Morgunblaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020
Hafnargata 29, í miðbæ Keflavíkur
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Nýjar fullbúnar íbúðir í vönduðu fjölbýli.
Sjávarútsýni í meirihluta íbúða
Stæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum.
Verð frá kr. 44.900.000
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
SÖLUSÝNING sunnudaginn 20. september kl. 13-14
A-riðill Haustmóts Tafl-félags Reykjavíkur er aðöllum líkindum sá bestskipaði sem um getur í
sögu þessa merka móts. Samsetn-
ingin er ekki ósvipuð þeirri sem var
í landsliðsflokki Skákþings Íslands í
Garðabæ á dögunum; af tíu kepp-
endum tefldu fimm á Íslandsþing-
inu, þ. á m. Íslandsmeistarinn Guð-
mundur Kjartansson. Hinir hefðu
allir sómt sér vel í því móti.
Ein skýringin á góðri þátttöku
okkar bestu manna á haustmótinu
er vitaskuld sú að Covid-faraldurinn
hefur lokað fyrir þátttöku á alþjóða-
vettvangi. Töfluröðin gaf þessa
niðurstöðu: 1. Sigurbjörn Björns-
son. 2. Halldór Grétar Einarsson. 3.
Bragi Þorfinnsson. 4. Guðmundur
Kjartansson. 5. Helgi Áss Grétars-
son. 6. Sigurður Daði Sigfússon. 7.
Davíð Kjartansson. 8. Vignir Vatnar
Stefánsson. 9. Símon Þórhallsson.
10. Hjörvar Steinn Grétarsson.
Þriðja umferð mótsins fór fram í
gærkvöldi en Hjörvar Steinn er
einn efstur eftir að hafa unnið tvær
fyrstu skákir sínar. Guðmundur
vann Vigni Vatnar í 2. umferð en
skákinni við Davíð Kjartansson úr
fyrstu umferð var frestað. Bragi
Þorfinnsson var með 1½ vinning.
B-flokkurinn er einnig vel skip-
aður og þar hefur Lenka Ptacni-
kova tekið forystu með tveimur
sigrum.
Fyrsta opinbera viðureign
Kasparovs og Magnúsar Carl-
sens síðan í Reykjavík 2004
Af svipnum að dæma var ljóst að
Garrí Kasparov taldi sig eiga alls
kostar við hinn 13 ára gamla Magn-
ús Carlsen fyrir 16 árum þegar þeir
mættust í Reykjavík rapid á NASA
í Reykjavík í einhverri frægustu
skák 21. aldar. Þetta var rifjað upp
um daginn er stóra skákhátíðin í
Saint Louis, sem öll fer fram á net-
inu, hófst með keppni, „Fischer ran-
dom-móti“ eða því sem kallað var
„Chess9LX“. Þeir tefldu í 2. umferð
og nú var fjarlægðin á milli þeirra
jafnvel enn meiri en var í Reykjavík
forðum því að Kasparov sat í New
York en Magnús í Bærum í Noregi.
Kasparov slapp með jafntefli í
hróksendatafli peði undir og virtist í
góðum málum eftir sigur í 1. um-
ferð. En hann slakaði á og þegar
upp var staðið deildu Magnús og
Nakamura sigrinum, hlutu báðir
sex vinninga af níu mögulegum en
Kasparov hlaut 3½ vinning og varð
einn í 8. sæti.
Næsti liður á dagskrá var svo
skákmót með styttri umhugsunar-
tíma, fyrri hlutinn atskák með tíma-
mörkunum 25:5 og seinni hlutinn
hraðskák, tímamörk 5:3. Keppendur
10 talsins og atskákin hefur meira
vægi, fyrir sigur þar eru gefin tvö
stig en eitt fyrir sigur í hraðskák-
inni.
Norðmaðurinn tapaði fyrir
Nepomniachtchi snemma móts þeg-
ar sambandið rofnaði í jafnteflis-
legri stöðu en fastlega má búast við
því Nepo skili vinningnum með
„sjálfsmarki“ í seinni hluta mótsins.
Þrátt fyrir þetta var staða hans
ekki slæm þegar fyrri helmingnum
lauk á fimmtudagskvöldið. Þá var
Wesley So efstur með 13 stig af 18
mögulegum, Magnús kom næstur
með 12 stig og Nepomniachtchi og
Grischuk í 3.-4. sæti með 10 stig.
Eftirfarandi staða kom upp í
fimmtu umferð. Síðasti leikur svarts
var býsna útsmoginn kóngsleikur,
Kh8-h7, og Kúbumaðurinn svaraði
með Dd3-e4:
Skákhátíðin í St. Louis 2020:
Lenier Dominguez – Magnús
Carlsen
37. … Hxb2+! 38. Kxb3 d3+ 39.
Kc1
Eða 39. Kb1 Db3+ 40. Kc1
Bg5+! 41. Hed2 Dc2 mát!
39. … Dc5+ 40. Kd2
Eða 40. Kb1 Db5+ 41. Db4 dxe2!
o.s.frv.
40. … Dc2+ 41. Ke1 Bh4+ – og
Dominguez gafst upp.
Vel skipað
Haustmót TR
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/SÍ
Teflt í Viðeyjarstofu Gunnar Erik Guðmundsson (t.v.) sigraði á Meistara-
móti Skákskóla Íslands sem haldið var í Viðey dagana 5. og 6. september sl.
Hér teflir hann við Adam Omarsson í næstsíðustu umferð.
Þar sem starfsfólk
bandaríska sendiráðs-
ins minntist þeirra með
þögn sem týndu lífi í
árásunum 11. septem-
ber 2001 stóðum við
ekki ein. Með okkur í
flugskýli 831 á Kefla-
víkurflugvelli voru
hugprúðir starfsmenn
Landhelgisgæslunnar.
Við söfnuðumst saman
sem ein heild til að heiðra fórnar-
lömb dagsins og til að tryggja að
fórn þeirra muni aldrei gleymast.
Sem upphaflegir undirritunar-
aðilar Atlantshafsbandalagsins hafa
Bandaríkin og Ísland verið viðbúin
að koma hvort öðru til varnar í yfir
70 ár. Í kjölfar árásanna 11. sept-
ember sýndi Ísland tryggan stuðn-
ing við bandalagið. Landhelgisgæsl-
an fór til Afganistans til að styðja
Alþjóðalið Atlantshafsbandalagsins
og baráttuna þar. Sprengjusérfræð-
ingar Landhelgisgæslunnar fóru
einnig til Íraks sem hluti af fjöl-
þjóðasveitinni. Skuldbinding Land-
helgisgæslunnar við að bjarga
mannslífum – bæði heima og erlend-
is – er vitnisburður um gildi og hug-
rekki íslensku þjóðar-
innar sem og stöðu
hennar sem leiðtogi og
sterkur bandamaður í
Atlantshafsbandalag-
inu og alþjóðasamfé-
laginu.
Ég vil nota þetta
tækifæri til að þakka
hugrökku mönnunum
og konunum í Land-
helgisgæslunni sem
hafa staðið vaktina í
nærri 100 ár. Lífið sem
við lifum og frelsið sem við njótum
heima og erlendis er ekki ókeypis.
Gjaldið fyrir þetta frelsi greiðir
Landhelgisgæslan á hverjum degi.
Takk fyrir, Landhelgisgæslan!
Til vina okkar í
Landhelgisgæslunni
Eftir Jeffrey Ross
Gunter
»Ég vil nota þetta
tækifæri til að þakka
hugrökku mönnunum
og konunum í Land-
helgisgæslunni sem
hafa staðið vaktina í
nærri 100 ár.
Jeffrey Ross Gunter
Höfundur er sendiherra
Bandaríkjanna á Íslandi.
LjósmyndKristinn Gilsdorf
Virðing Starfsfólk bandaríska sendiráðsins og starfsmenn Landhelgis-
gæslunnar minntust þeirra er týndu lífi í árásunum 11. september 2001.
Gissur fæddist á Eyrarbakka
16.9. 1920 en ólst upp í Reykja-
vík. Foreldrar hans voru Ingi-
björg Gissurardóttir, f. 30.8.
1888, d. 20.11. 1977, og Símon
Símonarson, f. 9.4. 1890 , d. 24.8.
1960. Eiginkona Gissurar var
Bryndís Guðmundsdóttir, f.
1926, d. 2014, og áttu þau fjögur
börn. Gissur lauk meistaraprófi
frá Iðnskólanum í Reykjavík
1942. Ári síðar stofnaði hann
eigið trésmíðaverkstæði við
Miklatorg og síðan Glugga-
smiðjuna 1960 og rak hana í 35
ár.
Gissur var virkur í félags-
málum. Á árunum 1962-1989
vann hann ýmis trúnaðarstörf
fyrir Landssamband iðnaðar-
manna s.s. í framkvæmdastjórn,
skipulagsnefnd, fræðslunefnd,
stjórn Iðngarða og í stjórn Nor-
ræna hússins. Gissur var einn af
stofnendum Meistarafélags
húsasmíða og sat þar í stjórn
1962-1972. Gissur var formaður
Iðnaðarmannafélagsins í
Reykjavík 1967-1996 og gerður
heiðursfélagi 1996. Árið 1986
varð mikill bruni í baðstofu fé-
lagsins við Vonarstræti og Giss-
ur stóð fyrir að láta endurbygg-
ingu stofunnar. Hann gegndi
trúnaðarstörfum fyrir Alþýðu-
flokkinn, m.a. í byggingarnefnd
Reykjavíkurborgar. Gissur var
sæmdur riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu 1988.
Gissur lést 21.6. 2008.
Merkir Íslendingar
Gissur
Símonarson
Atvinna