Morgunblaðið - 28.09.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.09.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2020 Gásir Heiðlóur og svín nutu lífsins saman við Gásir í Eyjafirði um helgina. Dýrin voru að næra sig þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði og kipptu sér ekki upp við hinn ókunnuga gest. Þorgeir Baldursson Kórónuveiran og afleiðingar hennar er að margra mati afleið- ing sívaxandi ágengni mannsins á kostnað umhverfisins. Hún og hliðstæðar veirur eiga sér rætur í öðrum lífverutegundum og tengjast umhverfi sem er undir sívaxandi álagi mannsins. Teg- und okkar hefur þrefaldast að höfðatölu á einum mannsaldri og mun að líkindum hafa fjórfaldast miðað við næstu aldamót. Höfða- talan segir þó ekki allt, meira máli skiptir síaukið ósjálfbært álag manna á umhverfið, andrúmsloftið og ósnortna nátt- úru. Þar ganga á undan þeir sem höfðu nóg fyrir í hagkerfi sem stöðugt heimtar meira af umhverfinu og veldur því að eignir safnast á æ færri hendur. Stöðugt augljósari vísbendingar Þrír áratugir eru liðnir frá því Sameinuðu þjóðirnar lögðu grunninn að tveimur al- þjóðasáttmálum sem varða umhverfishásk- ann: Samningnum um loftslagsbreytingar (Convention on Climate Change) og Samn- ingnum um verndun líffræðilegrar fjölbreytni (Convention on Biological Diversity). Sá fyrr- nefndi kveður á um takmarkanir á losun CO2, fyrst af öllu hjá iðnvæddum ríkjum, sá síð- arnefndi varðar lífríki jarðar sem heild. – At- hygli vekja nýleg ummæli Sabine Gabrysch, prófessors í loftslagsfræðum í Berlín. Í grein í Die Zeit (27. ágúst 2020) undir fyrirsögninni Mit der Natur statt gegen sie (Með nátt- úrunni en ekki á móti) segir hún m.a.: „Eyði- legging náttúrulegra lífkerfa leiðir af sér skjótan samdrátt í fjölbreytni tegunda og eyk- ur hættuna á að dýr beri veirur í menn.“ Litið til baka blasir við að markmiðum hvor- ugs ofangreindra sáttmála hefur verið fylgt eftir af þjóðríkjunum sem staðfestu þá, Ísland með- talið. Hvað manngerðar lofts- lagsbreytingar áhrærir fékkst með Parísarsamþykktinni 2015 viðurkenning alþjóðasamfélags- ins á hörmulegri stöðu þeirra samhliða fyrirheitum um við- brögð. Bandaríki Norður- Ameríku, sem langstærsti meng- unarvaldurinn miðað við höfða- tölu, héldu sig hins vegar til hlés í París og Trump forseti hefur allt til þessa neitað að horfast í augu við loftslagsbreytingar af mannavöldum. Samkvæmt Parísarsamkomulaginu átti að ganga frá bindandi ramma þess fyrir lok þessa árs, en það hefur dregist vegna veiru- faraldursins sem nú upptekur heimsbyggðina. Skógareldar opna augu margra Áhrif manngerðra loftslagsbreytinga verða æ sýnilegri með hverjum degi sem líður. Bráðnun og samdráttur jökla vegna hlýnunar er auðsær og því fylgir óhjákvæmilega hækk- un sjávarborðs. Meiri athygli þessa stundina vekja þó óvenju miklir og geigvænlegir skóg- areldar, sem vegna langvarandi þurrka ógna þéttbýli og öðrum byggðum bólum í mörgum heimshlutum. Á liðnum vetri varð Ástralía fyrir mögnuðu eldhafi í grennd aðalþéttbýlis í suðausturhluta álfunnar. Í Rússlandi hafa gíf- urlegir eldar einkum geisað í austanverðri Síberíu, ekki síst norðan heimskautsbaugs þar sem afleiðingarnar magnast samhliða bráðnun sífrera. Í Brasilíu ganga stjórnvöld í síauknum mæli á regnskóga Amazónsvæðisins þar sem kveikt er í skóglendum til þess síðan að taka þær til ræktunar. Þessa stundina vekja gíf- urlegir eldar á fjölmörgum stöðum í vest- urríkjum Bandaríkjanna mesta athygli og áhyggjur samfara mikill loftmengun. Óvenju- margir brunar í Kaliforníu hafa undanfarið kviknað af eldingum í kjölfar hita og þurrka sem raktir eru til loftslagsbreytinga. Eru þær þó enn vægar miðað við það sem spáð er næstu ár og áratugi vegna áframhaldandi los- unar gróðurhúslofts. Slík mengun magnast við það að gengið er á skóglendin sem réttilega eru nefnd lungu jarðar. Þjóðverjar ganga á undan í ESB Þrátt fyrir veirufaraldur eru loftslagsmálin nú ofarlega á dagskrá í Þýskalandi, meira en gerist í flestum ríkjum Evrópusambandsins utan Norðurlanda. Þar gætir m.a. áhrifa Græningja og nú styttist í þingkosningar inn- an árs þar sem gert er ráð fyrir að Merkel láti af störfum sem kanslari eftir óvenju langan og litríkan feril. Miklar umræður eru nú um eft- irmann hennar á kanslarastóli og í flokksfor- ystu Kristilegra og skipa loftslagsmálin þar mikinn sess. Athygli vekur eindregin afstaða sumra framámanna CDU eins og Peters Altmaiers efnahagsráðherra, fyrrverandi ráðuneytisstjóra kanslarans. Í tímaritinu Der Spiegel (nr. 39, 12. sept. 2020) var Altmaier spurður, hvort menn vegna veirufaraldursins hefðu ekki misst sjónar á loftslagsmálunum: „Svo mætti oft halda,“ svaraði hann. „En við verðum að nota tækifærið nú til að festa í sessi ferlið til að tryggja í síðasta lagi 2050 hlutlaust samfélag í loftslagsmálum. Loftslagsbreyting- arnar eru miklu stærri áskorun en veirupest- in. … Markmiðin til að ná niður losun verða að vera bindandi því að breytingarnar láta ekki bíða eftir sér.“ Æ fleiri þýskir áhrifamenn á efnahagssviðinu vilja hér fast land undir fót- um, en ráða því aðeins við verkefnið að næg græn orka og grænt vetni sé í boði í stað nú- verandi mengunarvalda. CDU stendur nú vel í skoðanakönnunum og næstir á eftir koma Græningjar. Ekki er talið útilokað að þessir tveir flokkar nái saman um næstu ríkisstjórn Þýskalands innan árs. At- hygli vekur jafnframt framganga van der Leyen sem er nýr formaður framkvæmda- stjórnar ESB, en var þar til nýlega varnarmálaráðherra í stjórn Merkel. Leyen leggur þunga áherslu á loftslagsmálin, en óvíst er hins vegar um undirtektir ýmissa ann- arra forystumanna innan sambandsins. Afstaða hvers og eins skiptir máli Núverandi ríkisstjórn Íslands hefur sett sér brýn og róttæk markmið í loftslagsmálum og á fleiri sviðum umhverfismála. Miklu skiptir að við þau stefnumið verði staðið og á þeim skerpt í ljósi nýrrar og betri vitneskju. Í bar- áttunni gegn veirupestinni hefur margt verið vel gert af íslenskum sérfræðingum og stjórn- völdum og sú ógn mun ganga yfir. Jafnhliða þeirri baráttu þarf að undirbúa víðtækar að- gerðir á sviði atvinnu- og umhverfismála, þar sem þess verði gætt að hvorttveggja haldist í hendur. Ljóst er t.d. að ferðaiðnaður hér sem annars staðar þarf að taka breytingum til að dregið verði úr losun frá flugi sem og öðru. Væntanlega verður góð reynsla fjölda Íslend- inga sem ferðuðust um eigið land á liðnu sumri til þess að á því verði framhald. Þau sem nú eru ung eiga mest undir að vel takist til við að bægja frá aðsteðjandi ógnum. Án líf- vænlegs umhverfis á mannkynið sér enga von um bjarta framtíð. Eftir Hjörleif Guttormsson » Áhrif manngerðra loftslagsbreytinga verða æ sýnilegri með hverjum deginum sem líður. Hjörleifur Guttormsson Þörf er á róttækum viðbrögðum vegna háskalegra umhverfisbreytinga Höfundur er náttúrufræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.