Morgunblaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020
Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is
Bárður
Sölustjóri
896 5221
Elín Urður
Lögg. fast.
690 2602
Elín Rósa
Lögg. fast.
773 7126
Lilja
Viðskiptafr. /
Lögg. fast.
820 6511
Kristján
Viðskiptafr. /
Lögg. fast.
691 4252
Halla
Viðskiptafr. /
Lögg. fast.
659 4044
Ólafur
Sölu- og
markaðsstjóri
690 0811
Ellert
Lögg. fast.
661 1121
Sigþór
Lögg. fast.
899 9787
Hafrún
Lögg. fast.
848 1489
Telma Sif
Lögfræðingur/
aðstoðarm. fast.
773 7223
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er frægt hús og ástsælt,
sem þýðir að allir hafa skoðun á
því,“ segir Hálfdan Lárus Ped-
ersen, innanhússhönnuður sem
ásamt Þórði Orra Péturssyni lýs-
ingahönnuði hefur hannað og haft
umsjón með þeim endurbótum
framhúss Þjóðleikhússins sem nú
er verið að leggja lokahönd á.
„Þegar Magnús Geir [Þórðarson]
þjóðleikhússtjóri hafði samband við
okkur hafði hann mjög skýrar hug-
myndir um hvað hér þyrfti að gera
til að bæta aðstöðuna. Við vorum
sammála því þegar við löbbuðum
með honum um húsið og skoðuðum.
Nálgun okkar í útfærslu þeirra
hugmynda er að vera með sem
minnst inngrip í arkitektúr Guðjóns
Samúelssonar og fremur að bæta
við hvar sem þörf var á sem og að
fjarlægja valdar síðari tíma við-
bætur. Auðvitað þarf að gera
ákveðnar breytingar til að húsið
geti sem best þjónað hlutverki
sínu,“ segir Hálfdan.
„Mesta hólið í okkar huga er ef
leikhúsgestir sem hingað koma
spyrja sig hvort þetta hafi ekki allt-
af verið svona,“ segir Þórður Orri.
Þeir félagar gengu í liðinni viku
með blaðamanni um húsið og
ræddu þær breytingar sem gerðar
hafa verið.
„Eins og sjá má hafa veitingasöl-
urnar í báðum göngunum, sín hvor-
um megin við Stóra sviðið, verið
fjarlægðar og búin til ný veitinga-
sala þar sem fatahengið var áður.
Fatahengið var fært fram í anddyri
þar sem miðasalan var og miðasal-
an fer á sinn gamla stað sem Guð-
jón ætlaði henni,“ segir Hálfdan og
bendir á að í stað gömlu veitinga-
salanna sé búið að hanna sófa eftir
veggjum endilangt sem nýtast
leikhúsgestum fyrir sýningar og í
hléi. „Allt sem við höfum gert hér,
í samtali við Minjastofnun Íslands,
er afturkræft,“ segir Þórður Orri.
Bætum við þar sem vantaði
Af öðrum breytingum má sem
dæmi nefna að sett verða upp ný
gluggatjöld í Kristalssal og víðar,
ljósakrónur í Kristalssal hafa verið
hreinsaðar og skipt um búnað,
settur hefur verið upp fjöldi spegla
á báðum hæðum, lýsing á listaverk-
um í tröppum verður bætt, í and-
dyrinu verður komið fyrir hand-
riðum í tröppunum til að bæta
aðgengið, settir upp bekkir og
bókahillur í tengslum við nýja leik-
húsbókabúð.
Búið er að koma upp átta ljósa-
krónum sem keyptar voru að utan
og prýddu áður leikhús í Hollandi.
„Þetta er sænsk hönnun,“ segir
Hálfdan og bendir á að ljósakrón-
urnar séu álíka gamlar og Þjóðleik-
húsið sjálft. „Við fengum einnig
nokkra vegglampa í sama stíl frá
sama leikhúsi sem rötuðu upp á
Kristalssal,“ segir Þórður Orri og
sýnir blaðamanni á snjallsíma sín-
um hversu auðveldlega breyta má
lýsingunni.
„Búið er að skipta um allan bún-
aðinn í ljósunum þannig að ljósa-
perunum er öllum stýrt gegnum
Bluetooth, sem lágmarkaði vinnu
við raflagnir í húsinu, sem er auð-
vitað kostur í ljósi þess að um frið-
að hús er að ræða, auk þess sem
það sparar bæði vinnu og kostnað,“
segir Þórður Orri og bendir á að í
öllum endurbótunum sé reynt eftir
fremsta megni að raska sem
minnstu og bora til dæmis ekki í
veggi eða upprunalegar flísar ef
hjá því verður komist heldur finna
aðrar afturkræfar lausnir.
„Á sama hátt erum við bundnir
af gólfteppinu, veggjalitnum og
fleira. Við fjarlægðum ekkert sem
var upprunalegt, en bættum við
þar sem vantaði,“ segir Hálfdan og
bendir sem dæmi á panelinn sem
settur hefur verið upp aftan við
nýju sófana. „Þar er um að ræða
nýjan panel, en fyrirtækið sem
útbjó þetta smíðaði nýja tönn eftir
upprunalegu tönninni til að fræsa
viðinn svo að panellinn sé nákvæm-
lega sá sami og Guðjón teiknaði
fyrir aðra staði hússins,“ segir
Hálfdan.
Glóandi gersemi
„Í vinnuferlinu öllu hefur verið
áberandi hversu mikla virðingu all-
ir iðnaðarmenn sem hér starfa
bera fyrir húsinu og leggja mikla
alúð í alla vinnu sína,“ segir Þórður
Orri. „Með sama hætti höfum við
fundið fyrir mikilli velvild hjá fyr-
irtækjum þegar sérpanta hefur
þurft efni og afgreiðslur iðulega
fengið flýtimeðferð, enda þykir öll-
um vænt um Þjóðleikhúsið,“ segir
Hálfdan.
„Punkturinn yfir i-ið í endurbót-
unum verður stórbætt lýsing á
Þjóðleikhúsinu að utanverðu sem
leyfir þessu glæsilega húsi að njóta
sín sem sú þjóðargersemi sem það
er,“ segir Þórður Orri og bendir á
að ný handrið með lýsingu muni
einnig bæta aðgengi leikhúsgesta
að húsinu. „Ásýnd Þjóðleikhússins
hefur í raun aldrei notið sín al-
mennilega á kvöldin, eins fallegt og
húsið nú er. Með nýju lýsingunni
fær arkitektúr Guðjóns enn betur
notið sín og verður glóandi ger-
semi,“ segir Hálfdan. „Markmið
lýsingarinnar er að undirstrika
mikilfengleika hússins,“ segir Þórð-
ur Orri.
Samkvæmt upplýsingum frá
þjóðleikhússtjóra er heildarkostn-
aður framkvæmdanna á framhúsi
Þjóðleikhússins og endurhönnun
lýsingarinnar um 155 milljónir
króna. Segir hann leikhúsið hafa
fengið 70 milljóna króna stofn-
framlag frá menntamálaráðuneyt-
inu í þetta tiltekna verkefni, en
annað sé fjármagnað af hefð-
bundnu viðhalds- og fjárfestinga-
framlagi.
Í samtali við Þórð Orra segir
hann að í framkvæmdaferlinu hafi
þurft að bregðast við ýmsu og gera
við ónýtar lagnir og bæta vatns-
skemmdir, sem enginn hafi séð fyr-
ir. „Iðnaðarmennirnir sem hér
starfa hafa verið ótrúlega flinkir
við að hugsa í lausnum og finna
leiðir og nú er allt að smella,“ segir
Þórður Orri.
Allt gert af virðingu við Guðjón
„Mesta hólið í okkar huga er ef leikhúsgestir spyrja sig hvort þetta hafi ekki alltaf verið svona“
Ný utanhússlýsing breytir ásýnd Þjóðleikhússins Endurbæturnar kosta um 155 milljónir króna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Forsalur Þórður Orri Pétursson og Hálfdan Lárus Pedersen í nýjum sófum sem komið hefur verið upp í forsal Þjóð-
leikhússins og nýtast munu leikhúsgestum jafnt í hléi og fyrir sýningar, kjósi þeir að panta sér veitingar á staðnum.
Færsla Nýja veitingasalan kemur í stað fatahengisins sem staðsett var und-
ir áhorfendabekkjum Stóra sviðsins. Fatahengið færist fram í anddyrið þar
sem miðasalan var áður og miðasalan snýr aftur á sinn upprunalega stað.
Afturhvarf Miðasalan hefur verið færð aftur á upprunalegan stað. Panellinn fyrir ofan afgreiðslulúguna þjónaði
áður sem afgreiðsluborð gömlu miðasölunnar. Fjöldi iðnaðarmanna var að störfum þegar blaðamaður heimsótti
leikhúsið í vikunni til að kynna sér endurbæturnar. Allt verður tilbúið þegar leikhúsið verður opnað í vikunni.