Morgunblaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Skoðið // www.hjahrafnhildi.is
Ný sending
af vinsælu
drögtunum
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgdu okkur á facebook
Verð
64.900 – 69.900 kr.
SKOÐIÐNETVERSLUNLAXDAL.IS
DÁSAMLEGAR
DÚNÚLPUR
OG KÁPUR
Gæðavottaðar • 2 síddir
St. 36-48 • Margir litir
Þetta tekur til:
■ sundlauga frá 4. til 18. maí,
■ skemmtistaða, kráa, spilasala og líkamsræktarstöðva frá 4. til 25. maí
Allar nánari upplýsingar eru á skatturinn.is
Viðbótarlokunarstykir
Þeir rekstraraðilar sem gert var að stöðva starfsemi
sína frá 4. maí sl. til annars vegar 18. maí og hins vegar
25. maí 2020 vegna sóttvarnaraðgerða geta nú sótt
um viðbótarlokunarstyrki.
Umsóknarfrestur er til og með 1. október n.k.
skatturinn@skatturinn.is 442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Skipulagt hefur verið nýtt hverfi
norðan núverandi byggðar á Hvols-
velli. Þar verða 119 íbúðir, í ein-
býlishúsum, parhúsum og rað-
húsum. Unnið er að gatnagerð
fyrsta áfanga hverfisins en þar
verða 23 lóðir, aðallega fyrir ein-
býlishús. Stefnt er að því að auglýsa
lóðirnar undir lok ársins. Með öðr-
um skipulagsverkefnum verða lóðir
fyrir alls 150 íbúðir tilbúnar til út-
hlutunar á næstu árum.
Guðmundur Úlfar Gíslason,
skipulags- og byggingarfulltrúi
Rangárþings eystra, segir að vant-
að hafi lóðir fyrir einbýlishús og
hafi nokkur eftirspurn verið eftir
þeim. Verið sé að svara því kalli.
Hverfið heitir Norðurbyggð og
nýlega auglýsti sveitarfélagið eftir
nöfnum á göturnar þrjár sem þar
verða. Guðmundur segir að nokkr-
ar tillögur hafi borist. Margar göt-
ur á Hvolsvelli eru nefndar eftir
hetjum úr Njálssögu, svo sem
Gunnari og Njáli. Segir Guð-
mundur að nú virðist áhugi á að
heiðra konurnar í sögunni og nefna
götur í höfuðið á Bergþóru og Hall-
gerði, svo dæmi séu tekin.
Við gatnagerðarframkvæmd-
irnar í Norðurbyggð eru jafnframt
útbúnar lóðir fyrir fjölbýlishús og
raðhús með alls 9 íbúðum sem til-
heyra eldra hverfi.
Fjölbýlishús í miðbæ
Skipulag á miðbæjarreit Hvols-
vallar er nú á lokastigi. Markmiðið
þar er að svara eftirspurn eftir lóð-
um fyrir verslun og þjónustu en
jafnframt að gera miðbænum
hærra undir höfði. Á miðbæjar-
skipulaginu er gert ráð fyrir fjöl-
býlishúsum með alls 22 íbúðum.
Guðmundur segir að ágæt sala sé
í húsum á Hvolsvelli og virðist
vanta nýjar íbúðir á markaðinn.
Með þessum verkefnum sé verið að
svara þeirri eftirspurn.
Mikið fjölgaði í Rangárþingi
eystra í ferðamannasprengingunni
fyrir þremur árum. Nú er óvissa
um íbúðaþróun vegna samdráttar í
ferðaþjónustunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hvolsvöllur Norðurbyggð verður norðan við núverandi þéttbýli.
Skipulagðar lóðir
fyrir 150 íbúðir
Bjóða einbýlishúsalóðir á Hvolsvelli
Ákæra hefur verið gefin út á hendur
manni á sjötugsaldri sem grunaður
er um að hafa valdið brunanum á
Bræðraborgarstíg í júní. Maðurinn
er ákærður fyrir manndráp sam-
kvæmt 211. grein almennra hegn-
ingarlaga og fyrir íkveikju sam-
kvæmt 164. grein hegningarlaga.
Maðurinn hefur sömuleiðis verið
úrskurðaður í fjögurra vikna áfram-
haldandi gæsluvarðhald en hann
hefur setið í varðhaldi síðan í júní.
Lög hefðu ekki heimilað að halda
manninum lengur í varðhaldi ef
ákæra í málinu hefði ekki legið fyrir í
dag.
Refsing við 211. grein almennra
hegningarlaga er fangelsisvist allt að
ævilangt og eigi skemur en fimm ár.
Við þeirri 164. varðar refsingin fang-
elsisvist eigi skemur en sex mánuði.
Þrennt lést í brunanum, allt pólsk-
ir ríkisborgarar, og vakti málið
mikla reiði meðal margra sem kröfð-
ust úrbóta í málefnum erlends
verkafólks hér á landi.
Morgunblaðið/Eggert
Bræðraborgarstígur Þrír létu lífið.
Ákærður fyrir manndráp og íkveikju
Allt um sjávarútveg