Morgunblaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020
Áður en Ólympíuleikunum í
Tókýó var frestað var einn ís-
lenskur íþróttamaður öruggur
um keppnisrétt á leikunum sem
til stóð að færu fram frá 24. júlí
til 9. ágúst 2020. Sundmaðurinn
Anton Sveinn McKee náði lág-
markinu örugglega í bringu-
sundi.
Leikunum var frestað vegna
kórónuveirunnar eins og íþrótta-
áhugafólk þekkir. Nú er stefnt að
því að þeir fari fram 23. júlí til 8.
ágúst. Þessum leikjum í Tókýó
verður ekki frestað oftar. Gest-
gjafarnir hafa fullyrt það enda
mótshaldið orðið verulega dýrt
spaug. Annaðhvort fara þeir
fram næsta sumar eða verður af-
lýst.
Nú þegar leikunum hefði átt að
vera lokið eru tveir íslenskir
kastarar skyndilega komnir í þá
stöðu að eiga góða möguleika á
að komast á leikana. Sleggju-
kastarinn Hilmar Örn Jónsson og
kringlukastarinn Guðni Valur
Guðnason hafa báðir bætt sig
mjög nú síðsumars og ruku upp
heimslistann í sínum greinum.
Eftir frestun leikanna er því
orðið útlit fyrir að Ísland geti átt
fleiri keppendur á leikunum en ef
þeir hefðu farið fram á þessu ári.
Ásdís Hjálmsdóttir er reyndar
hætt og þeirri ákvörðun hennar
virðist ekki verða haggað en hún
hefði verið líkleg til að gera at-
lögu að lágmarkinu fyrir leikana
2020.
Frjálsíþróttakeppnin er
viss hápunktur á Ólympíuleikum.
Þar kemur saman íþróttafólk
sem hleypur hraðast, hoppar
hæst og lengst og kastar lengst.
Auk þess færast leikarnir þá inn
á ólympíuleikvanginn sjálfan. Þar
verða Íslendingar að eiga fulltrúa
til að gefa keppninni meira gildi.
Ekki er verra þegar Sigurbjörn
Árni lýsir því sem fyrir augu ber.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Mál hlauparans Caster Semenya
er eitt það áhugaverðasta sem komið
hefur upp í íþróttaheiminum á síð-
ustu árum. En um leið er það eitt hið
leiðinlegasta. Á tímum þegar barist
hefur verið fyrir því að afreks-
íþróttafólk taki ekki lyf sem hafa
áhrif á frammistöðu, stendur tvö-
faldur ólympíumeistari í 800 metra
hlaupi kvenna frammi fyrir því að
þurfa að taka inn lyf til að fá að
keppa áfram í greininni.
Málið er mjög óvenjulegt en for-
sagan er sú að alþjóðasamband í
einni íþróttagrein, Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandið, setti reglu árið
2019 sem reyndist umdeild. Í henni
felst að keppendur með of mikið
hormónamagn í líkamanum þurfa að
taka hormóna til að ná magninu nið-
ur til að mega keppa í ákveðnum
vegalengdum í hlaupum. Caster
Semenya fór í mál til að fá reglunni
hnekkt en varð ekki ágengt og á
dögunum tapaði hún málinu fyrir
hæstarétti í Sviss.
Semenya hefur verið illviðráðan-
leg á hlaupabrautinni í 800 metra
hlaupi enda er hún tvöfaldur ólymp-
íumeistari og þrefaldur heimsmeist-
ari. Hún er þó ekki heimsmethafi í
greininni og er því ekki sú besta sem
hefur keppt í 800 metra hlaupi.
Hlaupararnir eru margir hverjir
grannvaxnir í þeirri grein en þó ekki
eins grannir og í lengri vegalengd-
um. Semenya er hins vegar vöðva-
stælt og augljóslega mjög líkamlega
sterk. Að því leyti er hún líkari
spretthlaupara.
Er það ekki að ástæðulausu því
hormónamagnið í líkama hennar er
mun meira en gengur og gerist hjá
konum. Ástæðurnar fyrir því eru
náttúrulegar og um það er ekki deilt.
Fyrir vikið hefur hún forskot á
keppinauta sína hvað líkamlegt at-
gervi varðar. Ef slíkt hormónamagn
mældist í íþróttakonu sem tekið
hefði lyf á bannlista yrði refsingin
margra ára, ef ekki lífstíðarkeppn-
isbann frá íþróttinni.
Vill vera sú sem hún er
Reglan sem Alþjóðafrjálsíþrótta-
sambandið setti nær eingöngu til
keppni í hlaupum frá 400 metrum og
upp í 1.500 metra. Virkar málið á
marga eins og reglan sé sett til höf-
uðs Semenya. Hvort sem það er
raunin eða ekki hefði málið væntan-
lega ekki orðið jafn fyrirferðarmikið
í fjölmiðlum ef Semenya hefði tekið
aðgerðum sambandsins þegjandi og
hljóðalaust. Hún ákvað hins vegar
að berjast gegn henni en varð ekki
ágengt eins og áður segir. Semenya
fór með málið eins langt í dómskerf-
inu og hægt er. Fyrst var það dóm-
stóll Alþjóðafrjálsíþróttasambands-
ins, þá Alþjóðaíþróttadómstóllinn,
því næst svissneskt dómstig og loks
hæstiréttur í Sviss.
Ýmsar siðferðisspurningar vakna
þessu tengdar og Semenya sjálf seg-
ir að málið snúist um mannréttindi.
Þess sé nú krafist að hún taki lyf fyr-
ir að vera sú sem hún er. Það er að
segja ef hún vill halda áfram keppni í
íþrótt þar sem hún hefur komið sér
vel fyrir í hinum umtöluðu sögubók-
um. Á henni má skilja að hún ætli
ekki að fara þá leið að taka lyf til að
minnka hormónamagnið og þá má
draga þá ályktun að ferli hennar sé
lokið en þrátt fyrir marga sigra er
Semenya ekki nema 29 ára gömul.
Veigamestu rökin fyrir reglunni,
og til þeirra virðast dómstólarnir
horfa, eru þau að hormónamagn sé
ástæða þess að bestu karlarnir eiga
betri tíma í hlaupum en bestu kon-
urnar. Sanngirnissjónarmiðin séu
þau að ósanngjarnt sé fyrir konur
með eðlilegt hormónamagn í lík-
amanum að keppa gegn konum með
hátt hormónamagn.
Hormónamagnið skal minnkað
Baráttumál Caster Semenya er afar óvenjulegt Líkam-
legir burðir hennar þykja ósanngjarnir á hlaupabrautinni
AFP
Sigursæl Caster Semenya á mörg
gullverðlaun í safninu.
Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar
Alex Rúnarsson mætti í gær á æf-
ingasvæði enska knattspyrnu-
félagsins Arsenal til að skrifa undir
fimm ára samning við félagið. Mun
Arsenal greiða Dijon í Frakklandi
1,6 milljónir punda fyrir Rúnar, en
félagið hefur enn ekki staðfest
komu Íslendingsins. Rúnar er 25
ára og uppalinn hjá KR. Fór hann
ungur til Nordsjælland í Danmörku
árið 2014, en hann hefur leikið með
Dijon frá 2018. Rúnar hefur leikið
fimm A-landsleiki og kom sá síðasti
gegn Katar í nóvember 2018.
Rúnar Alex í
Lundúnum
Morgunblaðið/Eggert
Arsenal Rúnar Alex Rúnarsson er
við það að semja við Arsenal.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Ís-
landsmeistari í golfi, hafnaði í 24.-
27. sæti á Amundi Czech Ladies
Challenge-mótinu sem lauk í Prag í
gær en það er liður í áskorenda-
mótaröð Evrópu. Guðrún lauk leik
á sjö yfir pari vallarins.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson
komst ekki út á völl þegar öðrum
hring á Opna portúgalska mótinu
var frestað vegna veðurs. Haraldur
Franklín Magnús náði að leika 15
holur en á litla möguleika á því að
komast áfram. Guðmundur er í
góðri stöðu á -3.
Guðrún hafnaði í
24.-27. sæti
Ljósmynd/seth@golf.is
Tékkland Guðrún Brá lauk leik á
samtals sjö yfir pari í Prag.
Valur hafði betur gegn Fram,
28:24, í stórleik í 2. umferð Ol-
ísdeildar kvenna í handbolta í gær-
kvöld. Hafa Reykjavíkurliðin verið
bestu lið landsins síðustu ár. Staðan
í hálfleik var 11:11, en Valskonur
voru sterkari í seinni hálfleik og
unnu að lokum verðskuldaðan sig-
ur.
Lovísa Thompson skoraði sjö
mörk fyrir Val og Þórey Anna Ás-
geirsdóttir sex. Ragnheiður Júlíus-
dóttir gerði sex fyrir Fram og
Steinunn Björnsdóttir fimm.
Er Framliðið vængbrotið þar sem
Þórey Rósa Stefánsdóttir og Karen
Knútsdóttir eru óléttar og þá er
Hafdís Renötudóttir að glíma við
höfuðmeiðsli. Er um þrjá gríðar-
lega sterka landsliðsmenn að ræða.
Án þeirra er ábyrgðin mikil á
Ragnheiði Júlíusdóttur og Stein-
unni Björnsdóttur en Valskonur
eru með fleiri vopn. Þórey Anna Ás-
geirsdóttir og Mariam Eradze fara
mjög vel af stað með Val og þá átti
Saga Sif Gísladóttir stórleik í mark-
inu. Það verður erfitt að stoppa
Valskonur í vetur.
johanningi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Öflug Lovísa Thompson sækir að vörn Framara á Hlíðarenda í gærkvöld.
Valskonur unnu
fyrsta stórslaginn
Selfoss og KA skildu jöfn, 24:24, í
miklum spennuleik er liðin mættust
í 2. umferð Olísdeildar karla í hand-
bolta í gærkvöld. KA var með fjög-
urra marka forskot þegar fjórar
mínútur voru til leiksloka, en Sel-
foss skoraði fjögur síðustu mörkin.
Guðmundur Hólmar Helgason
tryggði heimamönnum eitt stig
með marki tólf sekúndum fyrir
leikslok, en hann hefur farið afar
vel af stað hjá Selfossi. Eru bæði lið
með þrjú stig eftir fyrstu tvo leik-
ina; einn sigur og eitt jafntefli. Það
hefur sýnt sig undanfarin ár að það
má aldrei slaka á gegn Selfyss-
ingum. Hvað eftir annað hefur liðið
klórað sig út úr erfiðri stöðu og náð
úrslitum eftir að andstæðingurinn
nær forskoti. Hefðu bæði lið vænt-
anlega tekið því fyrirfram að vera
með þrjú stig eftir tvo leiki, en þau
gætu komið á óvart í vetur.
Auðvelt hjá Val
Flestir spáðu Valsmönnum góðu
gengi fyrir mót á meðan flestir
voru sammála um að ÍR ætti erf-
iðan vetur fram undan. Miðað við
yfirburði Valsara gegn ÍR á heima-
velli er það ekki fjarri lagi. Urðu
lokatölur 43:24. Valsmenn voru
með yfirhöndina allan tímann og
þurftu ekki að hafa mikið fyrir
sigrinum. Litlar breytingar eru á
sterku liði Vals á milli leiktíða en
ÍR-ingar misstu nánast alla sína
menn. Valsmenn verða væntanlega
að berjast á toppnum en veturinn
verður ansi langur og þungur hjá
Breiðhyltingum. Agnar Smári
Jónsson skoraði tíu mörk fyrir Val,
sem er töluvert yfir meðaltalinu hjá
honum á síðustu leiktíð. Nái Agnar
Smári að sýna hvað í honum býr
getur hann orðið algjör lykilmaður
hjá Val í vetur.
johanningi@mbl.is
Selfyssingarnir
gefast aldrei upp
Morgunblaðið/Eggert
Hetjan Guðmundur Hólmar Helga-
son tryggði Selfyssingum stig.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Extra-völlur: Fjölnir – KA .................... L14
1. deild karla, Lengjudeildin:
Olísvöllur: Vestri – Leiknir F ................ S14
Grenivíkurv.: Magni – Leiknir R........... S16
2. deild karla:
Vodafonev.: Völsungur – Kórdrengir ... L13
Dalvík: Dalvík/Reynir – Fjarðabyggð.. L14
Jáverksvöllur: Selfoss – Þróttur V ....... L14
3. deild karla:
Vopnafjarðarvöllur: Einherji – KV.. L13.30
Fagrilundur: Augnablik – Elliði............ L14
Fjölnisvöllur: Vængir J. – Sindri .......... L14
Vilhjálmsvöllur: Höttur/Hug. – Ægir... L14
Samsung-völlur: KFG – Álftanes.......... L14
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Sauðárkróksv.: Tindastóll – ÍA ............. L14
Varmá: Afturelding – Fjölnir ................ L17
2. deild kvenna:
Egilshöll: Hamar – ÍR............................ L14
Kórinn: HK – Sindri ............................... L14
Fjarðabyggðarhöll: FHL – Álftanes..... S14
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
KA-heimilið: KA/Þór – Stjarnan...... L14.30
Ásvellir: Haukar – FH ...................... L14.45
Kórinn: HK – ÍBV ............................. L16.30
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Ásvellir: Haukar – ÍBV ..................... L17.30
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Kórinn: HK – Selfoss U .................... L13.30
Origo-höll: Valur U – Víkingur......... L15.45
Ásvellir: Haukar U – Fjölnir.................. S17
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Hertz-höll: Grótta – Fram U ............ L13.30
Origo-höll: Valur U – Víkingur......... L18.30
Kórinn: HK U – Selfoss..................... S19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Meistarakeppni kvenna:
Borgarnes: Skallagrímur – Valur..... S19.15
ÍSHOKKÍ
Hertz-deild kvenna:
Akureyri: SA – SR............................. L16.45
UM HELGINA!