Morgunblaðið - 19.09.2020, Side 30

Morgunblaðið - 19.09.2020, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020 Nýlega kom í bóka- verslanir bókin Brosað gegnum tárin. Þar rek- ur Bryndís Schram lífssögu sína. Sú lífs- saga er löng og kemur víða við. Þetta er saga eins lífs – en saga margra æva, sem hver um sig eru hinum ólík- ar. Um margt heillandi lesning, fróðleg lesning en einnig dapurleg og nístandi. Ástríkt uppeldi Bryndís ólst upp í borgaralegu umhverfi í Reykjavík. „Í borg- aralegu umhverfi“ er ekki sagt í niðrandi merkingu heldur í ljósi þeirra viðhorfa, að fjölskylduna skorti hvorki fæði né klæði, foreldr- arnir nutu þess að geta veitt börnum sínum öruggt og gott skjól og for- eldrarnir voru hvarvetna og einatt nærri til þess að geta veitt stuðning Þannig var ekki umhverfi allra barna í Reykjavík. En þannig um- hverfi vildum við jafnaðarmenn fá skapað fyrir hverja og eina fjöl- skyldu. Öryggi, samheldni, samúð og traust. Auðvitað naut Bryndís þessara aðstæðna. Hún dregur enga dul á það í frásögn sinni. Hæfileikar nýttir Við þessar aðstæður naut Bryndís þess að geta nýtt til fullnustu hæfi- leika sína. Hún nýtti þá vel og náði góðum árangri. Þannig skapaði hún sér sína sjálfstæðu tilveru þar sem framtíðin beið björt og brosandi – þangað til hún þurfti að velja á milli tveggja kosta. Sinna eigin framtíð- ardrauma og hins, að fylgja á veg- ferð þeim maka, sem hún nafði valið sér sem lífsförunaut. Um það val segir hún sjálf í lífssögu sinni að hún: „Hefði verið hrifin úr sinni sjálfstæðu tilveru“. Það gerðist, þegar hún kaus að fylgja eiginmanni sínum, Jóni Baldvin Hannibalssyni, frá höfuðborgarumhverfinu, þar sem hún hafði skapað sér sína „sjálf- stæðu tilveru“ og til Ísafjarðar. Ísafjörður, umhverfi mitt. Hún tel- ur sig hafa verið af- skipta á Ísafirði. Verið litið svo á að hún og þau hjón bæði væru að- komnir broddborgarar sem lítið ættu sameig- inlegt með íbúunum. Ekki var það mín upp- lifun af veru þeirra hjóna þar vestra. Man ekki betur en að Jón Baldvin hafi verið kjör- inn sem bæjarfulltrúi og hafi stýrt bæjarfélaginu um skeið. Það getur enginn gert sem ekki hefur haft stuðning almennings á Ísafirði. Og Bryndís tók við starfi skólameistara í forföllum Jóns örfá- um árum eftir að hún fluttist vestur. Gegndi því með sóma og við góðan orðstír. Mikil breyting hafði á orðið á hennar „sjálfstæðu tilveru“. Ný tilvera risin. Nýtt æviskeið fram- undan. Kynnin Jóni Baldvin og Bryndísi kynntist ég fljótlega eftir að þau hjónin sett- ust að í heimabæ mínum – og okkar Jóns Baldvins beggja. Árið 1974 heimsóttum við Vilmundur heitinn Gylfason þau hjónin í íbúð þeirra í Sundstrætinu og ræddum að sjálf- sögðu pólitík. Leiðir okkar Jóns Baldvins á Ísafirði lágu þó ekki sam- an. Vorum vorið 1974 í framboði hvor fyrir sinn flokk. Tókumst síðan hressilega á í prófkjöri fyrir kosn- ingarnar 1978. Þar tókst ég á við mann, sem naut góðs álits samferða- manna og ég heyrði aldrei neitt mis- jafnt sagt um fyrr en mörgum árum síðar. Heyrði þá hvorki né sá neitt af því, sem á hann var svo borið ára- tugum síðar. Æviskeið tvö Tilvera þeirra hjónanna sem skólameistarahjón vestur á Ísafirði – tilvera, sem flestum nægir í heilt æviskeið – varð ekki langæ. Þau hurfu bæði þaðan en hvorugt þó til algerlega nýrrar tilveru. Jón Bald- vin til þess að helga sig alfarið stjórnmálaþátttöku; fyrst sem rit- stjóri og svo sem þingmaður, flokks- formaður og ráðherra. Bryndís tók upp aftur þráð sinnar fyrri tilveru sem sviðslistamaður auk þess sem hún fetaði nýjar brautir sem virkur þátttakandi í borgarmálum. Nýtt æviskeið þar sem ég og þau hjónin vorum samferða. Á því tilveruskeiði kynntist ég þeim hjónum persónu- lega, einkum þó Jóni Baldvin. Við, sem höfðum hildi háð á síðustu árum hans vestra, gerðust fyrst sam- herjar, svo samstarfsmenn og loks vinir. Æviskeið sigra Næsti ævikafli í frásögn Bryndís- ar er ævikafli sem ég vel þekki, minnist með hlýju og stolti. Í skammvinnri fjármálaráðherratíð Jóns Baldvins þegar hann á örfáum misserum innleiddi staðgreiðslu- kerfi skatta og tilurð virðisauka- skatts. Og farsælt starf hans sem ut- anríkisráðherra þar sem hann leiddi þjóð sína inn í EES-samstarfið, sem allir eru nú sammála um að hafi fært íslensku þjóðinni mestu og stærstu tækifærin í viðskiptasögu hennar og tryggt sjálfsögð mannréttindi eins og neytendavernd. Mikilsverðast frá utanríkisráðherratíð hans er þó þeg- ar hann í óþökk stjórvalda margra bandalagsþjóða tók að sér að vera fyrsti evrópski stjórnmálaforinginn sem léði frelsismálstað Eystrasalts- þjóðanna liðsinni. Fyrir þá ein- dregnu og hugrökku afstöðu hefur Jón Baldvin hlotið meira lof á er- lendri grundu en nokkur annar ís- lenskur stjórnmmálamaður hefur nokkru sinni hlotið – og líklega held- ur enginn íslenskur stjórnmála- maður þegið jafn litla viðurkenningu fyrir meðal eigin þjóðar þar sem ill- mælgin kæfir alla aðra umræðu. Nýtt æviskeið Svo lauk þessu æviskeiði í lífs- hlaupi þeirra hjónanna og nýtt ævi- skeið tók við – í nýju umhverfi, við gerbreyttar aðstæður. Dvöl þeirra hjóna sem sendiráðshjóna í Wash- ington. Þá sögu þekki ég lítt enda víðs fjarri þeim vettvangi. Hins veg- ar þótti mér og félögum mínum ým- islegt vera með öðru sniði eftir þá sendiráðsævi en fyrrum. Við tókum t.d. vel eftir því, að sósíaldemókrat- inn Jón Baldvin varð ennþá ákveðnari í þeirri afstöðu eftir en áður var. Norræna módelið, sem hann nefndi svo, var ekki bara æski- legast allra samfélagsgerða heldur margfaldlega langbest. Þetta er sag- an um lífsreynslu þeirra hjóna á þessu æviskeiði. Sagan um lífs- reynslu sósíaldemókrata við gerólíkt umhverfi. Og enn nýtt æviskeið Að loknum sendiráðsstörfunum tók svo við allt annar heimur, ger- ólíkt æviskeið. Ferðalög borga, landa og heimsálfa á milli þar sem Jón Baldvin fór um m.a. til þess að ræða stjórnmál og stjórnmálastefn- ur en Bryndís til þess að hitta fólk, mæta fólki, upplifa umhverfi og menningu og skoða gerólíkt mannlíf. Í bókinni heldur Bryndís á penn- anum. Hún er þar ekki að lýsa við- fangsefnum bónda síns, sem höfðu markað sterkt alla þeirra tilveru, heldur að segja frá því, sem hún sjálf hafði séð, heyrt, kynnst, skilið og skoðað í mörgum og miklum ferðalögum þeirra hjónanna. Þessi frásögn hennar er ekki bara skemmtileg og fróðleg heldur einnig skilmerkileg og greinargóð frásögn af gerólíku umhverfi, gerólíkum samfélagsháttum – og gerólíku fólki. Og svo harmleikur Lokafrásögn bókarinnar er harm- leikur. Grófar ásakanir um barnaníð gegn eigin afkvæmum eru ítrekaðar og endurteknar af ókunnugum eins og sannað væri og notaðar sem rök- stuðningur fyrir æruráni – þó ekk- ert slíkt hafi gerst, þrætt hafi verið fyrir það m.a. af þeim, sem fullyrt hefur verið að hlut eigi að máli. Lát- ið er duga sem sönnunarfærsla að einstaklingur í nánu fjölskyldu- sambandi við sökunaut hafi borið fram þær ásakanir, þó öll önnur skyldmenni, sem sökunautur á að hafa níðst á, hafni því með öllu og lýsi hreina lygi og uppspuna. Geð- sveiflur eru sjúkdómur sem ég hef reynslu af sem vinur sökunauta – annarra en fjölskyldu Jóns Baldvins Hannibalssonar. Þegar sú var tíðin að illa sjúkur einstaklingur sem ótt- ast væri að gæti skaðað sjálfan sig eða aðra og þurfti að áliti geðlæknis tafarlaust á líknandi meðferð að halda þá var slíkt ekki hægt nema náið skyldmenni – foreldri eða maki – féllist á að viðkomandi yrði lagður inn á geðdeild til meðferðar. Oftar en ekki urðu það viðbrögð sjúklings- ins, að kenna foreldri eða maka um ekki bara innlögnina heldur jafn- framt um alla erfiðleika, sem sjúk- lingur hafði þurft að mæta – og hinn sjúki jafnvel búið til hrein ósannindi um hversu ámælisvert framferði makans eða foreldrisins hefði verið gagnvart sér og sínum. Stundum var þeim ásökunum trúað, jafnvel af nánum vinum, og ásakanir hins sjúka endurteknar til níðs og lasts yfir þeim, sem veitt hafði geðlækni heimild til þess að takast á við alvar- legan sjúkleika nákomins. Ég hef sjálfur orðið fyrir því að þurfa að horfast í augu við slíka reynslu í mínum vinahópi og ég hef fundið mikið til með þeim vinum mínum, sem þurft hafa að mæta slíkum við- brögðum. Lokin á sögu Bryndísar um langt líf og margar ævistundir eru einmitt saga af slíkri lifan. Hörmuleg, sárgrætileg og skelfileg. Merki um nýjan tíma, sem engu og engum eirir. Þar sem óttinn ræður för, sviptir sundur vináttu og vænt- umþykju og þar sem reglur réttar- ríkisins um sakleysi nema annað sé sannað eru smánaðar. Flestir þora svo ekki öðru en að þegja. Í ríki ótt- ans. Eitt líf – mörg æviskeið Eftir Sighvat Björgvinsson » Þetta er saga eins lífs – en saga margra æva, sem hver um sig eru hinum ólíkar. Um margt heillandi lesning, fróðleg lesning en einn- ig dapurleg og nístandi. Sighvatur Björgvinsson Höfundur er fv. ráðherra. EES-samningurinn er samstarfssamn- ingur til að efla við- skipta- og efnahags- tengsl samningsaðila, 28 ESB-ríkja og þriggja EFTA-ríkja. Til að ná markmiðum samningsins felur samstarfið í sér frjálsa flutninga fólks, vöru, fjármagns og þjónustu innan EES, innri markaðar ESB og EFTA- ríkjanna þriggja. Með EES-samningnum tók Ís- land þátt í samstarfi en gekkst ekki undir þátttöku í samruna- þróun ESB í orkumálum, sem felst í innleiðingu á orkustefnu ESB með orkupökkunum og aðild að orkusambandi ESB. Innleiðing orkustefnu ESB felur í sér valda- afsal sem er fyrir utan ramma EES-samningsins. Í meginmáli EES-samningsins er rétt minnst á orkumál, einungis sagt að sérstök ákvæði og fyr- irkomulag varðandi orkumál sé að finna í IV. viðauka. Þriðji orku- pakkinn fól í sér breytingu á IV. viðauka sem var mun víðtækari en samstarf og var hornsteinn að orkusambandi ESB með stofnun sem skerðir fullveldi Íslands í orkumálum. Það fól í sér óum- samda grundvallarbreytingu sem mikilvægt var að Al- þingi hafnaði. Er EES-samning- urinn var undirritaður 1992 (tók gildi 1994) var ESB ekki orðið að veruleika og hét Evr- ópubandalagið (EB). Grundvöllur ESB byggist á röð milli- ríkjasáttmála á milli aðildarríkjanna með Rómarsáttmálann (1957) sem stofnsátt- mála. Samrunaþróun ESB var mikil 1993- 2009 með sáttmálum kenndum við Maastricht (1993), Amsterdam (1999), Nice (2003) og Lissabon (2009). Maastricht-sáttmálinn (formlega sáttmáli um ESB) tók við af Róm- arsáttmálanum og EB varð að ESB. Þar var ákveðið að marka nýjan áfanga í aðlögunarferli Evr- ópu sem hófst með stofnun EB. Með Maastricht falla undir ESB í fyrsta sinn ráðstafanir á sviði orkumála og þar er stefnt að þró- un samevrópskra neta á sviðum samgöngu, fjarskipta- og orkuinn- viða. Lissabon-sáttmálinn hefur það yfirlýsta markmið að þróa enn frekar þann samruna sem hófst með stofnun EB. Þar er í fyrsta sinn fjallað um orkumál í sérstöku ákvæði, 194. gr, sem segir að með tilliti til stofnunar og starfsemi innri markaðarins og með skír- skotun til þarfarinnar á að varð- veita og bæta umhverfið skuli stefna ESB í orkumálum miða að því, í anda samstöðu aðildarríkj- anna, að: a) tryggja starfsemi orkumarkaðarins, b) tryggja ör- yggi í orkuafhendingu í ESB, c) auka orkunýtni og orkusparnað og stuðla að þróun nýrra og end- urnýjanlegra orkugjafa og d) stuðla að samtengingu orkuneta. Þessar ráðstafanir eru með fyr- irvara um rétt ESB-ríkja til að ákvarða með hvaða skilyrðum orkulindir þess eru nýttar, val orkugjafa og tilhögun orku- afhendingar. Lagalegur grundvöll- ur orkustefnu ESB og orkupakk- anna er 194. gr., sem er 15 árum yngri en EES. Öll ESB-ríkin greiddu atkvæði um Maastricht-sáttmálann og Lissabon-sáttmálann og tóku þannig afstöðu til þessara mik- ilvægu sáttmála. Nokkur ríki gerðu það í þjóðaratkvæðagreiðslu. Danir höfnuðu Maastricht- sáttmálanum í þjóðaratkvæða- greiðslu 1992 og í kjölfarið voru gerðar breytingar á sáttmálanum með viðbótum í svokölluðum Edin- borgarsamningi, sem veitir Dönum undanþágur. Þeir samþykktu sátt- málann síðan í þjóðaratkvæða- greiðslu 1993. Írar höfnuðu Lissa- bon-sáttmálum í þjóðaratkvæða- greiðslu 2008 en samþykktu í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu 2009. Ef Íslendingar hefðu greitt at- kvæði um Lissbon-sáttmálann hefði þjóðin getað hafnað honum og í kjölfarið krafist undanþága í orkumálum. Ísland fékk undan- þágur í EES-samningnum vegna sjárvarútvegs. EFTA-ríkin þrjú greiddu ekki atkvæði um þessa sáttmála enda ekki aðildarríki ESB. Aðild þeirra að EES byggist á EES-samningnum og það er í gegnum hann sem þau eiga að gæta hagsmuna sinna. Ísland get- ur gert það á vettvangi sameig- inlegu EES-nefndarinnar og með því að Alþingi nýti sér hinn stjórn- skipulega fyrirvara við upptöku ESB-gerða í EES-samninginn. Mjög ríkar skyldur eru þar á sam- eiginlegu EES-nefndinni á að finna lausn sem aðilar geta sætt sig við komi upp vandamál á sviðum sem falla undir valdsvið löggjafans í EFTA-ríkjunum. Ef ekki er unnt að komast að samkomulagi skal sameiginlega EES-nefndin kanna alla frekari möguleika á því að tryggja áframhaldandi góða fram- kvæmd samningsins og taka nauð- synlegar ákvarðanir þar að lút- andi, meðal annars að viðurkenna sambærilega löggjöf. Samstarf Íslands í orkumálum innan EES á að grundvallast á legu landsins í Norður-Atlantshafi. Raforkuflutningur frá Íslandi til ESB er enginn vegna skorts á inn- viðum, skorts á sæstreng. Raforka er verðmætasta náttúruauðlind okkar og hefur verið notuð til at- vinnuuppbyggingar, með stóriðju- og byggðastefnu. Í EES-samn- ingnum var samið um samstarf, ekki samrunaþróun sem felst í orkustefnu ESB og orkusambandi ESB. Hefði það legið fyrir í upp- hafi hefðu Íslendingar gætt hags- muna sinna og tryggt sjálfstæði sitt og stjórn á orkumálum sínum líkt og gert var með sjávarútveg. Með upptöku orkustefnu ESB með orkupökkunum og aðild að orkusambandi ESB er Ísland að ganga inn í ESB hvað varðar orkumál. Um það var aldrei samið í EES-samningnum. Ísland sam- þykkti í EES-samningnum sam- starf í orkumálum. Ef Alþingi vill að Ísland taki þátt í samrunaþróun ESB í orkumálum með aðild að orkusambandi ESB verður að bera það undir þjóðina. Frá orkusamvinnu til orkusambands innan ramma EES-samningsins Eftir Eyjólf Ármannsson » Ísland samþykkti með EES-samn- ingnum samstarf í orku- málum, ekki inngöngu í orkusamband ESB. Orkustefna ESB fer langt út fyrir ramma EES-samningsins. Eyjólfur Ármannsson Höfundur er lögfræðingur LL.M. og formaður Orkunnar okkar, samtaka um sjálfsákvörðunarrétt Íslands í orkumálum. eyjolfur@yahoo.com

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.