Morgunblaðið - 02.10.2020, Síða 30

Morgunblaðið - 02.10.2020, Síða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl .8:30-12:30, nóg pláss - Stólaleikfimi kl. 10:00 í Hreyfisal – Zumba Gold kl. 10:30 – Bingó kl. 13:30-14:30, spjaldið kostar 250 kr.- Kaffi kl. 14:30-15:20 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir. Við minnum jafnframt alla gesti á að virða þær reglur og fjarlægðartakmörk sem gilda vegna Covid 19, þær breyst með stuttum fyrirvara. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Stólayoga með Hönnu kl. 9. Opin vinnustofa kl. 9-15. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.30-17:15. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 411-2600. Boðinn Hádegismatur kl. 11:20-12:30. Línudans kl.15:00. Alltaf heitt á könnunni og allir velkomnir. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í handavinnustofu kl. 10:00. Gönguferð um hverfið kl. 10:30. Á skjánum kl. 13:00 byrjum við með framhaldsþátt næstu föstudaga. Opið kaffihús 14:30-15:15. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hringborðið kl. 8:10-11:00. ATHUGIÐ BREYTTUR OPNUNARTÍMI. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Myndlistarnámskeið MZ kl. 12:30-15:30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15:30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabæ Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10:00. Dansleikfimi kl. 9:30 og 10:15 Stjörnuheimilið. Smiðja opin kl. 13:00 – 16:00. Allir velkomnir Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.00 Boccia-æfing, kl. 9.30 Postulínsmálun, kl. 13.00 Tréskurður. Gullsmára Handavinna kl. 9.00 Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun kl. 9 - 12. Hádegismatur kl. 11:30. Breytt dagskrá verðum með bíó kl. 13:00. Sýnum myndina Harry og Heimir: Morð eru til alls fyrst. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Handavinna - opin vinnustofa 9:00-16:00. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Bíómyndin ,,The Proposal" kl. 13:15. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga í Borgum kl. 9 í dag og ganga kl. 10 frá Borgum og inni í Egilshöll, kaffispjall á eftir. Hannyrðahópur kl. 12:30 í Borgum, hver með sína handavinnu og léttar leikfimisæfingar. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13:00 takmarkaður fjöldi vegna Covid. Vöfflukaffi eftir hádegi minnum á sprittun og virða fjarlægðarmörk. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag verður dansleikfimi í setustofu milli 9:30-10:00. föstudagsspjallhópur hittist í kaffi í handverksstofu milli 10-11:30. Eftir hádegi er Handaband í handverksstofu, milli 13-15:30. Klukkan 13:30 verður bingó í matsal 2. hæðar og vöfflukaffi í framhaldi af því. Verið velkomin til okkar á Lindargötu 59 - við hlökkum til að sjá ykkur. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Hreyfing með tónlist (léttur salsa) í salnum á Skólabraut kl. 11.00. Syngjum inn helgina með Bjarma í salnum á Skólabraut kl. 13.00. Allir með og kaffi á eftir. Spilað í króknum á Skólabraut og bridge í Eiðismýri kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is með morgun- nu Vantar þig fagmann? FINNA.is ✝ Birna KristínÓlafsdóttir fæddist í Litladal í Svínavatnshreppi í Austur-Húnavatns- sýslu 7. janúar 1932. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 6. ágúst 2020. Foreldrar Birnu voru hjónin Hall- fríður Ingveldur Björnsdóttir, f. 11.4. 1899, d. 29.6. 1974, og Ólafur Jónasson, f. 20.12. 1892, d. 10.7. 1936, bóndi í Litladal. Systir Birnu var Elín, f. 22.9. 1929, d. 12.4. 2000. Hálf- bróðir þeirra er Ólafur Berg- mann Óskarsson, f. 7.5. 1943. Birna giftist hinn 24. apríl 1953 Gunnari Jóhanni Kristjáns- syni húsasmíðameistara, f. 6.8. 1930 í Vindási í Eyrarsveit á Snæfellsnesi, d. 27.7. 2012 á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í Reykjavík. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Jónsdóttir, f. 30.11. 1898, d. 17.1. 1986, og Kristján Hjaltason, f. 27.7. 1899, d. 4.7. 1959. Gunnar og Birna voru meðal frumbyggja í Kópavogi og bjuggu saman á Kársnesbraut artæknifræðingur. Eiginkona hans er Ingibjörg Elísabet Jak- obsdóttir, f. 3.12. 1957. Þeirra börn eru: a) Hörður Hólm, f. 26.2. 1982, b) Sædís Hólm, f. 8.2. 1983. Unnusti hennar er Eyjólf- ur Kristinn Jónsson og eiga þau dæturnar Heru Rún Hólm, f. 2.6. 2018, og Aþenu Rún Hólm, f. 27.6. 2019. Sædís á dótturina El- ísabetu Guðnýju, f. 6.4. 2003, með Guðna Gunnarssyni, og á hún kærastann Daníel Ratan Þórsson. c) Sverrir Grétar Hólm, f. 17.2. 1988. Hann er trúlofaður Bergþóru Guðmundsdóttur, f. 15.3. 1990, og eiga þau soninn Mána Þór, f. 2.11. 2017. Birna missti föður sinn ung en ólst upp með móður sinni, sem síðar giftist Óskari bónda í Víði- dalstungu. Birna var í Reykja- skóla í Hrútafirði og gekk námið vel. Ung flutti hún þó til Reykja- víkur og vann við ýmis störf, s.s. við saumaskap hjá Fix og við þjónustustörf á Hótel Borg. Þeg- ar þau Gunnar voru flutt í Kópa- vog og börnin komin til sög- unnar hnýtti Birna fiskinet, prjónaði lopapeysur og vann í fiskverkun. Þegar opnuð var göngudeild kvenna á Landspít- alanum við Hringbraut hóf hún störf þar í móttökunni og gegndi því við góðan orðstír í meira en 30 ár. Útför Birnu Kristínar fór fram frá Digraneskirkju 17. ágúst 2020, í kyrrþey að hennar ósk. 139 í meira en 50 ár og hún í rúm 60 ár. Þau eignuðust tvö börn: 1) Guðrún Halla, landfræð- ingur, f. 1.9. 1952. Eiginmaður hennar var Árni Þorvaldur Jónsson arkitekt, f. 3.7. 1953. Þau skildu 2012. Þeirra börn eru: a) Hallur Örn kvikmynda- gerðarmaður, f. 27.9. 1982. Eig- inkona hans er Ester Rós Björnsdóttir, f. 23.6. 1988, og eiga þau börnin Snorra Örn, f. 29.5. 2013, og Höllu Björgu, f. 31.7. 2016. b) Erla María hönn- uður, f. 9.5. 1984. Eiginmaður hennar er Jónas Valtýsson, f. 29.11. 1982 og eiga þau dæt- urnar Sögu Dimmeyju, f. 19.2. 2013, og Ylfu Máneyju, f. 29.9. 2016. Jónas á soninn Gabríel Mána, f. 5.12. 2004. c) Iðunn Svala hegðunarráðgjafi, f. 7.5. 1992, og er hún trúlofuð Sigurði Arnóri Sigurðssyni, f. 18.6. 1992. Þau eignuðust soninn Hrafn, f. 9.3. 2020, d. sama dag. Sambýlis- maður Guðrúnar Höllu er Ólafur Héðinsson, f. 9.8. 1952. 2) Gunn- ar Ólafur, f. 15.7. 1955, bygging- Elsku besta amma mín. Ég á erfitt með að finna orðin til þess að kveðja þig almennilega. Þú varst mér alltaf svo kær. Hlýja, góða amma mín með pönnukökurnar og appelsínið á Kársnesinu. Ég minn- ist þess hlýlega í þau ótal skipti sem ég gekk upp innkeyrsluna og bank- aði á gluggann til að vekja athygli á mér, að það klikkaði ekki að þú komst hlaupandi til dyra og spurð- ir: „Af hverju komið þið alltaf hérna megin inn í húsið?“, alveg hlessa á okkur. Eftir að hafa búið sjálf í þessu húsnæði skil ég þig vel að vilja fremur fá okkur inn um að- alinnganginn þar sem hinn liggur í gegnum þvottahúsið og sé því meira hugsaður fyrir heimamenn. Það var kannski nákvæmlega það sem olli því að ég hlustaði aldrei og kom alltaf inn um síðri innganginn, mér leið eins og ég væri heima hjá mér þegar ég kom til þín, elsku amma mín. Heimili þitt var alltaf tandurhreint og óaðfinnanlegt, stútfullt af blómlegum potta- plöntum og ilmandi af bakkelsi. Ég lærði margt af því að hafa þig í lífi mínu. Hjónaband þitt og Gunna afa kenndi mér mikilvægi þess að velja maka af kostgæfni og gefa sér tíma til að vaxa og dafna saman og sinna sameiginlegum áhugamálum. Ég mun aldrei gleyma því sem afi sagði mér þegar ég fékk ævisögu hans til að skrifa menntaskólaritgerð: „Það besta sem ég gerði í lífinu var að giftast svona góðri konu.“ Það var engin tilviljun að þú fórst á þeim degi sem þú gerðir, á níræðisafmælisdegi ástarinnar þinnar, hans Gunna afa. Loksins náðuð þið aftur saman og gátuð tekið langþráð dansspor inn í eilífðina. Ég elska þig amma mín, hvíl í friði. Iðunn. Elsku amma mín, ég kveð þig bæði með söknuði og þakklæti. Það er svo margt sem ég lærði af þér í gegnum árin og svo mikil gleði sem fylgdi því að koma til þín og afa í Kópavog. Oftar en ekki mætti manni ilmurinn af nýbökuð- um pönnukökum eða kleinum í dyragættinni hjá ykkur. Þú sást alltaf til þess að allir gestir færu saddir og sælir úr heimsókn frá ykkur. Þú sem varst alltaf tilbúin að hafa fyrir öllum öðrum og sást varla setjast niður sjálf til að hvíla lúin bein. Það var alveg sama hvað, matur, hannyrðir, spil, dans og lestur, þú virtist alltaf eiga nóg til af tíma fyrir aðra. Ég man enn eftir eftirvæntingunni þegar ég beið sem barn eftir nýsaumuðum jóla- kjólum frá þér eða litríkum ullar- peysum. Þar að auki var fataskáp- ur dúkkanna minna öfundsverður þar sem þær áttu allar sérsaumuð föt fyrir öll möguleg tækifæri. Ég er þakklát fyrir allan þann tíma sem þú gafst mér og bý að svo mörgu frá þér um ókomin ár. Eftir erfið og annasöm ár er kominn tími fyrir þig til að hvílast. Hvíl í friði elsku besta amma mín. Erla María. Birna Kristín Ólafsdóttir ✝ Auður Finn-bogadóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 19. mars 1960. Hún varð bráðkvödd á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vest- mannaeyjum 15. sept. 2020. For- eldrar hennar voru Finnbogi Friðfinns- son, f. 3. apr. 1927, d. 21. des. 2003, og Kristjana Þorfinnsdóttir, f. 10. feb. 1930. Auður var yngst fimm systkina. Systkini hennar: Gunnar Haf- Guðmundssyni, f. 1. maí 1959, d. 3. okt. 2018. Auður og Oddur gengu í hjónaband 26. maí 1991. Þau voru m.a. búsett í Grindavík, á Leynisbrún 12b, til nokkurra ára. Synir þeirra eru: 1) Berg- vin, f. 16. apríl 1986, kvæntur Fanný Rósu Bjarnadóttur, f. 25. júlí 1974. Þau eiga tvo syni, Odd Bjarna, 11 ára, og Heiki Orra, sex ára. 2) Hafsteinn, f. 23. sept. 1993, dóttir hans er Védís María, átta ára. Auður átti einn son af fyrra hjónabandi, Finn- boga Auðarson, f. 18. nóv. 1978. Faðir Finnboga og fyrri eigin- maður Auðar er Þórir Ólafsson, f. 15. sept. 1958. Þau skildu árið 1980. Síðustu árin starfaði Auður í fjölskyldufyrirtækinu Aska hos- tel í Vestmannaeyjum. Útför Auðar hefur farið fram. steinn, f. 14. okt. 1947, d. 24. maí 1964, Friðfinnur, f. 3. júní 1950, Ásta, f. 31. mars 1953, og Sigríður Kristín, f. 16. des. 1955. Auður ólst upp í Vestmannaeyjum og vann hún ýmis störf, m.a. í fisk- vinnslu, þá lengst af hjá Ísfélagi Vest- mannaeyja, í þjónustustörfum ásamt því að vera með sjálf- stæðan atvinnurekstur með eig- inmanni sínum, Oddi Magna Við ætlum að minnast elsku litlu systur okkar. Mikið hvað við eigum eftir að sakna þín. Það fyrsta sem kemur upp í huga okkar eru öll samtölin okkar, þú sagðir alltaf: Hefur þú heyrt þennan brandara, svo hlógum við mikið og síðan sagðir þú okkur annan og annan. Við minnumst hennar vegna allra gleðistundanna og hláturs- ins sem fylgdi henni. Hún hafði einstakt lag á að lyfta öllum upp í gleði þrátt fyrir alla hennar erf- iðleika. Við ásamt Auði ólumst upp í fimm systkina hópi við ynd- islega gott atlæti hjá foreldrum okkar. Gunnar Hafsteinn, elsti bróðir okkar, var tekinn frá okk- ur þegar í bernsku, það var mikill harmur fyrir okkar fjölskyldu. Og nú kveður þú, yngsta systir okk- ar, sem okkur þótti svo undur vænt um. Minningar um þig munu fylgja okkur allt til ævi- loka. Við elskum þig, elsku litla syst- ir okkar, sem sefur svefninum langa. En mundu það að allt þitt líf elskuðum við þig. Þessa kveðju sendum við til þín til himna. Friðfinnur, Ásta og Kristín. Auður frænka mín var ein- stök manneskja. Veröldin væri betri ef fleiri væru eins og hún. Líf Auðar var ekki alltaf auð- velt, áhyggjur, veikindi og erf- iðleikar hennar sjálfrar sem og hennar nánustu voru skammt undan stóran hluta lífs hennar. Hún var samt alltaf glöð og bjartsýn, leit á og leitaði að björtu hliðunum og því góða í öllu og öllum. Hún hafði þann eiginleika að komast í gegnum lífið án þess að hallmæla nokk- urri manneskju, öfund var henni framandi, hún gat sam- glaðst öllum sem áttu meira og höfðu það betra en hún. Ein- lægni hennar var fágæti. Við frænkur og jafnöldrur höfum fylgst að í gegnum lífið þó lífshlaup okkar hafi verið ólík og höf og lönd skilið að í mörg ár. Ég fór út í heim, en Auður giftist allt of ung eins og ekki var óalgengt í Eyjum í þá daga. Hjónabandið var stutt og ófar- sælt, en ávöxtur þess er elsti sonur Auðar, Finnbogi. Finn- bogi er gæddur mörgum góðum kostum. Hljóðfæri og allt sem snýr að tækjum og tækni leikur í höndunum á honum, á öðrum sviðum hefði og hefur hann þörf á sérstakri aðstoð, en því miður hefur umhverfið og kerfið ekki staðið sig sem skyldi. Auður kynntist svo Oddi Magna Guðmundssyni á balli í gömlu Höllinni í Eyjum. Það var upphafið á hamingjusömu hjónabandi. Oddur var Auðar besti vinur, aðdáandi, stoð og stytta. Auður og Oddur voru óaðskiljanleg í tæplega 40 ár, þau eignuðust synina Bergvin og Hafstein. Saman tókust þau á við erfið veikindi, sem þau fengu heldur betur sinn skammt af. Auður var heilsu- laus árum saman. Sonurinn Bergvin varð blindur af veiru- sýkingu sem hann fékk í augun. Sama hvað á gekk stóð Auður þétt við hlið Bergvins og hjálp- aði honum í gegnum nám, sem og í fyrirtæki hans. Oddur barðist við krabbamein í nær 10 ár sem dró hann til dauða fyrir tæplega tveimur árum. Auður missti mikið við fráfall Odds. Þó hún hafi átt bakland í góðum vinum og fjölskyldu kom enginn í staðinn fyrir hann Odd. Buguð og heilsutæp hélt hún áfram, vann miklu meira en hún hafði gott af, en kvartaði ekki og þaðan af síður tapaði hún húmornum. Hún nefndi stundum við mig að líf hennar væri efni í bók sem ætti að heita Móðurharðindin. Þegar Auður fékk svo hjartaáfall öðru sinni varð það henni um megn. Nú þegar komið er að leið- arlokum þakka ég Auði fyrir að hafa gert mig að betri mann- eskju og kenna mér að meta hvað ég er heppin með mitt og mína. Sonum Auðar, vinum og ætt- ingjum sendi ég samúðarkveðj- ur. Hugur minn er hjá Kiddý, eftirlifandi móðir hennar, sem nú er að kveðja sitt annað barn hinsta sinni. Blessuð sé minning Auðar Finnboga. Kristín Jóhanns. Auður Finnbogadóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.