Morgunblaðið - 19.09.2020, Síða 38

Morgunblaðið - 19.09.2020, Síða 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2020 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt þú hafir mikið að gera máttu ekki vanrækja sjálfan þig. Reyndu að ýta efasemdunum frá þér og minna þig á að þú átt allt gott skilið. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú heldur inni í þér tilfinningu sem þarf að komast út. Gefðu þér tíma fyrir sjálfan þig og njóttu þess að upplifa nýja hluti. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur unnið mikið undanfarið og langar nú að hvíla þig. Finndu einhvern til að sjá um þín mál meðan þú ert í burtu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Taktu ekki allt bókstaflega sem þú heyrir heldur sannreyndu það sjálfur. Líttu á það sem tækifæri til að læra eitthvað nýtt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er yndislegt þegar fólk kann að meta og samþykkir einstaka kosti þína. Allt sem þú þarft að vita um viðkvæmt fjölskyldumál kemur í ljós. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Mótspyrna sem þú hefur fundið fyrir undanfarið hverfur um leið og þú eyk- ur kraftinn. Þér mun ganga vel að greiða úr flækjum næstu daga. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur öðlast margt sem þú hefur látið þig dreyma um árum saman. Haltu áfram á sömu braut því það mun færa þér viðurkenningu í starfi. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú átt auðvelt með að ýta þínum eigin þörfum til hliðar í dag og sinna þörfum annarra. Kannski færðu yndislegt hrós. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Stundum er heppilegast að halda sig utan við atburðarásina þegar aðrir eru að takast á um hluti sem þér koma ekkert við. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér verður að öllum líkindum falin aukin ábyrgð sem verður til þess að þú verður í sviðsljósinu á næstu vikum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú tekur það upp hjá sjálfum þér að vera aðeins betri við fólk en nauð- synlegt er. Hristu af þér doðann og taktu þátt í leik og starfi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ykkur hafa gefist mörg tækifæri að undanförnu til að kynnast nýjum hlutum og hitta skemmtilegt fólk. Það kemur sér vel að þú hefur mikla aðlögunarhæfni. svo að bæta aðeins við mig í náminu og fór til Finnlands í tvígang sama ár- ið. Þar var ég í hópi valinna náms- manna frá hinum norrænu löndunum og lauk náminu með prófi í utanrík- isverslunarfræðum.“ Eftir tvö ár hjá Þjóðhagsstofnun réð Yngvi sig til Fé- lags íslenskra iðnrekenda, en Ólafur Davíðsson, þá framkvæmdastjóri fé- lagsins, síðar ráðuneytisstjóri og sendiherra, réð hann í greiningar og úttektir. Á sama tíma var Yngvi að- junkt við Viðskipta- og hagfræðideild HÍ um tveggja ára skeið. Eftir þrjú útskrifaðist með mastersgráðu í hag- fræði með áherslu á hagrannsóknir og peningamálahagfræði í bland við fjármál við MBA-deild skólans. En þá var kominn tími til að fara heim. „Við komum heim til Íslands vorið 1988 og þá hef ég störf hjá Þjóðhags- stofnun. Á meðan ég hafði verið í há- skólanum hafði ég verið að aðstoða prófessora að fara yfir verkefni og vinna rannsóknir, bæði í Queen‘s University og í HÍ og ég var fenginn til þess að sinna smá kennslu í þjóð- hagfræði við Háskóla Íslands. Ákvað Y ngvi Harðarson fæddist 19.9. 1960 í Reykjavík. Hann gekk í Hlíðaskóla og síðar í Mennta- skólann við Hamrahlíð. „Ég hef alltaf verið forvitinn að eðlis- fari, hneigðist til alls kyns pælinga og fékk snemma mikinn áhuga á allri tækni,“ segir Yngvi sem segist hafa haft gaman af skólanum. „Yngvi, afi minn heitinn, sem ég var mjög hænd- ur að, var mikill grúskari og ég smit- aðist af þessum eldmóði hans.“ Á menntaskólaárunum var Yngvi mest spenntur fyrir raungreinunum og útskrifaðist af eðlisfræðibraut skólans og lærði eiginlega ekkert um viðskipta- eða efnahagsmál á þeim árum. Lögfræðingurinn Hörður, fað- ir Yngva, var virkur í viðskiptalífinu og gaf m.a. út Dagblaðið Vísi um tíma. Yngvi telur að grunnurinn að viðskiptaáhuga hans hafi verið lagður á heimilinu. Það hafi þó ekki verið fyrr en á áttunda og níunda áratugn- um sem hann fann að hagfræðin væri hans vettvangur. „Það voru miklir ólgutímar á átt- unda áratugnum. Gífurlega mikil verðbólga og sveiflur í hagkerfinu, svo það ástand fannst mér afar for- vitnilegt. Mér fannst merkilegt að læra meira um hvað veldur þessum hræringum og hvernig hagkerfin virka.“ Þar með var teningunum kastað og Yngvi hóf nám í Háskóla Íslands og útskrifaðist frá viðskipta- og hagfræðideild skólans. „Ég hafði mikinn áhuga á hagrann- sóknum og fékk ég ábendingu um Queen‘s University í Kanada, en þar var mjög góð deild á hagrannsókna- sviðinu og það sem gerði útslagið var að þeir buðu mér svolítinn náms- styrk. Það varð úr að Yngvi og kona hans, Vilborg, ákváðu að slá til og sáu ekki eftir því. „Það var alveg frábært að vera þarna í Kanada. Kingston, bærinn sem við vorum í, er á bökkum Ontario-vatns og menningin er svolít- ið evrópsk og mjög ólík því þegar maður fer aðeins sunnar og yfir landamærin til Bandaríkjanna. Við kunnum miklu betur við okkur Kan- adamegin við landamærin, því þar var menningin meira eins og við átt- um að venjast og svo er líka gífurleg náttúrufegurð á þessu svæði. Yngvi ár í starfi hjá iðnrekendum stofnaði Yngvi fyrirtækið Ráðgjöf og efna- hagsspár ehf. í félagi við Sverri Sverrisson en það sérhæfði sig í óháðri fjármálaráðgjöf og áhættu- stýringu. „Hjá Félagi iðnrekenda starfaði ég mikið í tengslum við mál tengd stofnun Evrópska efnahags- svæðisins og sá tækifæri í tengslum við það. Hjá Ráðgjöf og efnahags- spám kom ég á fót og ritstýrði dag- legu fréttabréfi, Gjaldeyrismál, sem kom út frá 1993-2007. Á árunum 2007-10 vorum við fengin af hópi fjár- festa til að ganga til liðs við Askar Capital og virtist það góður kostur þar sem allt virtist verða að gulli í fjárfestingargeiranum á þessum tíma. En eins og flest önnur fjármála- fyrirtæki þessa tíma fór Askar Capi- tal í þrot. Þetta var gríðarlega lær- dómsríkur tími, en mjög dýr skóli,“ segir Yngvi sem keypti út hugbúnað og fleira úr slitabúinu og hóf starf- semi Analytica. „Við erum mikið í greiningarvinnu og rannsóknum fyrir stærri fjárfesta, fyrirtæki, sveit- arfélög og hið opinbera,“ segir Yngvi. Yngvi og Vilborg eiginkona hans hafa gaman af útivist og hreyfingu. Þegar vinnunni sleppir má stundum sjá þau á fjöllum. Þar hefurYngvi sameinað tvö sín helstu áhugamál: útivist og rafeindatækni. „Yngvi afi hafði keypt einingar frá Þýskalandi til að setja saman og búa til útvarps- tæki eða annað og ég man að ég fylgdist með þessu af miklum áhuga og það endaði með að afi gaf mér ein- ingarnar og ég bjó til mitt fyrsta út- varpstæki. Svo rakst pabbi á auglýs- ingu um námskeið í rafeindatækni og morsi og ég fór á það 12 ára gamall, en gat ekki útskrifast og fengið sér- stakt leyfi sem radíóamatör fyrr en 14 ára vegna aldurstakmarkana.“ Yngvi segir fátt betra en að fara á fjöll og setja upp loftnet og reyna að ná sambandi við umheiminn. „Þegar maður er kominn upp í fjöllin þá heyrist allt svo vel, því þar er ekkert suð frá öllum þessum lélega raf- eindabúnaði sem er í borginni.“ Fjölskylda Eiginkona Yngva er Vilborg Hjart- ardóttir, ráðgjafi hjá Origo, f. 8.6. 1962. Foreldrar hennar eru hjónin Yngvi Harðarson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Analytica – 60 ára Á fjallinu Hér er Yngvi að gera fjarskiptatilraunir í kyrrðinni uppi á fjalli. Alltaf verið forvitinn Radíóamatör 14 ára og byrjaður að morsa á tæki sem hann smíðaði sjálfur. Til hamingju með daginn Reykjavík Vinirnir Noel Viktor Rún- arsson, Ísak Kristófer Rúnarsson og Stefán Grímur Þórisson héldu tom- bólu í Hlíðahverfinu og söfnuðu með því 5.491 kr. til styrktar Rauða kross- inum. Við þökkum þeim kærlega fyrir þeirra framlag til mannúðarmála. Tombóla - meira fyrir áskrifendur Lestumeira með vikupassa! Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga. - Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Íþróttir - Daglegt líf - Viðskipti - Fastir þættir - Aðsendar greinar - Aukablöð - Viðtöl - Minningargreinar - Umræðan Vikupassi er auðveldari leið til að lesaMorgunblaðið á netinu. Fáðu þér vikupassa af netútgáfu Morgunblaðsins. 75 ára Jón Rafns fæddist á Akranesi en býr núna í Reykjavík. Jón Rafns var for- stöðumaður Jónshúss í Kaupmannahöfn í 16 ár, en alls bjó Jón í Danmörku í 22 ár. Maki: Inga Harðardóttir framhaldsskóla- kennari, f. 1948. Börn: Þórhallur Rafns rekstrarstjóri í Kaupmannahöfn, f. 1969, Bergþóra, f. 1974, hjá markaðsdeild Icelandair og Þórhildur Rafns, deildarstjóri, f. 1976. Foreldrar: Runólfur Ólafsson, f. 1904, d. 1991, bólstrari og módelsmiður, og Mál- fríður Þorvaldsdóttir, f. 1914, d. 2006, húsfreyja og baðvörður við íþróttahúsið á Akranesi. Jón Rafns Runólfsson 40 ára Inga Rún ólst upp á Flateyri, Reykja- vík og í Hafnarfirði. Hún stundaði nám og störf í Kaupmanna- höfn í rúman áratug. Nú býr hún í Reykjavík og starfar sem tauga- sálfræðingur á endurhæfingardeild Landspítalans. Inga hefur áhuga á menn- ingu og mannsheilanum. Maki: Bragi Ólafsson, f. 1981, leikskóla- kennari á Miðborg. Börn: Ólafur, f. 2009, Björn Ingi, f. 2011 og Lilja, f. 2013. Foreldrar: Björn Ingi Bjarnason, f. 1953, fiskverkandi og fangavörður, og Jóna G. Haraldsdóttir, f. 1956, snyrtifræðingur. Þau búa á Eyrarbakka. Inga Rún Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.