Morgunblaðið - 02.10.2020, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma533 1320
Við tökum vel á móti ykkur í Vegmúla 2
Laserlyfting
Náttúruleg andlitslyfting
Byltingarkennd tækni ímeðferð á línum,
hrukkumog slappri húð!
Styrkir húðina og losar þig við hrukkur og slappa húð á
andliti, hálsi, svæði undir höku, bringu og handarbökum.
Spornar einnig við öldrun húðarinnar ásamt því
að lífga upp á útlit þitt.
Þéttir slappa húð á andliti og hálsi.
Þéttirslappa húðá andliti oghálsi!
2. október 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 138.54
Sterlingspund 177.74
Kanadadalur 103.47
Dönsk króna 21.784
Norsk króna 14.609
Sænsk króna 15.345
Svissn. franki 150.11
Japanskt jen 1.3105
SDR 195.0
Evra 162.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 191.8478
Hrávöruverð
Gull 1883.4 ($/únsa)
Ál 1746.0 ($/tonn) LME
Hráolía 40.66 ($/fatið) Brent
● Auglýsingastofan Kontor Reykjavík,
sem er í eigu hjónanna Sigrúnar Gylfa-
dóttur og Alex Jónssonar, hefur unnið
til Brand Impact-verðlaunanna fyrir
auglýsingaherferð sem þau unnu fyrir
Kringluna. Það er tímaritið Computer
Arts og vefsíðan Creative Bloq sem
standa að verðlaununum.
Í tilkynningu segir að veitt séu verð-
laun fyrir verk sem þykja hafa skarað
fram úr í heimi skapandi hönnunar og
mörkunar (e. branding). „Við erum
mjög þakklát fyrir þessa miklu viður-
kenningu á störfum okkar á alþjóð-
legum vettvangi. Það er mikill heiður
fyrir litla auglýsingastofu á Íslandi að fá
slík verðlaun og vera sett jafnfætis
stórum alþjóðlegum auglýsingastofum
sem starfa fyrir heimsþekkt vöru-
merki,“ segir Sigrún Gylfadóttir í til-
kynningunni.
Auglýsing Að búa til helgimyndir út frá
neysluhyggju þótti frumlegt og djarft.
Fá alþjóðleg verðlaun
fyrir Kringluherferð
STUTT
skráður með hærri hlut vegna frágangs
fyrir viðskiptavini, en einnig sé um að
ræða eignarhlut bankans í Icelandair. Í
svörum frá Arion banka segir að eign-
arhluti hans sé að mestu bundinn í
framvirka samninga gagnvart einka-
fjárfestum bankans. Hlutdeild bank-
anna í Icelandair getur því tekið breyt-
ingum eftir því sem frágangi viðskipta
og framvindu samninga miðar áfram.
Dreifðara eignarhald til bóta
Aðrir fjárfestingarsjóðir fara nú
samtals með 9,17% hlut og dregur
verulega úr því sem áður var þegar Par
Investment eitt fór með 10% hlut. Sá
hlutur hefur nú þynnst niður í 1,98%
sem merkir að Icelandair er nú í 98%
eigu Íslendinga, eftir því sem best er
vitað. Viðmælendur blaðsins eru á því
máli að dreifðara eignarhald sé til mik-
illa bóta og sýni styrk Icelandair í út-
boðinu. Þó enn sé nokkuð langt í næsta
hluthafafund eru margir farnir að
velta sér fyrir hugsanlegum breyting-
um á stjórn félagins. Heimildir herma
að nafn Steins Loga Björnssonar sé
nefnt í því samhengi, en hann starfaði
innan félagsins í 20 ár og var forstjóri
flugfélagsins Bláfugls þar til það var
selt í byrjun árs. Blaðamaður spurði
Stein Loga um þann orðróm, en hann
sagði að ekkert formlegt hefði verið
rætt, þó vissulega hefðu einhverjir
hluthafar sett sig í samband og viðrað
þennan kost.
Sviptingar í eigendahópi
Icelandair eftir útboð
20 stærstu hluthafar Icelandair fyrir og eftir útboð
Stærstu hluthafar Icelandair fyrir útboð (17. sept.) Stærstu hluthafar Icelandair 30. september kl. 17
1 Lífeyrissjóður verslunarmanna 11,81%
2 Par investment Partners L.P. 10,00%
3 Gildi lífeyrissjóður 7,24%
4 Birta lífeyrissjóður 7,07%
5 Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, A-deild 6,24%
6 Stefnir, IS 15 5,40%
7 Stefnir, IS 5 5,16%
8 Frjálsi lífeyrissjóðurinn 2,84%
9 Sólvöllur ehf. 2,51%
10 Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, B-deild 2,01%
11 Landsbréf – Úrvalsbréf 1,91%
12 Brú lífeyrissjóður 1,77%
13 Stefnir – Samval 1,69%
14 Almenni lífeyrissjóðurinn 1,53%
15 Stapi lífeyrissjóður 1,36%
16 Vænting ehf. 1,32%
17 Zukunft ehf. 1,14%
18 Nautica ehf. 1,13%
19 Einstaklingur 1 1,13%
20 Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 0,88%
1 Gildi lífeyrissjóður 6,61%
2 Íslandsbanki hf. 6,55%
3 Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, A-deild 6,24%
4 Brú lífeyrissjóður starfs. sveit. 4,77%
5 Landsbankinn hf. 4,35%
6 Lífeyrissjóður verslunarmanna 2,26%
7 Stefnir, IS 15 2,00%
8 Kvika banki hf. 1,98%
9 Sólvöllur ehf. 1,95%
10 Par Investment Partners L.P. 1,91%
11 Landsbréf - Úrvalsbréf 1,89%
12 Almenni lífeyrissjóðurinn 1,84%
13 Arion banki hf. 1,82%
14 Stefnir, IS 5 1,78%
15 Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, B-deild 1,75%
16 Stefnir – Samval 1,59%
17 Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 1,40%
18 Birta lífeyrissjóður 1,35%
19 Stapi lífeyrissjóður 1,04%
20 Eftirlaunasj. atvinnuflugmanna 1,03%
Breytingar á eignarhaldi
» Mörg félög færast til á topp
tuttugu-hlutafjárlista Ice-
landair. Fimm koma nýir á
listann.
» Eignarhald Icelandair er
dreifðara en áður þegar topp
20 fóru með 74% hlutafjár, en
eru nú með 54%.
» Samtals eru lífeyrissjóðir
enn fyrirferðarmestir í hlut-
hafahópnum, en þó dregur úr
umfangi þeirra.
Topp 20-listi sýnir dreifðara eignarhald en áður Dregur úr vægi lífeyrissjóða
BAKSVIÐ
Sighvatur Bjarnason
sighvaturb@mbl.is
Icelandair Group birti í gær uppfærð-
an lista yfir 20 stærstu hluthafa félags-
ins, en saman fara þeir með 54% eign-
arhaldsins. Listinn sýnir að talsverð
breyting hefur orðið á eignarhaldi fé-
lagsins frá því að hlutafjárútboði fé-
lagsins lauk um miðjan september.
Margir af stórum hluthöfum færast til
á listanum en að auki koma fimm nýir
inn í hóp þeirra stærstu. Fyrir útboðið
áttu 20 stærstu hluthafarnir 74,14% af
bréfum félagsins.
Lífeyrissjóðir enn stærstir
Sem fyrr eru lífeyrissjóðir meðal
stærstu eigenda og fara tíu sjóðir nú
með samtals 28,29% hlut. Það er nokk-
ur samdráttur frá fyrra eignarhaldi því
fyrir útboð var hlutur lífeyrissjóða
42,75%. Þrátt fyrir að vera með minni
hlut en áður, vermir Gildi nú hásætið
með 6,61%. Brú bætir verulega við sig
og fer úr 1,77% í 4,77%.
Stærsti einkafjárfestirinn í hlut-
hafahópnum er Pálmi Haraldsson,
fyrrum stjórnarmaður í Icelandair, en
félag hans Sólvöllur á 1,95% hlut.
Bankarnir umfangsmiklir
Athygli vekur að bankarnir þrír: Ar-
ion banki, Íslandsbanki og Landsbank-
inn auk Kviku banka birtast nú nýir á
lista hinna 20 stærstu með samanlagt
14,7% eignarhlut. Þar sem fjármála-
fyrirtæki sinna milligöngu í verðbréfa-
viðskiptum, kann eignarhald þeirra að
innihalda hluti sem tilheyra viðskipta-
vinum þeirra, sem getur gefið skakka
mynd af raunverulegu eignarhaldi.
Samkvæmt upplýsingum frá Lands-
bankanum er bankinn tímabundið
Bifreiðaumboðið Toyota á Íslandi
hagnaðist um 168 milljónir króna á
síðasta ári og dróst hagnaður sam-
an um 62% milli ára, en hagnaður-
inn var 439 milljónir árið 2018.
Eignir félagsins í lok árs 2019 námu
4,9 milljörðum en þær voru 6,1
milljarður í lok árs 2018. Eigið fé
Toyota á Íslandi var tæplega 1,7
milljarðar árið 2019 en það var tæp-
lega 1,8 milljarðar árið 2018.
Eiginfjárhlutfall félagsins er 34%.
Eins og hægt er að sjá á vef
Samgöngustofu eru Toyota-bifreið-
ar söluhæstu bílar á Íslandi, en
1.333 bílar af þeirri tegund hafa
selst það sem af er ári. Til sam-
anburðar má geta þess að næst-
mest hefur selst af Tesla-bílum, eða
781.
Tekjur voru 9,7 milljarðar
Tekjur Toyota á Íslandi drógust
saman um 20% milli ára. Þær voru
9,7 milljarðar í fyrra, en 12,2 millj-
arðar árið 2018.
Í ársreikningi félagsins kemur
fram að á árinu 2019 hafi þrjátíu og
þrír starfsmenn unnið hjá félaginu
miðað við heilsársstörf og námu
launagreiðslur samtals 388 milljón-
um króna.
Eigandi félagsins er UK fjárfest-
ingar, en það félag er í jafnri eigu
hjónanna Kristjáns Þorbergssonar,
framkvæmdastjóra fjármálasviðs
fyrirtækisins, og Þórunnar Sigurð-
ardóttur, og hjónanna Úlfars Stein-
dórssonar, forstjóra félagsins, og
Jónu Óskar Pétursdóttur.
Í ársreikningi er getið um að
stjórn félagsins leggi til arðgreiðslu
upp á 150 milljónir króna vegna
rekstrarársins 2019.
Bifreiðar Toyota eru vinsælustu
bílar á Íslandi.
Toyota hagnaðist
um 168 milljónir
Tekjur
minnkuðu um
20% á árinu