Morgunblaðið - 19.09.2020, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020
AKUREYRARKIRKJA | Upphaf vetrarstarfs-
ins. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Svavar Al-
freð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju
syngja.
Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11.
Umsjón: Sonja Kro og Sigríður Hulda Arn-
ardóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr.
Þór Hauksson þjónar. Organisti er Krisztina
Kalló Szklenár. Félagar úr kirkjukórnum leiða
almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskólinn á
sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar.
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Maríu Eyjólfsdóttur djákna og
séra Sigurðar Jónssonar. Brúður, bænir, söng-
ur, sögur. Hressing í Ási á eftir.
Ástjarnarkirkja | Guðsþjónusta kl. 17. Tón-
listarstjóri er Davíð Sigurgeirsson, prestar eru
Arnór Bjarki Blomsterberg og Kjartan Jónsson
og meðhjálpari er Inga Rut Hlöðversdóttir.
Fermingarbörn og aðstandendur þeirra eru
boðin sérstaklega velkomin. Föndurhorn fyrir
börnin. Heit súpa í boði kirkjunnar á eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Guðsþjónusta kl. 11.
Upphaf fermingarstarfs. Fermingabörn vorsins
2021 og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðin
velkomin. Sr. Hans Guðberg, Álftaneskórinn
syngur undir stjórn Ástvaldar organista.
Á sama tíma er sunnudagaskólinn á sínum
stað í Brekkuskógum 1. Umsjón hafa Sigrún
Ósk, Pétur og Þórarinn.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Organisti
er Örn Magnússon. Félagar úr Kór Breiðholts-
kirkju syngja. Sunnudagaskóli á sama tíma í
umsjá Steinunnar Þorbergsdóttur djákna og
Steinunnar Leifsdóttur. Guðsþjónusta Al-
þjóðlega safnaðarins í Breiðholtskirkju ICB kl.
14. Prestur er Toshiki Toma. Sunnudagaskóli á
sama tíma í umsjá Steinunnar Þorbergsdóttur
djákna.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl. 11 undir
leiðsögn Daníels Ágústs, Sóleyjar Öddu, Jón-
asar Þóris og prestanna. Nýtt, myndrænt og
fallegt sunnudagaskólaefni samið af Daníel
Ágústi og samstarfsfólki. Foreldrar hvattir til
þátttöku. Hressing eftir messu.
Guðsþjónusta kl. 13. Athugið breyttan messu-
tíma. Verður í vetur kl. 13. Jónas Þórir og
Kammerkór Bústaðakirkju leiða tónlist.
Messuþjónar og sr. Eva Björk þjóna.
DIGRANESKIRKJA | Sunnudaginn 20. sept-
ember verður guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bolli
Pétur Bollason þjónar og Gunnar Böðvarson
flytur ljúfa tóna. Kaffi og meðlæti í kapellu eftir
stundina.
DÓMKIRKJA KRISTS konungs, Landa-
koti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl.
10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl.
8. Lau. kl. 18 er vigilmessa og messa á pólsku
kl. 19.
DÓMKIRKJAN | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur
er Sveinn Valgeirsson, Kári Þormar og Dómkór-
inn. Æðruleysismessa kl. 20. Séra Díana Ósk,
séra Fritz Már og séra Sveinn, Kristján Hrannar
leikur á flygilinn. Æðruleysismessur eru haldn-
ar í anda tólf sporanna. Bæn, hugleiðing og
tónlist ásamt því að félagi deili reynslu sinni,
styrk og von.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson þjónar og prédikar. Kór kirkjunnar
syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur
organista. Reynir Þormar leikur á saxófón.
Kaffisopi eftir stundina. Meðhjálpari er Helga
Björg Gunnarsdóttir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa
sunnudag kl. 14. Sr. Hjörtur Magni Jóhanns-
son þjónar fyrir altari. Hljómsveitin Mantra og
Sönghópurinn við Tjörnina leiða sönginn
ásamt Gunnari Gunnarssyni.
GLERÁRKIRKJA | Sunnudagur. Útvarps-
messa í tilefni af degi umhverfisins kl. 11.
Séra Sindri Geir leiðir stundina, organisti er
Valmar Väljaots, kór Glerárkirku syngur. Tví-
söngur: Petra Björk Pálsdóttir og Margrét Árna-
dóttir.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa sunnudag
kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og sr. Sig-
urður Grétar Helgason þjóna, organisti er Há-
kon Leifsson og kór Grafarvogskirkju leiðir
söng. Fermingarbörn og foreldrar/forráða-
menn fermingarbarna úr Folda- og Rimaskóla
eru sérstaklega boðin velkomin í messu.
Selmessa verður í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13.
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar,
organisti er Hilmar Örn Agnarsson og Vox Po-
puli leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Kvennakórinn Vox Feminae syngur undir stjórn
Hrafnhildar Árnadóttur. Organisti er Ásta Har-
aldsdóttir. Sr. María G. Ágústsdóttir þjónar
ásamt messuþjónum. Þriðjudagur: Kyrrð-
arstund kl. 12. Fimmtudagur: Núvitund á
kristnum grunni kl. 18.15.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Haust-
guðsþjónusta, Eldriborgararáð og barnastarf.
Prestur er Karl V. Matthíasson sem prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt Þóreyju Dögg Jóns-
dóttur djákna. Organisti er Hrönn Helgadóttir
og kór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í
umsjá Péturs Ragnhildarsonar í Æskulýðs-
herberginu. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmunds-
dóttir.
Boðið verður upp á kjötsúpu, kaffi og kökur.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sunnudaga-
skóli og fermingarmessa kl. 11 í Vonarhöfn,
sal á efri hæð safnaðarheimilisins, umsjón
hefur Bylgja Dís. Vegna sóttvarnareglna er
fermingarmessan aðeins fyrir fjölskyldur ferm-
ingarbarnanna.
HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er
Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarf í umsjá
Rósu Árnadóttur. Bænastund mánud. kl. 12.
Fyrirlestur þriðjud. kl. 12. Lifandi vatn: Sr. Sig-
urður Árni Þórðarson. Hádegisguðsþjónusta
miðvikud. kl. 12. Kyrrðarstund fimmtud. kl.
12. Bænastund föstud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Jón
Ásgeir Sigurvinsson héraðsprestur prédikar og
þjónar fyrir altari. Félagar úr Kordíu, kór Há-
teigskirkju, syngja. Organisti er Guðný Ein-
arsdóttir.
HVERAGERÐISKIRKJA | Kvöldmessa kl.
20. Unnur Birna og Dagný Halla Bassadætur
sjá um tónlistina. Prestur er Ninna Sif Svav-
arsdóttir.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam-
koma kl. 13 með lofgjörð, barnastarfi og fyr-
irbænum. Ólafur H. Knútsson prédikar. Kaffi
að samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli með hefðbundnu sniði kl. 11. Fé-
lagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn
Arnórs Vilbergssonar organista. Jóhanna
María, Ingi Þór og Helga leiða sunnudaga-
skólastarfið sem byrjar í kirkjuskipinu og held-
ur síðan í Kirkjulund. Sr. Erla Guðmundsdóttir
þjónar.
KÓPAVOGSKIRKJA | Fermingarguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur
djákna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn
Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnu-
dagaskólinn verður á sama tíma í safn-
aðarheimilinu Borgum.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa 20.
september kl. 11. Aldís Rut Gísladóttir prestur
þjónar, Graduale Futuri syngur undir stjórn
Sunnu Karenar Einarsdóttur.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari og prédik-
ar. Kristján Hrannar Pálsson organisti og Söng-
hópurinn Norðurljós leiða söng.
Íhugunarguðsþjónusta kl. 20. Sr. Hjalti Jón
Sverrisson og sr. Henning Emil Magnússon
leiða stundina.
21.9. Kyrrðarkvöld kl. 20. Kirkjan opnuð kl.
19.30. Kristin íhugun.
23.9. Foreldrasamvera kl. 10-12.
24.9. Opið hús í Áskirkju kl. 12. Helgistund,
hádegisverður.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju
leiðir söng undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr.
Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 11 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60.
Barnastarf. Túlkað á ensku. Samkoman er í
beinni útsendingu á Facebook.
Sandgerðiskirkja | Sunnudagaskóli kl. 11.
Söngur, biblíusaga, föndur o.fl. Umsjón hefur
Bryndís Schram Reed.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Óli og Anna Bergljót sjá um stundina. Söngur,
saga, líf og fjör. Guðsþjónusta kl. 13. Sr. Ólaf-
ur Jóhann Borgþórsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða safn-
aðarsönginn.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Uppskeruguðsþjón-
usta. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik
Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almenn-
an safnaðarsöng. Kaffiveitingar eftir athöfn í
safnaðarheimilinu. Hinn árlegi grænmet-
ismarkaður verður í safnaðarheimilinu eftir at-
höfn. Allur ágóði rennur til Hjálparstarfs kirkj-
unnar - innanlandsaðstoðar.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Létt kvöldmessa kl. 20.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn Keith Reed.
Mikil tónlist.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðs-
þjónusta 20. september kl. 11. Kór Víð-
istaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdís-
ar organista og sr. Sighvatur Karlsson þjónar
með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Heitt á
könnunni að guðsþjónustu lokinni.
»ORÐ DAGSINS: Tíu
líkþráir.
(Lúk. 17)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisso
Álftaneskirkja á Mýrum.
Þegar gluggað er í
svargrein Sigurbjargar
hjá Reykjavíkurborg
við áliti seðla-
bankastjóra var efn-
islega verið að fjalla um
Sundabraut. Hver
skyldi hafa sett hug-
myndina af stað fyrir
margt löngu? Það var
gert meðal annars sem
loforð til Kjalnesinga
um stofnbraut til þess að þeir og aðrir
sem þar færu um kæmust beint til
borgarinnar. Þetta var aðeins kosn-
ingaloforð, allir vita að kosningaloforð
eru sett fram til að plata íbúa og aðra
sem eru kjörgengir til að trúa fram-
bjóðendum með það að markmiði að
fávís almenningur treysti þeim. Hann
fékk það sem hann kaus: svikin lof-
orð.
Sigurbjörg er mótfallin Sunda-
braut, grein hennar er blaður og rök-
leysa. Hún vísar í borgarlínu; liðvagn-
astrætó, sem er draumsýn, kostar
offjár, sennilega 250 milljarða+ og
mun engu skila. Í dag eins og und-
anfarin ár er umferðin á álagstímum
mikil, bílar stopp í umferðarörtröð,
vélin í gangi og mengar þá umhverfið.
Bílar á gönguhraða t.d. á Miklubraut;
umferð úr austurborginni, Kjalarnesi,
Akranesi og Mosfellsbæ. Þar byrjar
stíflan við Bauhaus. Kringlumýrar-
braut úr Hafnarfirði, Garðabæ og
Kópavogi; stíflan byrjar við Arnar-
neshæð. Sæbraut troðin af bílum úr
austri og af Suðurlandi.
Sundabraut myndi létta mikið á
þessum stíflum og mengun snarm-
innka. Það að senda alla íbúa höfuð-
borgarsvæðisins í miðborg Reykja-
víkur er eins og að pissa í skóinn sinn.
Ef reiknað er með að hver meðalbíll
eyði 8-10 l á 100 km í svona örtröð og
8-10 þúsund bílar séu á álagstímum
frá 7.30 til 9.00 og aftur frá 16.00-
17.30 getur hver sem er ímyndað sér
allt það mengandi efni sem út í loftið
fer; skaðlegt heilsu fólks og býður
upp á minni lífsgæði. Undirritaður,
sem hef starfað alllengi
sem atvinnubílstjóri, er í
bílaröð frá Bauhaus nið-
ur í miðborg sem tekur
35-40 mínútur þegar vel
gengur. Hvorki borg-
arlína (lengri strætó) né
núverandi strætis-
vagnar, sem oftast eru
illa nýttir, leysa þennan
vanda.
Íslendingar eru bíla-
þjóð, því breytir ekki
núverandi borg-
arstjórn eða aðrir
nema fjölga og breikka stofn-
brautir til borgarinnar. Það tekur
mörg ár eða áratugi að breyta
hugsunarhætti íbúa, tvær til þrjár
kynslóðir. Við þurfum að gera um-
bætur núna, sem eru: Sundabraut
og breikkun Sæbrautar, Reykja-
nesbrautar, Hafnarfjarðarvegar,
Kringlumýrarbrautar, Miklubraut-
ar, Vesturlandsvegar og Suður-
landsvegar með tilheyrandi mis-
lægum gatnamótum, það minnkar
mengun og eykur lífsgæði íbúa.
Þessu þurfa stjórnvöld að gera
sér grein fyrir. Strax. Það verða
sennilega stokka-loforð, sem eiga
að taka gildi 2060. Ég hef fylgst
með stjórnmálamönnum, alþingis
og sveitarstjórna, standa við útidyr
og messa loforðin; allt lygi og svik.
Halda (kannski með réttu) að Ís-
lendingar séu svo heimskir að trúa
þeim. Þjóðin fékk það sem hún
kaus: heimska stjórnendur.
Eftir Guðjón
Jónsson
Guðjón Jónsson
» Stjórnlaus heima-
tilbúin mengun
vegna rangra ákvarðana
stjórnmálamanna: Nú
er lag að hefjast handa
með raunhæfum að-
gerðum til að leysa
þetta strax.
Höfundur er fyrrverandi skipstjóri.
Seaways@simnet.is
Umferðarteppur á
höfuðborgarsvæðinu
Hinn 4.8. birtist í
Morgunblaðinu þörf
áminning eftir jarð-
fræðinginn okkar
merka Hjörleif Gutt-
ormsson þar sem hann
varar við hættu af eld-
gosum og tengdri vá í
náttúru okkar.
Á okkar tímum, þar
sem við höldum okkur
vita allt með okkar
mælitækjum og miklu menntun á því
sviði, ber okkur að skoða sögu okkar
og hvað hefur á daga þjóðarinnar
drifið í aldanna rás.
Sögu móðuharðindanna eða Skaft-
áreldanna þekkjum við öll sem eitt-
hvað viljum kynnast sögu þjóð-
arinnar og þeim hörmungum sem
þar óðu yfir land okkar og settu heil
byggðarlög í rúst. Þar fór eldklerk-
urinn séra Jón Steingrímsson í far-
arbroddi hins hrjáða fólks þar sem
eldurinn ógnaði og notaði hyggjuvit-
ið og reyndi að hughreysta og hjálpa
fólki, því eðlilega hafði þetta fólk
ekki þá tækni eða þekkingu sem við í
nútímanum höfum. Þar óttaðist fólk-
ið það mjög að fjöllin væru að
brenna innan frá og myndu brenna
allt fram og undir byggðina.
Hugsið ykkur, skelfileg tilhugsun
að hafa í raun þá mynd í huga sínum
að fjöllin væru að brenna innan frá,
hvernig liði okkur á
okkar tímum ef við
hefðum ekki meiri
þekkingu en þá að við
álitum í alvöru við eld-
gos að kviknað væri í
fjöllunum og þau
myndu brenna fram og
undir húsin okkar?
Jón fór þrátt fyrir
þekkingarleysi þess
tíma og gerði tilraun,
hann fór og tók, eins og
segir í dagbókum hans
sjálfs, einn nátt-
úrulegan stein og setti út í glóandi
hraunstrauminn og sá þar að „einn
náttúrulegur steinn gat ekki brunn-
ið“. Hann gat, þrátt fyrir þekking-
arleysi þess tíma, sannað og þar með
róað heimamenn með því að fjöllin
væru ekki að brenna.
Við, með alla okkar tækni og
þekkingu, skulum því ekki vanmeta
varnaðarorð þeirra sem benda okk-
ur á það sem kann að vera yfir landi
okkar.
Eldgosahætta
og jarðskjálftar
Eftir Hjálmar
Magnússon
Hjálmar Magnússon
» Við skulum ekki van-
meta varnaðarorð
þeirra sem benda okkur
á það sem kann að vera
yfir landi okkar.
Höfundur er fv. framkvæmdastjóri.