Morgunblaðið - 19.09.2020, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 19.09.2020, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Kórónuveiran virðist nú vera í hraðri sókn í Evrópu. Þar eru ríki víða að fara yfir og herða á sóttvarnaaðgerðum sínum, meðal annars á Bretlandseyjum þar sem í gær greindust 4.322 ný tilfelli. Eru það nærri eitt þúsund fleiri en greindust síðastliðinn fimmtudag. Ekki hafa greinst yfir 4.000 ný smit þar frá 8. maí síðastliðnum. Bresk stjórnvöld hafa nú tilkynnt hertar aðgerðir sem taka eiga gildi næstkomandi þriðjudag, 22. sept- ember. Munu þau gilda í Lancashire, Merseyside og í hluta Midlands og Vestur-Yorkshire. Nýju reglurnar munu hafa áhrif á nærri fimm milljónir manna, sam- kvæmt breska ríkisútvarpinu (BBC). Verður fólki sem ekki deilir heimili þá bannað að hittast fé- lagslega; veitingastöðum og börum gert að loka klukkan 22 á kvöldin og fólk beðið að ferðast ekki með al- menningssamgöngum nema erindið sé brýnt og mæta ekki á íþróttavið- burði. Smitum hefur einnig fjölgað hratt í Danmörku. Þar greindust síðast- liðinn miðvikudag 453 með veiruna, mesti fjöldi frá upphafi faraldurs á einum degi. Um allt land verður nú veitinga- og skemmtistöðum gert að loka klukkan 22; fleirum en 50 bann- að að koma saman og grímuskylda á börum, veitinga- og skemmtistöðum og í almenningssamgöngum. Þá hafa þeir einstaklingar sem geta unnið heima fyrir verið hvattir til þess af stjórnvöldum. Spá minni samdrætti en áður Svíar gera nú ráð fyrir 4,4% sam- drætti í vergri landsframleiðslu miðað við árið í fyrra. Fyrri spár gerðu ráð fyrir meiri samdrætti, eða 6,1%. Þar í landi hefur tilfellum nýrra kórónuveirusmita fækkað nokkuð að undanförnu, að sögn sænska ríkissjónvarpsins (SVT). Í Hollandi mega ekki fleiri en sex einstaklingar sækja fólk heim og nauðsynlegt er að tryggja minnst 1,5 metra á milli manna. Þá er grímuskylda að ryðja sér til rúms mjög víða innan ríkja Evrópu. Á það í flestum tilfellum við þegar ferðast er með almenningssamgöngum eða þegar sótt er þjónusta á veitinga- staði eða í verslunum. Grímuskylda er einnig að verða áberandi innan skólanna og jafnvel í skrifstofu- byggingum þegar ekki er hægt að tryggja gott rými á milli fólks. Herða á veiruvörnum  Kórónuveiran heldur áfram að setja svip á líf fólks í Evrópu  Mikil og hröð útbreiðsla neyðir ríki til að grípa til hertra aðgerða  Gríman víða áberandi AFP Nýr veruleiki Skólakrökkum og skólastjórnendum í Evrópu er víða gert að bera grímu fyrir vitum á meðan skóla- starf stendur yfir. Þessir krakkar eru nemendur í grunnskóla í Frakklandi en þar eru sóttvarnir nú miklar. Loftvarnir Taívans voru virkjaðar í gær eftir að 18 kínverskum orrustu- þotum var flogið yfir miðlínu Taívan- sundsins. Fréttaveita Reuters grein- ir frá því að heimsókn bandarískrar viðskiptasendinefndar til landsins sé að líkindum ástæða þess að Kínverj- ar minntu á sig með þessum hætti. Varnarmálaráðuneyti Taívans segir kínversku þoturnar hafa verið af fjórum gerðum, þ.e. J-16; J-10, J-11 og H-6, en síðastnefnda flugvél- artegundin er sprengjuflugvél. Auk þess að senda orrustuþotur til móts við kínversku vélarnar var loft- varnakerfi virkjað og fylgdust rad- arturnar, sem stýra loftvarna- skeytum, grannt með þróuninni. Stjórnvöld í Beijing segja flug þotna sinna vera hluta af æfingu hersins. Slíkt sé nauðsynlegur liður í vörnum landsins og fullveldi. Þá greinir Reuters frá því að herj- ir Kína og Taívans forðist vanalega að fara yfir umrædda miðlínu þar sem slíkt er talið vera ógnandi. AFP Taívan Þotur og loftvarnaskeyti voru virkjuð vegna komunnar. Kínverjar fóru yfir miðlínuna Löggiltur heyrnarfræðingur Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Heyrnarþjónusta í alfaraleið Heyrðu umskiptin með háþróuðum ReSound gæðaheyrnartækjum. Margir verðflokkar, SÍ niðurgreiðir heyrnartæki. Heyrnargreining, ráðgjöf og heyrnartæki til reynslu afgreidd samdægurs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.