Morgunblaðið - 19.09.2020, Page 28

Morgunblaðið - 19.09.2020, Page 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020 Maður hrekkurstundum í kútvið lestur„fornald- arsagna Norðurlanda“. Í Hrólfs sögu Gautrekssonar er t.d. eftirfarandi sprettur þar sem lýst er framferði Þornbjargar, dóttur Eiríks Svíakonungs (sjá Fornaldar sögur Norðurlanda í útgáfu Guðna Jónssonar 1954, 2. bindi). Hrólfur Gautreksson konungur Gautlands er hvattur til að biðja um hönd Þornbjargar en hann hefur reyndar heyrt „að hún vilji að enginn mað- ur kvenkenni hana“; hennar hafi beðið nokkrir konungar „og hafi [hún] suma látið drepa, suma hafi hún látið klækja á einhvern hátt, suma blinda, gelda, handhöggva eða fóthöggva, en valið öll orð hæðileg með svívirðu og vilji hún svo af venja að þessara mála sé leitað“ (bls. 70). Ekki að undra þótt Hrólfur konungur hafi óttast að hann myndi „fá af þessari ferð sneypu og ævinlegt athlægi“. Þornbjörg lét taka sig til konungs í hluta Svíaríkis og kalla sig Þór- berg; „skyldi og enginn maður svo djarfur að hana kallaði mey eða konu, en hver er það gerði skyldi þola harða refsing“. Hvernig skyldi nú hafa farið fyrir þessum meykóngi? Þórbergur var ekki látinn komast upp með þetta framferði. Hrólfur Gautakonungur yfirbugaði hann (þ.e. hana) og sendi til föðurhúsa þar sem hann (þ.e. hún) „settist til sauma með móður sinni“ – og varð Þornbjörg á ný. Hrólfur gekk skömmu síðar að eiga hana. Hjónabandið var far- sælt. Einhverra hluta vegna leiðir þessi saga hugann að því sem ég hef leyft mér að kalla „hina nýju íslensku“ en Þórarinn Eld- járn nefnir því lýsandi nafni „málvönun“ („öll velkomin“/ „margt er knátt þótt það sé smátt“/ „það eru flest ánægð með þetta“). – En viti menn! Ég sé nú og heyri merki þess að fólk ætli ekki að láta gabba sig lengra út á þessa braut. Það er sannarlega gleðiefni. Góður félagi benti mér á fyrirbæri sem einnig snertir íslenskt málfar nútímans: Nú táknar það „að fá högg“ ekki heimilisofbeldi, heldur faðmlag (e. hug): „viltu fá högg?“/ „gefðu mér högg“. Annað málfræðitengt atriði læt ég fylgja. Ég fékk það í hendur næstum milliliðalaust frá norðlenska kórmanninum: Það kom eist- neskur kór til að syngja með söngfélögum hans á Akureyri. Þegar hann lýsti uppákomunni eftir á sagði hann: „Fyrst sungu þeir, svo sungum við. Og svo sungum við með eistunum, og þá ætlaði þakið af húsinu.“ Að lokum, lesandi góður, verkefni í orðflokkagreiningu: Greindu orð- in „hver“ í eftirfarandi spurningu í orðflokka og ef um er að ræða for- nöfn þarftu að greina þau í undirflokka: Hver segir að hver sem er megi baða sig í hver sem er í þessum dal? (Svar í lok pistils.) Aukaspurning í lokin: Hvað er athugavert við röksemdafærslu Skagfirðingsins í eftirfarandi romsu?: „Ég hef nú aldrei drukkið bjór og þar að auki fer hann illa í mig.“ Svar við spurningu um orðflokka: Hver (spurnarfornafn) segir að hver (óákveðið fornafn) sem er megi baða sig í hver (nafnorð) sem er í þessum dal? Viltu högg? „Gefðu mér högg“ Tungutak Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com Ljósmynd/Unsplash, Hean Prinslo Það hefur lengi ríkt ákveðin feimni við umræðurum innflytjendur og hælisleitendur hér.Stjórnmálamenn forðast þessi mál eins og heit-an eldinn og almennir borgarar halda sig til hlés. Enginn vill láta kalla sig „rasista“. En stöku sinn- um ofbýður fólki framganga „kerfisins“ og það gerist nú aftur og aftur vegna hælisleitenda, fyrst og fremst þegar börn eru annars vegar. Málefni innflytjenda hafa lengi verið viðkvæm deilu- efni í nálægum löndum. Á Norðurlöndunum hafa Svíar staðið verst að vígi í allmörg undanfarin ár og raunveru- lega misst stjórn á gangi þeirra mála í suðurhluta lands- ins. Fyrir nokkrum árum virtist Angela Merkel, kanslari Þýzkalands, hafa misstigið sig með alvarlegum hætti, þegar hún virtist vilja taka við flóttamönnum með opnum örmum, en hún hefur lifað þá yfirlýsingu af pólitískt séð. Bretar hafa lengi búið við þá sterku hefð að taka vel á móti fólki frá samveldislöndum sínum þannig að innflytj- endur hafa ekki verið jafn mikið deilumál þar og í sum- um öðrum Evrópulöndum. Þótt trúfrelsi ríki í vestrænum lýðræðisríkjum er aug- ljóst að fordómar ríkja í garð múhameðs- trúarmanna. Þegar að þeim kemur virðast hugmyndir um trúfrelsi ekki njóta mikils skilnings. Það er ekki bara vegna trúar- bragðanna, heldur líka vegna hryðjuverka, sem lengi hafa verið fastur þáttur í lífi fólks í Mið-Austurlöndum. Í Bandaríkjunum hafa lengi ríkt miklir fordómar í garð fólks af öðrum litarhætti en hvítum. Eitt sinn stóð greinarhöfundur á götu í borg í Alabama fyrir meira en hálfri öld og ræddi við konu sem hafði alizt þar upp. Hún sagði frá því að á þeim tíma, snemma á 20. öldinni, hefði ekki verið litið á svart fólk sem „fólk“. Hér á Íslandi má sums staðar finna andúð á öðru fólki, ýmist vegna litarháttar eða trúarbragða. Það er þó ekki almenn afstaða. Þess verður fremur vart að fólk hafi áhyggjur af fjölda fólks frá öðrum löndum, sem hefur kosið að setjast hér að. Og að þær áhyggjur snúist fyrst og fremst um fámennið hér og áhrif þess á okkar sam- félag að mikill fjöldi fólks frá öðrum löndum flytji hingað og festi hér rætur. Þær áhyggjur eru út af fyrir sig skiljanlegar. Hvenær er komið að þolmörkum í þeim efnum? Eru þau kannski að nálgast? Það uppnám, sem hér hefur orðið reglulega síðustu ár þegar ákvarðanir hafa verið teknar um að vísa hælisleit- endum úr landi, snýst þó fyrst og fremst um börn. Fólki ofbýður þegar barnafjölskyldum er vísað úr landi, sem hér hafa kannski dvalið í nokkur misseri, börn gengið í skóla hér, eignast vini, lært íslenzku og notið öryggis, kannski í fyrsta sinn á ævinni. Það er kominn tími til að við ræðum þessi málefni opið hér, án ásakana hvert í annars garð um „rasisma“ og eitthvað þaðan af verra, og reynum að finna einhvern grundvöll fyrir víðtæka samstöðu um þessi málefni. Ásókn fólks sem býr sunnar á hnettinum í að flytja sig norður á bóginn á eftir að aukast verulega á næstu árum, m.a. vegna loftslagsbreytinga. Svartsýnustu spár ganga út á að syðsti hluti Evrópu, næst Miðjarðarhafi, geti breytzt í eyðimörk vegna loftslagsbreytinga. Skógar- eldar í Ástralíu og Bandaríkjunum benda til hins sama. Hvað ætlum við að gera hér á norðurslóðum, ef fólk leitar hingað vegna þess að það verður óbærilegt að búa sunnar á hnettinum vegna hita? Ætlum við að segja nei? Getum við sagt nei? Fyrir nokkrum dögum lýsti ég þeirri skoðun á heima- síðu minni (styrmir.is) að brottvísun egypsku fjölskyld- unnar, sem hefur verið í fréttum að undanförnu, væri brot á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, en þar segir m.a.: „Það sem barni er fyrir beztu skal ávallt hafa for- gang …“ Samdægurs fékk ég tölvupóst, þar sem ég var borinn þeim sökum að tala eins og „einfaldur vinstrimaður“. Ég hef að vísu ekki gert mér grein fyrir að málefni barna sé hægt að flokka undir hægri eða vinstri í pólitík en er sammála því sem fram kemur í Barnasáttmálanum. Og það er hægt að færa mjög sterk rök fyr- ir því að í brottvísun þeirrar fjölskyldu felist brot á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem við erum að- ilar að og höfum fullgilt hér á landi. En að mörgu leyti erum við mannfólkið enn í frum- skóginum. Það er ekki allt jákvætt sem fylgir fólki sem vill setjast hér að. Þegar ég spurði „fréttamann“ úr und- irheimum Reykjavíkur fyrir skömmu, hverjir væru helztu sölumenn á fíkniefnum hér, var svarið „rússneska mafían“. Áður hafði ég fengið áþekkt svar frá öðrum að- ila, sem taldi þá vera frá „mafíum“ í Eystrasaltsríkj- unum. Og ekki fór á milli mála fyrir nokkrum árum þegar fjölgun varð á fólki frá sunnanverðri Evrópu, sem hingað leitaði, að þar voru á ferð mafíur sem tóku hátt gjald fyr- ir að koma fólki hingað. Tilgangurinn með þessum hugleiðingum er ekki að lýsa einhverri ákveðinni skoðun á því, hvernig við eigum að taka á þessum flóknu vandamálum, heldur að hvetja til opnari umræðu um þessi mál en hér hefur tíðkast. Það er leiðin í lýðræðisríki til þess að finna lausn á sameigin- legum vandamálum eða verkefnum. Okkur finnst sjálfsagt að Íslendingar sem leita til ann- arra landa og vilja setjast þar að fái heimild til þess. En hvers vegna á það sama ekki að gilda um fólk í öðrum löndum, sem vill koma hingað? Reynum að ræða þessi mál efnislega og með rökum en látum hrakyrði á borð við „rasista“ eða „einfalda vinstri- menn“ liggja á milli hluta. Hér hefur ríkt „feimni“ í umræðum um þau málefni. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Opnari umræður um inn- flytjendur og hælisleitendur Guðmundur Finnbogason lands-bókavörður benti á það fyrir löngu, að verulegur samhljómur væri með siðfræðikenningu Arist- ótelesar og boðskap Hávamála. Kristján Kristjánsson heimspeki- prófessor hefur tekið upp þennan þráð í nokkrum fróðlegum ritgerð- um. Kristján hefur sérstaklega rætt um dygðina stórlæti, sem Aristóteles lýsir í Siðfræði Níko- makkosar. Í íslenskri þýðingu Sið- fræðinnar eftir Svavar Hrafn Svavarsson er þessi dygð kölluð „mikillæti“ og sagt af nokkurri lít- ilsvirðingu, að hún stangist á við siðferðishugmyndir okkar daga. Ég tel þýðingu Svavars Hrafns hæpna, enda á henni neikvæður blær. Mikillæti er annað nafn á drambi. Dygð Aristótelesar var hins vegar fólgin í því, að maður væri stór í sniðum, vissi af því og væri fús til að viðurkenna það. Hún væri meðalhófsdygð, en á öðrum jaðrinum væri yfirlæti og á hinum vanmetakennd. Eins og Guðmundur og Kristján benda á, var stórlæti mikils metið á Íslandi að fornu, en andstæðu þess var lýst í Hávamálum: Lítilla sanda, lítilla sæva, lítil eru geð guma. Ég er hins vegar ósammála Svavari Hrafni um, að stórmenni eða afburðamenn séu ekki lengur til, þótt ef til vill tali þeir ekki allir djúpri röddu eða stígi þungt til jarðar, eins og Aristóteles lýsti þeim. Sumir bregða stórum svip yfir lítið hverfi. Bestu dæmin að fornu um stórlæti eru tvær land- námskonur. Auður djúpúðga fór við tuttugusta mann til bróður síns Helga, en hann bauð henni og helmingi liðs hennar vetrarvist. Hún hvarf frá hin reiðasta og fór til annars bróður síns, Björns, sem bauð þeim öllum til sín, enda vissi hann af veglyndi systur sinnar. Steinunn hin gamla fór til frænda síns Ingólfs Arnarsonar, sem vildi gefa henni Rosmhvalanes. Hún vildi kaupa jörðina, en ekki þiggja, og gaf fyrir heklu flekkótta. Í skáldsögum Ayn Rands, Upp- sprettunni og Undirstöðunni, eru hetjurnar stórlátar í skilningi Ar- istótelesar og Forn-Íslendinga. Howard Roark lætur aðra ekki segja sér fyrir verkum. John Galt neitar að vera þræll múgsins. Hank Rearden vill uppskera eins og hann sáir. Hvarvetna eru til menn, sem geta orðið afburða- menn. En þar eru líka til menn, sem vilja verða afætur. Skáldsög- ur Rand eru um afburðamenn, sem vinna fyrir sjálfa sig, ekki afæturnar. Stórlæti er ekki úrelt dygð. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Stórlæti að fornu og nýju HRINGIÐ OG PANTIÐ SKOÐUN Hamraborg 12 200 Kópavogur 416 0500 www.eignaborg.is ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA Dvergshöfði 27, 110 RVK Verð 600 m. Upplýsingar gefur Óskar Bergsson lgfs. sími 893 2499, oskar@eignaborg.is TÆKIFÆRI FYRIR BYGGINGARAÐILA OG ÞRÓUNARFÉLÖG Iðnaðar-, verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Húsið stendur á norðurhorni Dvergshöfða og Höfðabakka. Stórt port með aðkomu frá Smiðshöfða. Stærð lóðar er 2.275 fm. Gert er ráð fyrir auknu byggingarmagni. Húsnæðið er í útleigu. Atvinnuhúsnæði - Stærð 2.480 m2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.