Morgunblaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020
Allar leiðir liggja heim er heiti sýn-
ingar sem myndlistarkonan Aðal-
heiður Daly Þórhallsdóttir opnar
eftir kl. 14 í dag í galleríinu Þulu
við Hjartatorg neðan við Laugaveg.
Aðalheiður býr nú og starfar í Berl-
ín en hún útskrifaðist árið 2018
með BA-gráðu í myndlist frá Ont-
ario College of Art and Design í
Kanada. Í tilkynningu segist hún
túlka gegnum málverk sín samband
sitt „við umheiminn, heimilið og
friðinn sem ég sæki í hreiðrið mitt“.
Málverk Aðalheiðar hafa verið á
sýningum bæði í Evrópu og Norð-
ur-Ameríku.
Hreiðrið Hluti eins málverka Aðalheiðar
Daly á sýningunni í galleríinu Þulu.
Leiðir heim á sýn-
ingu Aðalheiðar
Virtur bandarískur djasspíanóleik-
ari, Romain Collin, heldur tónleika
í Hljóðbergi Hannesarholts í kvöld,
laugardag, og hefjast þeir kl. 20.
Sætafjöldi er takmarkaður og mið-
ar aðeins seldir í forsölu.
Collin mun leika allt frá banda-
rískum djassstandördum, að frum-
sömdum verkum og útgáfum nýrr-
ar dægurtónlistar. Collin hefur á
undanförnum árum hlotið mikið lof
gagnrýnenda vestanhafs en hann
hefur til dæmis leikið með Herbie
Hancock, Wayne Shorter, Gregoire
Maret og Bill Frisel.
Píanóhetja Romain Collin hefur hlotið
mikið lof gagnrýnenda fyrir leik sinn.
Romain Collin í
Hannesarholti
Tónleikaröðin „Beethoven í 250 ár“
hefst í Salnum í Kópavogi í dag,
laugardag, kl. 16.30. Um er að ræða
röð níu tónleika þar sem þrjátíu pí-
anóleikarar flytja allar 32 píanó-
sónötur Beethovens.
Tónleikarnir í dag verða með
óhefðbundnu sniði en flutt verður
hljóð- og myndupptaka af Kristínu
Jónínu Taylor og Bryan Stanley
flytja sónötur nr. 2 og 28. Kristín og
Stanley eru búsett í Bandaríkjunum
og komast ekki til landsins vegna
veirufaraldursins.
Arnar Jónsson leikari mun á und-
an hverri sónötu lesa valda kafla úr
bókinni Beethoven – í bréfum og
brotum sem Árni Kristjánsson tók
saman. Frítt er inn á þessa upphafs-
tónleika raðarinnar en gestir þurfa
að tryggja sér frímiða á salurinn.is.
Takmarkaður sætafjöldi er í boði
á tónleikana vegna fjarlægðar- og
fjöldatakmarkana en farið er eftir
öllum sóttvarnareglum í hvívetna.
Flytjandi Kristín Jónína Taylor leikur aðra
sónötuna og verður upptaka af því sýnd.
Fyrstu sónöturnar
verða fluttar í dag
Morgunblaðið/Golli
Barokkbandið Brák kemur fram á
tónleikum í Eldborgarsal Hörpu á
morgun, sunnudag, kl. 16.
Hljóðfæraleikararnir leika allir á
upprunahljóðfæri og í tilkynningu
segir að meðlimir bandsins séu
margir hverjir meðal fremstu
hljóðfæraleikara í sínu fagi í Evr-
ópu í dag.
Á tónleikunum munu tveir af
stofnendum Brákar, fiðluleikar-
arnir Elfa Rún Kristinsdóttir, sem
er margverðlaunuð fyrir fiðluleik á
erlendri grundu, og Laufey Jens-
dóttir sem hlaut nýverið tilnefn-
ingu til Íslensku tónlistarverð-
launanna, leika saman hinn
heimsþekkta konsert J.S. Bach fyr-
ir tvær fiðlur og hljómsveit. Þá mun
Brák flytja strengjasinfóníur eftir
bræðurna Wilhelm Friedemann og
Carl Philipp Emmanuel Bach sem
og konsert fyrir fjórar fiðlur eftir
Georg Philipp Telemann.
Brák Sveitin er skipuð úrvalshljóðfæraleik-
urum sem leika á upprunahljóðfæri.
Brák flytur úrvals-
verk síðbarokks
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
alnabaer.is
Einn af dagskrárflokkkum Alþjóð-
legrar kvikmyndahátíðar í Reykja-
vík, RIFF, nefnist Ísland í brenni-
depli og verða í honum sýndar
kvikmyndir sem Íslendingar hafa
komið að svo eftir er tekið. Við upp-
haf og lok hátíðarinnar verða frum-
sýndar tvær myndir úr þessum
flokki, segir í tilkynningu, í Bíó
Paradís og á netinu í gegnum
www.riff.is. Kvikmyndin Þriðji Póll-
inn verður hins vegar frumsýnd í
Háskólabíói við upphaf hátíðar, 24.
september.
Viðfangsefni myndanna gæti ekki
orðið mikið fjölbreyttara en þar má
m.a. finna mynd um sirkuslistina,
óhefðbunda heimildarmynd um geð-
hvörf, húsmæðraskóla og gildi hans í
nútímasamfélagi og Eurovision sem
pólitískt afl. Kvikmyndirnar eru
eftirfarandi:
Þriðji Póllinn
Opnunarmynd RIFF er áhrifarík
heimildarmynd um geðhvörf með
söngvum og fílum í leikstjórn Anní
Ólafsdóttur og Andra Snæs Magna-
sonar. Hér segir af ferðalagi Önnu
Töru Edwards og Högna Egilssonar
til Nepal en þau hafa bæði glímt við
geðhvörf og fær áhorfandinn sýn inn
í hugsun og veruleika tveggja ein-
staklinga með sjúkdóminn. Þetta er
ferðasaga, mynd um óvænta vináttu
og opin umræða um hvað það þýðir
að vera með geðsjúkdóm, eins og
segir í tilkynningu RIFF.
Á móti straumum
Hátíðinni lýkur með frumsýningu
á fyrstu heimildarmynd leikstjórans
og lagahöfundarins Óskars Páls
Sveinssonar í fullri lengd. Hér er á
ferð táknræn mynd um transkonuna
Veigu Grétarsdóttur sem siglir á
kajak í kringum Ísland rangsælis,
eða á móti straumnum, í þrjá mán-
uði. Samhliða tekst hún á við sjálfa
sig í kynleiðréttingarferlinu og gefur
myndin innsýn í innri baráttu Veigu
upp á líf og dauða hvort sem er í líf-
inu sjálfu eða ein úti á kajak.
Sirkusstjórinn/
The Circus Director
RIFF og Listahátíð í Reykjavík
frumsýna í samstarfi nýjustu kvik-
mynd í leikstjórn Helga Felixsonar
og Titti Johnson. Áhugaverð mynd
um sirkusstjórann Tilde Björfors,
stjórnanda Circus Cirkör, sem kom
með nútímasirkuslistina til Svíþjóð-
ar fyrír tveimur áratugum. Rauði
þráður myndarinnar er sá hvað ger-
ist ef við hættum að þora að taka
áhættu í lífinu og látum hræðsluna
stjórna okkur.
Humarsúpa/Lobster Soup
Mynd sem kemur beint frá San
Sebastian-kvikmyndahátíðinni þar
sem hún vann til tvennra verðlauna.
Myndin er í leikstjórn Pepe Andreu
& Rafael Molés en meðal handrits-
höfunda er Ólafur Rögnvaldsson.
Sögusviðið er veitingahúsið Bryggj-
an í Grindavík sem hefur verið skjól
fyrir bæjarbúa á síðustu 3.000 fer-
metrunum af byggingarlandi á höfn-
inni á meðan ferðamenn og hraun-
breiður virðast í sívaxandi mæli vera
að þrýsta öllu þorpinu á haf út, eins
og segir svo skáldlega í tilkynningu.
Forvitnileg sýn á Ísland með augum
hinna spænsku kvikmyndagerðar-
manna sem hafa getið sér gott orð
fyrir heimildarmyndir sínar sem
þeir hafa mikla ástríðu fyrir.
Á milli himins og jarðar
Evrópufrumsýning á kvikmynd-
inni Á milli himins og jarðar/Be-
tween Heaven and Earth verður á
RIFF en myndin er tilnefnd til Evr-
ópsku kvikmyndaverðlaunanna 2020
sem íslensk. Myndin er framleidd í
samstarfi hins íslenska framleiðslu-
fyrirtækis Oktober production og
palestínska framleiðslufyrirtækisins
Ustura Films. Á milli himins og
jarðar er ástarsaga um skilnað þar
sem áhorfandinn fær tækifæri til að
fara í bíltúr um Palestínu og Ísrael.
Ferðalag hjónanna veitir okkur inn-
sýn í hinar ýmsu hliðar þessa sam-
félags sem er rifið og tætt af árþús-
undagömlum skærum og stríði.
Systur: Draumar og Fjölbreyti-
leiki/ Sisters: Dreams & Variations
Evrópufrumsýning á litríkri mynd
sem er allt í senn heimildarmynd,
teiknimynd og gjörningur. Leik-
stjóri hennar Catherine Legault er
margverðlaunaður leikstjóri og
klippari en þetta er fyrsta heimildar-
myndin í fullri lengd sem hún leik-
stýrir. Í myndinni segir af hinum
skemmtilegu og listrænu systrum
Tyr og Jasa sem eru heillaðar af
upptökum langömmu sinnar af ís-
lenskum þjóðlögum. Þær ferðast
saman til Íslands í fyrsta sinn og
vinna saman að listagjörningi sem
leiðir saman listköpun þeirra og
menningararfleifð.
Húsmæðraskólinn
Norðurlandafrumsýning á Hús-
mæðraskólanum sem er einstök
samtímaheimild um Húsmæðraskól-
ann í Reykjavík. Myndin fjallar um
hinn horfna heim íslensku húsmóð-
urinnar og hvernig hlutverk skólans
hefur breyst í áranna rás. Gamli tím-
inn er endurspeglaður samhliða því
sem fylgst er með nemendum við
skólann í dag og það skoðað hversu
mikil breyting hefur orðið á ímynd
skólans.
Stefanía Thors hefur unnið að
mörgum kvikmyndum og heimild-
armyndum en þetta er fyrsta heim-
ildarmyndin sem hún leikstýrir.
Hatrið/A Song Called Hate
Hatrið er frumraun Önnu Hildar
Hildibrandsdóttur sem leikstjóra en
hún söðlaði nýverið um og sneri sér
að kvikmyndagerð eftir að hafa
starfað í tónlistarbransanum í um
tvo áratugi. Myndin fjallar um ferða-
lag hljómsveitarinnar Hatara um
króka og kima Eurovision, Ísraels-
ríkis og Palestínu. Í myndinni er
fylgst með togstreitunni og spurn-
ingunum sem vöknuðu á leiðinni og
rætt við meðlimi sveitarinnar fyrir
og eftir að tvö hundruð milljón
manns sjá atriði þeirra í sjónvarpi.
Myndin gefur raunsæja innsýn í það
hvernig Hatari tókst á við þetta
gríðarstóra verkefni, sem oft gekk
mjög nærri þeim, og sýnir hvernig
ferðalagið breytti hugsanagangi
þeirra og sýn á lífið.
Skuggahverfið/Shadowtown
Frumsýning á Skuggahverfinu er
fyrsta mynd þeirra Jóns Einars-
sonar Gústafssonar og Karolinu Le-
wicka í fullri lengd sem þau vinna
saman. Aðalleikkona myndarinnar
er hin vesturíslenska Brittany Bri-
stow en í myndinni leikur einnig
hinn heimsþekkti leikari John Rhys-
Davies sem er Íslendingum kunn-
ugur úr The Lord of the Rings og
Indiana Jones-myndunum. Meðal ís-
lenskra leikara eru Edda Björgvins-
dóttir, Inga María Eyjólfsdóttir og
Rúnar Freyr Gíslason. Skugga-
hverfið er dramatísk mynd með
hrollvekjandi ívafi.
Morgunblaðið/RAX
Róður Veiga Grétarsdóttir reri rangsælis í kringum Ísland og er fjallað um
það afrek og kynleiðréttingarferli hennar í Á móti straumnum.
Ísland í brennidepli á RIFF
Níu kvikmyndir sem Íslendingar hafa komið að Húsmæðraskóli, geðhvörf,
hringferð um landið á kajak og Eurovision meðal fjölbreyttra viðfangsefna