Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 58
58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Tryggjum tveggja metra fjarlægð og gætum ítrustu ráðstafana. bóka þessa flytjendur löngu áður en kófið skall á,“ segir Lára Sóley og tekur fram að eftir að ákveðið var að allir sem til landsins koma þurfi að fara í fjögurra til fimm daga sóttkví með tveimur sýnatökum sé ljóst að finna þurfi útfærslu þar á sem henti bæði hljómsveit og er- lendum flytjendum meðal annars með tilliti til þess hver beri kostn- aðinn af slíku. „Sem dæmi er hljóm- sveitarstjórinn Richard Kaufman tilbúinn að koma fyrr til landsins til að geta stjórnað tónleikum sem helgaðir eru kvikmyndatónlist Ennio Morricone og John Williams þann 1. október. Ungstirni stíga á svið með SÍ Það er okkur mikið ánægjuefni að Eva Ollikainen, nýr aðalhljóm- sveitarstjóri, kemur til landsins í september og mun eftir sóttkví byrja að vinna með hljómsveitinni,“ segir Lára Sóley, en Ollikainen mun stjórna tvennum tónleikum í sept- ember og tvennum tónleikum í októ- ber. „Fyrstu tónleikarnir verða 17. september þar sem boðið verður upp á Beethoven-veislu í samtarfi við RÚV sem sýnir beint frá tón- leikunum. Þar mun Víkingur Heiðar Ólafsson leika Píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven auk verksins Glass- works fyrir píanó og strengi eftir Philip Glass. Á tónleikum 23. sept- ember, sem einnig verða í samstarfi við RÚV, stjórnar Ollikainen Sin- fóníu nr. 5 eftir Beethoven og Aeri- ality eftir Önnu Þorvaldsdóttur. Á tónleikum 8. október stjórnar Ollikainen ásamt Daníel Bjarnasyni og Bjarna Frímanni Bjarnasyni From Space I Saw Earth sem Daníel samdi fyrir Fílharmóníu- sveitina í Los Angeles og frumflutt var þar í nóvember á síðasta ári í til- efni af aldarafmæli hljómsveitar- innar. Að lokum má nefna að Ollikainen stjórnar tónleikum 22. október þar sem Marita Sølberg syngur einsöng í Fjórum síðustu söngvum Richards Strauss og sveit- in flytur Sinfóníu nr. 2 eftir Anton Bruckner,“ segir Lára Sóley og tek- ur fram að Ollikainen snúi aftur í janúar til að stjórna Vínartónleikum SÍ auk þess sem hún muni síðar í þeim sama mánuði stjórna Sinfóníu nr. 5 eftir Gustav Mahler, sem sé einn af hápunktum ársins. „Ollikainen tekur einnig við tón- sprotanum í Valkyrjunni sem hljómsveitin vinnur í samstarfi við Listahátíð Reykjavíkur og Íslensku óperuna sem flytja átti í maí sl. en færist til febrúars á næsta ári,“ seg- ir Lára Sóley og lýsir ánægju sinni með að hægt hafi verið að færa þau þrjú stóru samstarfsverkefni SÍ sem ráðgerð voru á síðasta starfsári og fresta þurfi vegna kófsins. Þar er um að ræða Valkyrjuna, Aiôn, eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Ernu Óm- arsdóttur í samstarfi við Íslenska dansflokkinn og undir stjórn Önnu- Mariu Helsing sem nú er á dagskrá 5. nóvember og loks Ný klassík sem fram fer um miðjan október. „Þar gefst ungstirnum í nýrri íslenskri tónlist tækifæri til að stíga á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn,“ segir Lára Sóley, en á tónleikunum koma fram og flytja lög sín í nýjum órafmögnuðum út- setningum fyrir sinfóníuhljómsveit þau Auður, GDRN, Flóni, Bríet, Joey Christ, Logi Pedro, JóiPé og Króli, Cell7 og Reykjavíkurdætur undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar. Harry Potter með undirleik „Af öðrum hápunktum má nefna kvikmyndatónleikana okkar í mars á næsta ári þar sem kvikmyndin Harry Potter og viskusteinninn verður sýnd með lifandi tónlistar- flutningi hljómsveitarinnar undir stjórn Timothy Henty,“ segir Lára Sóley, en höfundur tónlistarinnar er John Williams. „Loks verð ég að nefna að á að- ventutónleikum okkar 3. desember stígur breski sönghópurinn The King’s Singers í fyrsta sinn á svið með hljómsveitinni og flytur meðal annars vinsælar útsetningar af jóla- plötum sínum, en einnig nýjar út- setningar bæði fyrir hópinn einan og með hljómsveit,“ segir Lára Sól- ey, en stjórnandi er Benjamin Bayl. Fjöldi íslenskra einleikara Þegar litið er yfir nýkynnt starfs- ár SÍ vekur athygli hversu margir íslenskir einleikarar munu koma fram í vetur, ekki síst einleikarar úr hljómsveitinni. Aðspurð hvort þetta sé viðbragð við kófinu svarar Lára Sóley því neitandi. „Við vorum búin að skipuleggja komandi starfsár áður en kófið brast á og því er það skemmtileg tilviljun að við höfðum ráðgert að gefa fjölda íslenskra ein- leikara tækifæri til að koma fram með hljómsveitinni,“ segir Lára Sól- ey, en meðal þeirra sem bregða sér í hlutverk einleikara eru David Bobroff bassabásúnuleikari, Grímur Helgason klarinettuleikari, Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari og Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari sem frumflytja mun nýjan fiðlu- konsert eftir Þuríði Jónsdóttur í júní á næsta ári undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Meðal erlendra einleikara sem ráðgert er að komi fram með hljóm- sveitinni í vetur eru píanóleikarinn Emanuel Ax sem flytur Píanó- konsert nr. 5 eftir Beethoven á sér- stökum heiðurstónleikum fyrir Vladimir Ashkenazy í júní; píanó- leikarinn Benjamin Grosvenor sem flytur Píanókonsert nr. 1 eftir Beethoven í nóvember og píanóleik- ararnir Pierre-Laurent Aimard og Tamara Stefanovich sem flytja verk fyrir eitt og tvö píanó eftir m.a. Béla Bartók, Olivier Messiaen og György Ligeti á tónleikum í mars undir stjórn Elim Chan. Bíða með kortasöluna Miðað við núverandi samkomu- takmarkanir mega ekki fleiri en 100 einstaklingar koma saman hvort sem er í opinberum eða einkarým- um, en í sumar fór hámarkið upp í 500 manns. „Það hefur auðvitað heilmikil áhrif á rekstur hljóm- sveitarinnar að mega aðeins nýta hluta salarins,“ segir Lára Sóley og bendir á að hljómsveitin hafi orðið fyrir algjöru sértekjufalli þegar kófið hófst síðasta vetur. „Sértekj- urnar okkar er það sem við erum að nota til framleiðslunnar á við- burðum meðan föstu framlögin frá hinu opinbera standa straum af rekstrarkostnaðinum. Af því leiðir að við þurfum að huga vel að því hverjir möguleikar okkar eru og því skiptir okkur gríðarlegu miklu máli að við getum við fyrsta tæki- færi komið tónleikahaldinu af stað,“ segir Lára Sóley og bendir á að þótt nýtt starfsár hljómsveitar- innar hafi nú verið kynnt á vef hljómsveitarinnar, sinfonia.is, þá verði fyrirkomulag korta- og miða- sölu ekki kynnt nánar fyrr en af- létting takmarkana fari að skýrast og hægt verði að bjóða gestum í salinn. Möguleiki að sleppa hléinu „Vegna samkomutakmarkana getum við ekki lofað sömu föstu áskriftarsætum í vetur, en munum auðvitað tryggja sömu sæti þegar samkomutakmörkunum hefur verið aflétt,“ segir Lára Sóley og tekur fram að það skipti hljómsveitina miklu máli að vera áfram í góðum tengslum við áskrifendur sína, enda um dýrmætt samband að ræða. „Við erum með hátt á fjórða þús- und áskrifenda sem þýðir að það eru um 800 áskrifendur á flestum áskriftartónleikum hljómsveitar- innar. Það gefur augað leið að verði fjöldatakmörkin aðeins hækkuð upp í 500 manns þá kæmust ekki allir áhorfendur á eina tónleika,“ segir Lára Sóley og tekur fram að verið sé að hugsa í lausnum hvað þetta varðar. „Við munum að sjálf- sögðu fara í einu og öllu eftir leið- beiningum sóttvarnayfirvalda í okkar starfi. Út frá sóttvarna- reglum gæti verið æskilegt að sleppa hléinu á tónleikum. Við er- um einnig að skoða hvort mögulega sé hægt að spila hverja tónleikar oftar en einu sinni. Það mikilvæg- asta í öllu þessu ferli er að við ger- um það sem við getum innan þess ramma sem okkur er afmarkaður,“ segir Lára Sóley og bendir á að hljómsveitin finni fyrir mikilli eftir- væntingu og eftirspurn meðal al- mennings sem bíði eftir því að geta mætt aftur á tónleika hjá sveitinni. Fastir liðir eins og venjulega Aðspurð segir Lára Sóley að SÍ fylgist vel með þróun mála erlendis og til hvaða ráðstafana sinfóníu- hljómsveitir erlendis grípi, en SÍ á aðild að stjórn félags norrænna sin- fóníuhljómsveita og er í góðu sam- tali við stjórn breskra hljómsveita. „Í Danmörku hefur til dæmis verið farin sú leið að taka upp vikulega skimun fyrir alla starfsmenn hljóm- sveita,“ segir Lára Sóley og bendir á að allir starfsmenn SÍ hafi farið í skimun í síðustu viku samhliða því sem rýmkun á fjarlægðartakmörk- unum á æfingum tók gildi. „En auð- vitað er það svo að aðstæður eru ólíkar í hverju landi fyrir sig og því er verið að gera hlutina með mis- munandi hætti í hinum ólíku lönd- um,“ segir Lára Sóley og tekur fram að þrátt fyrir kófið séu allir fastir liðir eins og venjulega á kom- andi starfsári. „Við munum þannig bjóða upp á tónleikakynningar, skólatónleika, barnastundir og fjöl- skyldutónleika. En auðvitað þurf- um við að bregðast við og skipu- leggja okkur eftir því sem aðstæður leyfa hverju sinni,“ segir Lára Sól- ey að lokum. „Fjölbreytt og skemmtilegt“  Klassíkin okkar á fyrstu tónleikum nýs starfsárs Sinfóníuhljómsveitar Íslands  Vonast til að geta tekið aftur á móti áhorfendum í október  Víkingur leikur Beethoven  Ollikainen stjórnar Mahler Morgunblaðið/Árni Sæberg VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Vegna kófsins er ljóst að við þurf- um að gera hlutina með ögn öðrum hætti en venjulega. Mikilvægi okkar sem menningarstofnunar sem miðl- ar menningu til landsmanna minnk- ar ekkert þó svo að við þurfum að breyta skipulaginu út af samkomu- takmörkunum,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands (SÍ). „Við veljum að kynna starfsárið okkar með fyrirvara um breytingar, en reiknum með að þurfa reglulega að endurmeta stöðuna. Við höfum hlakkað mikið til að kynna komandi starfsár sem verður bæði fjölbreytt og skemmtilegt,“ segir Lára Sóley. Dagskrá komandi starfsárs hefur þegar verið birt á vef hljómsveitar- innar, sinfonia.is en þar má finna tæmandi upplýsingar um tónleika vetrarins, einleikara, listamenn, stjórnendur og auðvitað verkin sjálf. Þar má sjá að fyrstu tónleikar SÍ í Eldborg Hörpu þetta starfsárið verða annað kvöld, föstudag, kl. 20. „Þar er um að ræða hátíðardagskrá þar sem rifjaðar verða upp stórar stundir í tónlistarsögu Ríkis- útvarpsins og Sinfóníuhljómsveitar Ísland undir stjórn Daníels Bjarna- sonar, en á efnisskránni eru verk eftir m.a. Johann Sebastian Bach, Luigi Boccherini, Aram Katsja- túrían, Ígor Stravinskíj, Emil Thor- oddsen, Ingibjörgu Þorbergs og Jón Þórarinsson. Tónleikum sjónvarpað „Í ljósi aðstæðna verða engir áhorfendur í sal á þessum tón- leikum, en þeim verður sjónvarpað beint á RÚV og útvarpað á Rás 1,“ segir Lára Sóley og bendir á að þær samkomutakmarkanir sem í gildi eru setji mark sitt á dagskrána í september og verða allir tónleikar í beinni sjónvarpsútsendingu. „Við þurfum auðvitað að taka mið af þeim samkomutakmörkunum sem stjórnvöld ákveða, en gerum okkur vonir um að hægt verði að hefja hefðbundna dagskrá í október þar sem hægt verði að taka á móti áhorfendum í sal. Þetta er því ekki planið sem við lögðum upp með, enda var ástandið mun bjartara í vor þegar samkomutakmarkanir voru rýmkaðar.“ Að sögn Láru Sóleyjar er á kom- andi starfsári, þrátt fyrir kófið, gert ráð fyrir svipuðum fjölda erlendra flytjenda og verið hefur á síðustu árum. „Við vorum auðvitað búin að Eftirvænting Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.