Morgunblaðið - 03.09.2020, Side 30

Morgunblaðið - 03.09.2020, Side 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sem liður í humarrannsóknum við landið og til að grennslast fyrir um ferðir humars, staðsetningu og háttalag var hljóðmerkjum komið fyrir á 32 humrum á tveimur svæðum í Jökuldýpi nýverið. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt er gert hérlendis og mun vera í annað skipti sem hljóðmerki eru sett á humra af þessum stofni í heiminum. Aðstæður voru sér- stakar og talsverðar tilfæringar þurfti við verkefnið sem var unnið í myrkri um borð í ljóslausu rann- sóknaskipinu Bjarna Sæmunds- syni. Eins og í vísindakvikmynd Jónas Páll Jónasson, fiskifræð- ingur á Hafrannsóknastofnun, stjórnar verkefninu og segir það hafa verið líkast því sem gerist í vísindakvikmyndum þegar rannsóknaskipið kom á staðinn. „Humarinn er með mjög stór og viðkvæm augu, sem hafa aðlagast því litla ljósi sem berst í heim- kynni þeirra á kannski 100-300 metra dýpi,“ segir Jónas. „Til að vernda sjón þeirra og spilla ekki hugsanlegu atferli voru öll ljós slökkt um borð og við vorum nán- ast í myrkri þegar við tókum pok- ann inn. Við notuðum aðeins dauf, rauð vinnuljós, en aðstæður voru eins og best varð á kosið; skýjað og blankalogn. Hljóðmerkin, sem eru tólf milli- metrar að stærð, voru límd á bak- skjöld dýranna, en merkin hafa ekki áhrif á dýrin sjálf. Við höfð- um tímaramma milli klukkan 23 og fjögur um nóttina og slepptum fyrri 16 humrunum um miðnætti. Svo var kippt yfir á hitt svæðið í Jökuldýpi þar sem við náðum að sleppa seinni hlutanum fyrir klukkan fjögur eða áður en fór að birta. Skilað á botninn í trogum Við veiddum humrana nærri þeirri slóð sem við ætlum að fylgj- ast með, en svo þurfti að koma humrunum á fasta punkta sem við vitum hverjir eru. Það var því ekki nóg að henda þeim út fyrir borðstokkinn heldur notuðum við búnað sem alla jafna er notaður við að mynda humar á hafsbotn- inum. Humrarnir voru settir í nokkurs konar trog og sleppt þeg- ar komið var á botninn á 115 metra og 200 metra dýpi á til- teknum svæðum.“ Jónas segir að þekkt sé að hum- ar fari helst úr holum sínum við sólarupprás og sólsetur, en margt sé óljóst um hætti hans. Með hljóðmerkjunum fáist vonandi upplýsingar um hvað humarinn haldi sig lengi í holunni og virkni hans yfir sólarhringinn. Níu hljóð- dufl á hvoru svæði greini hljóð- merki og greini á milli dýra. Ef merki berist í þrjú dufl sé hægt að staðsetja viðkomandi humar. Þá settu haffræðingar Hafrannsókna- stofnunar straumsjár á svæðin og segir Jónas að vonandi verði hægt að tengja virkni humranna við strauma, fallaskipti og tunglgang. „Upphaf þessa verkefni gekk eins og í sögu og við ráðgerum að sækja hljóðduflin snemma í nóv- ember og lesa úr gögnum,“ segir Jónas. Stofnunin fékk styrk frá sjávarútvegsráðuneytinu í þetta verkefni, en humarstofninn hefur átt undir högg að sækja síðustu ár. Tilraunir Spánverja Að sögn Jónasar gerðu Spán- verjar sambærilega tilraun í fyrra- vetur og settu þá hljóðmerki í humra austur af Barcelona. Nið- urstöðurnar hafa ekki verið birtar, en svo virðist sem hver humar ferðist ekki ýkja langt um sitt heimasvæði. Eftir merkingu um borð í rannsóknaskipi virðast þeir ráðvilltir í um vikutíma, en taki þá upp hefðbundið háttalag. Myrkrið nýtt til merkinga  Hljóðmerki sett í 32 humra í Jökuldýpi  Til að vernda augu þeirra voru ljós slökkt í rannsókna- skipinu  Vonast eftir upplýsingum um ferðir humars og háttalag  Aðeins gert einu sinni áður Ljósmyndir/Hafrannsóknastofnun/Svanhildur Egilsdóttir Hljóðmerki sett á humar Að störfum í rauðu myrkri í Jökuldýpi, frá vinstri Hjalti Karlsson, Guðjón Már Sigurðsson og Jónas Páll Jónasson. Aftur á botninn Humrunum sleppt í hólki eða trogi. Vísindi Unnið að verkefninu á dekki rannsóknaskipsins. ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ESTRO Model 3042 L 164 cm Leður ct. 10 Verð 339.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.