Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 Málefnaleg og þörf umræða í fréttaskýr- ingaþættinum Kveik hjá RÚV 8. október sl. varpaði ljósi á mikil- vægi varðveislu ís- lenskra menningar- verðmæta svo ekki fari illa. Í þættinum kom fram að víða eru ófull- nægjandi aðstæður til varðveislu menningar- arfsins en aðeins gafst þar ráðrúm til þess að tæpa á þessu mikilvæga málefni sem varðar öryggi menningararfsins um land allt. Fjallað var um aðstæður fjölmargra opinberra stofnana sem gegna því lögbundna hlutverki að varðveita menningu og sögu þjóðarinnar. Bent var á að stjórnsýsla safna og menn- ingarstofnana er dreifð og flókin og sérhæfing mismunandi. Það kallar á samræmd viðbrögð stjórnvalda og aukna áherslu á samhenta stjórn- sýslu í málaflokknum. Sameiginleg sýn allra sem að málaflokknum koma er þó að sjálfsögðu sú að tryggja örugga og markvissa varðveislu menningarminja, sem og gott að- gengi til þekkingarsköpunar og þró- unar. Safnastefna og ný heildar- stefnumótun um málefni menningararfs undirstrikar mikil- vægi þessa. Verðug verkefni eru framundan við innviðauppbyggingu á fagsviðinu. Stjórnvöld hafa þegar markað stefnu um úrbætur, sem birt- ist í nýrri áætlun um ríkisfjármál, og gefur fyrirheit um spennandi og sam- hent átak á komandi árum. Í því sam- hengi er þó full ástæða til að minna á að margt hefur áunnist og mikil- vægar ákvarðanir til úrbóta verið teknar í safna- og varðveislumálum í gegnum tíðina. Þjóðminjasafn Íslands hefur í ára- tugi beitt sér fyrir öruggri varðveislu minja og býr nú við kjör- aðstæður til miðlunar og varðveislu þjóðminja eins og fram kom í þætti Kveiks. Á þeirri ára- tugalöngu vegferð urðu á hinn bóginn ýmis áföll. Þannig brunnu 18 bátar í varðveislu Þjóðminja- safnsins í apríl 1993 þeg- ar kveikt var í báta- geymslu safnsins en þar skorti á brunavarnir og annað eftirlit. Þá varð hin friðaða Krýsuvíkurkirkja íkveikju að bráð í ársbyrjun 2010, en hún var ómetanlegur hluti af húsasafni Þjóð- minjasafnsins sem í eru á sjöunda tug húsa. Góðu heilli voru til góðar heim- ildir um kirkjuna og uppmælingar af henni en hún var byggð árið 1857. Á grundvelli þeirra heimilda og hand- verksþekkingar hafa kennarar og iðnnemar Tækniskólans í Hafnarfirði endurbyggt kirkjuna í samvinnu Þjóðminjasafns Íslands og Vinafélags Krýsuvíkurkirkju. Á dögunum var svo endurgerðri kirkju komið aftur fyrir á sínum stað réttum áratug eftir brunann. Það er ánægjulegur áfangi og árangur sem er ekki síst fólginn í menntun fjölmargra iðnnema í við- gerðum og endurgerð gamalla húsa sem vonandi verða liðsmenn þjóð- minjavörslunnar í framtíðinni. Þjóðminjasafnið er höfuðsafn á sviði menningarminja samkvæmt skilgreiningu laga og er ætlað að vera leiðandi á sínu sviði. Það hefur því ríku lögbundnu hlutverki að gegna og starfar náið með viðurkenndum söfn- um um allt land um varðveislu menn- ingarminja allt frá landnámi. Því starfi lýkur þó í raun aldrei og stöð- ugt þarf að vera á varðbergi því þekk- ing og nýsköpun á þessu sviði er í sí- felldri þróun. Á 150 ára afmæli safnsins árið 2013 markaði mennta- og menningarmálaráðherra stefnu um að kjöraðstæður yrðu skapaðar til varðveislu þjóðminja og safneignar safnsins. Frá þeirri stefnu hefur ekki verið hvikað. Ný Varðveislu- og rann- sóknamiðstöð Þjóðminjasafns Ís- lands var vígð 5. desember 2019. Með þeim áfanga var brotið blað í þjóð- minjavörslu og safnastarfi hér á landi. Í Varðveislu- og rannsókna- miðstöðinni eru þjóðminjar varð- veittar við bestu aðstæður fyrir starf- semi á sviði þjóðminjavörslu, fjölbreyttur safnkostur muna og jarð- fundinna forngripa. Með nýrri sér- hannaðri aðstöðu varð gerbreyting á varðveislu og aðgengi að safnkosti Þjóðminjasafnsins til rannsókna, menntunar og miðlunar. Fyrir þenn- an áfanga hlaut Þjóðminjasafn Íslands hin íslensku safnaverðlaun 2020. Í umsögn dóm- nefndar segir að „Varðveislu- og rannsóknamiðstöð Þjóðminjasafns Íslands í Hafnarfirði og Kópavogi ásamt Handbók um varðveislu safn- kosts sé mikilvægt framlag til minja- verndar á landsvísu. Samstarf og miðlun þekkingar er þýðingarmikið og sú sérhæfða aðstaða sem sköpuð hefur verið fyrir varðveislu ómetan- legra minja er til fyrirmyndar og ís- lensku safnastarfi til framdráttar.“ Flókið tæknirými er í hinu sérhæfða öryggishúsnæði og búnaður sem ger- ir kleift að stjórna raka- og hitastigi fyrir hvern munaflokk. Flokkum er skipað niður í rými þar sem hita og raka er stjórnað eftir þörfum. Þær eru mismunandi eftir því hvort munir eru úr lífrænum efnum, jarðfundnir munir úr málmum og þannig mætti áfram telja. Í Þjóðminjasafninu er nú aðstaða til að taka við, rannsaka og varðveita það sem finnst við fornleifa- rannsóknir. Samtímis hafa varð- veislumálum safnkosts Ljósmynda- safns Íslands í Þjóðminjasafni verið tryggðar sérhæfðar aðstæður fyrir varðveislu ljósmynda. Eftir mikið starf og í kjölfar umfangsmikils und- irbúnings hefur svo bátum og ýmsum tækniminjum verið komið fyrir í fjar- geymslu á Eyrarbakka í samstarfi við Byggðasafn Árnesinga og er nú safn- eignin í heild komin í örugga höfn. Margir hafa lagt hönd á plóg og hefur safneigninni verið komið vandlega fyrir, m.a. við greiningu, skráningu, flutning, pökkun, forvörslu og grisj- un. Í þessu sem öðru þurfti að huga að forgangsröðun og gaf hið yfir- gripsmikla verkefni bæði tilefni og tækifæri til þess að greina hismið frá kjarnanum í samræmi við fag- mennsku og sjálfbærni í safnastarfi. Auk þess ber að geta stuðnings vel- unnara og vina safnsins sem hafa lagt málefninu lið og lyft grettistaki, m.a. með tugmilljóna króna fjárstuðningi til kaupa á búnaði og mikilvægri að- stoð við framkvæmd flutninga. Með þessum áfanga í sögu Þjóð- minjasafnsins er til orðin aðstaða til þess að styrkja samvinnu Þjóðminja- safns og annarra varðveislu- og menntastofnana. Hér er vettvangur innra safnastarfs, en ekki síður að- staða fyrir samstarfsaðila, sjálfstætt starfandi aðila á fagsviðinu, fornleifa- fræðinga, sem og aðra fræði- og vís- indamenn, nemendur, kennara og fagaðila almennt. Varðveisla menningararfsins, bæði áþreifanlegra minja og óáþreif- anlegra heimilda um sögu þjóð- arinnar, er grundvöllur þekkingar- sköpunar og þar með undirstaða vandaðrar miðlunar til almennings og safngesta. Áhugaverðri og spennandi miðlun er ætlað að efla menningar- læsi og vekja fólk til umhugsunar um líf fólks í fortíð og nútíð. Sá áfangi sem hér er til umræðu felur í sér ný- sköpun í safnastarfi og þjóðminja- vörslu þar sem haldast í hendur reynsla og nýstárlegar lausnir. Með markvissu umbótastarfi hafa verið stigin stór skref fram á við til að tryggja að frumheimildir um mannlíf hér á landi varðveitist og flytjist til komandi kynslóða, bæði til rann- sókna og betri miðlunar. Menningar- arfurinn er ótæmandi brunnur sem stöðugt má dýpka með rannsóknum og nýrri þekkingu. Þar eru óþrjót- andi tækifæri. Varðveislan snertir al- mannahagsmuni og hefur gildi fyrir mannlíf og samfélag okkar til lengri tíma litið. Það er von okkar að fengin reynsla hjá Þjóðminjasafni Íslands geti orðið öðrum söfnum og stofn- unum – sem og auðvitað sveit- arfélögum landsins og ríkisvaldinu – fyrirmynd og hvatning í því mikla starfi sem brýnt er að ráðast í með samhentu átaki. Það er verk að vinna um allt land. Ábyrgðin – hvort tveggja í þjóðlegu sem alþjóðlegu samhengi – er okkar allra. Þjóðminjar – ný viðmið í varðveislu Eftir Margréti Hallgrímsdóttur » Sameiginleg sýn allra sem að mála- flokknum koma er þó að sjálfsögðu sú að tryggja örugga og markvissa varðveislu menningar- minja. Margrét Hallgrímsdóttir Höfundur er þjóðminjavörður. Varðveisla Munir í vörslu Þjóðminjasafnsins eru vel varðveittir. Gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi fagnar í dag, 24. október, hálfrar aldar afmæli. Deildin er fyrsta deild sinnar tegundar hér á landi og var stofnuð árið 1970. Í dag eru starfræktar þrjár gjörgæslu- deildir á landinu, tvær á Landspítala og ein á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk). Fyrstu árin var talað um gjör- gæsludeild Borgarspítalans en nafn- inu hefur í gegnum árin verið breytt í gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykja- víkur við sameiningu Borgarspítala og Landakotsspítala og nú síðast í gjörgæsludeild Landspítala Háskóla- sjúkrahúss í Fossvogi. Þrátt fyrir nafnabreytingar er tilgangur deild- arinnar ávallt sá sami en þar liggja alvarlega veikir sjúklingar sem þurfa á flókinni og sérhæfðri gjörgæslu- meðferð að halda. Í gegnum árin hef- ur þekkingu á gjörgæslumeðferð fleygt fram og með tæknilegri framþróun hefur geta okkar til að framkvæma margvíslegar gjörgæslu- meðferðir aukist til muna. Samhliða þessu hefur þörfin fyrir gjörgæslu- rými aukist í samræmi við aukinn mannfjölda og mikinn fjölda ferða- manna. Árlega leggjast um 700 sjúk- lingar inn á deildina, bæði börn og fullorðnir frá landinu öllu. Gjörgæsludeildir Landspítalans skipta með sér sérhæfingu verkefna og á gjörgæsludeildinni í Fossvogi liggja skjólstæðingar sem þurfa með- ferð vegna alvarlegra fjöláverka eftir slys, brunasára, höfuðáverka og ann- arra heilaáfalla auk sjúklinga sem gangast undir flóknar æða- og bækl- unarskurðaðgerðir auk háls-, nef- og eyrnaaðgerða. Einnig liggja á deild- inni sjúklingar með alvarleg lungna- vandamál, sýkingar og önnur alvar- leg vandamál. Gjörgæsludeildinni tilheyrir einnig vöknunardeild en þar koma sjúklingar eftir skurðaðgerðir til eftirlits eftir aðgerð. Þangað koma mörg þúsund manns á öllum aldri á hverju ári. Frá því að deildin var stofnuð árið 1970 hafa orðið miklar framfarir í hjúkrunar- og læknavísindum. Til dæmis er öll skráning komin á raf- rænt form og pappír heyrir að mestu sögunni til. Hér áður fyrr voru allar skráningar og fyrirmæli handskrifuð á blöð sem fylgdu viðkomandi áfram í gegnum sjúkrahúsleguna. Í dag er tæknin þannig að öll skráning er raf- ræn og má sem dæmi nefna að öll lífs- mörk og upplýsingar frá tækjum flytjast jafnóðum í sérstakt gjör- gæsluskráningarkerfi. Þessi tækni eykur öryggi sjúklinga og gerir allt eftirlit markvissara. Á gjörgæslu- deildinni liggja lífshættulega veikir sjúklingar og ástand þeirra getur breyst á hverri stundu. Því er þetta stöðuga og nákvæma eftirlit mik- ilvægt til að geta brugðist við sem fyrst með viðeigandi meðferð. Með aukinni tækni og þessum miklu fram- förum í hjúkrunar- og læknisfræði eykst krafan um aukna sérhæfingu og þar með aukna menntun og þjálf- un. Til að bregðast við þessum auknu kröfum er í dag boðið upp á sérhæft meistaranám í gjörgæsluhjúkrun við Háskóla Íslands. Flestir hjúkrunar- fræðingar deildarinnar hafa slíka sér- hæfða framhaldsmenntun eða eru að stunda slíkt nám. Á gjörgæsludeild- inni fer einnig fram fyrri hluti sér- náms deildarlækna í svæfinga- og gjörgæslulækningum í umsjá sér- fræðinga deildarinnar. Á gjörgæsludeildinni starfa fjöl- margar starfsstéttir sem vinna sam- an í teymi við umönnun og meðferð sjúklingsins. Á deildinni starfa hjúkr- unarfræðingar, læknar, sjúkraliðar, ritarar og sérhæfðir starfsmenn ásamt því að deildin fær þjónustu frá ýmsum stoðsviðum. Þar er meðal annars um að ræða sjúkraþjálfara og sjúkrahúspresta sem eru mikilvægur hluti af starfseminni með daglegri viðkomu á deildinni. Þegar horft er til baka síðustu fimmtíu árin kemur fyrst og fremst upp í huga okkar þessar miklu fram- farir í tækni og vísindum og það hversu dýrmætur mannauðurinn og reynslan á deildinni er. Það er ekki hægt að minnast á 50 ára afmæli gjörgæsludeildarinnar án þess að nefna einn af okkar elstu og reynslu- mestu hjúkrunarfræðingum en Anna Vigdís Jónsdóttir er líklega einn reynslumesti hjúkrunarfræðingur á Íslandi sem enn er starfandi. Anna Vigdís tók þátt í stofnun deildarinnar árið 1970 og hefur með stuttum hléum starfað á deildinni alla tíð síð- an. Auk Önnu Vigdísar eru starfandi á deildinni fleiri hjúkrunarfræðingar með starfsaldur sem telst í mörgum tugum. Það er einn helsti styrkleiki deildarinnar að búa yfir svo mikilli reynslu og þekkingu sem miðlað er áfram til yngri kynslóða. Covid-faraldurinn Ekki er hægt að rita grein um gjörgæsludeild og starfsemi hennar án þess að minnast á yfirstandandi heimsfaraldur Covid-19. Önnur eins áskorun hefur ekki komið upp í öll þau fimmtíu ár sem deildin hefur ver- ið starfrækt. Í mars og apríl sl. komu upp aðstæður þar sem bregðast þurfti á miklum hraða við nýjum far- aldri veiru sem enginn þekkti. Þá kom vel í ljós sú mikla þekking og reynsla sem býr í starfsfólki deild- arinnar sem tókst á við þetta verkefni af æðruleysi og með það að leiðarljósi að gera sitt allra besta í meðhöndlun á þessum óþekkta sjúkdómi. Árangur gjörgæsludeildanna á Landspít- alanum í baráttunni við Covid-19 hef- ur vakið eftirtekt á heimsvísu og er með því besta sem um getur í heim- inum. Af því getum við öll verið stolt. Í baráttunni við Covid-19 þrefald- aðist rúmafjöldi gjörgæsludeild- arinnar í Fossvogi á örfáum dögum og starfsmannafjöldi jókst samhliða um 35%. Að stækka gjörgæsludeild sem þessu nemur getur aldrei gengið án viðkomu allra aðila, má þar meðal annars nefna iðnaðarmenn spítalans og tæknimenn auk annarra stoð- deilda. Þetta hefði ekki gengið nema með samstilltu átaki, sveigjanleika og samvinnu allra starfsmanna deild- arinnar og þeirra sem komu til að að- stoða okkur í þessum faraldri. Á tíma sem þessum kom bersýnilega í ljós hvað gjörgæsludeildin á marga vel- unnara í þjóðfélaginu sem glöddu okkur og studdu með gjöfum og góð- um kveðjum á þessum erfiðu tímum í starfseminni. Kunnum við öllum þeim bestu þakkir sem stóðu með okkur og tóku þátt í þessu stóra verk- efni. Við horfum bjartsýn til framtíðar þegar gjörgæsludeildir Landspítala verða sameinaðar á einn stað í nýjum meðferðarkjarna á nýjum Landspít- ala við Hringbraut. Það eru spenn- andi tímar framundan með nýjum áskorunum í nýju starfsumhverfi og tökum við þeim fagnandi. Til hamingju með daginn! Gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi – 50 ár í framlínunni Eftir Ólöfu S. Sigurðardóttur, Sigríði Árnu Gísladóttur og Þóru Gunnlaugsdóttur » Það er einn helsti styrkleiki deildar- innar að búa yfir svo mik- illi reynslu og þekkingu sem miðlað er áfram til yngri kynslóða. Ólöf Sveinbjörg Sigurðardóttir Ólöf er hjúkrunardeildarstjóri, Sigríður er aðstoðardeildarstjóri og Þóra er aðstoðardeildarstjóri, allar á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi. Sigríður Árna Gísladóttir Þóra Gunnlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.