Morgunblaðið - 02.10.2020, Page 2

Morgunblaðið - 02.10.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ragnar Árnason, prófessor í hag- fræði við Háskóla Íslands, telur að stofna beri fjárfestingarsjóð til að styrkja vænleg ferðaþjónustufyrir- tæki í gegnum tekjubrestinn í faraldr- inum. „Við þessar aðstæður væri rétt að stofna fjárfestingarsjóð til að fjárfesta í vænlegum ferðafyrirtækjum. Og ef það er rétt, sem allir virðast halda, að það sé framtíð í ferðaþjónustu á Ís- landi þá ætti svona sjóður að geta skil- að hagnaði. Það þarf hins vegar að fjármagna hann. Sú leið hefur þann kost að í stað þess að stjórnmálamenn séu að taka ákvarðanir um ríkisaðstoð meira og minna á hlaupum og af mikilli vanþekk- ingu myndu sér- fræðingar í fjár- festingum úthluta þessum fjármun- um. Þetta yrði ekki ólíkt Fram- takssjóði Íslands á sínum tíma,“ segir Ragnar. Sýna hefði þurft meira aðhald Til upprifjunar stofnuðu 16 lífeyr- issjóðir framtakssjóð árið 2009 til að styðja endurreisnina. Ragnar gagnrýnir að ekki skuli sýnt meira aðhald í ríkisrekstrinum. „Við þessar aðstæður hefði kannski verið ástæða til að draga úr umsvifum ríkissjóðs. Það er að mæta þessari kreppu með niðurskurði á útgjöldum sem eru ekki beinlínis notuð til að hjálpa íslenskum þegnum. Þá til dæmis skuldbindingar erlendis og skuldbindingar gagnvart útlending- um sem koma til landsins. Skera niður fituna en forðast þó að skera niður laun til starfsmanna á þessum atvinnuleysistímum. Það er ekki skynsamlegt að reka fólk sem fer svo á atvinnuleysisbætur. Útgjöld ríkissjóðs í ár hafa mörg verið illa hugsuð, illa undirbúin og ekki nýst vel. Það er gripið til þeirra í örvæntingu tel ég vera,“ segir Ragnar um aðgerðapakkana. Stofna ber fjárfestingarsjóð  Prófessor telur að horfa beri til Framtakssjóðs Íslands  Aðgerðapakkar stjórnvalda hafi skilað litlum árangri Ragnar Árnason Aðalfundur Aðalfundur Vörubílstjórafélagsins Þróttar verður haldinn í húsi félagsins að Sævarhöfða 12, fimmtudaginn 15. okt. nk. og hefst kl. 20:00. Dagskrá aðalfundar skv. 27. gr. laga Vörubílstjórafélagsins Þróttar. Stjórnin. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Fyrstu níu mánuði ársins var salan í Vínbúðunum tæplega 15% meiri í lítrum talið heldur en á sama tíma í fyrra. Alls voru seldir 19.325 lítrar af áfengi, en tæplega 16.844 lítrar á sama tíma í fyrra. Aukin sala hefur verið í öllum flokkum nema í flokki ávaxtavíns, þar sem er lítils háttar samdráttur. Hástökkvarar ársins í Vínbúðunum eru í flokki annarra bjórtegunda heldur en lagerbjórs og í flokki freyðivíns og kampavíns. Salan í lítrum jókst í kringum 8% á mánuði fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við sömu mánuði í fyrra. Síðan varð mikil söluaukning í apríl þegar salan jókst um tæplega 32%. Aukn- ingin nam 18,5% í maí, tæpum 15% í júní og 27% í júlí. Í ágústmánuði varð rúmlega 4% samdráttur og skýringin á því er m.a. sú að sala áfengis fyrir verslunarmannahelgina var í júlí í ár, en í ágúst í fyrra. Í september nam aukningin tæplega 19%. Samanburður erfiður milli ára Hæpið er að bera saman tölur á milli ára því margt er breytt frá síð- asta ári vegna kórónuveirufaraldurs- ins. Færri Íslendingar hafa farið til útlanda, starfsemi margra veitinga- staða hefur verið takmörkuð og í kjöl- far faraldursins dró mjög úr komum erlendra ferðamanna. Þessir þættir og fleiri gera allan samanburð erf- iðan. aij@mbl.is Sala á áfengi í janúar-sept. 2019 og 2020 27% aukning í sölu á rauðvíni fyrstu 9 mán. 2020 m.v 2019 20% aukning í sölu á hvítvíni 42% aukning í sölu á öðrum bjórtegunum en lager- og pilsnerbjór Sala í janúar til september, þúsundir lítra 2019 2020 Breyting Lager- og pilsnerbjór 12.267 13.663 11% Rauðvín 1.387 1.757 27% Hvítvín 903 1.087 20% Aðrar bjórtegundir en lager og pilsner 367 523 42% Blandaðir drykkir, s.s. Smirnoff Ice og Breezer 426 522 23% Freyðivín og kampavín 167 228 37% Ávaxtavín, s.s. Sangría og Mojito 200 192 -4% Ókryddað brennivín og vodka 181 190 5% Viskí 79 101 28% Sala áfengis samtals þús. lítra 16.845 19.325 15% Samtals 19.325 þús. lítrar fyrstu 9 mán. 2020 Sala Vínbúðanna jókst um tæp 15%  Aukin sala flesta mánuði ársins Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála hefur staðfest ákvörðun sveitarstjórnar Reykhólahrepps um að veita Vegagerðinni framkvæmda- leyfi fyrir Vestfjarðavegi um Teigs- skóg. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra, segir ákvörðunina mikið gleði- efni. Úrskurðarnefndin segir sveit- arstjórnina hafa fært fram rök fyrir því að þeir samfélagslegu hagsmunir sem hafi í för með sér aukið umferð- aröryggi vegfarenda feli í sér brýna nauðsyn. Það séu almannahagsmun- ir og margir kostir hafi verið skoð- aðir áður en ákvörðun var tekin. „Í dag er gleðidagur, úrskurðar- nefndin hefur kveðið upp sinn dóm skýrt og skorinort. Stöðvun fram- kvæmda í gegnum Teigsskóg er af- létt,“ skrifaði ráðherrann á Face- book. „Vegagerðin hyggst bjóða út þver- un Þorskafjarðar í haust og hefja framkvæmdir í vetur. Þetta er verk upp á 2,5-3 ár. Samhliða verður unn- ið að öðrum köflum verksins þannig að verklok ættu að geta orðið 2024.“ Staðfestir ákvörðun um veg um Teigsskóg  Gleðidagur, segir samgönguráðherra Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Ákveðinn kosningabragur var á ræð- um þeirra þingmanna og ráðherra sem til máls tóku í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Al- þingi í gær, þegar 151. löggjafar- þingið var sett. Fer um leið í hönd síðasti þingveturinn fyrir næstu þingkosningar að ári. Forsætisráðherrann Katrín Jak- obsdóttir hóf umræðurnar og sagði að ríkissjóði yrði beitt af fullum krafti til þess að styðja við almenn- ing og fyrirtæki í landinu andspænis djúpri efnahagslægð í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Hún minnti þó á að faraldrinum og lægð- inni lyki fyrir rest og að mikilvægt væri að standa saman. Jafnframt sagði Katrín að ánægjulegt hefði verið að náðst hefði samkomulag í deilu aðila á vinnumarkaði. Friður á vinnumarkaði hefði hald- ist og aðgerðir stjórnvalda hefðu þar hjálpað til. Sömuleiðis minnti hún á mikilvægi málaflokka á borð við jöfn- uð, umhverfis- og loftslagsmál og efl- ingu heilsugæslunnar. Þá sagði hún að þingið fengi tækifæri til þess á komandi þingvetri að ræða stjórnar- skrárbreytingar og sagðist hún vona að það yrði gert með almannahags- muni að leiðarljósi, að umræðan fest- ist ekki í hjólförum liðinna áratuga. Stefna stjórnarinnar fáránleg Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, tók næstur til máls á eftir Katrínu og sagði stefnu ríkisstjórnarinnar í hinum ýmsu málum fáránlega. Hann sagði bákn hins opinbera hafa þanist gríð- arlega út í tíð sitjandi ríkisstjórnar og að Miðflokkurinn væri svarið við þeim spurningum sem vöknuðu þeg- ar störf ríkisstjórnarinnar væru rædd. Ræða Sigurðar Inga „ónýt“ Þingmönnum Viðreisnar, Sam- fylkingarinnar og Pírata varð tíð- rætt um kerfisbreytingar. Sagði Logi Einarsson, formaður Samfylk- ingarinnar, að fullyrðingar hægri- manna dæmdu sig sjálfar og sagði hann það skyldu Samfylkingarinnar að mynda ríkisstjórn eftir næstu kosningar um málefni er snúa að jöfnuði í íslensku samfélagi og lofts- lagsmálum. Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Framsóknarflokks, sagði þá að eftir ræðu Loga væri sín ræða „ónýt“. Logi hefði rakið öll stefnumál Samfylkingarinnar og gert að sínum en þau væru í raun og veru stefnumál framsóknarmanna. Við það uppskar hann hlátur og frammíköll þingmanna. Þá tóku hinir ýmsu fulltrúar flokka í minnihluta í sama streng og Logi og ræddu kerfisbreytingar. Oft var talað um að valið væri kjósend- anna í næstu kosningum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Við- reisnar, orðaði það svo að þjóðin gæti valið á milli „fortíðarflokkanna“ í ríkisstjórn eða flokka sem þora að ræða úrbætur á íslensku samfélagi og vísaði þar með í tillögu ríkis- stjórnar um breytingu á auðlinda- ákvæði stjórnarskrárinnar sem hún sagði „merkingarlausa“. Dregið út 25 milljarða Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði að aldrei áður hefði hún séð viðlíka hagsmunagæslu þeirra ríku eins og í tíð sitjandi ríkis- stjórnar. Hún sagði að Samtök at- vinnulífsins hefðu á einum degi dreg- ið 25 milljarða út úr ríkisstjórninni á meðan níu mismunandi hjálparsam- tök fyrir fátæka þyrftu að skipta með sér 25 milljónum – og það á vakt Vinstri grænna. Karpað um stefnu ríkisstjórnarinnar  Síðasti þingvetur fyrir kosningar að ári  Ýmis mál rædd Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Hlátur Þingmenn leyfðu sér að hlæja, meðal annars að ræðu Sigurðar Inga. Sóttvarnir Þingfundir hafa breiðst út í hliðarsali og herbergi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.