Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 39
DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195 3+1 TILBOÐ af 120 ml Amsterdam akrýl Þú kaupir 3 færð 1 frítt Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ VILT HAFA GÓÐA SJÓN ÞEGAR ÞÚ FERÐAST TIL ANNARRA LANDA, EKKI SATT?” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að njóta hljóðra stunda saman. ÞAÐ ER YNDISLEGT VEÐUR ÚTI LEYFÐU MÉR AÐ FYLGJAST MEÐ SKO, SJÁÐU! ÞÚ KLÁRAR ALDREI NEITT! EF ÞÚ HÆTTIR AÐ RÖFLA GET ÉG KLÁRAÐ LÚRINN MINN! TAKK SMÁFÓLK, FYRIR 50 ÁR AF SKEMMTIEFNI! „NEI, ÞAÐ ER EKKI „KARLSJÚKDÓMALÆKNIR” Á VAKT.” ekki þekkjast annars staðar, eins og risaskjaldbökurnar og finkur Darw- ins. En svo var líka margt sem minnti mig á Ísland, svart hraun og víða lítill gróður.“ Ómetanlegt kompaní Um miðjan níunda áratuginn byrjaði Hrefna í hestamennsku og það hafði mikil áhrif á hennar líf, bæði rannsóknarferilinn og áhuga- málin. Hún hefur farið í langar hestaferðir á hverju sumri síðan 1995, nema 2010 þegar hestaflensa var skæð.„Ég hef farið um landið þvert og endilagt og finnst það ómetanlegt að geta verið með hest- unum allan sólarhringinn í kompaní með góðum ferðafélögum og hafa upplifað náttúru landsins af hest- baki.“ Fjölskylda Eiginmaður Hrefnu er Sigurður Sveinn Snorrason, f. 12.1. 1951, pró- fessor í líffræði. Foreldrar hans eru hjónin Snorri Sigurðsson, f. 15.4. 1929, d. 26.5. 2009, skógfræðingur og Sigurlaug Sveinsdóttir Bjarman, f. 27.12. 1929, d. 27.12 2007, húsfreyja. Þau bjuggu í Kópavogi. Börn Hrefnu og Sigurðar eru: 1) Björg, f. 25.10. 1974, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri í Reykjavík. Barna- barn: Vigfús Þór Eiríksson, f. 13.5. 2002. 2) Snorri, f. 28.11. 1981, líf- fræðingur og sérfræðingur hjá Reykjavíkurborg og umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Systkini Hrefnu eru Snorri, f. 6.8. 1948, verk- fræðingur í Hafnarfirði og Kristján, f. 17.12. 1955, fréttamaður hjá RÚV í Reykjavík. Foreldrar Hrefnu eru hjónin Sig- urjón Sigurðsson, f. 24.7. 1920, d. 13. 2. 2013, bankamaður og Björg Ólafs- dóttir, f. 19.3. 1921, húsfreyja í Reykjavík. Hrefna Sigurjónsdóttir Sigurlín Þórðardóttir húsfr. í Mávahlíð,Bár og Hjallabúð, Brimilsvöllum á Snæfellsn. Kristján Þorsteinsson bóndi, Neðri Bár á Snæfellsnesi Kristólína Kristjánsdóttir kennari og húsfr. á Brimilsvöllum, Snæfellsn. Ólafur Bjarnason bóndi og hreppst. á Brimilsvöllum og umboðsm. konungsjarða á Snæfellsnesi Björg Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík Vígdís Sigurðardóttir húsfr. á Hofi, Kjalarnesi og Brimilsvöllum Bjarni Sigurðsson bóndi og hreppstj. á Hofi, Kjalarn. og á Brimilsvöllum Jóhanna Friðrika Norðfjörð Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sigurður Grímsson prentari í Reykjavík Jónína Kristjana Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík Sigurður Helgi Jóhannson sjómaður í Reykjavík Ingibjörg Steinunn Eyjólfsdóttir húsfreyja á Seltjarnarnesi Jóhann Kristján Árnason sjómaður á Seltjarnarnesi Úr frændgarði Hrefnu Sigurjónsdóttur Sigurjón Sigurðsson bankamaður í Reykjavík Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Í hringi gjarnan gengur sú. Goðvera í Ásatrú. Sæll í henni situr þú. Söngkona, og gettu nú. Eysteinn Pétursson á þessa lausn: Sólin gengur heims um hjarn. Hét Sól Mundilfara barn. Sólbaði í er sælt að liggja, frá Sölku ljúfa tóna þiggja. Þorgerður Hafstað svarar: Sólarskífa tíma telur. Taumar stýra hestum Sólar. Sóldýrkandi sæti velur. Salka ein á palli gólar. Helgi Þorláksson leysir gátuna þannig: Um jörðu sólin sögð er ganga, sólin meðal goða er, í blíðu sólar sumir hanga, Salka vel með lögin fer. Guðrún B. svarar: Kringum jörðina síkvik sól. Sól vill ei Alsvinn lama. Í sólinni er ég sæl á hól og Salka í AmabAdamA. Helgi R. Einarsson á þessa lausn: Sólarhringinn sé ég hér. Sólin goðavera er. Á Sölku Sól hér einnig ber. Í sólbað öðru hvoru fer. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Sól í hringi gengur greitt. Gyðja er Sól í ásatrú. Að sitja úti’ í sól er heitt. Sól oss víða skemmtir nú. Þá er limra: Sálin á ljósgeisla lumar, þá lengur ei skógurinn brumar og engin rós grær hún yljað sér fær við sólskinið frá í sumar. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Fram undan er frost og hríð, fer að höndum vetrartíð, giska fátt nú gleður lýð, gátuna samt yður býð: Fleygur lítt er fuglinn sá. Flughratt snýst hann löngum. Buna honum fellur frá. Fljótfærinn þann kalla má. Gömul vísa að lokum: Gráttu ekki litli Lappi ljósið kemur senn, fólkið er með fótastappi fram um bæinn enn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Enginn gleypir sólina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.