Morgunblaðið - 02.10.2020, Síða 16

Morgunblaðið - 02.10.2020, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Tveggja dagaleiðtoga-fundur Evr- ópusambandsríkj- anna hófst í gær, en venju samkvæmt voru ýmis óskyld mál á dagskrá fundarins, allt frá útgöngu Breta úr sambandinu til að- gerða til þess að hafa hemil á helstu tæknifyrirtækjum heims. Þær umræður hurfu þó nær al- farið í skuggann á deilum Evr- ópusambandsins við tyrknesk stjórnvöld, en hegðun þeirra síðustu misserin hefur orðið til þess að valda áhyggjum í mörg- um af höfuðborgum Evrópu. Þær áhyggjur eru einna fyr- irferðarmestar í París, en nán- ast má segja að það hafi ríkt kalt stríð á milli Macrons Frakklandsforseta og Erdog- ans Tyrklandsforseta allt frá því að sá síðarnefndi sendi her- sveitir sínar inn í Sýrland til þess að beita þeim gegn sýr- lenskum Kúrdum. Afskipti Tyrkja í Sýrlandi hafa þó ekki verið eina deiluefnið, heldur hafa Frakkar og Tyrkir einnig deilt um afstöðuna til borg- arastríðsins í Líbíu, auk þess sem Frakkar hafa tekið sér stöðu við hlið Grikkja og Kýp- verja í deilum þeirra við Tyrki um auðlindir í austurhluta Mið- jarðarhafsins. Nýjasta bitbeinið nú eru svo afskipti Tyrkja af átökunum í Nagornó-Karabak, en einsýnt þykir að stjórnvöld í Ankara hafi veitt bandamönnum sínum í Aserbaídsjan aðstoð í formi málaliða og vígamanna úr ísl- amistahópum í Sýrlandi. Þá hafa Tyrkir verið sakaðir um að F-16 orrustuþotur á þeirra vegum hafi tekið þátt í skær- unum á milli Asera og Armena. Óvíst er hvaða afstöðu leiðtogar Evrópusam- bandsríkjanna munu hafa til þessara efna, en víst er að Grikkir, Kýpverjar og Frakkar ætla sér að reyna að knýja fram refsiaðgerðir, eða í það minnsta trúverðuga hótun um að farið verði út í slíkar aðgerðir gegn Tyrkjum, láti þeir ekki af ögr- unum sínum í garð Grikkja. Sagði Macron þegar hann hélt til fundarins að samstaða með Grikkjum og Kýpverjum væri ekki eitthvað sem hægt væri að semja um. Angela Merkel Þýskalands- kanslari benti hins vegar á að Evrópusambandið ætti mikið undir því að eiga góð samskipti við nágranna sína í Tyrklandi, en ríkið er ekki bara að nafninu til bandamaður í Atlantshafs- bandalaginu, heldur léku Tyrk- ir lykilhlutverk í að koma í veg fyrir að flóttamenn frá Sýrlandi myndu streyma áfram til Evr- ópusambandsríkjanna árið 2015. Raunar hafa þeir nýtt sér þá stöðu til þess að kreista út úr sambandinu bæði fjármuni og þægð í samskiptum, enda er alltaf undirliggjandi hótunin um að Tyrkir opni aftur flóðgátt- irnar verði ekki fallist á óskir þeirra. Enn ríkir mikil óvissa um hvernig þessi átök munu enda, en víst er að miklu skiptir fyrir ríki Evrópusambandsins og ná- granna þeirra hvort og hvernig tekst að leiða þau til lykta. Tyrkland fyrirferðar- mikið á leiðtoga- fundi ESB} Snúin staða og erfið Í gær hófst sala áBleiku slauf- unni, hinu árlega átaki Krabba- meinsfélagsins sem ætlað er að vekja fólk til vitundar um krabbamein í konum. Á hverju ári greinast um 800 konur á Íslandi með krabbamein, og eflaust fáar fjölskyldur sem sjúkdómurinn hefur látið ósnortnar. Þá er slaufan ein af þremur meg- instoðum í fjáröflun félagsins, ásamt velunnurum félagsins og Mottumars. Í ár mun allt það fé sem safn- ast með sölu Bleiku slaufunnar renna til krabbameinsrann- sókna, en þær hafa lagt grunn- inn að þeim árangri sem náðst hefur í baráttunni gegn krabba- meini í gegnum tíðina. Í máli Höllu Þorvaldsdóttur, fram- kvæmdastjóra Krabbameins- félagsins í útvarpsþættinum Ís- land vaknar á K100, kom fram að lífslíkur kvenna hér á landi sem hafa fengið krabbamein hafi tvöfaldast á síðustu 50 ár- um. Þá hefur dánartíðni kvenna af völdum krabba- meina lækkað um 35%. Þetta verður að teljast mjög góður og ánægjulegur ár- angur í baráttunni gegn þeim skelfilega vágesti, sem krabba- mein er. En betur má ef duga skal, og lykillinn að því er í gegnum frekari rannsóknir og stuðning við þá sem leiða bar- áttuna gegn krabbameini. Í því samhengi má nefna að í gegnum tíðina hafa 227 milljónir króna runnið til krabbameinsrann- sókna úr Vísindasjóði Krabba- meinsfélagsins og 240 birtar vísindarannsóknir hafa nýtt sér gagnagrunn Krabbameins- skrár. Allt of margir hafa fallið frá fyrir aldur fram vegna krabba- meins, og allt of margar fjöl- skyldur hafa misst móður eða dóttur vegna þessa hræðilega sjúkdóms. Það er því full ástæða fyrir landsmenn til þess að leggja sitt af mörkum í októ- ber til Bleiku slaufunnar og Krabbameinsfélagsins. Átakið hefur bjargað mannslífum og aukið lífslíkur} Bleika slaufan R íkisstjórnin lagði fram áætlun sína út úr kófinu í gær. Áætlun sem ríkisstjórnin ætlaði að leggja fram í vor en frestaði. Það verður að segjast eins og er að áætlunin er nákvæmlega eins og allar fyrri aðgerðir rík- isstjórnarinnar. Sundurlaus og handahófs- kennd. Rétt eins og nýlegar stöðugleika- aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem voru kynntar sem „nýjar“ aðgerðir. Fyrsta aðgerðin þar var að framlengja „Allir vinna“ sem er kaldhæðn- islegt heiti í 9% atvinnuleysi. Ekki beint ný eða sérsniðin aðgerð til þess að koma til móts við mestu efnahagskreppu í heila öld. Hugsið aðeins um það. Kófið er að valda mestu efnahagskreppu sem við höfum séð í heila öld og heildarmyndin í aðgerðum ríkis- stjórnarinnar er engin. Markaðsátak fyrir er- lenda ferðamenn var mikilvægara en nýsköpun í fyrsta að- gerðapakkanum og svo var fyrirtækjum bæði borgað fyrir að halda fólki í vinnu og til þess að segja því upp. Píratar, ásamt öllum öðrum flokkum úr stjórnarand- stöðu, lögðu fram aukið fjármagn til nýsköpunar strax í upphafi kófsins. Að eins vel athuguðu máli og hægt var að gera á þeim stutta tíma lögðum við til sjö milljörðum meira en ríkisstjórnin. Nú í haust kom í ljós að þeirri upphæð hefði auðveldlega verið hægt að verja í fjölmörg verkefni og vinna þannig upp þau störf sem eru að tapast. Stjórn- arandstaðan lagði einnig fram heildstæða pakka af aðgerð- um í heilbrigðismálum (sem ríkisstjórnin lagði svo fram seinna) og opinberum framkvæmdum. Það gat stjórnar- andstaðan gert á einungis níu dögum, lagt fram aðgerðir sem voru heildstæðari en allt sem ríkisstjórnin hefur lagt fram hingað til. Stjórnvöld gáfu sér hins vegar hálft ár til að fínpússa aðgerðir sínar og hver var afrakst- urinn? Misræmi. Til að mynda er bæði gert ráð fyrir 3,6% og 5,2% hækkun launa á næsta ári. Hvers vegna er stuðst við tvær tölur? Enginn veit. Hvers vegna hækkar lífeyrir almanna- trygginga þá bara um 3,6% en ekki 5,2%. Svona eins og í upphafi þessa árs þegar lífeyrir hækkaði um 3,5% en laun þingmanna um 6,3%. Það er þó ánægjulegt að tillaga stjórnarand- stöðunnar um 9 milljarða í nýsköpun er nú orð- in að stefnu ríksstjórnarinnar. Skiljanleg ákvörðun sem hefði betur verið tekin í vor. Í dag er jafnvel góður tími til þess að gera enn betur. Hins vegar skil ég engan veginn hvernig þeim dettur í hug að bæta bara við einum milljarði í loftslagsvarnir. Allt bendir til þess að við munum þurfa að borga marga millj- arða á ári af því að við erum ekki að standa við skuldbind- ingar okkar. Þeir milljarðar munu óhjákvæmilega enda sem skattar á almenning. Ríkisstjórnin býður því áfram upp á samhengisleysi í að- gerðum sínum, sem fer að verða samhengi í sjálfu sér. Fleiri handahófskenndar aðgerðir sem engar greiningar liggja á bak við. Björn Leví Gunnarsson Pistill Handahófskenndar aðgerðir Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verði áform fjármála- ogefnahagsráðherra um aðveita félögum sem starfa íþágu almannaheilla, þriðja geiranum, skattalegar ívilnanir mun ríkið verða af liðlega tveggja millj- arða króna tekjum árlega. Á móti munu þessar ívilnanir nýtast félaga- samtökum vel og fjölga hvötum sem geta orðið til að styrkja starf félag- anna sem í mörgum tilvikum er unnið í sjálfboðavinnu. Fjármála- og efnahagsráðu- neytið hefur kynnt áform um laga- setningu um skattaívilnanir í þágu þriðja geirans í samráðsgátt stjórn- valda. Málið á sér nokkurn aðdrag- anda. Stærsti áfanginn á þeirri leið er niðurstaða starfshóps sem ráðherra skipaði til að fara yfir skattalegt um- hverfi þeirrar starfsemi sem fellur undir þriðja geirann. Tillögur sem hópurinn lagði fram eru að mestu leyti teknar upp í áformum ráðherra um lagasetningu. Áður er lengra er haldið er rétt að staldra við skilgreiningu á þriðja geiranum. Þar er vísað til þess að þau félög sem þar standa falla hvorki undir einkageirann né opinbera geir- ann. Þar eru félög sem ekki starfa með hagnaðarmarkmið að leiðarljósi heldur til almannaheilla. Þar undir má setja íþrótta- og ungmennafélög, björgunarsveitir, góðgerðarfélög og mannúðarsamtök. Ýmis menningar- félög geta einnig fallið undir þessa skilgreiningu. Þess ber að geta að iðnaðarráðherra hefur oftar en einu sinni lagt fram frumvarp til að skil- greina þriðja geirann þar sem lagt hefur verið til að gerðar séu ákveðnar kröfur til forms og efnis þeirra en frumvörpin hafa ekki náð fram að ganga á Alþingi. Þar var meðal ann- ars lagt til að ríkisskattstjóri héldi al- mannaheillafélagaskrá með sama hætti og og fyrirtækjaskrá. Gjafir frádráttarbærar Fyrirtæki sem gefa fé til góð- gerðarmála fá skattaafslátt sem nem- ur allt að 0,75% af atvinnurekstr- artekjum. Áformað er að þetta hlutfall verði tvöfaldað og fleiri geti notið. Jafnframt verði einstaklingum heimilað að draga frá skattskyldum tekjum gjafir til slíkra félaga. Það gæti orðið 350 þúsund á ári, miðað við fordæmi frá Danmörku. Félögin verði jafnframt undanþegin greiðslu fjármagnstekjuskatts. Nú eru tímabundin ákvæði um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað við byggingu, viðhald eða endurbætur á eigin mannvirkjum ýmissa félagasamtaka. Lagt er til að undanþágan nái til allra félaga sem vinna í þágu almanna- heilla og tímamörkin verði endur- skoðuð. Lagt er til að félög til almanna- heilla verði undanþegin greiðslu stimpilgjalds af kaupsamningum, að hluta eða öllu leyti, og að undanþága félagasamtaka og sjálfseignarstofn- ana frá greiðslu erfðafjárskatts skuli einnig taka til lögaðila í öðrum fé- lagsformum. Lagasetningin myndi minnka skatttekjur ríkissjóðs um rúmlega tvo milljarða á ári. Í umsögn skrif- stofu skattamála kemur fram að hún myndi auka flækjustig í skattkerfinu og gera eftirlit erfiðara. Á móti er vakin athygli á samfélagslegu mikil- vægi þeirra félaga sem ívilnanirnar taka til. Starfið sé oft og tíðum borið uppi af sjálfboðaliðum í almannaþágu og í því liggi mikil samfélagsleg verð- mæti. Af þessu leiðir, segir í umsögn- inni, að telja verður að samfélags- legur ávinningur sé töluverður, veginn á móti kostnaði og fyrirhöfn við lagasetningu. Tveir milljarðar í þágu almannaheilla Morgunblaðið/Eggert Almannaheill Björgunarsveitarmenn að störfum í óveðri eru gott dæmi um óeigingjarnt starf í þriðja geiranum. Slík félög munu njóta ívilnana. „Við erum ákaflega ánægð með þetta frumvarp og tilbúin að vinna af fullum krafti með stjórnvöldum að því að það megi ná fram sem greiðast,“ segir Þór Þorsteinsson, formað- ur Slysavarnafélagsins Lands- bjargar. „Mér líst mjög vel á það. Með því er fjölgað hvötum sem styrkja rekstur þessara fé- lagasamtaka. Það verður sam- félaginu mjög til góðs og er við- urkenning á sjálfboðaliðs- starfinu sem þar fer fram,“ segir Auður Inga Þorsteins- dóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ. Ánægja með frumvarpið FULLTRÚAR FÉLAGA Þór Þorsteinsson Auður Inga Þorsteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.