Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 32
Við hjá SORPU bs. leitum að lausnamiðaðri, samviskusamri og bjartsýnni manneskju
sem hefur sýnt góðan árangur við rekstur félags eða stofnana og stjórnun mannauðs.
Hún þarf að hafa góða yfirsýn og skipulagsgáfu í síbreytilegu og krefjandi starfi þess
umhverfis- og þekkingarfyrirtækis sem SORPA bs. er. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn
til að takast á við fjölbreytt verkefni og leiða metnaðarfullt starfsfólk við innleiðingu
hringrásarhagkerfisins og til að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins.
SORPA BS. LEITAR AÐ
FRAMKVÆMDASTJÓRA/-STÝRU
Framkvæmdastjóri/-stýra þarf að uppfylla eftirfarandi kröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Brennandi áhugi á umhverfismálum og innleiðingu hringrásarhagkerfisins og öllu er varðar
meðhöndlun, endurnýtingu og endurvinnslu auðlinda og úrgangs
• Reynsla af rekstri, stjórnun og mannaforráðum
• Haldbær reynsla og þekking á verkefnastjórnun og áætlanagerð
• Einstök lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Gott vald á íslensku og ensku. Önnur tungumálakunnátta er kostur
Byggðasamlagið SORPA er í eigu sex
sveitarfélaga; Reykjavíkur, Kópavogs,
Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar
og Seltjarnarness. Hlutverk SORPU bs. er
að annast meðhöndlun úrgangs og sinna
þannig lögbundinni skyldu sveitarfélaganna
og á sama tíma endurspegla áherslur
eigenda sinna í að ná markmiðum
hringrásarhagkerfisins. SORPA bs. sér um
rekstur móttöku- og flokkunarstöðvar, gas-
og jarðgerðarstöðvar, urðunarstaðar og sex
endurvinnslustöðva. Þá hefur félagið einnig
umsjón með grenndargámum fyrir hönd
sveitarfélaganna, rekur nytjamarkaðinn
Góða hirðinn og Efnismiðlun Góða hirðisins.
Starfsstöðvar fyrirtækisins eru tíu talsins og
eru höfuðstöðvar SORPU bs. að Gylfaflöt 5
í Reykjavík
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember nk.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is
Áratuga reynsla
í ráðningum
hagvangur.is