Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 12
Á háum hælum við smíðastörf Svalt Síðkjóll og spariskór hömluðu Björgu ekki við störfin, hún klifraði upp í tröppur til að ljúka við verkið. Á niðurdrepandi veirutímum veitir ekki af að standa saman og hafa gaman. Þrír vinir keyrðu af stað með verkfæri til að hjálpa vinkonu sem bráðvantaði aðstoð og ákváðu að gera skemmtan góða úr öllu saman. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við höfum verið að leggjaáherslu á deilisamfélag-ið undanfarið, að hjálp-ast að og skipta með okkur verkum. Við þurfum ekkert endilega að vera sérfræðingar í einhverju fagi til að hjálpast að með hin ýmsu verk. Vinnuferð okkar til vinkonu um liðna helgi er gott dæmi um deilisamfélagið, hún átti erfitt með að ná í iðn- aðarmenn til að ljúka fram- kvæmdum sem hafa staðið yfir í húsinu hjá henni í allt sumar. Hún var orðin þó nokkuð örvænt- ingarfull þegar hún bað okkur um að koma og hjálpa sér. Við sögð- um strax já, því þó svo að við séum ekki lærðir iðnaðarmenn þá getum við eitt og annað og höfum sannarlega gert ýmislegt sjálfar. Til dæmis höfum við Sigga flotað gólf í heilli íbúð og ég hef gert upp hús, svo fátt eitt sé nefnt. Fyrir vikið kunnum við ýmislegt af langri reynslu,“ segir Björg Vilhjálmsdóttir en hún fór ásamt Sigríði Melrós Ólafsdóttur vin- konu sinni og Jose Aranhi í vinnuferð til Rakelar Steinars- dóttur að Ökrum á Mýrum fyrir stuttu. Smíðagengi þetta rúllaði upp verkinu og nýtti tækifærið til að skemmta sér. Mikilvægt núna að leika sér „Við erum öll vinir og við ákváðum áður en við héldum af stað til Rakelar að við ætluðum að hafa mjög gaman. Þetta verkefni átti því líka að snúast um að borða góðan mat og skemmta okkur, dressa okkur upp og gleðjast yfir lífinu. Á síðustu og verstu tímum er mjög mikilvægt að leika sér og hafa gaman. Þessar myndir eru vissulega uppstillingar, en við vor- um samt bæði fyrir myndatöku og eftir hana að vinna á þessum stóru tækjum,“ segir Björg og Sigríður bætir við: „Við vorum ekki að saga í kjólum með slæður, því við erum ekki áhættufíklar og förum var- lega, en vissulega boraði ég og negldi í spariklæðum. Það skapar svo mikla gleði að stilla sér svona upp í sparifötunum með verkfær- in. Þetta snýst líka um tilhlökkun- ina að fara í ferðalag, að pakka niður sparifötum fyrir vinnuferð. Björg var til dæmis með þrjá kjóla með sér og ég tók tvo fínustu sparikjólana mína og þrenn skó- pör, þar á meðal háhælustu skóna sem ég á í fórum mínum,“ segir Sigríður og bætir við að nú þegar búið er að loka á alla mannfagnaði hafi þær vinkonurnar ekki tæki- færi til að fara neitt í spariföt- unum sínum. „Nú þegar ekki er hægt að fara á ball, bar, fjöldasamkomur, leikhús, eða annað, þá gerðum við bara sjálfar hátíð úr þessari vinnuferð. Tilhlökkunin var svo mikil, að fara og hjálpa til hjá vin- konu sem eldaði í okkur dýrlega góðan mat, við fengum villigölt í kvöldmat og mér leið eins og ég væri að fara á Árshátíðina með stóru Á-i og ákveðnum greini. Stóra taskan mín var full af spari- fötum, alls konar eyrnalokkum og perslufestum og háhæla skóm. Við höfðum óskaplega gaman að því máta þetta allt í sveitinni þar sem við vorum staddar í náttúru- paradísinni að Ökrum. Við fórum líka í gönguferðir og sáum seli og hvali.“ Við erum Covid-fjölskylda Verkið sem þau þurftu að vinna var að loka veggjum sem stóðu opnir, loka yfir leiðslur og panelklæða, sem og snyrta og snurfusa. „Við Rakel höfðum sjálf- ar smíðað grind þessa veggjar fyrr í sumar,“ segir Sigríður stolt en þær Björg taka fram að þau þrjú sem eru í smíðagenginu góða, gæti vel að öllum Covid-reglum. „Alveg frá því í vor þegar fyrsta bylgja reið yfir höfum við þrjú verið saman öllum stundum og þurfum því ekki að gæta tveggja metra reglunnar okkar á milli. Við skilgreinum okkur sem Covid- fjölskyldu, en við gættum þess að vera ekki ofan í Rakel og við fór- um á þremur bílum frá Reykjavík að Ökrum og stoppuðum hvergi á leiðinni. Við vorum ekki í neinu samneyti við heimamenn í sveit- inni.“ Björg segir að það sé gaman að skoða myndirnar eftir á og lesa í táknin. „Þegar við horfum á Jose þar sem hann heldur á spýtu og er með hallamál ofan á henni, sjáum við að hann er ekki með spýtuna á neinu föstu. Þetta finnst okkur táknrænt fyrir lífið og tilveruna, við erum alltaf að leita að ein- hverju jafnvægi og það er oft eins og ekkert fast land sé undir. Samt erum við alltaf með hallamálið að reyna að ná jafnvægi. Nú í Covid- ástandinu er alltaf verið að huga að tveggja metra bilinu og Sigga sýnir á einni mynd hvernig skuli mæla það. Borinn sem ég held á lofti gæti verið tákn um að lífið fer gjarnan upp og niður hjá okkur og vill stundum fara út og suður.“ Þær segja að smíðagengið hafi komið endurnært úr ferðinni og að þau bíði spennt eftir næstu vinnuferð og næsta verkefni. „Rakel stóð sig gríðarlega vel sem gestgjafi, hún var með hví- líkar veislur í öll mál. Þetta er líka táknrænt, ef þú klæðir þig upp í lífinu og gerir þitt besta og kemur vel fram við aðra, þá færðu það besta til baka. Eins og karma, að gefa og þiggja. Lífið er veisla,“ segja þær og bæta við að þær hafi tekið sérstaklega eftir því und- anfarið að það sé eins og alltaf séu jól hjá þeim. „Á Ökrum var þetta eins og gott gamlárskvöld með glimmeri, við skáluðum í freyðivíni í okkar fínasta pússi á laugardags- kvöldinu, eftir að hafa hamast sveitt við að klára verkið. Svo skveruðum við okkur í sparifötin og gerðum okkur fín. Maður þarf að skapa sínar hátíðir sjálfur.“ Táknin í lífinu Hallamál til að ná jafnvægi, borað út og suður og mælt hversu langt skuli milli manna. Glæsikjólaklæddar Sigríður mundar sögina á háu hælunum en Björg vinnur með vélsögina í þykkbotna gullskóm. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.