Morgunblaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020
BÆJARLÍF
Sigmundur Sigurgeirsson
skrifar frá Selfossi
Nýtt fjölnota íþróttahús er að
fá á sig mynd á íþróttavallarsvæðinu
við Engjaveg á Selfossi. Búið er að
reisa þar nánast alla bogana í grind
hússins og ætlað er að það verði
klárað undir lok næstu viku. Vonast
er til að hægt verði að loka húsinu
fyrir veturinn. Það er verktaka-
fyrirtækið Ístak sem sér um bygg-
ingu hússins sem verður alls um
6.500 fermetrar að stærð. Mun það
rúma hálfan knattspyrnuvöll, all-
mikla frjálsíþróttaaðstöðu sem og
göngubraut. Þá verður hægt að nýta
húsið undir samkomur þar sem
mega koma saman um 3.000 manns.
Ætlunin er að taka húsið í notkun í
byrjun ágúst á næsta ári þegar
Unglingalandsmót UMFÍ verður
haldið hér um verslunar-
mannahelgina.
Veiðin í Ölfusá hefur verið
nokkuð ámóta og undanfarin ár, og
voru í síðustu viku komnir um 120
laxar á land í ánni. Mest er veiðin
alla jafna í júlí og fyrri hluta ágúst-
mánaðar en nokkrir laxar hafa þó
komið á land á síðustu dögum. Tals-
vert meira hefur veiðst af sjóbirtingi
en verið hefur undanfarinn áratug
og eru silungar sem komnir eru á
land í sumar nánast jafnmargir löx-
unum.
Uppbyggingu nýs miðbæjar á
Selfossi miðar vel og er allt bygging-
arferlið á áætlun. Þessi dægrin er
verið að koma fyrir sperrum og þaki
á Mjólkurbúinu, sem verður eftir-
gerð mjólkurbús MBF sem var reist
á Selfossi árið 1929 og rifið 1956. Þá
er að hefjast gerð kjallara undir hús-
in Ingólf og Höfn og tvö húsanna,
Sigtún og Braunshúsið frá Akureyri,
eru fullbúin að utan nú þegar. Að
sögn Leós Árnasonar, stjórnarfor-
manns Sigtúns byggingarfélags um
miðbæinn, er áfram stefnt á opnun
fyrsta hlutans undir sumarbyrjun á
næsta ári.
Sveitarfélagið leitar nú áhuga-
samra aðila til að koma að skipu-
lagningu um 400 hektara athafna-
svæðis í Háeyrarmýri í grennd við
Eyrarbakka en ætlunin er að þar
verði aðstaða fyrir fyrirtæki í inn- og
útflutningi. Er þetta í tengslum við
uppbyggingu fraktflutninga í Þor-
lákshöfn. Verður svæðið sett inn á
aðalskipulag sem nokkurs konar iðn-
garðar.
Knattspyrnudeild UMF Sel-
foss hefur selt frá sér fjóra leikmenn
meistaraflokksliða sinna á fáeinum
vikum, tvo úr karlaliðinu og tvo úr
kvennaliðinu. Bæði liðin hafa átt
ágætu gengi að fagna upp á síðkast-
ið, og verður eflaust spennandi að
sjá hvernig liðunum mun ganga í
kjölfar slíkrar blóðtöku. Að sögn
Jóns Steindórs Sveinssonar for-
manns deildarinnar munar að sjálf-
sögðu um að missa góða leikmenn en
það komi ávallt maður í manns stað.
Hann segir að viðkvæðið sé að um sé
að ræða gott skref fyrir leikmenn-
ina, og félagið standi ekki í vegi fyrir
þeim í sinni vegferð. Það sé enda eitt
af hlutverkum knattspyrnudeild-
arinnar að hjálpa leikmönnum að
þróast áfram og ná frekari árangri.
Það að selja fjóra leikmenn á einu
ári sé jákvætt fyrir félagið til lengri
tíma og sýnir að félagið sé að gera
góða hluti, ekki síst í starfi yngri
flokkanna. Karlalið Selfoss tekur á
móti Þrótti Vogum í dag kl. 14.
Fjölnota
íþróttahús að
rísa á Selfossi
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Selfoss Taka á í gagnið nýtt fjölnota íþróttahús á landsmóti næsta sumar.
Granda. Sú ímynd er þannig að fólk
óttast að fá slíkt í sitt nærumhverfi.
Íbúaráð óskar eftir að þessari til-
lögu að breytingu á aðalskipulagi
verði frestað þar til í haust og tím-
inn notaður til að kynna hugmynda-
fræðina og smáhýsaáform vel fyrir
íbúum hverfanna,“ segir í umsögn-
inni.
Gæði fyrir íbúa verði tryggð
Í umsögn Skipulagsstofnunar frá
því í sumar er bent á að með breyt-
ingunni séu sérstök búsetuúrræði
heimil á öllum skilgreindum
byggðasvæðum í Reykjavík og á
landbúnaðarsvæðum og opnum
svæðum. Skipulagsbreytingin veiti
mjög opnar heimildir og tilefni gæti
verið til að skýra nánar hvaða svæði
komi til álita með það fyrir augum
að tryggja gæði fyrir þá íbúa sem
þar koma til með að búa. „Má þar
sérstaklega nefna möguleikana á
sértækum búsetuúrræðum á iðnað-
ar- og athafnasvæðum, hafnar-
svæðum og opnum svæðum þar sem
almennt er ekki gert ráð fyrir hús-
næði,“ segir í umsögn Skipulags-
stofnunar.
Í greinargerð með auglýsingu
borgarinnar segir að umsögn
Skipulagsstofnunar verði tekin til
umfjöllunar í samhengi við aðrar
framkomnar athugasemdir að lok-
inni auglýsingu.
Veðurstofureit og í Hlíðunum, en
athugasemdir hafa komið fram frá
íbúum, íbúasamtökum, fyrirtækj-
um og hagsmunaaðilum. Á Köllun-
arklettsreit voru slík áform uppi, en
úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála felldi úr gildi ákvörðun
borgarráðs um breytingu á deili-
skipulagi svæðisins.
Blendnar skoðanir og óvissa
Í kafla um forsendur breytingar-
innar segir m.a. í auglýsingu borg-
arinnar: „Fyrsti kostur í staðsetn-
ingu þessara úrræða ætti því að
vera innan íbúðahverfa eða bland-
aðrar byggðar. Reynslan sýnir
hinsvegar að oft getur reynst erfitt
að skapa sátt um staðsetningu mis-
munandi búsetuúrræða innan gró-
inna hverfa, einkum vegna and-
mæla íbúasamfélagsins en einnig
vegna þess að land eða hentugt hús-
næði liggur ekki á lausu.“
Í umsögn Íbúaráðs Grafarvogs
segir að meðlimir í ráðinu hafi
skynjað blendnar skoðanir og
óvissu hjá íbúum Grafarvogs og
Bryggjuhverfis vegna áforma um
staðsetningu smáhýsa í hverfinu og
nærumhverfi þess. „Ekki síst í ljósi
fyrirhugaðrar uppsetningar smá-
hýsa á Gufunessvæðinu. Þessi
áform hafa afar lítið verið kynnt
íbúum og sú mynd sem fólk hefur af
slíku eru smáhýsin við Fiskislóð á
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Skipulagsstofnun hefur auglýst til-
lögu að breytingu á aðalskipulagi
Reykjavíkurborgar. Markmið
breytingarinnar er m.a. skerpa á
landnotkunarheimildum í aðal-
skipulagi um hvar megi staðsetja
búsetuúrræði innan borgarinnar,
auka sveigjanleika og hraða við
undirbúning ýmissa húsnæðis-
lausna fyrir sértæka hópa.
Horft til þarfa heimilislausra
Samkvæmt tillögunni geta sér-
stök búsetuúrræði verið heimil inn-
an svæða sem eru skilgreind fyrir
íbúðabyggð, samfélagsþjónustu,
verslunar- og þjónustusvæði, mið-
svæði, athafnasvæði, hafnarsvæði,
iðnaðarsvæði, opin svæði og land-
búnaðarsvæði. Sértæk búsetuúr-
ræði eru skilgreind sem húsnæðis-
lausnir fyrir félagshópa með
sérstakar húsnæðis- og/eða þjón-
ustuþarfir, til lengri eða skemmri
dvalar. Við mótun tillögunnar var,
að gefnu tilefni, sérstaklega horft
til þarfa heimilislausra.
Borgin hefur unnið að því að
finna lóðir, undirbúa og reisa 25
smáhýsi fyrir skjólstæðinga vel-
ferðarsviðs borgarinnar. Síðustu
misseri hafa meðal annars verið
áform um slík hús við Stórhöfða, á
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Búsetuúrræði Smáhýsi við Fiskislóð á Grandagarði, en skiptar skoðanir hafa verið um þau.
Smáhýsi í borginni
leyfð á fleiri svæðum
Breyting á aðalskipulagi auglýst Mjög opnar heimildirForeldraverðlaun Heimilis og skóla
voru afhent í 25. sinn við hátíðlega
athöfn í Safnahúsinu við Hverfis-
götu á afmælisdegi samtakanna sl.
fimmtudag, 17. september. Þá fögn-
uðu samtökin 28 ára afmæli sínu.
Lilja D. Alfreðsdóttir, ráðherra
mennta- og menningarmála, ávarp-
aði samkomuna og afhenti verðlaun-
in en að þessu sinni hlutu Smiðjur í
Djúpavogsskóla og nytjamarkaður-
inn NOTÓ sjálf foreldraverðlaunin.
Einnig var útnefndur Dugnaðar-
forkur Heimilis og skóla og veitt
voru Hvatningarverðlaun, að því er
segir í fréttatilkynningu.
Foreldrafélag Djúpavogsskóla
fékk haustið 2018 húsnæði hjá
Djúpavogshreppi og setti á lagg-
irnar nytjamarkaðinn Notó, en eng-
inn nytjamarkaður eða móttaka
heilla hluta var fyrir á Djúpavogi.
Rekstrarformið er þannig að
Notó er opið einu sinni í viku og sjá
nemendur skólans um að raða, verð-
leggja og afgreiða. Einn bekkur sér
um hverja opnun undir leiðsögn
eins til tveggja foreldra. Innkoma
Notó rennur svo beint til barnanna
og meðal þess sem fjármagnað hef-
ur verið eru útirólur, leikrit, fyrir-
lestrar og stutt ferðalög fyrir nem-
endur.
Dugnaðarforkurinn
Dugnaðarforkur Heimilis og
skóla er Ragnheiður Davíðsdóttir.
Hún hefur unnið að samstarfi heim-
ila og skóla í sínu nærsamfélagi í
mörg ár og í tilnefningu segir að
henni séu félagsmálin hugleikin og
hún sé í góðu sambandi við félags-
miðstöðina og hverfamiðstöðina í
hverfinu. Hún hefur setið í stjórn
foreldrafélags Seljaskóla í mörg ár
og verið bekkjarfulltrúi í Seljaskóla
nær sleitulaust síðan árið 2004, eða
þar til hún tók við formennsku í for-
eldrafélagi Seljaskóla. Í tilnefningu
segir einnig að hún hafi haldið lífi í
hverfisrölti foreldra.
Hvatning í Breiðholti
Hvatningarverðlaunin hlaut verk-
efnið Bókabrölt í Breiðholti. For-
eldrafélögin fimm í Breiðholti
hleyptu af stokkunum samfélags-
verkefninu Bókabrölti í Breiðholti.
Foreldrafélögin bjuggu hvert um
sig til bókaskáp og fóstra hvert sinn
bókaskáp sem eru staðsettir á fimm
stöðum í Breiðholtinu en þar er
hægt að gefa bók og þiggja bók. Í
hillurnar má gefa allar tegundir
bóka, á öllum tungumálum fyrir all-
an aldur.
Tengt Bókabröltinu ákváðu for-
eldrafélögin í Breiðholti að kaupa
bókaviðgerðarvél fyrir skólasöfnin í
skólunum fimm. „Þessi vél er ein-
stök því með henni er hægt að gera
við bækur þar sem blaðsíðurnar
hafa losnað frá bókarkjölunum
þannig að þær verða aftur sem nýj-
ar,“ segir m.a. í tilkynningu Heim-
ilis og skóla.
Ljósmynd/Motiv-Jón Svavarsson
Foreldrar Verðlaunahafar ásamt menntamálaráðherra fyrir utan Þjóð-
menningarhúsið þar sem Heimili og skóli afhentu viðurkenningarnar.
Heimili og skóli
afhentu foreldra-
verðlaun í 25. sinn
Aðalverðlaunin fóru til Djúpavogs