Morgunblaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 40
Valskonur verða Íslandsmeistarar
kvenna í körfuknattleik á komandi
keppnistímabili en það kemur í hlut
KR-inga að falla úr Dominos-deild
kvenna, ef marka má spána fyrir
tímabilið sem birt var í gær.
Birtar voru tvær spár, önnur frá
félögunum en hin frá fjölmiðlunum,
og þær reyndust nákvæmlega eins
varðandi röð liðanna átta í deildinni.
Niðurstaðan var þessi, tölurnar í
spá liðanna á undan og spá fjöl-
miðlanna innan sviga:
1 Valur 186 (88)
2 Skallagrímur 151 (72)
3 Keflavík 143 (67)
4 Haukar 131 (58)
5 Breiðablik 76 (37)
6 Fjölnir 72 (25)
7 Snæfell 61 (25)
8 KR 44 (24)
Þessir hópar voru hins vegar
ósammála um niðurstöðuna í 1. deild
kvenna. Forsvarsmenn liðanna spá
Njarðvík öruggum sigri en fjölmiðl-
arnir spá því að Grindavík hafi
naumlega betur gegn Njarðvík í
toppslagnum. Niðurstaðan er þessi,
fjölmiðlarnir í sviga:
1 Njarðvík 234 (64)
2 Grindavík 194 (65)
3 ÍR 183 (58)
4 Tindastóll 174 (47)
5 Hamar/Þór Þ. 118 (29)
6 Stjarnan 97 (39)
7 Vestri 83 (18)
8 Fjölnir-B 80 (18)
9 Ármann 52 (22)
Velgengni Valskvenna
mun halda áfram
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistarar? Valskonur urðu Íslandsmeistarar árið 2019.
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020
Lengjudeild kvenna
Víkingur R. – Augnablik.......................... 1:3
Grótta – Keflavík...................................... 2:3
Staðan:
Tindastóll 13 11 1 1 37:5 34
Keflavík 14 10 3 1 36:14 33
Haukar 13 8 2 3 23:14 26
Grótta 14 5 4 5 18:21 19
Afturelding 13 5 3 5 17:17 18
Augnablik 13 5 3 5 20:27 18
Víkingur R. 14 4 3 7 20:26 15
ÍA 13 2 6 5 19:22 12
Fjölnir 13 2 1 10 7:27 7
Völsungur 12 1 0 11 7:31 3
2. deild karla
Njarðvík – ÍR............................................ 2:3
Haukar – KF............................................. 1:2
Staðan:
Kórdrengir 16 11 4 1 30:10 37
Selfoss 16 12 1 3 29:15 37
Njarðvík 17 10 3 4 33:22 33
Þróttur V. 16 9 4 3 30:16 31
Haukar 17 10 0 7 33:23 30
KF 17 8 1 8 29:33 25
Fjarðabyggð 16 6 3 7 23:21 21
Kári 16 5 4 7 23:22 19
ÍR 17 5 1 11 28:35 16
Víðir 16 4 1 11 19:41 13
Dalvík/Reynir 16 2 4 10 20:37 10
Völsungur 16 2 2 12 20:42 8
3. deild karla
Reynir S. – Tindastóll .............................. 5:5
Staða efstu liða:
KV 16 12 1 3 47:22 37
Reynir S. 17 11 3 3 54:34 36
KFG 16 7 4 5 31:27 25
Augnablik 16 7 4 5 34:31 25
Tindastóll 17 6 7 4 36:36 25
Grikkland
PAOK – Atromitos .................................. 1:1
Sverrir Ingi Ingason var allan tímann á
bekknum hjá PAOK.
Olympiacos – Asteras Tripolis............... 3:0
Ögmundur Kristinsson var varamark-
vörður Olympiacos í leiknum.
Holland
Jong PSV – Eindhoven ........................... 1:2
Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður á 58. mínútu hjá Jong PSV.
Belgía
Molenbeek – Lommel .............................. 0:1
Kolbeinn Þórðarson lék ekki með Lom-
mel vegna leikbanns.
Þýskaland
Bayern München – Schalke..................... 8:0
Olísdeild karla
Valur – ÍR.............................................. 43:24
Selfoss – KA.......................................... 24:24
Staðan:
Valur 2 2 0 0 76:54 4
Afturelding 2 1 1 0 51:49 3
KA 2 1 1 0 47:45 3
Selfoss 2 1 1 0 51:50 3
ÍBV 1 1 0 0 38:31 2
FH 2 1 0 1 54:52 2
Haukar 1 1 0 0 20:19 2
Fram 2 0 1 1 48:50 1
Stjarnan 2 0 1 1 51:52 1
Grótta 2 0 1 1 44:45 1
Þór Ak. 2 0 0 2 41:48 0
ÍR 2 0 0 2 55:81 0
Olísdeild kvenna
Valur – Fram ........................................ 28:24
Grill 66-deild kvenna
ÍR – Fjölnir/Fylkir............................... 22:23
Grill 66-deild karla
Hörður – Vængir Júpíters................... 23:27
Kría – Fram U ...................................... 30:27
Svíþjóð
Kristianstad – Önnered ...................... 33:20
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 4
mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein-
arsson 1.
Alingsås – Hallby................................. 34:33
Aron Dagur Pálsson skoraði 1 mark fyr-
ir Alingsås.
Danmörk
Lemvig – Ribe-Esbjerg....................... 30:33
Rúnar Kárason skoraði 4 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Gunnar Steinn Jónsson 1 en
Daníel Þór Ingason komst ekki á blað.
Herning-Ikast – Vendsyssel............... 20:18
Steinunn Hansdóttir skoraði 1 mark fyr-
ir Vendsyssel. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði 14 skot í marki liðsins.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, úrslit:
Boston – Miami................................. 101:106
Staðan er 2:0 fyrir Miami og þriðji leikur
fer fram í nótt kl. 24.30 að íslenskum tíma.
Enska knattspyrnufélagið Liver-
pool hefur staðfest kaupin á
spænska miðjumanninum Thiago
Alcantara frá Bayern München og
að hann hafi skrifað undir fjögurra
ára samning við félagið. Kaup-
verðið er talið vera 20 milljónir
punda en það geti hækkað í 27
milljónir með öllum skilyrðum upp-
fylltum.
Þá eru Englandsmeistararnir ná-
lægt því að ganga frá kaupum á
portúgalska sóknarmanninum
Diogo Jota frá Wolves á 35 milljónir
punda.
Liverpool stað-
festi Thiago
Ljósmynd/Liverpool
Anfield Spánverjinn Thiago Alcant-
ara er orðinn leikmaður Liverpool.
Enda þótt aðeins séu þrír leikir í 32
liða úrslitum bikarkeppni karla í
handknattleik, Coca Cola-bikarsins,
verða tveir þeirra sannkallaðir stór-
leikir og ljóst að tvö úrvalsdeildarlið
munu ekki komast í 16-liða úrslit.
Haukar taka á móti Selfyssingum á
Ásvöllum og svo mætast Akureyr-
arliðin Þór og KA í grannaslag.
Þriðji leikurinn er viðureign B-liðs
ÍBV og Vængja Júpíters sem eru ný-
liðar í 1. deild karla, Grill 66-
deildinni. Önnur lið sitja hjá og mæta
til leiks í 16-liða úrslitum. Leikirnir
fara fram dagana 6.-7. október.
Stórleikir í bik-
arkeppninni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bikarinn Haukar og Selfoss etja
kappi í bikarkeppninni.
Fimmtándu umferð Pepsi Max-deildar karla lauk í fyrradag þegar FH
sigraði Víking 1:0 með marki Hjartar Loga Valgarðssonar. Þar með er
hægt að birta úrvalslið Morgunblaðsins úr umferðinni en hinir leikirnir
fóru fram 30. ágúst og 5. september. Þá vann KR sigur á ÍA, 4:1, Valur
vann HK 1:0, Grótta tapaði 0:2 fyrir Fylki, Fjölnir tapaði 1:4 fyrir Breiða-
bliki og KA og Stjarnan gerðu markalaust jafntefli. Úrvalsliðið má sjá
hér fyrir ofan. Leikur ÍA og Vals í fyrradag tilheyrir 14. umferð sem lýk-
ur ekki fyrr en 1. október.
Valdimar Þór Ingimundarson úr Fylki er áfram efstur í M-gjöfinni
með 13 M en Stefán Teitur Þórðarson, ÍA, og Steven Lennon, FH, eru
með 12.
15. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2020
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
24-4-2
Gunnar Nielsen
FH
Guðmundur
Kristjánsson
FH
Atli Sigurjónsson
KR
Viktor Karl
Einarsson
Breiðablik
Pablo Punyed
KR
Valdimar Þór
Ingimundarson
Fylki
Brynjar Gauti
Guðjónsson
Stjörnunni
Patrick Pedersen
Val
Thomas Mikkelsen
Breiðabliki
Brynjar Ingi
Bjarnason
KA
Birkir Már
Sævarsson
Val
2
2 3
3
3
3
4
4
2
Fimmtándu umferð er lokið
Meiðsli Jóhanns Bergs Guðmunds-
sonar, landsliðsmanns í knatt-
spyrnu, virðast ekki vera eins al-
varleg og óttast var á fimmtudags-
kvöldið þegar hann var borinn af
velli í leik Burnley og Sheffield
United í deildabikarnum.
Sean Dyce, knattspyrnustjóri
Burnley, staðfesti á heimasíðu fé-
lagsins í gær að liðbönd hefðu
skaddast en sagði að útlitið væri
aðeins betra en menn hefðu verið
hræddir um á fimmtudagskvöldið.
Engin tímamörk hefðu þó verið
sett á endurkomu Jóhanns enn
sem komið væri.
Eftir aðeins 15 mínútna leik
braut Jack Robinson leikmaður
Sheffield United harkalega á Jó-
hanni sem var borinn af velli og
þurfti súrefni á meðan hann fékk
aðhlynningu.
Jóhann missti af stórum hluta
síðasta tímabils vegna meiðsla en
var klár í slaginn fyrir nýtt tíma-
bil þar sem Burnley leikur sinn
fyrsta leik í úrvalsdeildinni á
morgun, gegn Leicester.
Þá er stutt í umspilsleikinn mik-
ilvæga hjá íslenska landsliðinu
sem mætir Rúmeníu á Laugardals-
vellinum 8. október. Horfurnar
með Jóhann fyrir þann leik virðast
ekki góðar.
Jóhann gaf ekki kost á sér í
leikina gegn Englandi og Belgíu í
Þjóðadeild UEFA á dögunum.
Voru það fyrstu leikir landsliðsins
í langan tíma en til stóð að leika
gegn Rúmeníu í mars en leiknum
var frestað vegna heimsfaraldurs-
ins eins og kunnugt er. Jóhann lék
síðast með landsliðinu gegn
Frökkum í Laugardalnum 11.
október í fyrra en fór þá meiddur
af velli.
Nær varla leiknum
gegn Rúmeníu
Morgunblaðið/Eggert
Hnémeiðsli Jóhann Berg Guð-
mundsson er á sjúkralistanum.
Hratt kvarnast nú úr leikmannahópi
Selfyssinga í Pepsí Max-deild
kvenna í knattspyrnu. Í vikunni var
tilkynnt að Hólmfríður Magnús-
dóttir hefði tekið tilboði Avaldsnes í
Noregi og í gær var greint frá því að
miðvörðurinn Anna Björk Kristjáns-
dóttir væri á leið til Frakklands.
Tveir af reyndustu leikmönnum liðs-
ins eru því á förum þegar enn er
nokkuð eftir af þessu óvenjulega
keppnistímabili hér heima.
Sunnlenska.is segir franska liðið
Le Havre kaupa Önnu af Selfossi.
Ekki er langt síðan Le Havre var í
fréttunum hér heima því liðið er
einnig búið að næla í Berglindi
Björgu Þorvaldsdóttur frá Breiða-
bliki. Fyrir nokkrum mánuðum var
engin íslensk kona í efstu deild í
Frakklandi en nú eru þær orðnar
þrjár en Sara Björk Gunnarsdóttir
leikur sem kunnugt er með Lyon.
„Ég er virkilega spennt fyrir að
komast í svona sterka deild og tel
það algjör forréttindi að fá að keppa
á móti nokkrum af bestu liðum og
leikmönnum í heimi. Þetta er spenn-
andi áskorun og það hefur alltaf ver-
ið draumur minn að spila og búa í
Frakklandi,“ sagði Anna í samtali
við Sunnlenska í gær.
Anna og Berglind hafa áður verið
liðsfélagar í atvinnumennskunni því
þær voru á sama tíma hjá PSV í Hol-
landi. Þær hafa því verið tvívegis í
sama liði erlendis en hafa ekki leikið
saman með félagsliði hérlendis.
Selfoss er í 4. sæti deildarinnar
með 19 stig og gerir ekki miklar rós-
ir á Íslandsmótinu úr þessu. Liðið er
18 stigum á eftir Breiðabliki og 17 á
eftir Val. Liðið er hins vegar komið í
undanúrslit Mjólkurbikarsins og
brotthvarf Hólmfríðar og Önnu
minnkar væntanlega möguleikana
nokkuð á því að verja bikarinn sem
liðið vann í fyrra. kris@mbl.is
Þrjár íslenskar konur
í frönsku deildinni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Frakkland Le Havre kaupir Önnu af
íslensku bikarmeisturunum.