Morgunblaðið - 19.09.2020, Page 18

Morgunblaðið - 19.09.2020, Page 18
18 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Kórónuveirusmitum hefur fjölgað hratt í Dan- mörku og sóttvarnaaðgerðir hafa í kjölfarið verið hertar. Tilkynnt var í gær að 454 hefðu greinst með veiruna og hafa aldrei verið fleiri á einum degi. Þá voru 58 á sjúkrahúsi. Arnaldur Skorri Jónsson er búsettur í Kaupmannahöfn og stundar nám í Asíufræð- um við Viðskiptaháskólann, CBS, og Kaup- mannahafnarháskóla. Hann segir að kórónu- veirufaraldurinn hafi talsverð áhrif á bæði námið og félagslífið. Bæði sé mikið um fjar- kennslustundir og minna um persónuleg tengsl en annars væri. „Svo mega ekki vera neinar samkomur á vegum skólans eða honum tengdar. Það er opið á börum og fyrir mánuði var maður duglegur að kíkja út en ekki lengur. Ég hef ekki djammað síðan í mars,“ segir hann. Fer í skimun í dag „Danir eru frekar slakir yfir ástandinu yfir- höfuð en fólk er farið að passa sig meira. Það virða allir tveggja metra regluna. Ég er sjálfur mjög mikið bara í einum hópi og ef maður hitt- ir aðra reynir maður að halda fjarlægð,“ segir Arnaldur sem á einmitt bókaðan tíma í skimun í dag. Hann segir það mjög hvetjandi að þurfa ekki að greiða fyrir skimun. Aðspurður segir Arnaldur að fjölgun smita og hertar reglur hafi hreyft verulega við fólki að undanförnu. „Þetta er í fullum gangi og við vitum ekki hvað gerist. Sumir í kringum mann eru hræddir um framhaldið og óttast það að vera sendir heim úr skólanum. Ég er alla vega viss um að Danir vilja gera allt annað en að þurfa að loka búðunum. Það gengur ekki fyrir hagkerfið.“ Lítið að gera í ferðamannabúðinni Arnaldur er 23 ára og er á öðru ári í námi sínu. Hann býr með kærustu sinni, hinni tví- tugu Katrínu Ólafsdóttur sem starfar í ferða- mannabúð. Af skiljanlegum ástæðum hefur verið lítið að gera hjá henni að undanförnu. „Þannig að við erum svolítið að þrauka núna,“ segir Arnaldur. Fyrirhugað er að hann flytji til Kína í janúar vegna námsins og segir hann ómögulegt að sjá fyrir hvort þau áform muni halda. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Dan- merkur, kynnti í gær hertar sóttvarnaaðgerðir í landinu. Þær reglur sem hafa undanfarið gilt í Kaupmannahöfn og nágrenni gilda nú um allt land, til að mynda 50 manna samkomubann og krafa um að allir beri grímu á börum, veitinga- stöðum og skemmtistöðum þar til fólk hefur fengið sæti. Forsætisráðherrann hvatti fólk til að vinna heiman frá ef það á þess kost og forð- ast almenningssamgöngur á annatímum. Sagði Frederiksen að kórónuveiran greindist nú hjá breiðari aldurshópum en áður og um alla Dan- mörku. Sektað ef fólk notar ekki grímu Arnaldur segir að almennt bregðist fólk vel við tilmælum yfirvalda. Í húsinu sem hann býr í fari til að mynda ekki fleiri en þrír samtímis inn í lyftu. Fólk notar ekki grímu á almanna- færi en það er skylt í almenningssamgöngum og á veitingastöðum eins og áður sagði. „Flest- ir fylgja þessu enda geta þeir annars fengið risasekt. En það er alltaf einhver einn hálfviti sem gerir það ekki.“ Þungur vetur Arnaldur Jónsson og Katrín Ólafsdóttir búa í Kaupmannahöfn. Fólk er farið að passa sig meira  Breyttar aðstæður hjá námsmanni í Köben Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það sem fólk furðar sig mest á er að mega ekki hitta fleiri en sex í einu úr fjölskyldunni eða vini en það getur samt farið á pöbbinn,“ segir Arnar Pétur Stefánsson sem búsettur er í Liverpool. Kórónuveirusmitum hefur fjölgað hratt á Englandi að undanförnu og ástandið versnað. Nú mega ekki fleiri en sex koma saman, grímuskylda er í verslunum og afgreiðslutími verslana og kráa hefur verið skertur. Arnar segir að flestir búist við því að farið verði í hertar aðgerðir á ný á næstunni. Hann kveðst þó telja að yfirvöld muni forðast það að loka skólunum aftur. Sem kunnugt er var bresku samfélagi að mestu lokað frá miðjum mars og fram á sumar. Misvísandi skilaboð stjórnvalda „Það eru eiginlega tvær týpur af fólki hérna; þeir sem fylgja öllum reglum og gagnrýna þá sem gera það ekki. Og svo þeir sem gera þver- öfugt,“ segir Arnar um það hvernig fólk taki í sóttvarnaaðgerðir yfirvalda. Hann segir að misvísandi skilaboð frá ríkisstjórninni hafi ruglað fólk og margir viti ekki hvaða reglum þeir eigi að fylgja lengur. „Sem dæmi ákvað ríkisstjórnin að allir ættu að fara út að borða og bauð 50% afslátt. Svo fjölgaði tilfellum og þá var það unga fólkinu að kenna fyrir að vera úti og fylgja ekki reglum,“ segir Arnar. Hann segir aðspurður að enginn virðist framfylgja reglum um grímuskyldu í verslunum eða um sjö manna samkomubann. Vilja vera áfram í Bretlandi Arnar og fjölskylda hans hafa verið búsett í Liverpool í fimm ár. Hann er sjálfstætt starf- andi tónlistarmaður, vinnur til að mynda mikið í leikhúsum en hefur ekki fengið eitt einasta verkefni síðan í mars. Kona hans, Aníka Eyrún Sigurðardóttir, starfar við heimahjúkrun. Arn- ar segir að það hafi að sumu leyti komið sér vel að hann var heima því þá gat hann sinnt heimakennslu fyrir börn þeirra tvö, tíu og sex ára, meðan skólar voru lokaðir. „Planið er að reyna að tóra hérna og vona að þetta gangi yfir. Mikið af minni vinnu hefur verið endurskipulagt fyrir næsta ár. Okkur líð- ur yfirhöfuð vel í Englandi en svo verðum við að sjá hvað gerist um áramótin þegar brexit- brandarinn tekur að fullu gildi.“ Fjölskylda Aníka Eyrún og Arnar Pétur með börn sín tvö, Sigurð Pétur og Heklu Maríu. Búast við að að- gerðir verði hertar  Ung hjón búa með tvö börn sín í Liverpool Hagræðing Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is á haustdögum án þess að það bitni á gæðum Hafðu samband og við gerum fyrir þig þarfagreiningu og tilboð í þjónustu án allra skuldbindinga. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Sökum anna vegna mikillar fjölg- unar kórónuveirusmita í vikunni hefur almannavörnum ekki tekist að ljúka vinnu við litakóða sem taka á upp við Covid-viðvaran- ir. „Aðgerðir síð- ustu þrjá sólar- hringa hafa tafið þetta og við stefnum á að klára í næstu viku,“ segir Víðir Reynisson yfir- lögregluþjónn í samtali við Morgunblaðið. Sem kunnugt er hefur smitum fjölgað hratt eftir því sem liðið hefur á vikuna. „Hugmyndafræðin er orðin skýr og nú erum við bara að velta fyrir okkur hvaða mælikvarða við get- um sett inn svo þetta verði ekki bara huglægt mat,“ segir Víðir en auk þess er verið að leggja loka- hönd á útlit viðvarananna. Venjulegt ástand verður litað grátt en viðvaranir verða í líkingu við það sem fólk þekkir frá veð- urviðvörunum; gular, appelsínu- gular og rauðar viðvaranir, enda er hugmyndafræðin þaðan komin að sögn Víðis. Þannig geta verið mismunandi litaviðvaranir í gangi í hverjum landshluta, ef málum er svo háttað hverju sinni. „Já, ef þetta hefði verið komið í gagnið nú í vikunni hefði höfuðborgarsvæðið verið appelsínugult því öll smit síðustu daga hafa verið þar. Restin af landinu hefði verið grá,“ segir Víðir. Appelsínugul við- vörun í borginni  Litakóðar teknir upp í næstu viku Morgunblaðið/Eggert Veiruvarnir Í næstu viku verða teknar upp litakóðaðar viðvaranir.Víðir Reynisson ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.