Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 32
Við hjá SORPU bs. leitum að lausnamiðaðri, samviskusamri og bjartsýnni manneskju sem hefur sýnt góðan árangur við rekstur félags eða stofnana og stjórnun mannauðs. Hún þarf að hafa góða yfirsýn og skipulagsgáfu í síbreytilegu og krefjandi starfi þess umhverfis- og þekkingarfyrirtækis sem SORPA bs. er. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að takast á við fjölbreytt verkefni og leiða metnaðarfullt starfsfólk við innleiðingu hringrásarhagkerfisins og til að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins. SORPA BS. LEITAR AÐ FRAMKVÆMDASTJÓRA/-STÝRU Framkvæmdastjóri/-stýra þarf að uppfylla eftirfarandi kröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Brennandi áhugi á umhverfismálum og innleiðingu hringrásarhagkerfisins og öllu er varðar meðhöndlun, endurnýtingu og endurvinnslu auðlinda og úrgangs • Reynsla af rekstri, stjórnun og mannaforráðum • Haldbær reynsla og þekking á verkefnastjórnun og áætlanagerð • Einstök lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum • Gott vald á íslensku og ensku. Önnur tungumálakunnátta er kostur Byggðasamlagið SORPA er í eigu sex sveitarfélaga; Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Hlutverk SORPU bs. er að annast meðhöndlun úrgangs og sinna þannig lögbundinni skyldu sveitarfélaganna og á sama tíma endurspegla áherslur eigenda sinna í að ná markmiðum hringrásarhagkerfisins. SORPA bs. sér um rekstur móttöku- og flokkunarstöðvar, gas- og jarðgerðarstöðvar, urðunarstaðar og sex endurvinnslustöðva. Þá hefur félagið einnig umsjón með grenndargámum fyrir hönd sveitarfélaganna, rekur nytjamarkaðinn Góða hirðinn og Efnismiðlun Góða hirðisins. Starfsstöðvar fyrirtækisins eru tíu talsins og eru höfuðstöðvar SORPU bs. að Gylfaflöt 5 í Reykjavík Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember nk. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is Áratuga reynsla í ráðningum hagvangur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.