Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Sem liður í humarrannsóknum við
landið og til að grennslast fyrir
um ferðir humars, staðsetningu og
háttalag var hljóðmerkjum komið
fyrir á 32 humrum á tveimur
svæðum í Jökuldýpi nýverið.
Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt
er gert hérlendis og mun vera í
annað skipti sem hljóðmerki eru
sett á humra af þessum stofni í
heiminum. Aðstæður voru sér-
stakar og talsverðar tilfæringar
þurfti við verkefnið sem var unnið
í myrkri um borð í ljóslausu rann-
sóknaskipinu Bjarna Sæmunds-
syni.
Eins og í vísindakvikmynd
Jónas Páll Jónasson, fiskifræð-
ingur á Hafrannsóknastofnun,
stjórnar verkefninu og segir það
hafa verið líkast því sem gerist í
vísindakvikmyndum þegar
rannsóknaskipið kom á staðinn.
„Humarinn er með mjög stór og
viðkvæm augu, sem hafa aðlagast
því litla ljósi sem berst í heim-
kynni þeirra á kannski 100-300
metra dýpi,“ segir Jónas. „Til að
vernda sjón þeirra og spilla ekki
hugsanlegu atferli voru öll ljós
slökkt um borð og við vorum nán-
ast í myrkri þegar við tókum pok-
ann inn. Við notuðum aðeins dauf,
rauð vinnuljós, en aðstæður voru
eins og best varð á kosið; skýjað
og blankalogn.
Hljóðmerkin, sem eru tólf milli-
metrar að stærð, voru límd á bak-
skjöld dýranna, en merkin hafa
ekki áhrif á dýrin sjálf. Við höfð-
um tímaramma milli klukkan 23
og fjögur um nóttina og slepptum
fyrri 16 humrunum um miðnætti.
Svo var kippt yfir á hitt svæðið í
Jökuldýpi þar sem við náðum að
sleppa seinni hlutanum fyrir
klukkan fjögur eða áður en fór að
birta.
Skilað á botninn í trogum
Við veiddum humrana nærri
þeirri slóð sem við ætlum að fylgj-
ast með, en svo þurfti að koma
humrunum á fasta punkta sem við
vitum hverjir eru. Það var því
ekki nóg að henda þeim út fyrir
borðstokkinn heldur notuðum við
búnað sem alla jafna er notaður
við að mynda humar á hafsbotn-
inum. Humrarnir voru settir í
nokkurs konar trog og sleppt þeg-
ar komið var á botninn á 115
metra og 200 metra dýpi á til-
teknum svæðum.“
Jónas segir að þekkt sé að hum-
ar fari helst úr holum sínum við
sólarupprás og sólsetur, en margt
sé óljóst um hætti hans. Með
hljóðmerkjunum fáist vonandi
upplýsingar um hvað humarinn
haldi sig lengi í holunni og virkni
hans yfir sólarhringinn. Níu hljóð-
dufl á hvoru svæði greini hljóð-
merki og greini á milli dýra. Ef
merki berist í þrjú dufl sé hægt að
staðsetja viðkomandi humar. Þá
settu haffræðingar Hafrannsókna-
stofnunar straumsjár á svæðin og
segir Jónas að vonandi verði hægt
að tengja virkni humranna við
strauma, fallaskipti og tunglgang.
„Upphaf þessa verkefni gekk
eins og í sögu og við ráðgerum að
sækja hljóðduflin snemma í nóv-
ember og lesa úr gögnum,“ segir
Jónas. Stofnunin fékk styrk frá
sjávarútvegsráðuneytinu í þetta
verkefni, en humarstofninn hefur
átt undir högg að sækja síðustu
ár.
Tilraunir Spánverja
Að sögn Jónasar gerðu Spán-
verjar sambærilega tilraun í fyrra-
vetur og settu þá hljóðmerki í
humra austur af Barcelona. Nið-
urstöðurnar hafa ekki verið birtar,
en svo virðist sem hver humar
ferðist ekki ýkja langt um sitt
heimasvæði. Eftir merkingu um
borð í rannsóknaskipi virðast þeir
ráðvilltir í um vikutíma, en taki þá
upp hefðbundið háttalag.
Myrkrið nýtt til merkinga
Hljóðmerki sett í 32 humra í Jökuldýpi Til að vernda augu þeirra voru ljós slökkt í rannsókna-
skipinu Vonast eftir upplýsingum um ferðir humars og háttalag Aðeins gert einu sinni áður
Ljósmyndir/Hafrannsóknastofnun/Svanhildur Egilsdóttir
Hljóðmerki sett á humar Að störfum í rauðu myrkri í Jökuldýpi, frá vinstri Hjalti Karlsson, Guðjón Már Sigurðsson og Jónas Páll Jónasson.
Aftur á botninn Humrunum sleppt í hólki eða trogi. Vísindi Unnið að verkefninu á dekki rannsóknaskipsins.
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 10 Verð 339.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum