Morgunblaðið - 28.09.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.09.2020, Blaðsíða 12
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Íslenska sprotafyrirtækið Disact vinnur að þróun sótthreinsibúnaðar og handhreinsifroðu sem gætu m.a. hjálpað í báráttunni gegn kórónu- veirunni en einnig aukið hreinlæti almennt og þannig dregið úr út- breiðslu sjúkdóma af ýmsu tagi. Disact er systurfélag D-Tech sem fjallað var um í sérblaði um sjávar- útveg sem Morgunblaðið gaf út í sumar. D-Tech framleiðir hreinsi- kerfi fyrir mat- vælaiðnað og byggist lausnin á því að fylla vinnslurými af fíngerðri þurr- þoku sem kemst í snertingu við alla yfirborðsfleti. Þokan inniheldur m.a. fjórgild ammoníumsam- bönd sem eyða örverum og veirum en úðinn úr kerfi D-Tech og Disact er svo fíngerður að raki safnast hvergi upp og má t.d. nota lausnina í skrifstofum þar sem geymdir eru pappírar, snjallsímar, tölvur og ann- ar rafbúnaður. Hreinsiefnið veldur ekki tæringu eða öðrum skemmdum á yfirborðsflötum, ertir ekki og skil- ur hvorki eftir sig bragð né lykt. Einar Mäntylä er framkvæmda- stjóri Disact í hálfu starfi en hann er einnig framkvæmdastjóri Auðnu tæknitorgs sem sinnir tækni- og þekkingaryfirfærslu fyrir íslenska háskóla og rannsóknastofnanir. „Hjá Disact er byggt á þeirri tækni sem D-Tech hefur þróað um árabil. Á meðan D-Tech leggur ofuráherslu á matvælaiðnaðinn leitast Disact við að bjóða upp á lausnir sem henta víðar í samfélaginu, s.s. í heilbrigðis- og umönnunargeira, í skólum, lík- amsræktarstöðvum og á skrif- stofum,“ útskýrir Einar og bætir við að því stærra og flóknara rými sem þurfi að sótthreinsa, því meira gagn geri sótthreinsandi þokukerfi Dis- act. Sótthreinsar öll rými Félagið hlaut nýlega styrk frá tækniþróunarsjóði til að hanna fær- anlegt tæki sem nota má til að dreifa sótthreinsandi mistri í nánast hvaða rými sem er. „Með þessari útfærslu er t.d. hægt að sótthreinsa kennslu- stofur eða skrifstofurými með skil- virkum hætti án þess að koma fyrir föstum búnaði og þurfa að leggja leiðslur um rýmið.“ Einar nefnir sem dæmi að fær- anlegt sótthreinsitæki gæti hentað til að hreinsa allar stofur og sali í stórum skóla, eða sótthreinsa her- bergi á hóteli á milli gesta. Frum- gerð tækisins er á stærð við inn- kaupakerru og gætu t.d. ræstinga- fyrirtæki eða stofnanir nýtt sama færanlega tækið á mörgum stöðum. „Þessa sömu tækni má líka útfæra með því að búa til n.k. sótthreins- unargöng sem mæti koma fyrir við farangursbelti flugstöðva eða nýta í stórmörkuðum til að hreinsa inn- kaupakerrur.“ Formúlan í hreinsiefni Disact hef- ur þann eiginleika að mynda ósýni- lega yfirborðsfilmu sem veitir lang- varandi virkni gegn sýklum og veirum. „Eftir að rými hefur verið þokuhreinsað í nokkur skipti mynd- ast þessi viðbótarvernd og dregur enn frekar úr líkunum á því að smit berist á milli fólks sem fer um rým- ið,“ útskýrir Einar. „Þetta er sérlega mikilvægur eiginleiki í ljósi yfir- standandi heimsfaraldurs þar sem vitað er að kórónuveiran getur hald- ist virk og smitandi á yfirborði dög- um saman.“ Þá segir Einar að mörg sótt- hreinsandi efni, einkum þau sem innihalda alkóhól, nýtist misvel til reglubundinnar notkunar. Þau henti ekki fyrir þokukerfi heldur kalli á að manneskja strjúki yfir það sem þarf að hreinsa og efnin skemmi suma fleti. „Víða er starfsfólk sjúkrahúsa, heilsugæslu-, líkamsræktar- og end- urhæfingarstöðva að uppgötva að hreinsiefnin sem verið er að nota til að lágmarka smithættu skemma þá bekki og tæki sem búið er að fjár- festa í. Alkóhól veldur því t.d. að gúmmí harðnar, þornar og sprungur myndast á yfirborði þess. Disact- efnin skemma ekki út frá sér og geta því sparað fyrirtækjum og stofnun- um kostnað við viðhald og endurnýj- un hvers kyns búnaðar.“ Verndandi himna á höndum Handhreinsifroðan frá Disact byggist á sömu virku efnum og not- uð eru í þokuhreinsikerfinu og bind- ur Einar miklar vonir við vöruna, sem fengið hefur nafnið Liquid Glove. „Sótthreinsispritt hefur þann ókost að þurrka húðina og getur skemmt og blettað gólfefni þar sem brúsum er komið fyrir og dropar falla á gólfið þegar fólk skammtar sér í lófann. Þá virkar sprittið aðeins á meðan það er blautt, en froðan okkar myndar verndandi filmu sem heldur áfram að vinna á överunum,“ segir Einar en frá því hann kom til liðs við Disact hefur hann lagt mikla áherslu á að sannreyna virkni vör- unnar og hefur hver tilraunin á fæt- ur annarri sýnt fram á mikla sótt- hreinsivirkni – þar á meðal gegn kórónuveiru. „Það er ábyrgðarhluti að selja vöru af þessu tagi, mikil- vægt að geta byggt á vönduðum vís- indalegum grunni og selja kaupend- um ekki snákaolíu í heimsfaraldri.“ Hann lýsir því þannig að Disact hafi hrokkið í gang í kjölfar niður- staðna frá erlendri veirufræðirann- sóknastofu sem sýndi ótvíræða virkni vörunnar gegn SARS-CoV-2: „Þetta er svar við samfélagslegri áskorun: efnin hafa æskilega og mikla virkni og þokutæknin hefur sannað sig. Við höfum styrkt teymið undanfarið og erum að aðlaga tæknina svo hún nýtist sem víðast í baráttunni við kórónuveiruna.“ Komandi mánuðir munu fara í að afla frekari gagna og ljúka þróun frumgerðar færanlegs hreinsibúnað- ar. Heyra má á Einari að aðstand- endur Disact fara sér að engu óðs- lega og markið sett á að byggja upp stöndugt íslenskt fyrirtæki með við- skiptavini um allan heim. „Við þurf- um að geta miðlað réttum upplýs- ingum, og hafa bæði belti og axlabönd á öllu sem við gerum. Um leið áttum við okkur á því að þörfin fyrir lausnir af þessu tagi er brýn, og þótt við séum ennþá smátt fyrirtæki þá hafa áhugasamir aðilar haft sam- band að utan. Við getum ekki sagt þeim annað en að sýna okkur bið- lund, því við ráðumst ekki í fjölda- framleiðslu fyrr en varan er alveg tilbúin,“ útskýrir Einar og bætir við að kórónuveirufaraldurinn hafi rask- að aðfangakeðjum hjá Disact eins og hjá öðrum, og hægt á starfinu. „Við rákum okkur t.d. á það að skortur var á brúsum undir handhreinsifroð- una, svo við höfum líka þurft að sýna þolinmæði. Ný sending af Liquid Glove er núna á leiðinni til landsins.“ Nýta íslenskt hugvit gegn veirunni AFP Varnir Víða eru fyrirtæki og stofnanir að lenda í því að hreinsiefni valda skemmdum á plastflötum og gólfefnum. Frá líkamsræktarstöð í Bógóta.  Hreinsefni og -búnaður Disact gæti bætt og einfaldað sótthreinsun víða  Nota fjórgild ammóníumsam- bönd sem hvorki erta né æta en mynda ósýnilega og sótthreinsandi yfirborðsfilmu með langvarandi virkni Einar Mäntylä 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2020 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma í Katar hafi veitt flugfélaginu neyð- arlán þegar ljóst varð að tap af flugrekstrinum væri meira en sem næmi 50% af hlutafé. Láninu var síðar breytt í nýtt hlutafé. Ljóst var strax í mars að flug- félagið hygðist biðja stjórnvöld um stuðning en ekki var ljóstrað upp um upphæðina fyrr en nú. Ekki liggur fyrir hvort flugfélagið hefur þegið frekari stuðning frá því í vor. Til samanburðar féllust þýsk stjórnvöld á að veita Lufthansa sex milljarða evra björgunarpakka í sumar en stjórnvöld í Frakklandi og Hollandi veittu Air France-KLM stuðning að upphæð samtals 10,4 milljarðar evra. Þá fékk Emirates tveggja milljarða dala aðstoð frá stjórnvöldum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í lok ágúst. ai@mbl.is Flugfélagið Qatar Airways greindi frá því á sunnudag að ríkisstjórn Katar hefð styrkt félagið um 1,95 milljarða dala á rekstraraárinu sem lauk 31. mars síðastliðinn. Ríkis- flugfélag smáríkisins auðuga við Persaflóa hefur yfir að ráða 237 flugvélum og flýgur til 172 áfanga- staða auk þess að reka alþjóða- flugvöllinn í höfuðborginni Doha. Reuters greinir frá að stjórnvöld Qatar Airways fékk meðgjöf í mars  Stjórnvöld í Katar beindu nærri tveimur milljörðum dala til flugfélagsins AFP 28. september 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 139.08 Sterlingspund 177.13 Kanadadalur 103.97 Dönsk króna 21.728 Norsk króna 14.515 Sænsk króna 15.221 Svissn. franki 149.84 Japanskt jen 1.3182 SDR 195.22 Evra 161.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 190.7211 Hrávöruverð Gull 1870.05 ($/únsa) Ál 1697.0 ($/tonn) LME Hráolía 41.85 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.