Morgunblaðið - 19.09.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020
35 cm verð 109.000,-
50 cm verð 159.000,-
70 cm verð 249.000,-
Atollo
Borðlampi – Opal gler
Vico Magistretti 1977
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Sigurður Már Jónsson blaða-maður ritar pistil um sjávar-
útveginn og auðlindaarðinn á
mbl.is og segir meðal annars:
„Enn og aftur erum við minnt á
hve útbreidd van-
þekking er hér á
landi um málefni
sjávarútvegsins.
Hugsanlega er það
gjaldið sem við
þurfum að greiða
fyrir að hafa byggt
upp borgarhagkerfi
þar sem stór hluti
íbúanna hefur ekki lengur innsýn í
hvað felst í verðmætasköpun
grunnatvinnuvega.
Við stærum okkur af því aðhafa byggt upp öflugt vel-
ferðarkerfi og sinna menningu og
listum af alúð en höfum um leið
gleymt því hvaðan verðmætin til
að standa undir því koma. Því
finnst stórum hluta landsmanna
allt í lagi að niðurgreiða vinnu of-
urríkra kvikmyndamógúla sem
fljúga til landsins á einkaþotum en
telur um leið nauðsynlegt að auka
álögur á grunnatvinnuvegi þjóð-
arinnar.“
Sigurður Már nefnir einnig aðþeir sem hafi „minnstan fram-
kvæmdahug eru mest uppteknir af
verðmæti auðlinda,“ en peninga-
leg verðmæti þeirra séu ofmetin
„um leið og peningaleg verðmæti
athafnamennsku og framkvæmda-
hugar eru vanmetin“.
Skýr dæmi um þetta má sjá víðaum heim, þar sem ríki með
miklar auðlindir glíma við fátækt
en önnur með engar hefðbundnar
auðlindir blómstra.
Aðalatriðið er að nýta auðlind-irnar rétt og eyðileggja þær
ekki með einhvers konar þjóðnýt-
ingu eða ofurskattlagningu.
Sigurður Már
Jónsson
Vanþekking um
undirstöðugrein
STAKSTEINAR
Það stefnir í að ekki verði af þátt-
töku alþingismanna í allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna að þessu sinni
vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
Þetta staðfestir Ragna Árnadóttir,
skrifstofustjóri Alþingis, við Morg-
unblaðið.
Þingmenn hafa sótt allsherjar-
þing SÞ um áratuga skeið sem hluti
af sendinefnd Íslands. Það hefur
komið fyrir í gegnum árin að ein-
staka þingmaður hefur forfallast
vegna ófyrirséðra kringumstæðna
en aldrei hefur þátttaka fallið niður í
heild sinni. „Enda eru nú fordæma-
lausir tímar og hefur til að mynda
aldrei þurft að fella niður þing
Norðurlandaráðs, líkt og nú er
raunin,“ segir Ragna.
Forsætisnefnd þingsins ákvað í
mars að fella niður vinnutengdar
ferðir þingmanna og starfsfólks Al-
þingis frá og með 17. mars út vor-
þingið. Sú ákvörðun hefur ekki verið
framlengd, enda hefðbundinni þátt-
töku í alþjóðastarfi sjálfhætt þegar
þingmannafundir og -ráðstefnur
hafa færst í rafrænt form að frum-
kvæði skipuleggjenda.
Allsherjarþingið kemur saman
einu sinni á ári. Þingið hefst þriðja
þriðjudag í september og varir fram
í desember. Fulltrúar allra aðildar-
ríkja eiga þar sæti . sisi@mbl.is
Sækja ekki allsherjarþing SÞ í ár
Engar utanlandsferðir á vegum
Alþingis síðan faraldurinn kom upp
New York Guðlaugur Þór Þórð-
arson flytur ávarp haustið 2019.
Það kostaði Reykjavíkurborg tæpar
fjórar milljónir króna að útbúa lím-
miða þar sem íbúum var gefinn kost-
ur á að afþakka fjöldapóst.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram fyrirspurn um
málið á fundi ráðsins 20. ágúst sl.
Svar umhverfis- og skipulagssviðs
var lagt fram á borgarráðsfundi á
fimmtudaginn.
Í svarinu kemur fram að hönnun á
límmiðum hafi kostað 76 þúsund
krónur og prentun 3.870.000 krónur.
„Nemendur Vinnuskóla Reykjavík-
ur sáu um dreifingu á miðunum þar
sem dreifingaraðili hafnaði að dreifa
þeim þegar efni þeirra var ljóst. Til
samanburðar er kostnaður við hirðu
og endurvinnslu á efni sem safnað er
með bláu tunnunni í Reykjavík áætl-
aður 157 milljónir króna árið 2020,“
segir í svarinu.
Jafnframt kemur fram að tillaga
um dreifingu miðanna hafi verið
samþykkt á fundi umhverfis- og heil-
brigðisráðs 16. október 2019.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram svohljóðandi
bókun: „Það vekur furðu að Reykja-
víkurborg sé að eyða um 4 millj-
ónum króna í fjöldapóst þar sem
fólki er gefinn kostur á því að af-
þakka fjöldapóst. Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks vilja benda á að með
einföldum hætti er hægt að afþakka
fjöldapóst með rafrænum hætti hjá
dreifingaraðilum fjöldapósts.“
Fram kemur á heimasíðu Sorpu
að fyrirtækið sendi árlega þúsundir
tonna af pappírsefni til endurvinnslu
í útlöndum. Endurunninn pappír
skili sér aftur til neytenda hér á
landi sem dagblaðapappír, bréf-
þurrkur, salernispappír og umbúðir
úr pappa. sisi@mbl.is
Límmiðar kostuðu
fjórar milljónir
Nemendur Vinnu-
skólans látnir dreifa
miðunum til íbúa
Morgunblaðið/Þorkell
Pappírsgámur Árlega fara þús-
undir tonna utan í endurvinnslu.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/