Morgunblaðið - 02.10.2020, Page 10

Morgunblaðið - 02.10.2020, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is PLÍ-SÓL GARDÍNUR Sam Edelman Loraine 23.990 kr. Garðatorg 4 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Alls verður 264 milljarða kr. halli á ríkissjóði á næsta ári og skuldir rík- isins vaxa stórum skrefum. ,,Krepp- an sem við erum stödd í nú er sú dýpsta sem við höfum lent í í árarað- ir, mesti samdráttur í um 100 ár en með því að leyfa halla á rekstri hins opinbera og með markvissum öðrum aðgerðum, þá teljum við að við mun- um bjarga verðmætum og verðum á betri stað þegar ástandinu lýkur til að spyrna okkur inn í framtíðina,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, þegar hann fylgdi úr hlaði á fréttamannafundi í gær fjárlagafrumvarpi ársins 2021 og kynnti fjármálaáætlun til næstu fimm ára. Bjarni sagði að unnið væri eftir þeim hugmyndum að nýta beri styrk- inn í opinberum fjármálum til að tak- ast á við yfirstandandi kreppu. ,,Við nýtum okkur það að hafa á undan- förnum árum lækkað skuldir ríkis- sjóðs og á meðan dregur úr tekjum atvinnustarfseminnar og skatttekjur gefa eftir, þá taki ríkið lán í stað þess að bregðast við með skattahækkun- um. Á gjaldahliðinni sættum við okk- ur við að ýmis útgjaldakerfi, stuðn- ingskerfi, blási út án þess að fjármögnun sé til staðar og að það verði sömuleiðis fjármagnað með hallarekstri og lánum.“ Það væri ekki kostur að fara nú í harkalegan niðurskurð og aukna tekjuöflun þegar ekki væri neinu að skipta með ríkinu hjá fyrirtækjunum í landinu. Algert lykilatriði er að sögn Bjarna að örva fjárfestingu og hag- vöxt og meginmarkmiðið í opinberum fjármálum til næstu ára sé að stöðva skuldasöfnunina. Mikill samdráttur skatttekna Veruleikinn sem blasir við er sá að sögn ráðherra að hallinn er núna kominn yfir 10% af landsframleiðslu og samanlagðar skuldir ríkis og sveit- arfélaga landsins rjúka upp. Afkoma ríkissjóðs versnar á næsta ári um 192 milljarða vegna beinna efnahagslegra áhrifa kórónu- veirufaraldursins og ákvarðana til að sporna við afleiðingum hans. Þyngst vegur samdráttur skatttekna vegna minni umsvifa en hann nemur um 89 milljörðum kr. Tekjurnar minnka einnig mikið vegna aðgerða sem grip- ið hefur verið til vegna faraldursins sem metnar eru á um 17 milljarða. Þá er gert ráð fyrir að atvinnuleysisbæt- ur hækki á næsta ári um 23 milljarða. ,,Við erum á þessu og næsta ári að greiða yfir 100 milljarða í atvinnu- leysisbætur,“ sagði Bjarni og bætti við að borga þyrfti 40 til 50 milljarða á næstu árum þar á eftir ef ekki tæk- ist að auka hagvöxtinn. Í frumvarpinu kemur fram að út- gjöld vegna ýmissa mótvægisaðgerða eru áætluð um 35 milljarðar kr. svo sem vegna fjárfestingar- og upp- byggingarátaks, framlaga til eflingar háskólum og framhaldsskólum og aukinna endurgreiðslna vegna rann- sókna og þróunar. Jafnframt er búist við að arðgreiðslur fyrirtækja og fé- laga í eigu ríkisins lækki á næsta ári um 27 milljarða. Halli ríkissjóðs á næsta ári kemur í framhaldi af gríðarlega miklum halla á yfirstandandi ári að sögn fjármála- ráðherra. ,,Það hefur orðið algjört hrun í afkomu ríkisins,“ sagði Bjarni. Augljóst væri af afkomutölunum að Íslendingar hefðu ekki til lengri tíma efni á að halda úti þeirri opinberu þjónustu sem veitt er í dag, ,,en við gerum það engu að síður vegna þess að við trúum því að þetta sé tíma- bundið ástand og við ætlum að vinna okkur út úr því,“ sagði hann. Í frumvarpinu er lagt til að fram- lög til heilbrigðismála hækki á næsta ári um ríflega 15 milljarða kr. að frá- töldum launa- og verðlagsbreyting- um, framlög til mennta- og menning- armála eiga að aukast um tæpa 6 milljarða og útgjöld vegna nýsköp- unar hækka á næsta ári um 5 millj- arða frá áætluðum framlögum í ár og verða 25 milljarðar. Í kynningu á meginefni frum- varpsins kemur fram að skattar verði 34 milljörðum kr. lægri á næsta ári en þeir hefðu orðið ef ekki hefði kom- ið til skattabreytinga sem ákveðnar voru árið 2017. Skattar á næsta ári verði þegar allt er talið tæpum 52 milljörðum kr. lægri en þeir hefðu orðið án skattabreytinganna sem ákveðnar voru á sínum tíma. 430 milljarða aðgerðir til að styðja við hagkerfið Hvað heildartekjur ríkissjóðs varðar þá kom fram í máli Bjarna að umskiptin væru mjög mikil eða úr væntingum um 850 milljarða tekjur yfir í áætlun nú upp á 710 milljarða tekjur ríkisins. „Breytingar í efna- hagsumhverfinu eru að valda tæp- lega 90 milljarða samdrætti á tekju- hliðinni á meðan sérstakar covid-tengdar aðgerðir draga úr tekjum upp á 18 milljarða og kerf- isbreytingar af ýmsum toga sem teygja sig yfir kjörtímabilið hafa hér sömuleiðis áhrif,“ sagði hann. Bjarni sagði að lagðar væru til um- fangsmiklar sértækar ráðstafanir bæði á tekju- og gjaldahlið fjárlaga- frumvarpsins. ,,Samtals eru þetta um 430 milljarða efnahagslegar aðgerðir til að styðja við hagkerfið.“ „Algjört hrun í afkomu ríkisins“  Halli ríkissjóðs á næsta ári áætlaður 264 milljarðar samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2021  Fjármálaráðherra segir lykilatriði að örva hagvöxt og geta til lengri tíma stöðvað skuldasöfnunina Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjárlagafrumvarpið kynnt ,,Ef okkur tekst að örva hagvöxtinn, þá lítur framtíðin miklu betur út,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, þegar hann kynnti fjárlagafrumvarpið og fjármálaáætlun í gær. Áformað er í fjárlagafrumvarp- inu að leggja fyrir Alþingi til- lögu um hækkun á skattleysis- mörkum erfðafjárskatts úr einni og hálfri milljón upp í fimm milljónir, þannig að fyrstu fimm milljónir hvers dánarbús verði skattlausar. Tekjur ríkisins lækka vegna þessa um 500 milljónir á næsta ári. Verið er að leggja lokahönd á endurskoðun á stofni fjár- magnstekjuskatts sem gæti numið 2,1 milljarðs króna lækk- un hans. ,,Þar erum við að horfa til þess að draga úr skattlagn- ingu sem er umfram skattlagn- ingu raunávöxtunar og inni í þeirri vinnu er líka verið að horfa til góðgerðarsamtaka, styrktarfélaga og annarra slíkra um hvernig við getum beitt fjár- magnstekjuskattinum til þess að styðja betur við slíka starf- semi í landinu,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í gær. Gert er ráð fyrir 2,1 millj- arðs kr. tekjutapi vegna nýrra eða aukinna skattastyrkja til að styðja við slík félög. Lokaáfangi tekjuskattsbreyt- inga sem ákveðnar voru 2017 tekur gildi um næstu áramót og er áætlað að tekjur ríkissjóðs muni lækka um ríflega 14 millj- arða á næsta ári vegna lækkun- arinnar. Segir í greinargerð frumvarpsins að ráðstöfunar- tekjur heimilanna aukist sem því nemur og hjá þeim tekju- lægstu um rúmlega 120 þúsund kr. á ári. Krónutölugjöld s.s. vörugjöld á áfengi og eldsneyti hækka frá áramótum um 2,5% í takt við verðbólguspá. Skattalækk- anir boðaðar FJÁRLAGAFRUMVARP 2021 Í nýrri þjóðhagsspá sem Hagstofa Íslands birti í gær kemur fram að horfur séu á að landsframleiðsla dragist saman um 7,6% í ár sem yrði einn mesti samdráttur á síð- ustu 100 árum. Gert er ráð fyrir bata á næsta ári og að landsfram- leiðsla aukist um 3,9% milli ára og jafnframt er áætlað að þjóðar- útgjöld dragist saman um 3,6% í ár en að viðsnúningur verði á næsta ári og þau aukist um 3,9%. Í spánni er gert ráð fyrir að einkaneysla muni taka við sér á ný og aukast um 4,2%. Fjárfesting dregst hins vegar saman um 8,9% á yfirstandandi ári á að aukast um 5,5% á næsta ári. Búist er við að atvinnuleysi verði 7,8% á þessu ári og um 6,8% á árinu 2021. Spá einum mesta samdrætti í 100 ár Fjárlagafrumvarp 2021 og Fjármálaáætlun 2021-2025

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.