unnið þar á bæ undanfarin ár. Eigendur Sagafilm eru KPR ehf. og HilGun ehf. og nú Beta Nordic. Samkvæmt tilkynningu velti félagið 2,3 millljörðum á síðasta ári og skilaði hagnaði. Spurður um kaupverð segir Hilmar það vera trúnaðarmál. Efnið kom Sagafilm á kortið Hilmar Sigurðsson  Sagafilm selur 25% hlut til Beta Nordic
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.