Morgunblaðið - 03.09.2020, Qupperneq 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Passamyndir
Tímapantanir
í síma 568 0150
eða á rut@rut.is
Tryggjum
tveggja metra fjarlægð
og gætum ítrustu
ráðstafana.
bóka þessa flytjendur löngu áður en
kófið skall á,“ segir Lára Sóley og
tekur fram að eftir að ákveðið var
að allir sem til landsins koma þurfi
að fara í fjögurra til fimm daga
sóttkví með tveimur sýnatökum sé
ljóst að finna þurfi útfærslu þar á
sem henti bæði hljómsveit og er-
lendum flytjendum meðal annars
með tilliti til þess hver beri kostn-
aðinn af slíku. „Sem dæmi er hljóm-
sveitarstjórinn Richard Kaufman
tilbúinn að koma fyrr til landsins til
að geta stjórnað tónleikum sem
helgaðir eru kvikmyndatónlist
Ennio Morricone og John Williams
þann 1. október.
Ungstirni stíga á svið með SÍ
Það er okkur mikið ánægjuefni að
Eva Ollikainen, nýr aðalhljóm-
sveitarstjóri, kemur til landsins í
september og mun eftir sóttkví
byrja að vinna með hljómsveitinni,“
segir Lára Sóley, en Ollikainen mun
stjórna tvennum tónleikum í sept-
ember og tvennum tónleikum í októ-
ber. „Fyrstu tónleikarnir verða 17.
september þar sem boðið verður
upp á Beethoven-veislu í samtarfi
við RÚV sem sýnir beint frá tón-
leikunum. Þar mun Víkingur Heiðar
Ólafsson leika Píanókonsert nr. 3
eftir Beethoven auk verksins Glass-
works fyrir píanó og strengi eftir
Philip Glass. Á tónleikum 23. sept-
ember, sem einnig verða í samstarfi
við RÚV, stjórnar Ollikainen Sin-
fóníu nr. 5 eftir Beethoven og Aeri-
ality eftir Önnu Þorvaldsdóttur.
Á tónleikum 8. október stjórnar
Ollikainen ásamt Daníel Bjarnasyni
og Bjarna Frímanni Bjarnasyni
From Space I Saw Earth sem
Daníel samdi fyrir Fílharmóníu-
sveitina í Los Angeles og frumflutt
var þar í nóvember á síðasta ári í til-
efni af aldarafmæli hljómsveitar-
innar. Að lokum má nefna að
Ollikainen stjórnar tónleikum 22.
október þar sem Marita Sølberg
syngur einsöng í Fjórum síðustu
söngvum Richards Strauss og sveit-
in flytur Sinfóníu nr. 2 eftir Anton
Bruckner,“ segir Lára Sóley og tek-
ur fram að Ollikainen snúi aftur í
janúar til að stjórna Vínartónleikum
SÍ auk þess sem hún muni síðar í
þeim sama mánuði stjórna Sinfóníu
nr. 5 eftir Gustav Mahler, sem sé
einn af hápunktum ársins.
„Ollikainen tekur einnig við tón-
sprotanum í Valkyrjunni sem
hljómsveitin vinnur í samstarfi við
Listahátíð Reykjavíkur og Íslensku
óperuna sem flytja átti í maí sl. en
færist til febrúars á næsta ári,“ seg-
ir Lára Sóley og lýsir ánægju sinni
með að hægt hafi verið að færa þau
þrjú stóru samstarfsverkefni SÍ
sem ráðgerð voru á síðasta starfsári
og fresta þurfi vegna kófsins. Þar er
um að ræða Valkyrjuna, Aiôn, eftir
Önnu Þorvaldsdóttur og Ernu Óm-
arsdóttur í samstarfi við Íslenska
dansflokkinn og undir stjórn Önnu-
Mariu Helsing sem nú er á dagskrá
5. nóvember og loks Ný klassík sem
fram fer um miðjan október. „Þar
gefst ungstirnum í nýrri íslenskri
tónlist tækifæri til að stíga á svið
með Sinfóníuhljómsveit Íslands í
fyrsta sinn,“ segir Lára Sóley, en á
tónleikunum koma fram og flytja
lög sín í nýjum órafmögnuðum út-
setningum fyrir sinfóníuhljómsveit
þau Auður, GDRN, Flóni, Bríet,
Joey Christ, Logi Pedro, JóiPé og
Króli, Cell7 og Reykjavíkurdætur
undir stjórn Bjarna Frímanns
Bjarnasonar.
Harry Potter með undirleik
„Af öðrum hápunktum má nefna
kvikmyndatónleikana okkar í mars
á næsta ári þar sem kvikmyndin
Harry Potter og viskusteinninn
verður sýnd með lifandi tónlistar-
flutningi hljómsveitarinnar undir
stjórn Timothy Henty,“ segir Lára
Sóley, en höfundur tónlistarinnar er
John Williams.
„Loks verð ég að nefna að á að-
ventutónleikum okkar 3. desember
stígur breski sönghópurinn The
King’s Singers í fyrsta sinn á svið
með hljómsveitinni og flytur meðal
annars vinsælar útsetningar af jóla-
plötum sínum, en einnig nýjar út-
setningar bæði fyrir hópinn einan
og með hljómsveit,“ segir Lára Sól-
ey, en stjórnandi er Benjamin Bayl.
Fjöldi íslenskra einleikara
Þegar litið er yfir nýkynnt starfs-
ár SÍ vekur athygli hversu margir
íslenskir einleikarar munu koma
fram í vetur, ekki síst einleikarar úr
hljómsveitinni. Aðspurð hvort þetta
sé viðbragð við kófinu svarar Lára
Sóley því neitandi. „Við vorum búin
að skipuleggja komandi starfsár
áður en kófið brast á og því er það
skemmtileg tilviljun að við höfðum
ráðgert að gefa fjölda íslenskra ein-
leikara tækifæri til að koma fram
með hljómsveitinni,“ segir Lára Sól-
ey, en meðal þeirra sem bregða sér í
hlutverk einleikara eru David
Bobroff bassabásúnuleikari, Grímur
Helgason klarinettuleikari, Sigrún
Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Emilía
Rós Sigfúsdóttir flautuleikari og
Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari
sem frumflytja mun nýjan fiðlu-
konsert eftir Þuríði Jónsdóttur í
júní á næsta ári undir stjórn Daníels
Bjarnasonar.
Meðal erlendra einleikara sem
ráðgert er að komi fram með hljóm-
sveitinni í vetur eru píanóleikarinn
Emanuel Ax sem flytur Píanó-
konsert nr. 5 eftir Beethoven á sér-
stökum heiðurstónleikum fyrir
Vladimir Ashkenazy í júní; píanó-
leikarinn Benjamin Grosvenor sem
flytur Píanókonsert nr. 1 eftir
Beethoven í nóvember og píanóleik-
ararnir Pierre-Laurent Aimard og
Tamara Stefanovich sem flytja verk
fyrir eitt og tvö píanó eftir m.a. Béla
Bartók, Olivier Messiaen og György
Ligeti á tónleikum í mars undir
stjórn Elim Chan.
Bíða með kortasöluna
Miðað við núverandi samkomu-
takmarkanir mega ekki fleiri en 100
einstaklingar koma saman hvort
sem er í opinberum eða einkarým-
um, en í sumar fór hámarkið upp í
500 manns. „Það hefur auðvitað
heilmikil áhrif á rekstur hljóm-
sveitarinnar að mega aðeins nýta
hluta salarins,“ segir Lára Sóley og
bendir á að hljómsveitin hafi orðið
fyrir algjöru sértekjufalli þegar
kófið hófst síðasta vetur. „Sértekj-
urnar okkar er það sem við erum að
nota til framleiðslunnar á við-
burðum meðan föstu framlögin frá
hinu opinbera standa straum af
rekstrarkostnaðinum. Af því leiðir
að við þurfum að huga vel að því
hverjir möguleikar okkar eru og
því skiptir okkur gríðarlegu miklu
máli að við getum við fyrsta tæki-
færi komið tónleikahaldinu af stað,“
segir Lára Sóley og bendir á að
þótt nýtt starfsár hljómsveitar-
innar hafi nú verið kynnt á vef
hljómsveitarinnar, sinfonia.is, þá
verði fyrirkomulag korta- og miða-
sölu ekki kynnt nánar fyrr en af-
létting takmarkana fari að skýrast
og hægt verði að bjóða gestum í
salinn.
Möguleiki að sleppa hléinu
„Vegna samkomutakmarkana
getum við ekki lofað sömu föstu
áskriftarsætum í vetur, en munum
auðvitað tryggja sömu sæti þegar
samkomutakmörkunum hefur verið
aflétt,“ segir Lára Sóley og tekur
fram að það skipti hljómsveitina
miklu máli að vera áfram í góðum
tengslum við áskrifendur sína, enda
um dýrmætt samband að ræða.
„Við erum með hátt á fjórða þús-
und áskrifenda sem þýðir að það
eru um 800 áskrifendur á flestum
áskriftartónleikum hljómsveitar-
innar. Það gefur augað leið að verði
fjöldatakmörkin aðeins hækkuð
upp í 500 manns þá kæmust ekki
allir áhorfendur á eina tónleika,“
segir Lára Sóley og tekur fram að
verið sé að hugsa í lausnum hvað
þetta varðar. „Við munum að sjálf-
sögðu fara í einu og öllu eftir leið-
beiningum sóttvarnayfirvalda í
okkar starfi. Út frá sóttvarna-
reglum gæti verið æskilegt að
sleppa hléinu á tónleikum. Við er-
um einnig að skoða hvort mögulega
sé hægt að spila hverja tónleikar
oftar en einu sinni. Það mikilvæg-
asta í öllu þessu ferli er að við ger-
um það sem við getum innan þess
ramma sem okkur er afmarkaður,“
segir Lára Sóley og bendir á að
hljómsveitin finni fyrir mikilli eftir-
væntingu og eftirspurn meðal al-
mennings sem bíði eftir því að geta
mætt aftur á tónleika hjá sveitinni.
Fastir liðir eins og venjulega
Aðspurð segir Lára Sóley að SÍ
fylgist vel með þróun mála erlendis
og til hvaða ráðstafana sinfóníu-
hljómsveitir erlendis grípi, en SÍ á
aðild að stjórn félags norrænna sin-
fóníuhljómsveita og er í góðu sam-
tali við stjórn breskra hljómsveita.
„Í Danmörku hefur til dæmis verið
farin sú leið að taka upp vikulega
skimun fyrir alla starfsmenn hljóm-
sveita,“ segir Lára Sóley og bendir
á að allir starfsmenn SÍ hafi farið í
skimun í síðustu viku samhliða því
sem rýmkun á fjarlægðartakmörk-
unum á æfingum tók gildi. „En auð-
vitað er það svo að aðstæður eru
ólíkar í hverju landi fyrir sig og því
er verið að gera hlutina með mis-
munandi hætti í hinum ólíku lönd-
um,“ segir Lára Sóley og tekur
fram að þrátt fyrir kófið séu allir
fastir liðir eins og venjulega á kom-
andi starfsári. „Við munum þannig
bjóða upp á tónleikakynningar,
skólatónleika, barnastundir og fjöl-
skyldutónleika. En auðvitað þurf-
um við að bregðast við og skipu-
leggja okkur eftir því sem aðstæður
leyfa hverju sinni,“ segir Lára Sól-
ey að lokum.
„Fjölbreytt og skemmtilegt“
Klassíkin okkar á fyrstu tónleikum nýs starfsárs Sinfóníuhljómsveitar Íslands Vonast til að geta
tekið aftur á móti áhorfendum í október Víkingur leikur Beethoven Ollikainen stjórnar Mahler
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Vegna kófsins er ljóst að við þurf-
um að gera hlutina með ögn öðrum
hætti en venjulega. Mikilvægi okkar
sem menningarstofnunar sem miðl-
ar menningu til landsmanna minnk-
ar ekkert þó svo að við þurfum að
breyta skipulaginu út af samkomu-
takmörkunum,“ segir Lára Sóley
Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveitar Íslands (SÍ).
„Við veljum að kynna starfsárið
okkar með fyrirvara um breytingar,
en reiknum með að þurfa reglulega
að endurmeta stöðuna. Við höfum
hlakkað mikið til að kynna komandi
starfsár sem verður bæði fjölbreytt
og skemmtilegt,“ segir Lára Sóley.
Dagskrá komandi starfsárs hefur
þegar verið birt á vef hljómsveitar-
innar, sinfonia.is en þar má finna
tæmandi upplýsingar um tónleika
vetrarins, einleikara, listamenn,
stjórnendur og auðvitað verkin
sjálf. Þar má sjá að fyrstu tónleikar
SÍ í Eldborg Hörpu þetta starfsárið
verða annað kvöld, föstudag, kl. 20.
„Þar er um að ræða hátíðardagskrá
þar sem rifjaðar verða upp stórar
stundir í tónlistarsögu Ríkis-
útvarpsins og Sinfóníuhljómsveitar
Ísland undir stjórn Daníels Bjarna-
sonar, en á efnisskránni eru verk
eftir m.a. Johann Sebastian Bach,
Luigi Boccherini, Aram Katsja-
túrían, Ígor Stravinskíj, Emil Thor-
oddsen, Ingibjörgu Þorbergs og Jón
Þórarinsson.
Tónleikum sjónvarpað
„Í ljósi aðstæðna verða engir
áhorfendur í sal á þessum tón-
leikum, en þeim verður sjónvarpað
beint á RÚV og útvarpað á Rás 1,“
segir Lára Sóley og bendir á að þær
samkomutakmarkanir sem í gildi
eru setji mark sitt á dagskrána í
september og verða allir tónleikar í
beinni sjónvarpsútsendingu.
„Við þurfum auðvitað að taka mið
af þeim samkomutakmörkunum
sem stjórnvöld ákveða, en gerum
okkur vonir um að hægt verði að
hefja hefðbundna dagskrá í október
þar sem hægt verði að taka á móti
áhorfendum í sal. Þetta er því ekki
planið sem við lögðum upp með,
enda var ástandið mun bjartara í
vor þegar samkomutakmarkanir
voru rýmkaðar.“
Að sögn Láru Sóleyjar er á kom-
andi starfsári, þrátt fyrir kófið, gert
ráð fyrir svipuðum fjölda erlendra
flytjenda og verið hefur á síðustu
árum. „Við vorum auðvitað búin að
Eftirvænting
Lára Sóley
Jóhannsdóttir,
framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands.