Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ráðdeild oghagsýni ímeðferð opinberra fjár- mála ætti að vera sjálfsagður hlut- ur. Gríðarlegur vöxtur útgjalda jafnt hjá ríki sem sveitarfélögum und- anfarna áratugi bendir þó til þess að sú sé ekki raunin. Síð- ur en svo. „Hvers vegna getur ríkið ekki verið til fyrirmyndar um meðferð opinberra fjár- muna?“ spyr Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra í viðtali í Viðskiptamogganum í gær. Hann veltir fyrir sér hvort eitthvert tregðulögmál valdi því að töluvert vanti upp á að svo sé og segir að breyta þurfi kerfinu frá rótum. Í viðtalinu fer Bjarni yfir það hvernig eftirliti með op- inberu fé sé háttað hér á landi. Alþingi láti sig mestu varða hvort farið sé að fjár- lögum. „Ef tíu milljarðar eru veittir á einhverju sviði en út- gjöldin reynast tíu og hálfur, þá skoðar Alþingi hálfa millj- arðinn, en það er enginn að hugsa um þessa tíu,“ segir hann. Fjármálaráðuneytið beri ábyrgð á framkvæmd fjárlaga og hafi verið að láta reyna á nýjung, sem kallist endurmat útgjalda, sem snýst um að meta hvort gera megi hluti öðruvísi, betur eða ódýr- ar. „Ég skal alveg játa að mér hefur þótt það sækjast hægt og kerfið getur verið þung- lamalegt,“ segir Bjarni og bætir við að hann vilji beita sér fyrir viðhorfsbreytingu í kerfinu. Það sé þó hægara sagt en gert. „Ég hef enga trú á því að ég geti lamið slíkar breytingar í gegn úr mínum ráðherrastól, heldur þarf til hugarfarsbreytingu þar sem allir þurfa að koma með og búa til betra verklag og betri opinbera þjónustu.“ Til að setja þessi mál í sam- hengi er vert að vitna í grein, sem Óli Björn Kárason, þing- maður Sjálfstæðisflokks, skrifaði hér í Morgunblaðið fyrir rúmri viku undir yfir- skriftinni „Höfum við efni á þessu öllu?“ Í grein Óla Björns kemur fram að rekstur hins opinbera – ríkis og sveitarfélaga – hafi á föstu verðlagi kostað nær 47 milljörðum króna meira í hverjum mánuði í fyrra en ár- ið 2000. „Þetta jafngildir rúmlega 1,5 milljörðum á hverjum einasta degi, helgi- daga sem virka. […] Sé litið til fjölgunar íbúa hækkaði rekstrarkostnaður hins op- inbera á hvern landsmann um rúmlega 46% á föstu verðlagi. Hækkunin á hverja fjögurra manna fjölskyldu var tæpar 4,3 milljónir króna eða um 355 þúsund á mánuði. Aldamótaárið nam rekstrar- kostnaðurinn um 9,2 millj- ónum á hverja fjölskyldu en á síðasta ári var kostnaðurinn kominn upp í 13,4 milljónir króna eða liðlega 1,1 milljón á mánuði.“ Þetta eru ískyggilegar töl- ur. Þessi glórulausi vöxtur ber því vitni hvað opinber rekstur á auðvelt með að bólgna út án þess að það gangi til baka. Vitaskuld kostar heilbrigð- iskerfið sitt og menntakerfið tekur einnig til sín. Alls stað- ar er krafa um aukin útgjöld og öllum finnst þeir hafa skot- held rök og skýlausan rétt á meiri peningum. Það getur vissulega hljómað þannig þegar hvert mál er rætt fyrir sig, en safnast þegar saman kemur. Í þessari umræðu vill kraf- an um aðhald drukkna í hinni pólitísku umræðu og tilhneig- ingin í kerfinu er að verja sitt og bæta í frekar en að draga saman. Það er eins og gleym- ist að peningar komi ekki úr krana sem skrúfa megi frá að vild, það þurfi að vera jafn- vægi á milli þess sem kemur inn í kassann og þess sem ausið er úr honum og pening- arnir komi úr vösum almenn- ings. Bjarna hefur tekist að nota tíma sinn í fjármálaráðuneyt- inu til að greiða niður skuldir og bæta fjárhag ríkisins. Það er ástæðan fyrir því að stjórn- völd eru í stöðu til að standa af sér efnahagsáföllin sem kórónuveiran hefur og mun hafa í för með sér. Orð hans í viðtalinu um að leiðslur geti verið langar hjá hinu opinbera eru hins vegar til marks um að embættis- mannakerfið getur verið tregt í taumi gagnvart stjórn- málamanninum, þótt öfugt við það sé hann með umboð kjós- enda upp á vasann. Það er eitthvað öfugsnúið við að það þurfi að kalla á hugarfarsbreytingu eigi ríkið að verða til fyrirmyndar um meðferð opinberra fjármuna. Það hefur hins vegar sjaldan verið jafn mikilvægt og nú, þegar við blasir afgerandi samdráttur í hagkerfinu, að hverri krónu verði ráðstafað með sem skilvirkustum og nytsamlegustum hætti. Ráðherra á ekki að þurfa að kalla á að kerfinu þurfi að breyta frá rótum} Meðferð almannafjár Þ að er markmið mitt að tryggja börnum hér á landi menntun sem stenst alþjóðlegan samanburð. Það er skylda stjórnvalda að rýna vel mælingar og bregðast við, ef aðrar þjóðir búa sín börn betur undir framtíðina. Námsframvinda ræðst af ýmsum þáttum. Góður námsorðaforði og hugtakaskilningur, ályktunarhæfni, færni í rökhugsun, ánægja af lestri og fjölbreytni lesefnis vega mjög þungt í því að nemendur nái tökum á námsefninu. Til að skilja vel og tileinka sér innihald námsefnis án aðstoðar þarf nemandi að þekkja 98% orða í texta. Ef hlutfallið lækkar í 95% þurfa flestir nemendur aðstoð, t.d. hjálp frá kennara, sam- nemendum eða úr orðabókum. Alþjóðlegar samanburðarrannsóknir hafa leitt í ljós að íslenskir nemendur virðast ekki hafa sömu færni og nemendur annars staðar á Norð- urlöndunum hvort sem litið er til lesskilnings, stærðfræði eða náttúrulæsis. Það kallar á menntaumbætur sem felast meðal annars í því að rýna námskrár, námsgögn og við- miðunarstundaskrár. Slík rýni hefur meðal annars leitt í ljós, að móðurmálstímar á miðstigi í Svíþjóð eru 35% fleiri en á Íslandi. M.a. þess vegna stendur nú til að auka vægi móðurmálskennslu hérlendis. Markmiðið með því er ekki að fjölga málfræðitímum á kostnað skapandi námsgreina, heldur skapa kennurum svigrúm til að vinna með tungu- málið á skapandi og skemmtilegan hátt. Þeim treysti ég fullkomlega til að nýta svigrúmið vel, svo námsorðaforði íslenskra skólabarna og lesskilningur aukist. Það er forsenda alls náms og skapandi hugs- unar, enda er gott tungutak nauðsynlegt öllum sem vilja koma hugmyndum sínum í orð. Með aukinni áherslu á móðurmálsnotkun er því ver- ið að horfa til framtíðar. Á undanförnum þremur árum hafa stoðir menntakerfisins verið styrktar með ýmsum hætti. Ný lög um menntun og hæfi kennara og skólastjórnenda hafa orðið að veruleika og við höfum ráðist í umfangsmiklar aðgerðir til að fjölga kennurum. Við höfum stutt við útgáfu bóka á íslensku með mjög góðum árangri, þar sem aukningin hefur verið mest í flokki barna- og ungmennabóka. Þá samþykkti Alþingi þingsályktun um eflingu íslenskunnar, sem fel- ur í sér 10 aðgerðir sem snúa að umbótum í menntakerfinu. Margar eru þegar komnar í framkvæmd og ég er sannarlega vongóð um góðan af- rakstur. Íslenskt skólakerfi er til fyrirmyndar og hefur unnið þrekvirki á tímum kórónuveirunnar. Mikill metnaður ein- kennir allt skólastarf og viljum við stuðla að frekari gæð- um þess. Markmið stjórnvalda er að veita framúrskarandi menntun með áherslu á þekkingu, vellíðan og þrautseigju. Allir nemendur skipta máli og ég hef þá trú að allir geti lært. Góð menntun er helsta hreyfiafl samtímans og hún er verðmætasta vegabréf barnanna okkar inn í framtíðina. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Vegabréf til framtíðar Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Hvergi á Norðurlöndum erbrottfall úr framhalds-skólum meira en hér álandi. Einn af þingmönn- um Hægri flokksins í Noregi, Mari- anne Synnes Emblemsvåg, hefur orð á þessu í grein um stöðu þessara mála í norrænu löndunum. Greinin birtist á mánudaginn í vefritinu Ut- danningsnytt. Í greininni er sagt að brottfallið hér á landi sé um 18 prósent. Í öðr- um norrænum löndum sé það innan við tíu prósent. Í Noregi hafi það verið 17,4 prósent fyrir áratug en tekist hafi að minnka það og sé það nú 9,9 pró- sent, álíka og í Danmörku. Brotthvarf sé aft- ur á móti minna í Finnlandi og Sví- þjóð. Í greininni er sérstaklega vikið að kynjamun á brotthvarfinu. Hvergi á Norður- löndum sé jafn algengt að piltar hverfi frá námi og hér á landi. Hlut- fallið sé nær 25 prósent, tvöfalt meira en hjá stúlkum, og hafi verið óbreytt í áratug. Þetta er borið sam- an við Noreg og segir að brott- hvarfið meðal pilta hafi verið rúm- lega 21 prósent fyrir áratug. Tekist hafi að bregðast við þessu og í fyrra hafi brotthvarfið verið komið niður í tæp 12 prósent. Fram kemur að þótt brottfall sé mikið úr bóknámi sé það enn meira úr starfsnámi. Brottfallið hafi alvar- legar afleiðingar fyrir möguleika unga fólksins til að hasla sér völl í at- vinnulífinu. Atvinnurekendur kjósi yfirleitt fremur að ráða til starfa fólk sem lokið hefur framhaldsskólanámi en það sem eingöngu hefur grunn- skólanám að baki. Hætt sé við því að ungt fólk sem hvorki er í námi né starfi lendi utangarðs með slæmum afleiðingum fyrir viðkomandi og þjóðfélagið í heild. Þingmaðurinn ræðir einnig ýmsar ástæður fyrir brottfallinu og nefnir að æ algengara sé að ungt fólk, einkum stúlkur, greini frá andlegum erfiðleikum. Ekki sé ljóst hvað veldur, en að ein- hverju leyti kunni þetta að stafa af opinskárri umræðu um slík mál en áður. Kristjana Stella Blöndal, dósent við félagsvísindasvið Háskóla Ís- lands, er sérfróð um þessi mál hér á landi. Hún segir að gallinn við norsku greinina sé að ekki komi fram hvaðan tölurnar sem þar eru birtar séu komnar né hver viðmið- unin er. Samanburður um brottfall á milli landa, þar á meðal Íslands og annarra norrænna landa, sé ýmsum annmörkum háður og margir aðilar að birta tölur um efnið, þar á meðal OECD, ESB, hagstofur Norður- landa og fleiri. Það sé þó rétt að brotthvarf úr framhaldsskólum sé óvenjulega mikið hér á landi og meira en annars staðar á Norður- löndum. Aðstæður hér öðruvísi Kristjana Stella segir að tölur sem menntamálayfirvöld hér á landi vinni með byggist á gögnum sem Hagstofan hefur birt. Samkvæmt þeim er brottfall þriggja innritunar- árganga framhaldsskóla frá 2009 til 2011 eftir fjögur ár 28 prósent fyrir árganginn sem hóf nám 2009, 26 pró- sent fyrir árganginn 2010 og 27 pró- sent fyrir árganginn sem hóf nám 2011. Tölurnar eru svipaðar þótt miðað sé við sex ár eða sjö frá inn- ritun í stað fjögurra. Við samanburð á brottfallinu þarf þó að hafa í huga að aðstæður séu mjög ólíkar hér á landi og annars staðar á Norðurlöndum. Framhalds- skólakerfið á Íslandi sé mjög sveigj- anlegt enda beinlínis ætlast til þess í lögum um framhaldsskóla. Nem- endur hafi aðgang að skólunum á öll- um aldri og vegna einingakerfisins geti þeir auðveldlega skipt um skóla og námssvið. Þetta sé ekki raunin í nágrannalöndunum. Áhyggjuefnið utanlands sé aðallega að ungt fólk án framhaldsskólamenntunar fái ekki störf á vinnumarkaði og sé því hvorki í skóla né vinnu. Það einangr- ist frá þjóðfélaginu og lendi utan- garðs og því fylgi margvísleg fé- lagsleg vandamál. Hér hafi ungt fólk sem hættir námi getað fengið vinnu tiltölulega auðveldlega. Kristinn Þorsteinsson, formað- ur Skólameistarafélagsins, tekur í sama streng og Kristjana. „Saman- burður er mjög erfiður á milli landa þar sem talning er ólík,“ segir hann. „Atvinnuástand á Íslandi hefur ýtt undir brottfall, þannig að ungu fólki hefur staðið til boða vinna án mennt- unar. Skólakerfið hér er mjög sveigj- anlegt og opið. Það er mjög auðvelt fyrir nemendur að hætta og koma aftur. Hvergi eru starfsnámsnem- endur eldri en hér til að mynda.“ Kristinn segist samt ekki vilja draga úr vandanum. Brottfall hér sé of hátt og við þurfum að ná betri ár- angri og til þess sé skýr vilji hjá yfir- völdum menntamála. Kórónu- veirufaraldurinn hafi haft áhrif og muni auka brottfall sem sérstök ástæða sé til að hafa áhyggjur af þar sem þeir sem nú hætti í skóla geti ekki gengið að vinnu vísri eins og áð- ur. Á móti komi að stjórnvöld hafi aukið fjárveitingar til að koma fleir- um í skóla. Það vinni á móti. Brottfallið meira hér en annars staðar Morgunblaðið/Hari Framhaldsskólar Þótt brottfall nemenda sé meira hér en erlendis er kerfið miklu sveigjanlegra. Einnig hefur verið auðveldara að fá vinnu. Kristjana Stella Blöndal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.