Morgunblaðið - 02.10.2020, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
Samba
einingasóf i
horntungusófi / 275x233 cm / kr. 387.800
-- margar stærðir og útfærslur í boði
staða, einkaferð um óbyggðir Finn-
lands í sérútbúinni snjóbifreið, sleða-
ferð með hreindýrum, skoðunarferð í
Snow village, skoðunarferð á sleða
dregnum af husky-hundum, mögu-
leikar á göngu til að skoða norður-
ljósin og skíðaferð. Fyrir herlegheit-
in voru greiddar 17.853 evrur sem
jafngildir rúmum 2,9 millj. kr.
Þegar viðskiptavinirnir sáu verð-
lagið í Finnlandi runnu á þá tvær
grímur og töldu þeir sig hafa ofgreitt
fyrir þjónustuna. Á þeim forsendum
endurgreiddi argentínska ferðaskrif-
stofan þeim 6.000 evrur og krafðist
þess síðan að íslenska fyrirtækið
greiddi þá upphæð til baka. Íslenska
kærunefndin vísaði málinu frá.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Argentínsk ferðaskrifstofa fær ekki
greidda kröfu á íslenskt fyrirtæki
sem hafði milligöngu um að skipu-
leggja lúxusferð fyrir viðskiptavini
ferðaskrifstofunnar til Finnlands en
ferðin þótti allt of dýr. Vildi argent-
ínska ferðaskrifstofan að íslenska
fyrirtækið endurgreiddi 6.000 evrur
eða tæpa milljón króna.
Argentínska ferðaskrifstofan setti
sig í samband við íslenska fyrirtækið
um skipulagningu ferðarinnar en
fram kemur í úrskurði kærunefndar
vöru- og þjónustukaupa, sem fékk
málið til meðferðar, að bæði fyrir-
tækin eru aðilar að Traveller Made,
samstarfsvettvangi valinna ferða-
þjónustuaðila sem setja saman og
selja háklassaferðir til viðskiptavina
sinna. Ekki kemur fram í úrskurð-
inum hvaða fyrirtæki á Íslandi er um
að ræða.
Hreindýra- og hundasleðaferð
Innifalið í ferðinni var m.a. gisting í
tvær nætur á Levi Hotel í svokallaðri
,,Dlx“-svítu, gisting í eina nótt á hót-
elinu Aurora Pyramid, akstur milli
Hreindýrasleða-
ferðin þótti dýr
Deilt um greiðslur fyrir lúxusferð
AFP
Sleðaferð Meðal annars var farið í
sleðaferð með husky-hundum.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Kórastarf samfara kórónuveikinni
hefur í haust verið verulega frá-
brugðið því sem teljast verður eðli-
legt. Talsverð smithætta getur
skapast þegar kórfélagar hittast og
syngja af krafti og því full ástæða
til að fara varlega, að sögn Kol-
brúnar Halldórsdóttur, sem syngur
með Kvennakór Reykjavíkur og er
formaður Gígjunnar, lands-
sambands íslenskra kvennakóra.
Hún segir að kórarnir hafi brugðist
við stöðunni á ýmsan hátt.
„Í haust byrjuðum við í
Kvennakór Reykjavíkur á því að
hittast og skipta kórnum upp í
minni hópa, sem héldu áfram að
hittast í raunheimum,“ segir Kol-
brún. „Eftir að þriðja bylgjan skall
á höfum við hins vegar setið heima
og tekið æfingar í gegnum fjar-
fundabúnað í tölvunni. Kórstjórinn
er svo með hljóðið á og fylgist með.
en við hinar sitjum heima með nót-
urnar og syngjum við borðstofu-
borðin.“
Kolbrún segir að þetta sé
óneitanlega skrýtið og allir bíði
spenntir eftir að geta hist að nýju. Í
vor hafi kórinn tekið upp lag á þann
hátt að konurnar notuðu eigin síma
til að taka upp rödd og mynd. Síðan
hafi raddirnar verið settar saman
og þannig hafi orðið til upptaka af
kórsöng þó svo að konurnar hafi
sungið hver í sínu lagi. „Svo þegar
við hittumst í haust og sungum
þetta saman, þá var engin sam-
æfing þar sem við höfðum bara
sungið lagið hver í sínu horni. Út-
koman var sérstök,“segir Kolbrún.
Kórsöngur er undur
„Ástæðan fyrir því að fólk er í
kór er að því finnst gaman að
syngja og félagsskapurinn er mik-
ilvægur. Kórsöngur er ekkert ann-
að en undur þegar stór hópur nær
saman í samhljómi og það er ekki
núna þegar hver og einn situr
heima hjá sér og syngur fyrir fram-
an tölvuna. Við viljum öll að lífið
haldi áfram og bíðum eftir að geta
sungið saman á ný,“ segir Kolbrún.
Hún segist hafa heyrt af ýmiss
konar viðbrögðum hjá kórum.
Margir æfi í gegnum fjarfunda-
búnað, einstakir raddhópar hittist
og syngi saman og dæmi séu um að
kórar komi saman úti undir beru
lofti og syngi þar sem hátt er til
lofts og vítt til veggja. Þá sé hægt
að fækka í kórum við einstakar at-
hafnir.
Kolbrún segir að Kvennakór-
inn hafi bæði frestað æfingahelgi og
árshátíð. Enn sé stefnt að tón-
leikum í nóvember, en það fari eftir
framvindu kórónuveikinnar á næstu
vikum hvort af því verði. Á heima-
síðu Gígjunnar er að finna
verklagsreglur um æfingafyrir-
komulag og áhersla m.a. lögð á fjar-
lægðarmörk, persónulegar sótt-
varnir og sótthreinsun húsnæðis.
Ljósmynd/Gunnar Jónatansson
Frænkur og nöfnur Kolbrún Halldórsdóttir og Kolbrún Lilja Pétursdóttir
eftir tónleika Kvennakórs Reykjavíkur í Seljakirkju í desember 2019. Kór
barna sem tengist kórkonum söng með Kvennakórnum á tónleikunum.
Kórastarfið heima
við borðstofuborðin
Smithætta þegar kórfélagar hittast og syngja af krafti
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
sagði á upplýsingafundi almanna-
varna í gær að hann væri á nippinu
með að leggja til tillögur um hertar
samfélagslegar aðgerðir vegna
þriðju bylgju veirufaraldursins sem
nú geisar. Smit væru þó ekki í veld-
isvexti og því ekki tímabært að grípa
til slíkra aðgerða.
Þá sagði Þórólfur viðbúið að sam-
félagstakmarkanir myndu gilda
næstu mánuði og að faraldurinn nú
væri með öðru sniði en í fyrstu
bylgju í vetur, vöxturinn væri ekki
jafn hraður og þá en búast mætti við
því að bylgjan stæði lengur yfir.
Þórólfur og Páll Matthíasson, for-
stjóri Landspítala, sátu fyrir svörum
á fundinum í gær. Fram kom í máli
Páls að hann telur Landspítalann í
stakk búinn til þess að takast á við
fyrirséðar afleiðingar faraldursins
þótt miðað sé við svartsýnustu spár.
Er nú svo komið að innlagnir á
smitsjúkdómadeild eru að meðaltali
á tólf klukkustunda fresti.
Á miðvikudag greindust 36 ein-
staklingar með kórónuveirusmit, 20
af þeim voru í sóttkví en 16 utan
hennar. Samkvæmt upplýsingum á
vefnum covid.is hafa 560 greinst með
kórónuveiruna frá 15. september en
sú dagsetning þykir marka upphaf
þessarar síðustu bylgju.
Fleiri bylgjur á leiðinni
Nýgreiningum er heldur að
fækka. Þrettán lágu í gær á sjúkra-
húsi vegna sjúkdómsins og þar af
voru tveir í öndunarvél. 2.000 sýni
voru tekin á miðvikudag, nærri 1.700
eru í sóttkví og 1.793 í svonefndri
skimunarsóttkví.
Fram kom í máli Páls að 580 eru
undir eftirliti á göngudeild spítalans
en þeim mun fækka um 100 á næstu
dögum.
Þórólfur sagði í svari við fyrir-
spurn að búast mætti við fleiri bylgj-
um þangað til byrjað verður að bólu-
setja gegn kórónuveirunni.
„Á nippinu“ með
harðari aðgerðir
Innlögn á Landspítala á 12 tíma fresti
Kórónuveirusmit á Íslandi
Nýgengi smita frá 30. júní
2.769 staðfest smit
Heimild: covid.is
Nýgengi innanlands 30. sept.
145,4 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
11 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar af 2 á gjörgæslu
281.444 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
151.388
sýni, samtals í skimun 1 og 2
1.793 einstaklingar eru í skimunarsóttkví
120
100
80
60
40
20
0
145,4
7,1
1.697 einstaklingar eru í sóttkví
582 eru með virkt smit og í einangrun
Nýgengi innanlands
Nýgengi, landamæri
júlí ágúst september