Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 OPIÐ HÚS MIÐVIKUDAGINN 28. OKTÓBER KL. 17:00–17:30 Hamraborg 12 200 Kópavogur 416 0500 www.eignaborg.is ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA Efstihjalli 25, 200 Kópavogur Verð 38 millj. Upplýsingar gefur Óskar Bergsson lgfs. sími 893 2499, oskar@eignaborg.is Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð á góðum stað í Kópavogi. Dökkt harðparket er á öllum gólfum nema baðherbergi. Eldhús er með hvítri innréttingu og björtum borðkróki við glugga. Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Gengið er úr stofu út á vestursvalir. Útsýni bæði til austurs og vesturs. Komið er að viðhaldi á sameign. Íbúð – Stærð 83,5 fm Orð fá nýja merkingu við nýjar aðstæður, sbr. merkingu orðanna:grímulaus (í Bónus); heimavinnandi; og „Móðir mín í kví, kví“.Gott er að finna fyrir samstöðu manna í plágunni sem nú geisar.Gaman væri ef við gætum sameinast um fleira, til dæmis raun- verulegt átak til að bæta íslenskukunnáttu unga fólksins (og þess eldra) og gera um leið íslenskuna að eftirsóknarverðu viðfangsefni. Þá á ég ekki við það að ausa milljónatugum í rannsóknir á áhrifum ensku á mál okkar. Ég á við átak sem kostar ekki neitt. Við skulum kalla það: Lesum daglega fyrir unga fólkið. Um aldir voru sögur einmitt lesnar hér upphátt eins og Her- mann Pálsson rekur í sinni merku bók, Sagna- skemmtun Íslendinga (1962). Foreldrar hefji leikinn strax og börn þeirra fara að skilja merkingu orða. Dúa bíll mun gera mikla lukku, kannski sérstaklega línan: „Koma tár,“ þegar rifrildið um bílinn hans Dúa litla nær hámarki. – Kvöldlesturinn haldi áfram þótt börnin verði læs. Leikskólakennarar bætast í átakshópinn og síðan grunnskólakenn- arar, allt til loka grunn- skólans. Ég minnist sælla nestistíma hjá Elínu Vil- mundardóttur í Lang- holtsskóla þar sem hún las m.a. „Fimm-bækurnar“ eftir Enid Blyton. Það hefði mátt heyra saumnál detta í 30 manna bekk. Stundum fékk Elín flug- læsu nemendurna, þau Sigga, Önnu og Elías, til að leysa sig af með sprett og sprett. Svo lauk þessum indæla leik við lok barnaskólagöngunnar, því miður. Nú vilja góðir menn fjölga íslenskutímum í grunnskólum. Það er reyndar ekki beinlínis þörf á því. Það mætti nefnilega tengja íslenskuna öðrum grein- um nánari böndum. Svo dæmi sé tekið væri spennusagan Brasilíufararnir eft- ir Vestur-Íslendinginn nafnkunna, J. Magnús Bjarnason, tilvalin framhalds- saga í landafræðitímum. Hér skiptir ekki máli þó breidd sé í hópnum hvað námsgetu snertir; börnin munu sitja í leiðslu og hlusta á þennan seiðandi texta. Og nemendur af erlendum uppruna munu hrífast með og styrkja stöðu sína í samfélaginu. Í náttúrufræðinni munu þjóðsögur nýtast best, sbr. álfasögurnar sem eru áminning til okkar að ganga vel um landið því að annars muni illa fara: Kúa- smalinn á Sultum í Kelduhverfi hafði þann sið að slíta grein af rauðavið- arrunni hvert sinn er hann fór þar hjá þegar hann vantaði keyri á kýrnar – uns hann eyðilagði runninn með öllu. En um haustið fer að bera á und- arlegum veikindum í drengnum, visnaði fyrst höndin og hann hálfur og síðan veslast hann upp og deyr um veturinn. – Runnurinn var skemmtilundur huldufólksins (sjá söguna „Faðir minn átti fagurt land“. Huld I). Þannig mætti áfram telja. Í samfélagsgreinum mundi Sólon Íslandus Dav- íðs Stefánssonar sóma sér einkar vel. Það er töfrandi hljómur í texta Davíðs. Gerum þetta saman. Loks vek ég athygli Íslandssögukennara á kvæði Gyrðis Elíassonar úr nýj- ustu bók hans: Draumstoli. ÁFÖLL Í SÖGU ÞJÓÐAR Svartidauði 1402 Idrætsparken 14 02 Í kví, kví Tungutak Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com „Koma tár“ Dúa bíll er tilfinningaþrungin saga. Það getur enginn svarað því hvað sé framundan. Veiran fer sínu fram og það hefurreynzt erfitt að koma böndum á hana. Enfyrir nokkrum dögum sagði Jens Spahn, heilbrigðisráðherra Þýzkalands, að bóluefni yrði komið fyrir apríl á næsta ári. Ætla verður að maður í þeirri stöðu í Þýzkalandi búi yfir upplýsingum, sem geri honum kleift að tala á þennan veg opinberlega og þess vegna meiri líkur en minni á að svo verði. En jafnvel þótt þýzki ráðherrann reynist hafa rétt fyrir sér er ljóst að veturinn sem er fram undan verður erfiður bæði hér og annars staðar. Atvinnu- leysi er gífurlegt í okkar samfélagi og það á eftir að verða þúsundum fjölskyldna þungbært. Tregða stjórnvalda til að hækka grunnbætur atvinnuleys- istrygginga tímabundið er illskiljanleg. Ekki viljum við að fólk eigi ekki fyrir mat í okkar samfélagi en líklegt má telja að margar fjölskyldur þurfi að velja á milli þess að eiga fyrir mat eða reikningum um hver mánaðamót að óbreyttu. Það er rétt afstaða hjá stjórnvöldum að gera at- vinnufyrirtækjum kleift að lifa „plá- guófétið“ af svo vitnað sé til orðanotk- unar forsætisráðherra en það sama hlýtur að eiga við um fólk. Enginn veit hvort ferðamenn eigi eftir að birtast hér aftur næsta sumar. En er ekki alveg eins líklegt að fólk fari sér hægt fyrst í stað að leggja land undir fót? Jafnvel þótt bóluefni kæmi á fyrsta ársfjórðungi næsta árs tekur töluverðan tíma að bólusetja fólk um allan heim og þess vegna getur vel verið að ferðamenn sjáist ekki að ráði hér fyrr en á árinu 2022. Það mundi aftur hafa veruleg neikvæð áhrif á rekstur ferðaþjónustufyrirtækja, bæði Icelandair og hótela, sem standa nú tóm um land allt. Og hversu lengi getur ríkissjóður haldið þeim á floti? Hann er ekki botnlaus. Reynist þetta raunsætt mat á stöðunni er ljóst að hinir atvinnulausu sjá fram á lengra tímabil atvinnu- leysis en komið hefur upp á ævi núlifandi Íslendinga. Sá veruleiki getur leitt af sér félagslegan óróa í sam- félaginu af því tagi, sem líkja má við þau átök, sem urðu á upphafsárum verkalýðsfélaganna snemma á síðustu öld. Slíkur félagslegur órói getur svo haft víðtæk póli- tísk áhrif á því kosningaári sem senn gengur í garð og ómögulegt að sjá fyrir hver þau geti orðið. En ef horft er lengra fram á veg er alveg eins lík- legt að sum varanleg áhrif veirunnar verði jákvæð. Hún hefur knúið okkur til að nota í ríkara mæli fjar- fundatækni nútímans. Í því felst að draga mun úr endalausum ferðum, bæði embættismanna svo og við- skiptaferðum, sem mun spara mikið fé, bæði hjá hinu opinbera og í rekstri fyrirtækja. Fjarfundatæknin getur líka gert námsmönum kleift að stunda nám við erlenda háskóla án þess að vera á staðnum mestan hluta ársins, sem dregur úr námskostnaði í öðrum löndum. Og svo mætti lengi telja. Með sama hætti getur fjarfundatæknin gert það að verkum, að algengara verði að fólkið vinni heima hjá sér, sem aftur getur dregið úr húsnæðisþörf fyrir ýmiss konar atvinnustarfsemi, sem líka leiðir til sparnaðar í rekstri. Þessi tækni gerir það líka að verkum að starfs- maður getur auðveldlega búið annars staðar á land- inu – og jafnvel í öðru landi – en verið í fullri vinnu á vinnustað, sem er fjarri heimabyggð viðkomandi. Fjarfundatæknin var komin til sögunnar fyrir veir- una en það er veiran, sem hefur knúið okkur til að nýta hana eins og kostur er. En jákvæð áhrif veirunnar af þessu tagi snúast ekki bara um krónur og aura í rekstri fyrirtækja eða opinbera stjórnkerfisins. Við erum reynslunni ríkari frá hruni og gerum okkur betur grein fyrir áhrif- um stóráfalla í samfélaginu á andlega líðan fólks. Í því sambandi er ástæða til að vekja athygli á átaki Geðhjálpar þessa dagana vegna sjálfsvíga. Sú var tíðin að fjölmiðlar hér sögðu ekki frá sjálfs- vígum að óskum lögreglu vegna þess að talin var hætta á að slíkar frásagnir hefðu smitandi áhrif. Nú vitum við af eigin reynslu okkar samfélags frá hruninu, að andleg vanlíðan eykst vegna samfélags- legra áfalla og þar með líkur á sjálfsvígum. Leiðin til þess að draga úr þeim er ekki að þegja heldur tala um þennan vanda. Og það er Geðhjálp að gera á þann veg að verulega athygli vekur. Veiran er þess vegna bæði að kenna okkur að taka upp breytta hætti í mannlegum samskiptum, sem spara verulega fjármuni, svo og að takast á við ýms- ar meinsemdir í samfélaginu með beinskeyttari hætti en áður. Og það á líka við um ýmsa skipulagslega veikleika í samfélagsgerðinni. Sameining sveitarfélaga er tölu- vert á dagskrá um þessar mundir. Það blasir við að gamalt kerfi, sem á sér rætur í löngu liðnum tíma, hefur leitt af sér margfalda yfirbyggingu, sem engin þörf er fyrir og hægt að spara skattgreiðendum veru- lega fjármuni með því að sameina þau í stærri ein- ingar. Beinn ávinningur almennra borgara af því á auðvitað að vera minni skattbyrði. Annar veikleiki í samfélagsgerðinni, sem lengi hef- ur viðgengist, en tengist veirunni ekki á nokkurn hátt, er sá ójöfnuður, sem hér ríkir af manna völdum. Mikill efnamunur hefur aldrei átt við í svo fámennu samfélagi sem okkar. Hann er tilkominn vegna ákvarðana, sem kjörnir fulltrúar þjóðarinnar hafa tekið, ekki síður á vinstri kantinum en þeim hægri. Það þjóðfélagslega uppnám, sem veiran hefur vald- ið, á líka að beina athygli okkar að þeim veikleikum, sem að óbreyttu munu leiða til enn erfiðara þjóð- félagslegs uppgjörs. Hvað er fram undan? Veiran getur líka haft jákvæð áhrif. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Furðu sætir, að í öllum umræðun-um um lýðveldisstjórnar- skrána, sem samþykkt var með 98% atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu 1944, hefur ekkert verið minnst á eina grein hagfræðinnar, stjórn- arskrárhagfræði (constitutional economics), sem spratt upp úr rann- sóknum James M. Buchanans og annarra hagfræðinga á almannavali í samanburði við einkaval. Er meira að segja haldið úti sérstöku tímariti um stjórnarskrárhagfræði. Buchan- an fékk Nóbelsverðlaunin í hagfræði 1986 fyrir rannsóknir sínar á al- mannavali. Einkaval er, þegar maður fer út í kjörbúð og kaupir sér osthleif. Al- mannaval er, þegar maður fer inn í kjörklefa og krossar við einhvern kost af nokkrum, til dæmis stjórn- málaflokk til að fara með löggjaf- arvaldið næstu fjögur árin. Sá aug- ljósi munur er á einkavali og almannavali, að engin nauðung kem- ur við sögu í einkavali. Maðurinn kaupir sér ekki osthleif, nema hann vilji. Hann velur aðeins fyrir sjálfan sig. En í almannavali eru alltaf sum- ir að velja fyrir alla. Einhverjir verða undir í atkvæðagreiðslunni. Stjórnarskrárhagfræðin leitar leiða til að lágmarka nauðung í stjórnmálum. Einfaldast væri auð- vitað að krefjast einróma samþykkis við öllum stjórnlagabreytingum, en allir sjá, að það er ekki framkvæm- anlegt (þótt Íslendingar hafi farið býsna nærri því í þjóðaratkvæða- greiðslunni 1944). Buchanan og læri- sveinar hans telja því, að binda þurfi í stjórnlög ýmis ákvæði til verndar minnihlutum. Til viðbótar við hefðbundin mann- réttindaákvæði þurfi að koma regl- ur, sem torveldi meirihluta að sam- þykkja þungar álögur á minni hluta, til dæmis skatta, sem aðeins fáir bera, eða skuldasöfnun, sem varpað er á komandi kynslóðir, eða verð- bólgu, sem er ekkert annað en dulbúinn skattur á notendur pen- inga. Takmarka þurfi skattlagn- ingar- og seðlaprentunarvald rík- isins í beinu framhaldi af þeim hömlum, sem þegar eru reistar við afskiptum þess af skoðanamyndun og meðferð einkaeigna. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Stjórnarskrárhagfræði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.